Dagur - 13.11.1999, Blaðsíða 10
10-LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
Dagur
ERLENDAR FRÉTTIR
S ainvel d i sríkjiuiuni
sagt að taka sig á
Líklegt er að leiðtoga-
ítmdiiT Samveldisríkj-
anna staðfesti brott-
vikningu Pakistaus.
Leiðtogafundur Samveldisríkj-
anna hófst í Durban í Suður-Afr-
íku í gær, og stendur fram á
mánudag. Elfsabet II. Breta-
drottning hóf samkomuna með
ávarpi, en aðalumræðuefni fund-
arins verður einhvers konar end-
urskilgreining á hlutverki sam-
takanna.
Einnig verður tekið fýrir mál
Pakistans, en líklegt þykir að
brottvikning landsins úr samtök-
unum verði staðfest. Skömmu
eftir að Pervez Musharraf hrifs-
aði til sín völdin í landinu var
Pakistan útilokað frá þátttöku í
starfsemi samtakanna, en endan-
leg ákvörðun um brottvikningu
beið leiðtogafundarins sem hófst
í gær. Akvörðunin er í höndum
átta ríkja framkvæmdahóps, og
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði fréttamönnum í
gær að í þeim hópi hafi ákvörðun
um brottvikningu þegar verið
tekin.
Fjölmörg önnur umræðuefni
eru á dagskrá fundarins, svo sem
skuldasöfnun þriðja heimsins,
baráttan gegn fátækt og alnæm-
isvandinn í Afríku.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, Ieggur mikla áherslu á
það að settar verði strangari regl-
ur um lýðræðisfyrirkomulag í að-
ildarríkjum samtakanna. Hann
hyggst hvetja aðildarríkin til þess
að nútímavæðast hið fyrsta og
segir nauðsynlegt að takast á við
þau erfiðu verkefni sem fylgja al-
þjóðavæðingunni.
Tony Blair hyggst þó ekki
dvelja lengi á fundinum, en ætl-
ar fyrst og fremst að brýna aðild-
arríkin til þess að bæta ráð og
gæta þess að ekki fari svo að til-
gangur samtakanna rjúki út í
veður og vind.
Fimmtíu og Qögur ríki eiga nú
aðild að samtökum bresku sam-
veldisríkjanna, en þau voru
stofnuð í árslok árið 1931 af
þeim ríkjum sem tilheyrt höfðu
Breska heimsveldinu. Skipulag
Elísabet Bretadrottning er þarna í góðum hópi.
þeirra hefur jafnan verið laust í
reipunum, en aðaláhersla í starfi
þeirra hefur verið að efla sam-
vinnu aðildarríkjanna, vera vett-
vangur fyrir skoðanaskipti og
gagnkvæma ráðgjöf. Samstarf
ríkjanna hefur einkum verið á
sviði efnahagsmála og baráttu
gegn alþjóðlegum hryðjuverkum
og eiturlyfjaviðskiptum. Engin
skylduaðild er að samtökunum,
og sum ríki sem áður tilheyrðu
Breska heimsveldinu eru ekki
meðlimir í þeim.
Thabo Mbeki, forsætisráð-
herra Afríku, var fyrsti ræðumað-
urinn í gær, og minnti hann á að
flest ríkjanna eru fátæk og eiga
við mikla erfiðleika að glíma.
Annars tók hann í sama streng
og Tony Blair. Verkefni samtak-
anna sé fyrst og fremst að vernda
réttindi almennings í ríkjunum.
Hann hvatti Ifka leiðtoga samtak-
anna til þess að reka af sér
slyðruorðið og sýna í verki fram á
að samtökin eigi sér enn tilveru-
rétt, en þau hafa haft á sér það
orð að vera fyrst og fremst dýr en
áhrifalítill kjaftaklúbbur, sem
litlu máli skipti fyrir heimsbyggð-
ina.
Engiirn sanrningur við Kína
KINA - I gær slitnaði upp úr viðræðum Bandaríkjanna og Kína, en
fulltrúar ríkjanna hafa undanfarna daga setið á fundum í Peking til
að reyna að semja um aðild Kína að Alþjóða viðskiptastofnuninni
(WTO). Litlar vonir virtust til þess í gær að takast mætti að ná sam-
komulagi, þótt hugsanlega verði reynt frekar áður en leiðtogafundur
WTO hefst í lok mánaðarins. Bandaríkin reyndu að fá Kínverja til
þess að semja á grundvelli þeirra tilboða, sem Kfnverjar gerðu í apríl
síðastliðnum, en afstaða þeirra hefur harðnað síðan þá.
Um fimmtín fórust
ITALIA - Síðdegis í gær var búið að bjarga 15 manns á lífi úr rústum
fjölbýlishússins sem hrundi til grunna á Italíu á fimmtudagsnótt.
Þrjátíu lík höfðu fundist í húsinu, en 27 manns var enn saknað. Allt
benti því til þess að meira en fimmtíu manns hafi farist. Svo virðist
sem grunnur hússins hafi ekki verið nægilega traustbyggður og gefið
sig.
Sprengjutilræði í jámbrautarlest
INDLAND - 14 hermenn létust og meira en hundrað manns slösuð-
ust í gær þegar sprengja sprakk í járnbrautarlest í indverska hlutan-
um af Kasmír-héraði. Indversk stjórnvöld telja að íslamskir skærulið-
ar beri ábyrgð á sprengjutilræðinu, en þeir hafa barist fyrir því að
Kasmír losni undan yfirráðum Indverja. A svipuðum tíma var fimm
sprengjum skotið á byggingar Sameinuðu þjóðanna og Bandaríkj-
anna í Islamabad, höfuðborg Pakistans. Nokkur hópur manna slas-
aðist.
