Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 1
Anteríka fundin ððrasinni „Á öðru ári prestdóms síra Lafranz gjörðiz þat til tíðinda at Eiríkr konungr sendi Hrólf til Islands at leita Nýjalands." Svo segir í Lárentíusar sögu biskups um landafundi og landaleit í Vesturálfu. Var Hrólfur þessi sendur til Is- Iands árið 1289. Síðar segir: „Á þriðja ári prestdóms Laurentii krafði Hrólfr um Is- land menn til Nýjalandsferð- ar.“ Þar var árið 1291. Þessi stuttorða frásögn í Lár- entíus sögu, sem skrifuð er á 14. öld, sýnir að menn voru ekki afhuga landnámi í Vestur- heimi þótt Þorfinnur Þórðar- son og kona hans Guðríður Þorbjarnardóttir hafi gefist upp á sínu landnámi þrem öld- um fyrr. Það var Noregskon- ungur, sem einnig var konung- ur Islands, sem sendi mann út af örkinni til að finna Iandið í vestri handan hafsins og til að fá íslenska menn til að flytja þangað búferlum. Það tókst ekki enda er ætlað að veðurfar hafi farið kólnandi og farið að sverfa að norrænum mönnum á Grænlandi. Því mun Iítt hafa þótt fýsilegt að nema enn fjar- lægara land, sem að auki var byggt skrælingjum, sem ekki tóku nýjum landnemum nema mátulega vel. Þá er þess að geta að um svipað leyti voru menn hvattir til krossferða til að frelsa hina helgu gröf úr höndum vantrú- aðra og mun ferðafúsum mönnum ekki síður hafa þótt fysilegra að fara þangað en í Iítt þekkt lönd í vestri. Sjá næstu st'ðu Leifur Eiríksson sté fyrstur Evr- ópumanna á land í þeirri álfu sem síðar hlaut nafnið Amer- íka. Sagan af för hans er vel þekkt og skráð í fornum heimildum. Talið er að Leifur hafi verið á ferð fyrir einni þús- öld. Enn eru til sagnir um að Ameríka hafi fundist aftur skömmu fyrir 1300 og þá hafi verið gerð tilraun til landnáms samkvæmt konungsboði. Þá var Landa-Hrólfur á ferð. Um hann og hans ferðir er allt meira á huldu enda heimildir og fásagnir af skornum skammti.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.