Dagur - 30.10.1999, Síða 3
LAUGARDAGUB 30. OKTÓBER 1999 -III
SÖGUR OG SAGNIR
L A
yrði þess var, hvertr land vera
mundi. Var það land allfagurt og
byggilegt, en engra varð Hrólfur
þar manna var eða vista eftir þá,
þar hann lenti í vog einum. Sæ-
fuglar margir voru þar með
ströndinni, en jöfð vevl gróin og
allfrjó. Engan sá Hrólfur kost
sinn að kanna þetta land með
svo fáa menn, en það þóttist
hann vita, að langt mundi það
vestur frá Islandi. Fór hann við
það aftur til skips síns og veiddi
þar og skaut fugl mikinn. er ærið
var spakur og að sjá ómannvan-
ur. En brátt Iagðir Hrólfur út, er
byr gaf, og verður þá ekki getið
um ferð hans, áður hann tók
Þrándheim í Noregi. Fór hann
þegar á fund Eiríks konungs og
bar fram skýrar jarteiknir um út-
farir þeirra bræðra, Ketils og
Gauta, og sönnuðu hásetar hans
með honum og svo um landa-
fundinn. Tók konungur þá við
Hrólfi, og gerðist hann hirðmað-
ur konungs og reyndist hinn
röskvasti maður. Komst hann í
mikla kærleika við konung. „
Sá kafli sem hér er tilfærður
um Iandafund Hrólfs er frá
hendi Gísla laus við alla útúr-
dúra og frásagnir af bardögum
og tröllum, eins og aðrir kaflar
frásögunnar eru fullur upp með
ásamt ættfærslum út og suður.
Þetta er aðeins látlaus frásögn af
því þegar Landa-Hrólfur tók
land í Ameríku og gerði sér far
um að kanna landið þótt hann
hefði hvorki mannskap né bol-
magn til mikilla leiðangra.
Sendur í landaleit
Þá er sagt að Hrólfur hafi verið
með konungi í þrjá vetur, er
hann var sendur til þess lands er
hann hafði fundið. Segir Gísli
hann hafa búist hið besta til
þeirrar farar, enda leiðangurinn
kostaður af konungi. Þar er sá
Ieiðangur sem getið er í annálum
og Lárentíus sögu, og mun
Hrólfur hafa komið til íslands
1288.
Vitnar Gísli í skrif Jóns Guð-
mundssonar lærða um þann
leiðangur. En þau blöð munu
ekki hafa fundist. Þar er sagt að
Hrólfur hafi kvænst Guðrúnu
Finngeirsdóttur bónda á Horni.
Um vesturför þeirra segir:
„Lagði hann út frá Horni í
Vesturhaf. Var hann þá lengi í
hafi, og allt bar hann norður
undir Grænland, en fyrir því að
hann vildi ekki land taka áður
hann fyndi hið nýja land, þá
beitti hann þaðan í írlandshaf,
og var þá mjög haustað, er hann
kom undir land mikið og komst
þar að landi. Þóttist hann vita,
að það mundi hið sama land vera
og hann hafði áður fundið, en þó
á öðrum stað, en hann hafði
áður að komið. Var það afar-
byggilegt, en engra varð hann
manna var og engar sáust vistir
þeirra. Mátti þar og mikinn sel
og fugl veiða. Hann hafði þá vel
60 manna. Kannaði hann landið
að því að hann mátti, en suma
lét hann vera við skálasmíð allt
að vetri og bjóst þar til vetursetu.
Litlu sfðar fundu menn hans
hvali tvo allmikla í vík einni
skammt frá skálanum, og var það
ærin vist Iiði manns um vetur-
• _
ínn.
Hér er bætt inn í frásögnina
vel kunnuglegri sögu af huldu-
konu í barnsnauð, sem kona
Hrólfs bjargaði.
„Ekki er annað sagt frá Hrólfi
vetur þennan, er hann dvaldi á
Nýjalandi.
Vesturfönini hafnað
Hrólfur bjó nú skip sitt um vorið
og sigldi brott af Nýjalandi. Er
ekki annars getið en að honum
hyrjaði þá vel. Kom hann þá til
Englands á fund Játvarðar kon-
ungs Hinrikssonar, og veitti kon-
ungur honum góðan beina, því
heyrt hafi hann getið fara Hrólfs.
Þaðan sigldi hann til Noregs og
fann Eirík konung í Þrándheimi.
Hafnaði hann Hrólfi og hafði
hann i virðingum miklum. Þótti
konungi hann hafa vel af hendi
leyst landaleytina, og er sagt, að
konungur hygði fast á að senda
þangað nýbýlinga. En það hafði
að borist í Noregi, meðan Hrólf-
ur var í för þessari, að herra
Hrafn Oddsson, hirðstjóri af Is-
landi, dó í herför með Eiríki kon-
ungi, en Þorvarður Þórarinsson
varð hirðstjóri hér út, og bisk-
upar heimtu sér staði. Staða-
Arni Þorláksson í Skálholti og
Jörundur Þorsteinsson Hólabisk-
up. Síðan var það hin næstu
misseri, að Eiríkur konungur
sendi Hrólf, sem nú var kallaður
Landa-Hrólfur, út til fslands að
krefja menn til Nýjalandsfarar.
