Dagur - 13.11.1999, Qupperneq 8
o
vm -LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
Biskup hvetur til þess að í söfnuðum landsins verði myndaðir starfshópar
tif að styðja kristniboð og hjálparstarf.
Kristniboðs-
dagurinn
Kirkjustarf
Sunnudagur 14. nóvember
- Kristniboðsdagurinn
AKUREYRARKIRKJA
Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Guðlaugur Gunnars-
son kristniboði predikar. Altarisganga. Tekið
við framlögum til kristniboðsins. Kaffisala
Kristniboðsfélags kvenna í félagsheimili
KFUM og K í Sunnuhlíð eftir guðsþjónust-
una. Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyrar-
kirkju í kapellu kl. 17. Æðruleysisguðsþjón-
usta kl 20:30. Kaffisopi í Safnaöarheimilinu
á eftir. Mánudagur: Biblíulestur í Safnaðar-
heimilinu kl. 20 í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar.
GLERÁRKIRKJA
Barnasamvera og guðsþjónusta kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Foreldrar eru hvattir
til að mæta með börnunum. Guðlaugur
Gunnarsson kristniboði predikar. Fundur
Æskulýðsfélagsins verður kl. 18.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, AKUREYRI
Messa laugardag kl. 18. Messa sunnudag
kl. 11.
HJÁLPRÆÐISHERINN, AKUREYRI
Sunnudagaskóli kl. 11. Bænastund kl.
16:30. Almenn samkoma kl. 17. Unglinga-
samkoma kl. 20. Heimilasamband mánu-
dag kl. 15.
SJÓNARHÆÐ, AKUREYRI
Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13:30. Al-
menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Barna-
fundur kl. 18 mánudag. Allir krakkar vel-
komnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN, AKUREYRI
Bænastund og brauðsbrotning kl. 20 laug-
ardag. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl.
11:30. Kennsla fyrir alla aldurshópa. G.
Theodór Birgisson kennir um Bæn. kl.
16:30 verður vakningasamkoma. Salmína
Ingimarsdóttir mun predika. Barnapössun.
Fyrirbænaþjónusta.
KFUM OG K, SUNNUHLfÐ
Krisniboðssamkoma kl. 20:30 laugardag.
Guðlaugur Gunnarsson kristniboði talar og
sýnir nýjar myndir frá Eþíópíu. Samskot til
kristniboðsins.
AGLOW, AKUREYRI
Konur ath. Það verður Aglowfundur mánu-
dagskvöldið 15. nóv. nk. kl. 20 í Félagsmið-
stöð aldraðra, Víðilundi 22, Akureyri. Katrín
Þorsteinsdóttir verður með hugvekju.
Söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjónusta.
Kaffihlaðborð. Þátttökugjald kr. 350. Allar
konur eru hjartanlega velkomnar. Stjórnin.
LAUGALANDSPRESTAKALL
Fjölskylduguðsþjónusta með sunnudags-
skólaívafi í Möðruvallakirkju og hefst hún
kl. 11. Skúli Torfason leiðir í leik og söng.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 13:30 í
Kaupangskirkju þar sem væntanleg ferm-
ingarbörn taka þátt. Á eftir langar mig að
funda með foreldrum fermingarbarna og
vona ég að sem langflestir sjái sér fært að
mæta. Hannes.
STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11. Barnakórsæfing kl.
11:50. Guðsþjónusta kl. 14. Æskulýðsfund-
ur mánudagskvöld kl. 19:35 í Árskógar-
skóla.
HRÍSEYJARKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11. Æskulýðsfundur
verður á þriðjudag kl. 17:30 i Öldu.
ÞORLÁKSKIRKJA
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Messa kl. 14:00.
Altarisganga. Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Hádegis-
bænir þriðjudaga til föstudags kl. 12:10.
Sóknarprestur.
HVERAGERÐISPRESTAKALL
Sunnudagaskóli í Hveragerðiskirkju kl.
11:00. 90 ára vígsluafmæli Kotstrandar-
kirkju kl. 14:00. Biskup íslands Herra Karl
Sigurbjörnsson prédikar. Kirkjukór Hvera-
gerðis- og Kotstrandarsókna syngur. Org-
anisti Jörg E. Sondermann. Kirkjukaffi í
„Básnurn" eftir messu. Jón Ragnarsson.
EYRARBAKKAPRESTAKALL
Barnaguðsþjónusta i Eyrarbakkakirkju kl.
11. Messa í Stokkseyrarkirkju kl. 14.
Sóknarprestur.
HOLTSPRESTAKALL í ÖNUNDARFIRÐI
Almenn guðsþjónusta í Flateyrarkirkju kl.
