Dagur - 30.10.1999, Blaðsíða 2
U-LAUGASDAGUR 30. OKIÓUER 1999
Thgur
SÖGUR OG SAGNIR
Landa-Hrólfur
Framhald afforstðu
í íslenskum annálum segir að Ei-
ríkur konungur prestahatari hafi
sent Hrólf til íslands 1289 til að
leita Njgalands og að næsta ár
hafi Hrólfur farið um Island og
krafið menn til að fylgja sér og
hef]a landnám á Nýjalandi. Þess
ber að gæta, að höfundur Lár-
entíus sögu var einnig annálarit-
ari og er Iíklegt að þarna sé að-
eins um eina heimild að ræða en
ekki tvær. Espólín segir í sínum
fræðum, að Hrólfur þessi hafi
fundið landið, en Hannes Þor-
steinsson þjóðskjalavörður bend-
ir á að þeir Aðalbrandur og Þor-
valdur Helgasynir hafi fundið
„nýja land“ árið 1285. Þeirra er
getið í Arna biskups sögu. Hann-
es minnir á, að í tveim öðrum
handritum annálsins standi
„fundust Dúneyjar", og er Hrólfs
hvergi minnst. Hannes telur að
Hrólfur hafi verið norskur mað-
ur, en ekki íslenskur, og hafi ver-
ið mikils háttar þótt hans sé ekki
víða getið. Leitt hefur verið get-
um að því að Dúneyjar séu eyj-
arnar Baccalao og Penguin við
Nýfundnaland. Sé það rétt sem
fáorðar heimildir segja um landa-
fundina 1285, þá sýnst sem Is-
Iendingar hafi fundið Ameríku
tvisvar áður en Kólumbus sté á
land á eyjum Vestur-Indía og að
hugur hafi verið í mönnum að
hefja landnám þar í annað sinn.
Það er að segja frá Evrópu því
Indíánar og Innúítar voru búnir
að hafast lengi við f Vesturheimi
áður en norrænir menn höfðu
pata af hinum miklu löndum þar.
Gísli Konráðsson er sá sagna-
ritari sem mest hefur skrifað um
Landa-Hrólf og landaleit hans.
Hann blandar saman fáorðum
heimildum um efnið og þjóð-
sagnakenndum ýkjusögum, sem
hann hefur annaðhvort samið
sjálfur eða sótt í smiðju Jóns
lærða Guðmundssonar, sagnarit-
ara, sem var hjátrúarfullur með
afhrigðum og trúgjarn eftir því.
Ekki er til neitt af skrifum Jóns
læraða um Nýjaland og Landa-
Hrólf, en Jón Espólín lætur þess
getið í sínum skrifum um efnið
að Jón hafi látið eitthvað eftir sig
um Iandaleit fyrir vestan haf um
1300.
Sagan um Hrólf hefur reynst
býsna lífsseig þótt áreiðanlegar
heimildir séu af skornum
skammti. Sfra Einar Hafliðason,
sem skrifaði Látentíus sögu var
upp á árunum 1307-1 393. Hann
skrifaði einnig Lögmannsannál
og var sögufróður í besta lagi.
Síra Einar sat Breiðabólsstað í
Vestur-Hópi í um hálfa öld.
Hann var handgenginn einum
fimm Hólabiskupum. Sagnaritar-
inn er svo nærri Hrólfi og leitinni
að Nýjalandi í tímanum, að segja
má að hann hafi verið samtíðar-
maður þeirra atburða og svo
glöggur maður var ekki líklegur
til að skálda upp landaleit eða
skrökva því upp á Eirík konung,
að hafa gert út mann til íslands
til að leita Iandsins, sem síðar var
nefnt Amerfka.
Jón lærði var uppi 1574-1658.
Eiríkur konungur Magnússon tók
við ríki í Noregi 1280 og dó 1299.
Hann sendi Hrólf til íslands til að
leita landa í vestri og fá menn til
að nema það. Samkvæmt síðari
tíma frásögn reyndi hann líka að fá
norska menn til að gerast land-
nemar, en hvorki Norðmenn né ís-
lendingar höfðu löngun í sér til að
leita svo langt til nýrrar búsetu. Þá
var og að drepsóttir plöguðu fólk
á norðurslóð og að marga fýsti
fremur að fara fara í krossferðir til
Jórsala sér til frama og sáluhjálpar
en leggja í óvissar langferðir yfir
úfin höf. Hinu má svo velta fyrir
sér hvort krossferðir reyndust
giftudrýgri þegar frá leið.
