Dagur - 30.10.1999, Síða 14

Dagur - 30.10.1999, Síða 14
F OG HEtLSA 30 - LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1999 Kínverskar lækn- ingar byggjast á allt öðru kerfi en vestrænar lækning- ar. Samkvæmt kín- verkri læknisfræði er heilsu viðhaldið í líkamanum með jafnvægi á yin og yang orku, og er líkaminn séður sem ein ofin heild. Á dögunum veitti land- læknisembættið nemend- um sem lokið höfðu námi í nálastungum frá Skóla hinna fjögurra árstíða, leyfi til að nota nálastung- ur til lækninga. Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir rekur skólann, en hún Iærði nálastungulækningar í há- skóla í Englandi og segist vonast til þess að námið komist inni háskóla hér á Iandi. „I nálastungnáminu Það eru margir sem hafa kynnst nálastungum sem notaðar eru við verkjum. Arnbjörg Linda Jóhannsdóttir, nátastunguiæknir, telur að sú tegund af nálastungum eigi sér fátt skylt með heildrænni kínverskri nálastungumeðferð. um að kínverskar nálastungur virka en við vitum ekki hvernig þær virka, og það er nokkuð erfitt að sætta sig við frá okkar vest- ræna sjónarhóli séð.“ Arnbjörg Linda segir skoðnir vera skiptar meðal lækna um ágæti nálastungu- mcðferðar. „Margir læknar beina sjúk- lingum sínum í nála- stungur ef þeir finna fyrir „ólæknandi" verkjum. Þeir senda einnig til okkar fólk sem er með sjúk- dómseinkenni, sem enga skýringu er hægt að finna á.“ Verða að fá námið metið „Það eru nokkrir aðilar sem stunda nálastung- ur hér á landi, og þar á meðal eitthvað af sjúkraþjálfurum, sem hafa fengið Ieyfi til þess að nota þessa teg- und lækninga eftir að hafa stundað viður- Líta á líkamann sem heild er kennd kínversk heimspeki og nála- stungulækningar. Þar með talin kínversk sjúkdómsgreining, sem er meðal annars greining á hinum 12 mismunandi púlsum úlnliða og greining á tungu. Þar er kennd punktastaðsetning og meðferð nála- stungunála til lækninga, ásamt fleiri fræð- um er tengjast kínverskum nálastungu- lækningum. Inntökuskilyrði í námið eru meðal annars þau að nemendur hafi und- irstöðu í vestrænum lækningum, Iíffæra- fræði, sjúkdómafræði og slíku. Skiptar skoðanir meðal lækna Það eru margir sem hafa kynnst nála- stungum sém notaðar eru við verkjum. Arnbjörg telur að sú tegund af nálastung- um eigi sér fátt skylt með heildrænni kín- verskri nálastungumeðferð. „Sjúkdómar eru séðir sem ójafnvægismunstur. Það er oft hægt að komast að rótum vandans með því að líta á líkamann sem heild. Segjum sem svo að það komi einhver f nálastung- ur sem þjáist af höuðverk eða mígreni. Þar sem um getur verið að ræða minnst tíu mismunandi sjúkdómsmunstur, þá er mikilvægt að greiningin sé rétt því annars mun meðferðin verða endingarstutt, og batinn álíka langvarandi og ein verkjatafla. Þessvcgna er mjög miklvægt að sjúkdóms- greiningin sé rétt til þess að hægt sé að ná með nálastungunum langvarandi bata.“ Fyrrverandi landlæknir sagði meðal annars um nálastunglækningar: „Við vit- kennt nám erlendis. Oft er þetta fólk sem hefur sérhæft sig í verkjameðferðum. Skólinn hefur verið starfræktur í einn vetur og það útskrifaðist fólkið úr þeim hópi í fyrrahaust. Síðan þá hefur skólinn staðið í hálfgerðum barningi við yfirvöld, með að fá þetta viðurkennt, en það er núna komið þannig að skólinn fer aftur af stað eftir áramótin 2000. Fólk verður að fá námið metið til starfs vegna þess að námið er bæði erfitt og krefjandi. Með þessu námi erum við vonandi að koma á einhverjum standard í nálarstungumeð- ferðum hérlendis.“ -PJESTA Svefnleysi hraðar öldrun Breska skáldið John Keats orti sonettu til svefnsins. Þar ávarpaði hann svefnin og talar um hann sem ástvin sinn. Almennt cr talið að svefnþörf fólks sé sex til átta klukkustundir á nóttu. Þó getur það verið breytilegt eftir einstaklingum. Þegar að einstaklingurinn er undir álagi þarf hann að sofa meira. Ymsar sögur eru til af svefn- þörf fólks, breska járnfrúin, Margarethe Thatcher, svaf t.a.m. aldrei meira en íjóra tíma á nóttu. Þyrnirós svaf í heila öld og vaknaði jafn ung og falleg og hún var þegar að hún fór að sofa. Kannski er það ekkert fráleitt ef marka má nýlega bandaríska rannsókn, sem sýndi fram á að skortur á svefni getur hraðað öldrun. Rannsóknin var fram- kvæmd við Læknadeild Háskólans í Chicago og Ieiddi það í ljós að svefn hefur áhrif á efnaskiptaferli og ýmsa innkyrla- starfsemi líkamans. Hún var þannig fram- kvæmd að hópur af fólki gekk til náða og fékk að sofa í átta tíma á sólarhring í viku. Síðan var sá tími styttur í fimm ldukkutíma á sólarhring í aðra viku en þriðju vikuna fékk fólkið að sofa eins og það