Dagur - 03.11.1999, Side 1
Karl Ágúst hejur brotið
heilann um íslensku
þjóðarsálina síðustu
25 ároggreip þvífeg-
ins hendi tækifæri til að
komallOO árasögu
þjóðarinnarí revíuform
- „Ó þessi þjóð“ er
frumsýnd íKajfileik-
húsinu á morgun.
Ný íslensk revía með ekki
ómerkara innihaldi en helstu við-
burðum Islandssögunnar frá land-
námi verður frumsýnd í Kafíileik-
húsinu annað kvöld. Tónlistin er
frumsamin af Hjálmari H. Ragn-
arssyni og fjórir leikarar sjá um að
bregða sér í um 80 hlutverk sam-
tals undir leikstjórn Brynju Bene-
diktsdóttur. Þau Agnar Jón Egils-
son, Karl Agúst Ulfsson, Erla
Ruth Harðardóttir og Vala Þórs-
dóttir setja sig m.a. í spor Ingólfs
Arnarsonar, Egils Skallagrímsson-
ar, danskra gengilbeina, Jónasar
Hallgrímssonar og fegurðardrottn-
inga. Dagur greip Karl Agúst, sem
ber ábyrgð á texta revíunnar, glóð-
volgan í gærmorgun þar sem hann
var staddur með gemsann sinn í
bíl inni á Sundlaugavegi og spurði
hvort þetta væri ekki fremur an-
kannalegt revíuefni, 1100 ára saga
þjóðarinnar...
Fjórir leikarar- 80 hlutverk
„Jú, jú, en ég Iít þannig á að ef
maður ætlar að komast að ein-
hveiju sannleikshroti um íslensku
þjóðina og hennar karakter þá
verður maður að líta á söguna. Eg
held að sagan skýri út ýmislegt í
okkar fari.“
- Ertu að leita að þjóðarsálinni?
Karl segist ekki hafa lagst í sögubækur til að finna einhver vel falin stórtíðindi úr sögu þjóðarinnar fyrir revíuna - hins
vegarséu viðurkenndir stórviðburðir skoðaðir frá óhefðbundnum sjónarhóli. „Við lítum t.d. á víg Hjörleifs út frá sjón-
arhorni uxans sem þrælarnir drepa."
„Já, já, ég er alltaf að þvf, hef
verið að því í ein 25 ár,“ segir Karl,
en upphaflega kom revían þó
þannig til að Asa
Richardsdóttir,
fyrrum fram-
kvæmdastjóri
Kaffileikhússins,
nefndi við hann að
sniðugt væri að
semja söngleik
eða revíu um ís-
lensku þjóðina.
„Mér leist nú
strax vel á hug-
myndina, sérstak-
lega þótti mér
spennandi að
semja einhvers
konar söngverk
fyrir svona lítið
hús, lítið svið og fáa leikara vegna
þess að söngleikir eru nú oftast
fjölmennir og hafa gríðarlega mik-
ið umleikis." Ákveðið var að land-
vættirnir, Griðungurinn, Bergris-
inn, Ornin og Drekinn, yrðu
þungamiðja verksins og að Is-
landssagan yrði tekin í „nokkrum
kollhnísum". Revían stildar því á
stærstu stundum Islandssögunn-
ar, m.a. landnámi Ingólfs og lands-
ins alls, stofnun alþingis, Vín-
landsfundinum, kristnitökunni,
siðskiptunum, svarta dauða o.s.frv.
Aðall hvers ástarsambands
Leiknum lýkur svo á Þingvöllum
árið 1944 og var ákveðið að halda
ekki lengra í átt til nútímans enda
segist Karl eiga erfitt með að
greina í sundur nútíð og fortíð.
„Við erum í gegnum allt verkið að
sundurgreina nútímann en mér
finnst spennandi að líta á fortíð og
nútíð sem óijúfanlega heild - að
skoða nútímann ekki nákvæmlega
út frá atburðum nútímans, það er
meira hlutverk áramótaskaupa og
fréttaannála.'1
- Þtí segist hafa verið að leita að
þjóðarsál íslendinga síðustu 25 ár -
hefurðu komist að einhverri niður-
stöðu?
„Eg er nú ekki kominn að end-
anlegri niðurstöðu. Mér þykir svo
óskaplega vænt um þessa þjóð að
mig langar til að skilja hana og ég
held ég sé alltaf að færast fetinu
nær því - en samt tekst henni
alltaf að koma mér á óvart. Sem
betur fer. Það er nú kannski það
sem gerir ástarsamband spenn-
andi þegar það heldur alltaf áfram
að koma á óvart.“
— Gætirðu dregið saman ífáum
orðum þínar bráðabirgðaniðurstöð-
ur?
„Við erum óskaplega mótuð af
sögu okkar, umhverfínu og lofts-
laginu sem við búum við. Við
erum öll sprottin úr þessu bænda-
og sjómannasamfélagi, þar sem
það gildir að taka snarpar tamir.
Þetta einkennir held ég allt okkar
Iíf og allt sem við tökum okkur fyr-
ir hendur og mótar þar af leiðandi
þjóðarkarakterinn töluvert mikið.
Við erum tamafólk. Annars held
ég að ég láti þetta nægja af stórum
yfirlýsingum í bili... Eg vil helst að
fólk skiÍji verkið á sinn hátt og
dragi sínar eigin niðurstöður,"
sagði Karl Agúst og kvaddi en hér
að neðan má sjá brot úr söngtexta
revíunnar, sem tekur einmitt fyrir
tarnaeðli þjóðarinnar.
Pottur er býsna víða brotinn,
betur má víst ef duga skal -
ossfyrir rass er refur skotinn
reyndar, við fyrsta hanagal.
Hreyfum þó hvorki legg né liði,
látum það danhast, kæru böm -
allt má í svaðiðfara’ ífriði
þar til upp við sprettum
ermar upp við brettum
í óverdrævið dettum
og drífum okkur í að taka töm.
LÓA
® Nýtt eldhús fyrir jól
'■ • ■■
E y;:.: ■ I'' *
Þú hefur tíma til 10. nóvember til að ákveða þig
FJÖLBREYTT ÚRVAL - STUTTUR AFGREHDSLUTÍMI
Úrval HTH-innréttinganna er mjög fjölbreytt, þar sem útfærslur geta verið
margvíslegar. Afgreiðslutími á HTH-innréttingum er fjórar vikur, en getur
farið í sex vikur ef um sérsmlði er að ræða. Ef þú ákveður þig fyrir 10.
nóvember næstkomandi getur þú fengið innréttinguna fyrir jól.
ÖLL TÆKI f ELDHÚSIÐ
Auk eldhúsinnréttinga er boðið upp á öll tæki, sem þarf í nútímaeldhús, svo
sem eldunartæki hvers konar, viftur, háfa, kæliskápa, frystiskápa, vaska,
blöndunartæki, Ijós o.fl. Séu raftækin keypt með eldhúsinnréttingunni,
bjóðast þau á heildsöluverði.
HÖNNUN OG RAÐGJÖF
Við veitum fólki ráðgjöf og leggjum fram hugmyndir að þv( hvernig best er
að haga innréttingunni þar sem þarfir fjölskyldunnar eru hafðar f fyrirrúmi.
Lfttu inn í glæsilegan sýningarsal
að Lðgmúla 8, 3. hæð
og kynntu þér málið.
Opið laugardag frá 10 til 16
Æ Ð
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
.íiitiL
S cí*-"1