Skipsmynd úr Jónsbókarhandriti. Líklega má telja að farkostur þeirra Eiríks rauða, Leifs Eiríkssonar og Landa-
Hrólfs hafi verið líkari þessari bússu en þeim glæsilegu langskipum, sem alla jafna prýða efni frá víkingatíð.
Sé það rétt að hann hafi skrifað
eitthvað um landaleit um 1300
hefur hann það eftir annálum,
biskupsasögum eða munnmæl-
um, sem telja má sennilegt ef
tekið er tillit til þess að Gísli hafi
leitað í smiðju Jóns. Hafa þeir þá
báðir barnað söguna og bætt í
hana vættum og ókindum.
Jarðvist Jóns Espólíns sýslu-
manns og sagnaritara spannaði
árin 1769-1836. Hann mun hafa
sótt sinn fróðleik um Hrólf og
landaleit hans í forna annála.
Gísli Konráðsson var aðeins
yngri í tímanum en hann fæddist
1787 og dó 1877. Síðan hafa
fleiri sagnaritarar fjallað um
sannleikisgildi þeirra gömlu tíð-
inda, að land þeirra Bjarna Herj-
ólfssonar, Leifs Eiríkssonar og
Þorfinns Þórðarsonar, þar sem
Snorri sonur hans og Guðríðar
fæddist, hafi verið Ieitað á ný
kringum 1300 í því augnamiði
að hefja þar landnám hvítra og
kristinna manna. Enn sem kom-
ið er komast menn ekki mikið
lengra til að færa sönnur á að
Landa-Hrólfur hafi siglt vestur
um haf og hvatt Islendinga til að
flytja þangað búferlum. En vel
má gæla við þá hugsun, að hafi
það tekist, hefði vcraldarsagan
verið farin á annan veg en raun
ber vitni.
um við Grænlendinga.
Hófst för hans með því að tveir
hirðmenn Eiríks konungs Magn-
ússonar, Gauti og KetiII, fóru í
kaupferð, og fundu Hrólf á báti
úti fyrir Hornbjargi og tóku hann
um borð til hafnarleiðsögu eftir
að hafa Ient í hrakningum. En
hrakningum hélt áfram og náðu
þeir hirðmenn með Hrólf innan-
borðs til Grænlands. Þar féllu
þeir Ketill og Gauti. Skal nú grip-
ið niður í þátt Gísla Konráðsson-
ar um landafundi hans:
„Hrólfur lagi nú út frá Græn-
landi við níunda mann. Var það
ekki allskamma hríð, að þá velkti
úti. Hugði Hrólfur fast á í fyrstu
að ná Vestfjörðum á Islandi, en
fyrir því að veður bægðu þeim
mjög, bar þá langt vestur í haf, að
því er Hrólfur hugði, en er þeir
höfðu lengi siglt og meira en
viku, að sumir segja, þá sá þeir
Iand mikið og beittu undir það.
Komu því næst inn í fjörð einn
og vörpuðu þar akkerum. Hrólfur
fór á landi á báti sínum við fimm-
ta mann, að vita það, ef hann
Hrólfur finnur land
Gísli Konráðsson rekur sögu
Hrólfs í Þætti sínum af Landa-
Hrólfi og telur hann hafa verið
skagfirskan, sonur Skíða á Skíða-
stöðum. Uppvexti hans og ævin-
týrum er Iýst með þeim þrag að
sagan verður Iítt trúleg. Ungur
missir hann foreldra sína og
Iendir í miklum mannraunum,
berst við skrýmsli og forynjur,
hraktist til Grænlands og vann
þar á flagðkonu og Ienti í útistöð-
Kristófer Kólumbus sté á land á eyjunni San Salvador 12. maí 1492. Er talið að þar með hafi landnám Evrópu-
manna í Ameríku hafist, því þótt íslendingar og aðrír Norðuríandamenn hafi komið þar fyrr hófst fyrst samfellt
landnám með för Kólumbusar. Myndin sýnir er hann stígur á land og innfæddir færa honum gjafir. Vel vopnaðir
hermenn reisa merki krossins i nýja heiminum.
á Njjalandi