Hrólfur er sagt að kæmi út á Eyr-
um suður og hóf þaðan ferð sína
um land að krefjast farar þessar-
ar af konungs hendi, en það er
sagt að allfári vikist undir það
mál, hversu vel og viturlega sem
Hrólfur flutti erindi sitt. Bættist
það og á , að vetur þann hafði
mjög fallið peningur manna, og
var vetur sá kallaður fellivetur í
árbókum hinum íslensku. Sagt
er að Hrólfur færi nálega um allt
Iand og krefðist fararinnar og
beiddist eftir, en sagt og að bisk-
upar og valdamenn legðust fast á
móti, en Jörundur biskup fór
utan þessi misseri. Gerðist og al-
þýða lítt fús að fara af Iandi
brott. En mest er sagt, að stór-
bædur Iegðust móti Hrólfi um
förina" Hér er sleppt upptaln-
ingu á þeim körlum.
„Hrólfur dvaldi hér fram á hin
næstu misseri, en þá gekk bólna-
sótt um land og spillti það allt
fyrir erindi Hrólfs".
Eftir þessa för sem engan ár-
angur bar að því Ieyti, að engir
íslendingar gáfu sig fram til vest-
urfarar.
Landa-llrólfur fór nú utan til
vistar með Eiríki konungi, sem
þá hóf að eggja Noregsmenn til
Nýjalandsfarar en ekki virðist
það hafa borið neinn árangur. Þá
var og enn boðin út krossferð á
Norðurlöndum og einhverjir hélt
þá í suðausturátt fremur en í
vestur. I íslenskum annálum er
getið um að menn á Islandi hafi
hafið krossferð til Jerúsalem.
Augljóst er að þar með hafi
menn orðið afhuga landnámi á
meginlandi Ameríku að sinni.
Hrólfur hafi miklar viðringar
af konungi að því er Jón lærði
segir og Gísli hefur eftir honum.
Hann varð sóttdauður 1295.
Kona hans flutti á til Islands
með syni sínum Hrólfi og sagt
var að hann byggi í Fljóum í
Hegranesi.
Fræðimenn hafa dregið í efa
sannleiksgildi frásagna af Landa-
Hrólfí. I fornum ritum eru að-
eins örfáar setningar til vitnis
um Hrólf þennan og að Eiríkur
prestahatari Magnússon hafi
sent hann til Islands til að leita
landa í vestri og nema þau. Sög-
urnar sem Gísli Konráðsson seg-
ir og hefur sumt eftir Jóni Guð-
mundssyni eru skreyttar með
ýkjusögum og hjátrú, sem dregur
mjög úr sannleiksgildi þeirra.
Hér hefur verið gerð tilraun til
að draga frásagnirnar saman en
sleppa þjóðsagnakenndu ívafi,
sem gerir þær aðeins ólæsilegri
og torráðnari.
OÓ tók saman.
AV»6<AJ\A \AV
Skólavörðustígur 4a og 4b er
reisulegt timburhús sem byggt er
fast upp að hlaðna húsinu núm-
er 4. Um það hús var íjallað í síð-
ustu grein. Bak við húsið var fal-
Iegur garður með tijám og runn-
um en núna er þar vel hirt lóð
með göngustíg að húsinu 4c. A
þessum stað byggðu Ólafur
Magnússon og Kristófer Sigurðs-
son smíðahús og smiðju, 7x18
álnir að flatarmáli þetta var árið
1884. Árið 1901 fá sömu menn
Ieyfí að byggja íbúðarhús, 9 x 20
álnir að grunnfleti, með því að
fjarlæga smíðahúsið. I fyrstu
brunavirðingunni sem gerð var á
húsinu segir að það sé byggt af
bindingi, klætt með plægðum 1 ’
borðum, pappa og járni, með
járni á þaki á plægðri súð og
pappa í milli. Niðri í húsinu er
smiðja með steinsteyptu gólfi og
járnklæddu lofti neðan á bitum.
Hæðin skiptist í smíðapláss og
eitt herbergi þiljað og ómálað.
Þar var einn ofn til upphitunar.
Rishæðin skiptist í fimm her-
bergi og tvö eldhús, allt þiljað og
málað. Fjögur af íbúðarherbergj-
unum voru með pappa innan á
þiljum og neðan á loftum. Þar
voru tveir ofnar og tvær eldavél-
ar. A efsta lofti voru fimm her-
bergi og fjögur af þeim máluð.
Þar var einn ofn.
Ólafur Magnússon byggir á
lóðinni smíðahús, 9l,2x 10l/2 álnir
að grunnflcti árið 1904. Húsið
var með eldvarnarvegg að sunn-
an og vestan. Það var gert að
íbúðarhúsi 1910 og er 4 c.