Heilsu Tudjmans
lixaJkar
KRÓATÍA - Franco Tudjman, forseti
Króatíu, er alvarlega veikur og fer heilsu
hans stöðugt hrakandi. Hann liggur á
gjörgæslu á sjúkrahúsi í Zagreb, höfuð-
borg Króatíu, en þar gekkst hann undir
aðgerð fyrir tveimur vikum. Orðrómur
hefur verið um að hann sé haldinn
krabbameini, en það hefur ekki fengist
staðfest.
Franco Tudjman, forseti
Króatíu.
Rússar hafa Gudermes á valdi sínu
RUSSLAND - Rússneski herinn hefur hertekið borgina Gudermes í
Téténíu, en það er næst stærsta borg landsins. Vladimír Pútín skýrði
frá því í gær að rússneski fáninn hafi verið dreginn að húni í borg-
inni. Ivan Sergejev, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði að Rússar
ætli sér í eitt skipti fyrir öll að binda endi á hryðjuverkastarfsemi, sem
væri því nauðsynlegra með tilliti til þess að Rússar eru kjarnorku-
veldi. Igor Ivanov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði á fundi með
Knut VoIIebæk, utanríkisráðherra Noregs, í Helsinki í gær að Rússar
hafni alfarið allri samvinnu við Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu
(ÖSE) varðandi átökin í Téténíu.
Suharto getur ekki tapað
Wahid segist fyrir-
fram ætla að náða Wa-
hid, en ekki fjöl-
skyldu hans og vini.
Abdurrahman Wahid, hinn ný-
kjörni forseti Indónesíu, skýrði
frá því að hann myndi náða
Suharto, fyrrverandi forseta
landsins, ef hann yrði fundinn
sekur um glæpsamlegt atferli í
kjölfar rannsóknar á spillingar-
málum sem nú stendur yfir.
Samt vill Wahid að rannsókninni
verði haldið áfram, hið sanna
verði að koma fram í málinu og
hann geti hvort eð er ekki náðað
hann fyrr en eftir að réttarhöld
hafa farið fram.
Rannsóknin snýst um það
hvort Suharto og fjölskylda hans
hafi stolið milljörðum úr ríkis:
kassanum meðan Suharto var við
völd, en hann stjórnaði landinu
Suharto: Börnin hans eru sögð
geta greitt öll fjárlög Indónesíu.
með harðri hendi í meira en þrjá-
tíu ár áður en hann neyddist til
að segja af sér í kjölfar fjöldamót-
mæla á síðasta ári. Suharto er 72
ára gamall.
Wahid tók einnig fram að hann
myndi ekki náða aðra úr fjöl-
skyldu og vinahóp Suhartos,
verði þeir fundnir sekir. Suharto
yrði einungis náðaður vegna þess
að hann var forseti landsins, seg-
ir Wahid.
Suharto hefur staðfastlega
neitað því að hafa flutt stórfé úr
Iandi, en ásakanir um það hafa
verið þrálátar og áttu verulegan
þátt í því að hann hraktist frá
völdum. Fjölskylda og vinir
Suhartos áttu greiðan aðgang að
valdastöðum í landinu meðan
hann stjórnaði þar, og komust f
góðar álnir nokkuð fyrirhafnarlít-
ið að því er best verður séð.
Wahid forseti orðaði það sjálf-
ur svo að Suharto væri auðugri
en ríkið, og sagðist telja að hann
hafi í raun flutt fé úr landi. Wa-
hid hefur ennfremur sagt að
börn Suhartos væru svo rík að
þau gætu greitt úr eigin vasa þá
upphæð sem ætluð er til allra út-
gjalda á fjárlögum Indónesíu.
Haider hiðst afsökimar
AUSTURRÍKI - Jörg Haider, leiðtogi
hægri flokks þjóðernissinna, sem vann
mikinn kosningasigur fyrir skömmu, hef-
ur opinberlega beðist afsökunar á mörg-
um fyrri ummælum sínum, sem hann
segir að hafi verið ónærgætin og getað
valdið misskilningi. Haider hefur oft ver-
ið yfirlýsingaglaður og meðal annars hef-
ur hann borið Iof á stefnu þýsku nasista-
stjórnarinnar í atvinnumálum og einnig
talað vinsamlega um þýska hermenn frá
seinni heimsstyrjöldinni. Eftir kosninga-
sigur sinn um daginn hefur hann Iagt
áherslu á að hann vilji íylgja í einu og öllu
reglum lýðræðisins í Austurríki og ekki
taka sér Hitler til fyrirmyndar, enda legg-
ur hann áherslu á að komast í stjórn landsins ásamt flokki sínum. Nú
hefur hann sem sé beðist afsökunar og segist ekki vilja hafa neinn
„brúnan skugga“ hangandi yfir sér.
Jörg Haider vill ekki neinn
„brúnan skugga"yfir sér.
Sykursvkisfaraldri spáð
Alpjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) spáir því að sykursjúku fólki
muni fjölga mjög á næstunni. Stofnunin telur að eftir 25 ár muni um
300 milljónir manna um heim allan þjást af þessum sjúkdómi, en nú
er fjöldi sykursjúkra um 135 milljónir. Astæður þessarar þróunar eru
meðal annars þær að meðalaldur fólks hækkar og sykurneysla eykst
með aukinni velmegun.