þurfti. Vís- indamennirnir mældu meðal annars blóð- sykursmagnið, hjartastarfsemi, og fram- leiðslu hinna ýmsu hormóna. Þegar að fólkið sem þátt í rannsóknin var svipt svefni hækkaði sykurmagnið í blóðinu og fólkið sýndi ýmiskonar álagseinkenni. Því drógu þeir þá ályktun að fólk sem sé í sí- feldri svefnskuld eldist hraðar en hinir sem fá nógan svefn. Einnig kom í Ijós að svefn- leysi geti verið áhættuþáttur í sambandi við hjarta- og æðasjúkdóma. Þannig að ljóst má vera að mannkynið eigi mannkynið á Morpeheusi, draumaguði, mikið að launa. er pervert? sjálfsfróun, Iimatotti (fella- tio) og skautsleikjum (cunnilingus). Þetta fær fles- ta nútímamenn til að velta á hlið af hlátri því í dag eru þessar iðkanir fastur liður hjá nær öllu kyniðkandi og úrgrasivöxnu fólki (kannski þó að klerkur og hans biblíu- skólagengnu fylgifraukur láti slíkt vera). Handbók geð- lækna er sem betur fer end- urskoðuð reglulega og núna þegar þjóðfélagið segir að það sé gott og heilbrigt að lifa kynlífi (þöknanlegu kyn- lífi = maður + kona + kyn- færi og munnar samanliggj- andi) er getuleysi og áhuga- leysi á kynlífi talið það sjúk- lega. Fallegir meðlimir ofsótts minnihlutahóps. -------------- Það sem ekki passar Mörgum finnst lífið ógnarlegt og stórhættulegt á köflum. Við komumst í gegn- um það með því að búa okkur tíl lítinn og öruggan heim sem við þekkjum og þurf- um ekki að ótt- ast. Sumt í heim- inum okkar höf- um við fengið í arf frá fyrri kyn- slóðum og annað er þegar til staðar, búið til af því samfélagi eða þjóðfélagi sem við fæðumst inn í. Reyndari þjóðfélagsþegnar láta okkur smám saman vita hvernig er tilhlýðlegt að haga .sér, hvað á að segja, hvað á að gera og hvemig á að bregðast við ein- hveiju sem aðrir segja eða gera. Þegar einhver bregður út af van- anum veldur það okkur streitu því við missum öryggið, við þekkjum ekki og skiljum ekki og vitum bara ekkert hvað við eigum að gera í þessu og verðum kannski hálfskelkuð og upp úr því reið og ringluð. Svona verða fordómar til. Við notum tilfinninguna sem Hver óöryggið skapaði innra með okk- ur til að verja okkur ef við skyld- um nú aftur rekast á svona skringifyrirbæri og búum okkur til fyrirtaks vörn í formi alhæf- inga og fordóma. Þetta held ég að hafi til dæmis komið íyrir klerk nokkurn sem rúllaði fyrir skömmu fram á ritvöll og hóf að skrifa á sérstaklega fáfróðan máta um þá meðbræður og syst- ur okkar sem elska einstaklinga af eigin kyni. Mér er spurn hvort klerkur hafi gert sér nokkra grein fyrir því hve ritskriðan sem hann hrundi af stað er í rauninni mik- ið þarfaþing í þjóðfélagsumræð- unni um kynferðislega minni- hlutahópa okkar agnarsmáa sam- félags. Nú hafa skotist upp eins og Ioftbólur í heitum potti alls konar „andans" fólk sem skýlir sér bak við helga bók og tekur sér allt vald á himni og jörðu til að dæma stóran hóp fólks sem hef- ur sætt ofsóknum öldum saman og það vegna hins göfuga andans fyrirbæris ástarinnar. Samfélagsreglurnar Það er stórmerkilegt að skoða það, bvernig skilgreiningar á þyf sem flokkað er af samfélaginu sem ógeðslegt eða pervertískt eða sjúklegt breytist með ríkjandi tíðaranda. I fyrstu útgáfu hand- bókar geðlækninga um geðrask- anir og sjúkdóma frá 1952 (DSM) er til dæmis að finna skil- greiningar á geðröskununum Akveðnir hópar eiga þó enn- þá undir högg að sækja og það eru þeir sem stunda kynlíf sem á einhvern máta stangast á við það sem þjóðfélagið hefur ákveðið að sé „eðlilegt". Hér er ekki átt við þá sem stunda kynlíf sem felur í sér einhvers konar kúgun og of- beldi eins og kynlíf með börnum, dýrum og öðrum þeim sem t.d. vegna andlegs ástands eru ekki færir um að gefa upplýst sam- þykki við þeim athöfnum sem kunna að vera stundaðar, slíkt verður vonandi alltaf talið óá- sættanlegt. Við erum að tala um homma, lesbíur, tvíkynhneigða, skírlífa og þá sem hneigjast til BDSM (bindi og drottnunarleik- ir, sadó og masókistaleikir og munalosti , enginn skyldleiki við DSM!) svo fáeinir séu nefndir. Virðing Grunnurinn að öllu kynlífi ætti að vera öryggi, meðvitund og samþykki beggja eða allra sem taka þátt í leiknum. Þetta hljóm- ar vel, ekki satt? Kannski finnst einhverjum ótrúlegt að þeir sem hafa verið stimplaðir ofbeldis- fullir sadistar eða sjálfsmyndar- skertir og geðflæktir masókistar séu fremst á merinni í umræðu um framantalin atriði sem lúta að viðingu í kynlífi. I næsta pistli segir frá grunnreglum BDSM, sem reyndar eiga erindi til allra sem stunda kynlíf. Ragnheiður Eiríksdóttir er hjúkrunarfræðingur KYNLIF Ragnheiður Eíníksdóttin skrifar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.