11. Barnastarf á sunnudögum kl. 11:15 skv.
nánari auglýsingu. Nýtt fræðsluefni. Guð-
spjalliö í myndum, ritningarvers, bænir,
sögur, söngvar. Afmælisbörn fá sérstakan
glaðning. Hátíðarguðsþjónusta í Holts-
kirkju kl. 14. Minnst 130 ára afmælis kirkj-
unnar í Holti. Herra Sigurður Sigurðsson
vígslubiskup Skálholtsstiftis prédikar. Sr.
Gunnar Björnsson.
LÁGAFELLSKIRKJA
Tai-se guðsþjónusta kl. 20. Athugið breytt-
an tíma. Jónas Þórir stjórnar tónlist með
léttri sveiflu. Barnastarf i safnaðarheimili kl.
11. Jón Þorsteinsson.
ÁRBÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta á kristniboðsdaginn kl. 11
árdegis. Sr. Kjartan Jónsson kristniboði
prédikar. Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur.
Organleikari: Pavel Smid. Einnig syngur
barnakór kirkjunnar undir stjórn Margrét-
ar Dannheim. Arndís Fannberg og Krist-
veig Sigurðardóttir syngja í guðsþjónust-
unni. Tekið á móti framlögum til kristni-
boðsstarfsins eftir guðsþjónustuna. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
guðsþjónustuna. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Nemendur úr tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar, þær Védís Ólafsdóttir og
Kristrún Friðriksdóttir, leika saman á fiðlu
og pianó. Bænir-fræðsla, söngvar, sögur
og leikir. Foreldar, afar, ömmur eru boðin
hjartanlega velkomin með börnunum.
Prestarnir.
Yngri deild æskulýðsfélagsins kl. 20-22.
„Kirkjuprakkarar". 7-9 ára kl. 16-17 á
mánudögum. TTT starf fyrir 10-12 ára kl.
17-18 á mánudögum. Eldri deild Æsku-
lýðsfélagsins kl. 20-22.
BREIÐHOLTSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa á sama
tíma. Altarisganga. Sr. Guðný Hallgríms-
dóttir messar. Organisti: Daníel Jónas-
son. Tekið við gjöfum til kristniboðs-
starfsins eftir messu. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA
Kl. 11. Messa. Prestur sr. Magnús
Björnsson. Organisti: Kjartan Sigurjóns-
son. Sunnudagaskóli á sama tima. Léttur
málsverður eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Lofsöngvar frá
Taize verða sungnir. Einnig syngja söng-
nemendur frá Söngskólanum í guðsþjón-
ustunni. Organisti Lenka Mátéová.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón
Margrét Ólöf Magnúsdóttir. Prestarnir.
Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum
kl. 17-18. Æskulýösstarf fyrir 9.-10. bekk
á mánudögum kl. 20-22. Bænastund og
fyrirbænir mánudaga kl. 18. Tekið á móti
bænaefnum í kirkjunni.
GAFARVOGSKIRKJA
Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11.
Prestur sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Um-
sjón: Hjörtur og Rúna. Barnakór kirkjunn-
ar yngri deild syngur, stjórnandi er Odd-
ný Þorsteinsdóttir. Fulltrúi Kristniboðs-
sambandins kemur og kynnir kristniboð.
Organisti: Hörður Bragason. Sunnudaga-
skóli í Engjaskóla kl. 11. Prestur sr. Vig-
fús Þór Árnason. Umsjón: Signý, Guðrún
og Guðlaugur. Guðsþjónusta í Grafar-
vogskirkju kl. 14. Sr. Kjartan Jónsson
kristniboði, prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur. Einsöngur:
Ingibjörg Aldís. Organisti: Hörður Braga-
son. Hjúkrunarheimilið Eir. Guðsþjónusta
kl. 15.30. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti: Hörður Braga-
son.
Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænar-
efnum í kirkjunni alla virka daga frá kl. 9-
17 í síma 567-9070.
HJALLAKIRKJA
Lofgjörðarguósþjónusta kl. 11. Sr. íris
Kristjánsdóttir þjónar. Kór Snælandsskóla
syngur og leiðir safnaðarsöng. Stjórnandi
Heiðrún Hákonardóttir. Undirleikari Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Barnaguðsþjón-
usta i kirkjunni kl. 13 og i Lindaskóla kl.
11. Barnakór Lindaskóla kemur í heim-
sókn i kirkjuna. Stjórnandi: Hólmfríður
Benediktsdóttir. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18.
Æskulýðsfélag fyrir unglinga 13-15 ára kl.
20.30 á mánudögum. Prédikunarklúbbur
presta í Reykjavikurprófastsdæmi eystra
er á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Umsjón
Dr. Sigurjón Arni Eyjólfsson.
KÓPAVOGSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11. Messa á sama tíma. Alt-
arisganga. Prestur sr. Guðni Þór Ólafs-
son. Organisti: Hrönn Helgadóttir.