Arið 1910 ákveða eigendur að
skipta íbúðarhúsinu í tvo hluta
með eldvarnarvegg í miðju. Þá
fékk hvor hlutinn sitt brunavirð-
ingarnúmerið. Nyrðri helming-
urinn 4a, var eign Kristófers en
syðri helmingur 4b, eign Jóhann-
esar Lárussonar en Ólafur
Magnússon hafði selt honum
sinn hluta tveimur árum áður
ásamt smíðahúsinu. Lóðinni
sem fylgdi húsinu var einnig
skipt til helminga. Eftir að eig-
endur hússins höfðu gengið frá
skiptunum voru virðingarmenn
kallaðir á staðinn. I virðingu á
suðurhluta hússins segir að hús-
ið sé með 41/2 álna risi einangrað
með marhálmi í binding, klætt
með 1” borðum, pappa og járni
yfír bæði á þaki og veggjum.
Niðri tvö íbúðarherbergi, eldhús
og gangur, allt þiljað og herberg-
in með striga á veggjum og Ioft-
um og máluð. Þar er einn ofn og
eldavél. Uppi tvö íbúðarherbergi,
eldhús og gangur, allt með sama
frágangi og niðri. Þar er einnig
einn ofn og eldavél. A efsta Iofti
er eitt herbergi, þiljað og málað
með einum ofni og geymsla.
Sunnan við húsið er geymslu-
skúr með kjallara, byggður af
steinsteypu og með járnþaki á
plægðri borðasúð með pappa í
milli. Skúrinn er hólfaður í
tvennt og er ineð timhurgólfi.
-Kjallarinn 'er með sfeinsteypu-
gólfi hólfaður í tvennt og 4,/2álin
á hæð.
Við skiptinguna hélt norður-
hluti hússins gamla brunavirð-
ingarnúmerinu. Innrétting þessa
helmings var þannig. Niðri var
járnsmiðja, í henni var stein-
steypt gólf og járnfóðrað Ioft og
veggir. A hæðinni var einnig eitt
geymsluherbergi og gangur sem
hvortveggja er þiljað og málað. A
annarri hæð og efsta lofti var
herbergjaskipan eins og í hinum
hluta hússins.
Árið 1920 kaupir Eyjólfur Ey-
fells listmálari og Ingibjörg Ey-
fells eignina og setti lngibjörg
upp verslunina Baldursbrá á
neðri hæðinni ásamt vinkonu
sinni Kristínu Jónsdóttur.
Verslunin var rajög þekkt fyrir
fjölbreytta og góða vöru til
hannyrða. Þær vinkonurnar sér-
hæfðu sig í íslenska þjóðbún-
ingnum og balderuðu borðana
sem notaðir voru á þá.
Á Skólavörðustíg 4a og 4b var
mikið menningarheimili og gest-
kvæmt mjög. Húsbændum var í
blóð borið að meta og skapa
fagra hluti. Húsmóðirin vann við
verslunina og saumastofuna en
eiginmaðurinn málaði listaverk.
Eyjólfur Eyfells var lengi með
vinnuaðstöðu á loftinu í Safna-
húsinu við Hverfisgötu, einnig f
rishæð Austurbæjarskóla. Hann
hélt margar málverkasýningar og
var fyrsta sýning hans í K.F.U.M.
húsinu í Reykjavík árið 1919.
Hann var eitt ár á listaakademíu
í Dresden í Þýskalandi. Eyjólfur
hélt málverkasýningu 1936 í
Brook Street Art Gallery í
London. Flest málverkin eftir
hann eru í einkaeign, eitt þeirra,
málverk af ÞingvöIIum, prýðir
vegg í einni af setustofum
Reykjalundar. Þegar Eyjólfur
ásamt nokkrum öðrum málurum
hélt sýningu á Landakoti var
konungurinn staddur á Islandi.
Hann frétti af sýningunni og
keypti eitt málverk eftir Eyjólf.
Eyjólfur J. Eyfells var fæddur
6. júní 1886 að Seljalandsseli,
Vestur-Eyjafjallahreppi. Hann
var sonur Jóns Sigurðssonar
bónda og Guðríðar Eyjólfsdóttur.
Eyjólfur J. Eyfells lést í Reykjavík
3. ágúst 1979.
Ingibjörg E. Eyfells var fædd 4.
desember 1895 á Hálsi í
Fnjóskadal. Foreldrar hennar
voru séra Einar Pálsson og kona
hans, Jóhanna Eggertsdóttir
Briem. Ingibjörg fór ung til náms
við Kvennaskólann í Reykjavík
og útskrifaðist þaðan 1913 sama
ár og hún réðst kennari við
Kvennaskólann á Blönduósi
Hún kenndi við skólann fram til
1918. Á þessum tíma sótti Ingi-
björg einnig kennaranámskeiö.
Ingibjörg stundaði kennslu
hæði í einka- og stundakennslu.
Um árabil kenndi hún í handa-
vinnudeild Kennaraskólans og á
vegum Heimilisiðnaðarfélags
Reykjavíkur, og var lengi í stjórn
félagsins. Gerð íslenska kven-
búningsins og tóvinna voru
hennar sérgreinar. Ingibjörg E.
Eyfells lést 24. febrúar 1977.
Frctmhald á bls. 6