Dagur - 13.11.1999, Blaðsíða 12
12- LAUGARDAGVR 13. NÓVEMBER 1999
Britannia Stadium.
Speimingiir í Stoke
Á mánudagsmorgun boða nýir eigendur Stoke City til blaðamanna-
fundar á Britannia Stadium, heimavelli félagsins í Stoke on Trent,
þar sem ný stjóm félagsins og framtíðaráform verða kynnt nánar.
Eigendaskipin á félaginu hafa vakið mikia athygli ytra og hafa
áhangendur þess þegar Iýst yfir mikilli ánægju með þau. Ætlunin er
að BBC sjónvarpsstöðin í Stoke verði með beina útsendingu frá
fundinum, sem sýnir að áhuginn og spenningurinn í borginni er mik-
m.
Islensku íjárfestarnir auk blaðamanna frá helstu Ijölmiðlum munu
snemma í fyrramálið halda með leiguflugi til Stoke, þar sem fyrst
verður íylgst með heimaleik liðsins gegn Bristol City í 1. deildinni,
sem fram fer á morgun. Eftir leik verður boðið til hátíðarkvöldverð-
ar með forvígismönnum Stoke City, þar sem borgarstjórinn í Stoke
og Þorsteinn Pálsson, sendiherra í London, verða meðal gesta auk ís-
lensku fjárfestanna og fréttafólks.
Á fréttavef Stoke City segir að „íslensku víkingarnir" séu væntan-
legir til Stoke um helgina til að fylgjast saman með leiknum gegn
Bristol City. „Ég vona að áhangendur okkar taki vel á móti Islending-
unum, svo þeir fái virkilega tilfinningu fyrir því að þeir séu velkomn-
ir til félagsins. Sunnudagurinn verður áhangendum liðsins örugglega
mjög eftirminnilegur, auk þess að þetta er stór stund í sögu félags-
ins,“ segir Jez Moxey, núverandi aðalframkvæmdastjóri félagsins.
Eggjabikariim í Smáramini um
helgina
Úrslitakeppni Eggjabikarsins í körfuknattleik karla fer fram í Smár-
anum í Kópavogi um helgina. Undanúrslitaleikirnir fara fram í dag
og hefst fyrri leikurinn milli Keflvíkinga og Grindvíkinga klukkan
15:00, en sá seinni milli Njarðvíkinga og Tindastóls frá Sauðárkróki,
klukkan 16:45. Sjálfur úrslitaleikurinn verður svo á morgun kl.
16:00, þar sem sigurvegarar leikjanna í dag munu keppa um þennan
eggjandi titil „Eggjabikarmeistarar" í síðasta skipti á þessari öld.
Lið Keflvíkinga, sem er núverandi handhafi titilsins, hefur reynd-
ar alltaf unnið hann ffá upphafi og eru þeir því ósigraðir í keppninni
frá upphafi í 22 leikjum. Það verður því örugglega keppikefli and-
stæðinganna að verða lyrstir til að slá þá út úr keppninni og spurn-
ing hvort Grindvíkingum takist það fyrstum liða í dag.
Njarðvíkingar hafa alltaf komist í undanúrslit keppninnar, en
aldrei alla leið í úrslitaleikinn. Þeir hafa leikið nítján leiki í keppninni
frá upphafi, unnið sextán og tapað þremur.
Grindvíkingar eru nú að taka þátt í undanúrslitum í þriðja sinn, en
í fyrra komust þeir alla Iið í úrslitin og töpuðu þar fyrir Keflvíkingum
í úrslitaleiknum. Þeir hafa Ieikið nítján leiki í keppninni frá upphafi,
unnið sextán og tapað þremur, eins og Njarðvíkingar.
TindastóII leikur nú í annað skipti í undanúrslitum, en árið 1998
komst Iiðið alla leið í úrslitaleikinn gegn Keflvíkingum eftir sigur á
Njarðvíkingum í undanúrslitum. Tindastóll hefur leikið átján leiki í
keppninni ffá upphafi, unnið tíu, gert eitt jafntefli og tapað sjö.
Fyrstu funleikamót vetrarins
Fyrstu tvö fimleikamót Fimleikasambands Islands í vetur verða hald-
in í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi um helgina. Fyrra mótið er haust-
mót FSI sem hefst með upphitun í dag kl. 09:30, en sjálf keppnin ld.
11:10. Keppendur eru frá Ármanni, Björk, Gerplu, Gróttu og
Stjörnunni.