SELJAKIRKJA
Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Framhalds-
saga - mikill söngur og fræðsla. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Ágúst Einarsson pré-
dikar. Auður Guðjohnsen nemandi í
Söngskólanum í Reykjavík syngur ein-
söng. Félagar úr kirkjukórnum leiða al-
mennan safnaðarsöng. Organisti er Gróa
Hreinsdóttir. Sóknarprestur.
KFUK fundir á mánudögum. Kl. 17.15
stelpustarf á vegum KFUK og kirkjunnar
fyrir 6-9 ára og kl. 18.30 fyrir 10-12 ára.
Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-
12.
ÁSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjón-
usta kl. 14:00. Guðríður Þóra Gísladóttir
syngur einsöng. Kaffi eftir messu. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA
Barnamessa kl. 11:00. Léttir söngvar,
biblíusögur, bænir, umræður og leikir við
hæfi barnanna. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Prest-
ur sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
TTT æskulýðsstarf fyrir 10-12 ára kl.
mánudag 17:00.
DÓMKIRKJAN
Laugardagur: Kirkjunefnd kvenna Dóm-
kirkjunnar heldur basar kl. 14:00 i safn-
aðaheimilinu. Föndur, kökur, ýmsir
mundir. Selt verður vöfflu-kaffi.
Guðsþjónusta kl. 11:00 í tilefni Kristni-
boðsdagsins í umsjá kristniboðs- og
hjálparstarfshóps Safnaðarfélagsins.
Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur
undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar.
Nemendur Söngskólans í Reykjavík
syngja einsöng. Prestur sr. Jakob Á.
Hjálmarsson.
Messa í Kolaportinu kl. 14:00 í sam-
vinnu við Miðbæjarstarf KFUM-K.
Prestar sr. Jakob Á. Hjálmarsson, sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Bjarni
Karlsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Guðsþjónusta kl. 10:15. Karlmenn leiða
söng. Organisti Kjartan Ólafsson.
Prestur sr. Hreinn S. Hákonarson.
GRENSÁSKIRKJA
Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl.
11:00. Kirkjukór Grensáskirkju. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
Kristniboðsdagurinn. Fræðslumorgunn
kl. 10:00. Litið um öxl. Þjóðkirkja Is-
lands á 20. öld: Sr. Siguður Árni Þórð-
arson. Messa og barnastarf kl. 11:00.
Hópur úr Mótettukór syngur. Oranisti
Hörður Áskelsson. Sr. Jón D. Hró-
bjartsson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Lárusi Halldórssyni. Magnea
Gunnarsdóttir, nemandi Söngskólans i
Reykjavik, syngur einsöng.
LANDSPÍTALINN
Messa kl. 10:00. Sr. Ingileif Malmberg.
HÁTEIGSKIRKJA
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl.
11:00. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir.
Messa kl. 14:00. Organisti Douglas A.
Brotchie. Sr. Gylfi Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA
Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl.
11:00. Gradualekór Langholtskirkju
syngur. Einsöng syngja Dóra Steinunn
Ármannsdóttir og Regína Unnur Ólafs-
dóttir nemendur Söngskólans í Reykja-
vík. Fermd verður Elín Vigdís Guð-
mundsdóttir, Frostaskjóli 27, Rvk.
Prestur sr. Gylfi Jónsson. Organisti Jón
Stefánsson. Kristniboðsdagurinn - tekið
við framlögum. Kaffisopi eftir messu.
Barnastarf I safnaðarheimiiinu kl.
11:00. Umsjón Lena Rós Matthíasdóttir
og Bryndís Baldvinsdóttir.
LAUGARNESKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00.
Organisti Bjarni Jónatansson og Kór
Laugarneskirkju leiðir söng. Hrund Þór-
arinsdóttir stýrir sunnudagaskólanum
með sínu fólki. Prestur sr. Bjarni Karls-
son. I tilefni af Kristniboðsdeginum
segir Eþiópíumaðurinn Beyeni Gailassie
frá gildi kristinnar trúar meðal landa
sinna. Við kirkjudyr gefst fólki kostur á
fjárframlögum til íslenska Kristniboðs-
sambandsins.
Messa kl.13:00 í Dagvistarsalnum Há-
túni 12. Þorvaldur Halldórsson syngur,
organisti Bjarni Jónatansson. Gréta
Scheving og sr. Bjarni Karlsson þjóna.
Kvöldmessa kl. 20:30. Prestar eru hjón-
in sr. Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn
Bolladóttir. Djasskvartett Gunnars
Gunnarssonar leikur og Kór Laugarnes-
kirkju leiðir söng.
Morgunbænir mánudag kl. 6:45. 12
sporahópur mánudag kl. 20:00.
