Dagur - 03.11.1999, Page 8
Með uppsetningu aflæstrar vínbúðar í
verslun sinni í Kringlunni vill Nýkaup
vekja fólk til umhugsunar. Á að leyfa sölu
léttvíns og bjórs í matvöruverslunum?
Við viljum að íslendingar búi við svipað
frjálsræði í verslun og flestallar
Evrópuþjóðir hvað þetta varðar. Við
hvetjum fólk til að láta sína skoðun í Ijós
og greiða atkvæði í könnun um málið á
netmiðlinum vísir.is.
Þó smásala á áfengi sé nú í höndum Áfengis-og
tóbaksverslunar ríkisins þá er sala og dreifing
þess nú þegar á vegum ótrúlega margra aðila.
Innlendir framleiðendur, innflytjendur og byrgjar,
hótel, veitingahús og skemmtistaðir; allir koma
þeir að viðskiptum með þessa vörutegund. Þá
eru áfengisútsölur á landsbyggðinni gjarnan
staðsettar með annarri verslun og þjónustu. Þessir
aðilar hafa sýnt og sannað að þeim er fyllilega
treystandi fyrir verkefninu.
Frelsi fylgir ábyrgð. Við treystum okkur til að axla þá ábyrgð að selja léttvín og bjór
og við teljum íslendinga reiðubúna að axla þá ábyrgð sem felst í auknu verslunarfrelsi.
Á að leyfa sölu á léttvíni og bjór
í matvöruverslunum?
Greíddu atkvæði um málið á VÍSlí.lS
eða í verslun okkar í Kringlunni.
sjálfsögð þœgindi
Nykaup
or, Tv c .
>1 litíiií JUi
.ííítL
■íi/k jJndani) .'ii..uii/;‘J7 uiiaii <
gsp. Ljósmynd: Lárus Karl Iþessari auglýsingu ogVlnbúð Nýkaups IKæglunnter etnungis óáfengtvin