Keppni í íslenska fimleikastiganum fer síðan fram á sama stað á
morgun, þar sem keppt verður í þrepum 1.-4. Keppnin í 4. þrepi
hefst kl. 09:30 og lýkur kl. 13:00 en keppni f 1.-3. þrepi hefst ld.
14:30 og lýkur kl. 18:00. Keppendur eru um 80 og koma frá Ár-
manni, Björk, Fylki, Gerplu, Gróttu, KR, Keflavík og Stjörnunni.
Golfþiug í Sandgerði iim helgina
Ársþing Golfsambands Islands er haldið í Sandgeroi um helgina og
var þingið sett í grunnskólanum ld. 16:00 í gær.
I upphafi þingsins afhenti útbreiðslu- og kynninganefnd GSI, Birni
Bjarnasyni, menntamálaráðherra, fyrsta eintakið af nýju kennslu-
myndbandi „Skólagolf'1 sem sambandið hefur látið gera, til að leið-
beina íþróttakennurum grunnskóla, við golfkennslu.
Myndbandið ásamt ýmsu fleiru sem til þarf er liður í átaki GSI til
að fjölga börnum og unglingum í golfi.
ÍÞROTTIR Á SKJÁNUM
Laugard. 13. nóv.
Fimleikar
Kl. 12:00 HM í fimleikum
Sýnt frá HM í Kína.
Fótbolti
Kl. 13:50 EURO-2000
Skotland - England
Handbolti
Kl. 16:30 Leikur dagsins
ÍR - Haukar
Körfubolti
Kl. 12:00 NBA-tilþrif
Körfubolti
Kl. 15:00 Eggjabikarinn
Undanúrslitaleikir Eggjabikarsins.
Hnefaleikar
Kl. 00:00 Hnefaleikakeppni
Sýnt m.a. frá bardaga Prins
Naseem Hamed og Cesar Soto.
Kl. 02:00 Hnefaleikakeppni
Bein útsending frá Las Vegas.
Þar mætast m.a. Evander
Holyfield og Lennox Lewis.
(Endursýnt sunnud. kl. 21:15)
Sunmid. 14. uóv.
Körfubolti
Kl. 12:20 NBA-leikur vikunnar
Körfubolti
Kl. 15:50 Eggjabikarinn
Urslitaleikur Eggjabikarsins.
Fótbolti
Kl. 17:45 Meistarak. Evrópu
Fjallað almennt um keppnina
og farið yfir leiki.
Ameríski fótboltinn
Kl. 18:45 Ameríski boltinn
Buffalo Bills - Miami Dolphins
■■■1
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA Laugard. 13. uóv.
■ körfubolti Eggiabikar ka. - Undanúrslit
I Smáranum Kópavogi Kl. 15:00 Keflavík - Grindavík KI. 16:45 Njarðvík - Tindastóll
■handbolti Úrvalsdeild karla
Kl. 16:30 ÍR - Haukar Úrvalsdeild kvenna
KI. 14:30 ÍR - ÍBV Kl. 16:30 Stjarnan - FH Kl. 15:30 Fram - Haukar Kl. 16:30 KA - Valur Kl. 16:30 Víkingur - Afturelding 2. deild karla Kl. 14:15 ÞórAk.-Framb
■ BLAK 1. deild kvenna Kl. 14:00 Þróttur Nes. - ÍS Suuuud. 14. nóv.
■ handbolti Úrvalsdeild karla
Kl. 20:00 FH- Stjarnan Kl. 20:00 Víkingur - Fram
■ körfubolti Eggjabikar karla - Úrslit
I Smáranum Kópavogi Kl. 16:00 Úrslitaleikur 1. deild karla KI. 14:00 Stjarnan - Þór Þorl. Kl. 20:00 ÍR - ÍS KJ. 20:00 Breiðablik - Selfoss Kl. 15:30 ÍV-Valur
■blak 1. deild kvenna Kl. 19:30 Þróttur - Víkingur
BlUí STBIAK
Sími 462 3500 * Hölabraut 12 • www.nett.is/borgarbio
ÖÖLBY
Sýnd um heigina kl. 15
Sýnd laugard. kl. 17,19,21 og
23.
Sýnd um helgina
Mánud. kl. 17 og 19
Sýnd um helgina kl. 17
Sýnd um helgina kl. 15
og 16.15
■ ■■■■■■■■ ■■■■!■ .......... ■■■■■■ ■■■■■»■■■■■■■■ ■■ ■■■■»!■■■■«■»■ |i i u iLliuniiniiiniiiiiiiiniiiíiiiiiiniiiInli i ÍII ]