NESKIRKJA
Laugardagur: Félagsstarf aldraðra kl.
13:00. Ekir um nýju hverfin i Hafnarfirði
undir leiðsöng Jóhanns G. Bergþórs-
sonar. Kaffiveitingar í KFUM og K hús-
inu i Hafnarfirði. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Átta til niu
ára starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl.
14:00. Sr. Frank M. Halldórsson.
TTT, 10-12 ára starf mánudag kl. 16:00.
Kirkjukór Neskirkju æfir mánudag kl.
19:00. Nýir félagar velkomnir. Fótsnyrt-
ing á vegum Kvenfélags Neskirkju
mánudag kl. 13-16. Upþl. í síma 551
1079. Mömmumorgnar alla miðviku-
daga kl. 10-12.
SELTJARNARNESKIRKJA
Messa kl. 11:00. Barnastarf á sama
tíma. Gunnar Bjarnason prédikar og
kynnir Gideonfélagið. Félagar úr Gid-
eonfélaginu lesa ritningarlestra. Börn
og unglingar úr öllum þáttum æsku-
lýðsstarfsins syngja lagið „Ef þú vilt
verða eitthvað" úr kvikmyndinni Sister
Act. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir.
Prestur Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Æskulýðsfélagið kl. 20-22.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN
Guðsþjónusta kl. 14:00. Barnastarf á
sama tíma. Maul eftir messu.
FRIÐRIKSKAPELLA
Kyrrðarstund i hádegi mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu að
stundinni lokinni.
Hinn árlegi kristniboðsdagur
þjóðkirkjunnar er á morgun,
sunnudaginn 14. nóvember, en
kristniboðsins er jafnan minnst
sérstaklega annan sunnudag í
nóvember. Er þá sérstaklega vak-
in athygli á kristniboði meðal
heiðingja og í mörgum guðsþjón-
ustum tekin samskot til styrktar
starfínu.
I fréttabréfí, sem Kristniboðs-
sambandið hefur sent prestum
landsins, segir Karl Sigurbjörns-
son biskup m.a.: „Kirkjan er
sendiför að boði frelsarans til að
gera allar þjóðir að lærisveinum,
skíra og kenna. Allt Iíf og vitnis-
burður kristins safnaðar er liður
í þeirri sendiför. Bið ég presta að
minnast þess við guðsþjónustur
dagsins og hvetja söfnuði sína til
að láta fé af hendi rakna til ís-
lenska kristniboðsins í Kenýu og
Eþíópíu. Þar á íslenska þjóð-
kirkjan dóttursöfnuði, söfnuði
sem eru til komnir vegna fórna
og framkvæmda íslenskra
kristniboða og kristniboðsvina.
Þau treysta á okkur. „ Biskup
hvetur til þess að í söfnuðum
landsins verði myndaðir starfs-
hópar til að styðja kristniboð og
hjálparstarf enda væri það gott
verkefni í tilefni kristnihátíðar og
dýrmæt afmælisgjöf. „Við höfum
þakkarskuld að gjalda og kær-
Ieiksskyldum að gegna,“ segir
biskup.
í Eþíópíu og Kenýu, þar sem
íslenskir kristniboðar hafa verið
að verki í mörg ár, eru starfsskil-
yrði góð. Lúthersku kirkjurnar í
þessum Iöndum vaxa mjög ört.
Víða eru kirkjur troðfullar. Þó
bíður enn fjöldi fólks eftir því að
fulltrúar kirkjunnar komi á
heimaslóðir þess og flytji því
fagnaðarerindið. Þá fylgir
kristniboðinu jafnan skólahald,
heilsugæsla og annað hjálpar-
starf sem fólkið kann vel að
meta. - Fimm kristniboðar eru
nú að störfum ytra á vegum
Kristniboðssambandsins.
Kristniboðssambandið styrkir
einnig útvaipssendingar á kín-
versku en Islendingar boðuðu
kristna trú í Kína fyrir valdatöku
kommúnista. Ymsar hömlur eru
á kristilegu starfi þar í landi.
Bannað er að fræða börn um
trúna og þau mega ekki koma í
kirkju fyrr en þau eru átján ára.
Alla söfnuði á að skrá hjá yfir-
völdum. Kristnir menn utan
Kína hafa nú um alllangt skeið
framleitt dagskrárefni handa
börnum og fullorðnum á kín-
versku og útvarpa því inn í Kína.
Berast útvarpsstöðvunum sífellt
bréf frá Kínverjum sem hlusta á
dagskrárnar og þakka fyrir þær.
Nánari fréttir af starfi Kristni-
boðssambandsins má lá á vef-
síðu þess, http://sik.torg.is
íslendingaþættir
birtast í Degi alla
laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á
tölvutæku formi.
í SLENDÍN G AÍ/ET TIK