Dagur - 30.10.1999, Page 10

Dagur - 30.10.1999, Page 10
26 - LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 %L ífJÐ / LAj'JmjU U j Ólafur aflar frétta árið 1975. “Það var tilviljun að ég byrjaði f frétta- mennsku eins og flest annað sem hefur komið fyrir mig í tífinu." Þeir fylgjast með því helsta sem við ber í heiminum, bræðurnir og prestssynirnir Ólafur Sigurðsson og Gissur Sigurðsson. Þeirra hlut- verk er að miðla því áfram til landsmanna gegnum sjónvarp og út- varp. ÓIi: „Það var tilviljun að ég byrj- aði í fréttamennsku eins og flest annað sem hefur komið fyrir mig í lífinu. Eg hef aldrei haft stór og skýr plön um lífið og eitthvert Iokatakmark framund- an. Hefur þú haft það Gissur? Ert þú búinn að ákveða hvar þú verður sjötugur?" Gissur (hneykslaður): „Nei, ég veit ekki einu sinni hvar ég dansa næstu jól. Einu sinni dreymdi mig um að verða flug- maður og var húinn að eyða dá- litlum tíma í að læra það en á þeim árum var svo löng bið eftir almennilegu starfi að ég gafst upp á að bíða.“ Óli: „Eg byrjaði á Vfsi þegar hann var endurreistur fyrst, 1962. Gunnar Schram var ritstjóri, ásamt Hersteini Pálssyni. Þá voru gerðar mjög miklar breytingar á blaðinu og þetta var í fyrsta skipti á Islandi, sem myndir voru mjög mikið notaðar. Það mæltist ákaflega vel fyrir. Vísir var til dæmis fyrsta blaðið sem birti hálfs dálks myndir af greina- og dálkahöfundum. Þetta var fyrir daga sjónvarps og menn urðu dálítið þekktir á þessu. Eg var á Vísi í tvö ár og það var skemmti- legur tími.“ Gissur: „Ég byrjaði á Alþýðu- blaðinu. Fór þaðan á Sjávarfrétt- ir og helgaði mig svo því starfi að rífa niður uppbyggingu Óla og félaga á Vísi með harðri sam- keppni á Dagblaðinu, sem síðan yfirtók Vísi. Þannig að það var til lítils fyrir Óla að vera að byggja upp.“ Hundurinn passaði Gissur Þeir fæddust báðir í Hraungerði í Flóa, þar sem faðir þeirra, sr. Sigurður Pálsson, síðar vígslu- biskup, var þjónandi prestur. Móðirin var Stefanía Gissurar- dóttir og börnin alls sjö, Qórir drengir og þrjár stúlkur. Þegar Gissur var 9 ára flutti fjölskyld- an til Selfoss. Ólafur stóð þá á tvítugu og búinn að hleypa heimdraganum. „Maður Ienti í því að fara að heiman 16 ára gamall og vera fyrstu árin eftir það í heimavistarskóla á veturna og vinnubúðum á sumrin." Gissur: „En við áttum ágæta æsku í Hraungerði og þar var frjálsræðið svo mikið að lítið þurfti að hafa fyrir að passa mann, hundur- inn sá um það.“ Óli: „Já, hund- urinn á heimil- inu hafði mikla ánægju af að passa Gissur. Það var dálítið merki- leg sjón, sem fleiri en ég urð- um vitni að. Gissur var að klöngrast í stiga sem var í húsinu og datt niður en hundurinn hljóp undir hann og tók af honum höggið." Sunnlenskan varð ofan á Óli: „Móðir okkar var frá Byggð- arholti í Flóa en faðir okkar af Snæfellsnesi. Þau töluðu ekki alveg sama málið, mamma sagði hvítur hvalur en pabbi kvítur kvalur. Við bræður erum í hópi þess fólks sem kann að nota hv framburðinn. Arni Böðvarsson sagði reyndar einhverntíma að best talandi íslendingur væri Sunnlendingur, sem ætti annað foreldri að norðan." Ekki telja þeir bræður þó að málfar þeirra hafi ráðið úrslitum um að þeir réðust á fréttastofur og segja ekkert í uppeldinu hafa gefið til kynna að það yrði þeirra hlutskipti. Þó hafi þeir snemma haft gaman af fréttum og mikið hafi verið hlustað á útvarp og lesið af blöðum á æskuheimil- inu. Óli: „Svo var afskaplega mikill gestagangur heima hjá okkur. Margir málsmetandi menn í þjóðfélaginu á ferð og reyndar allar tegundir af fólki. Oft gam- an í kirkjukaffi í Hraungerði. Þá komu bændurnir og ræddu mál- in. Mér fannst þeir eiga það sameiginlegt að vera skynsamir menn, sem hugsuðu mál skýrt og hafði gaman af að fylgjast með umræðum." Gissur: „Eitt af vandamálun- um sem maður býr við í fjöl- miðlastarfinu er að maður hittir alltof sjaldan fólk en situr þess meira við tölvur og skjái. Sam- skipti hafa versnað stórlega með bættri samskiptatækni.“ Óli: „Já, svo einangrast frétta- menn dálítið í að tala við þing- menn og forstjóra og að þeim ólöstuðum þá eiga þeir auðvitað ekki að vera eina tengingin við veröldina." Gissur: „I fjölmiðluninni verð- ur alltaf að hugsa um hvað selur og bullsetning úr ráðherra selst betur en gullkorn úr einhveijum bónda úti í mýri.“ Kapphlaup við tímann Þeir bræður segjast eiga það sameiginlegt að hafa áhuga fyrir sjávarútvegi og fréttum tengdum honum. Kannski vegna þess að í uppvextinum í sveitinni hafi hann verið þeim framandi og spennandi heimur. En skyldu þeir oft spjalla saman um þetta áhugamál eða önnur? Gissur: „Ekki reglulega. Við vinnum báðir mikið og erum á vöktum, ég á Bylgjunni og Óli í sjónvarpinu. En mér finnst alltaf gaman þegar við hittumst." ÓIi: „Ég segi sama. Samskipt- in eru góð þótt þau séu ekki mjög mikil. Vinnan heldur okkur föngnum og hún er skemmtileg en erfið. Flestir skemmtilegir hlutir eru þannig að það þarf eitthvað fyrir þeirn að hafa.“ Gissur: „Klukkan er samt alltaf yfir manni. Við hugsum ekki í klukkutímum, heldur mínútum og sekúndum. Við miðum skrif okkar við sekúndur og vinnum í kapphlaupi við sek- úndur í lokin." Óli: „Enda er tímaskynið þannig að það er Ijarlægt að hugsa um citthvað sem á að ger- ast eftir mánuð. Mér finnst meira að segja orðið erfitt að ákveða að ég ætli að eyða tveim- ur klukkutímum í eitthvað eins og það að horfa á bíómynd. Þeg- ar ég skrifaði um kvikmyndir í Vísi á árum áður fannst mér eðlilegt atferli að fara f bíó 1 50- 200 sinnum á ári. Nú vil ég helst gera eitthvað annað um leið og ég horfi á þátt í sjónvarp- inu, t.d. skoða tímarit." Gissur: „Það er ágætt að strauja við sjónvarpið. Mér finnst svo leiðinlegt að strauja en sjónvarpið linar þjáningarn- ar.“ GUN. í fjölmiðluninni verður alltaf að hugsa um hvað selur og bullsetn- ing úr ráðherra selst betur en gullkorn úr einhverjum bónda úti í mýri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.