Dagur - 27.11.1999, Blaðsíða 3

Dagur - 27.11.1999, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 -UI SÖGUR OG SAGNIR Kirkjustarf Sunnudagur 28. nóvember - fyrsti sunnudagur í aðventu Læknishúsið á Hesteyri. Kagrafell ber hæst í baksýn. Ferðafólk á leið til Staðar í Aðalvík. Guðríður Lára á Prestbakka og Aöalsteinn Eiríksson skólameistari. Mynd: ÁS. júlí 1994. Sigurði faktor tókst skjótt og vel að koma upp kirkjunni vegna gjafmildi og áhuga Markúsar Bulls. En þegar reyndin varð, að kirkjugarðurinn var mjög grýtt jörð, hófu Norðurstrandamenn einum rómi máls á heimagrafreit í Höfn, sem mjög forn hefð var fyrir, þó að ekki væri Iíksöngshús- inu haldið við síðan á 18. öld. Þegar menn þar aftóku að verða gjaldskyldir í Hesteyrarsókn og eiga þar kirkjuleg, en ekki framar á Stað, gat alls ekki orðið úr skiptingu Sléttuhrepps í 2 sóknir. Og þeir áttu bandamann, sem var síra Páll Sívertsen, prestur Aðalvíkursveitar síðan 1876, þegar hann fór norður úr Ogur- þingum. Hornstrendingar komu á bát fyrir Kögur og Straumnes með kistu, minningar sínar og söknuð, inn á Aðalvíkina. Gengu svo berhöfðaðir, þessir styrku og seigu Vestfirðingar, heim að Stað. Nokkur bið varð þar, ef óhætt virtist veðurs. Annars at- höfn slík, sem skyldugt var í skemmstan máta. Hin leiðin var um Kjaransvíkurskarð, svo út afar langan Hesteyrarfjörðinn, sem er úr botni að nýja kirkju- staðnum fullir 7 km. Aldeilis ósvinna, eins og segir í aldamóta- heimild norðanað. Þrautin var ekki unnin, þótt komið væri að Hesteyri. Utkirkjuvegur prestsins var mjög langur og oft erfiður. í greinaskrifum í Þjóðviljanum unga kemur glöggt fram, hverjir flokkadrættir voru um kirkju- flutningsmálið á vígsluhaustinu. 60 heimili eru f Sléttuhreppi og 426 manns í hinni gamalgrónu Staðarsókn. 10 heimili á Hest- eyri og spáð, að þar yrði nokkur fjölgun. Lögð er þung áherzla á þetta: að Strandamenn fengi lík- hús að Höfn, því að svo langt sé að bera og draga kistu að Hest- eyri, og hefði oft meiri kostnað í för með sér en að flytja sjóleiðina að gamla kirkjustaðnum. Einnig stórlega dregið í efa, að nothæf jörð fínnist á Hesteyri fyrir graf- reit. Kom það á daginn eins og þegar getur. Fyrir rás viðhurðaiuia Við svo búið sat og var Hesteyrar- kirkja utan lagaramma sóknar- kirkju, en þó alls ekki utan við Iög og rétt. Hún var safnaðar- laust guðshús til messuhalds, reist í krafti hugsjónar hins fljót- ráða faktors af fé atvinnurekand- ans. Ekki hverful blekking, en einstök þorpsprýði. Takmarkað gagn. Sléttuhreppsbúar vildu standa saman áfram í afskeldvt- um víkum milli bjarga og fjalla- virkja. Og nýja kirkjuhúsið varð glæsilegt tákn lokanna. Aðalvík- ursveit var ekki í framtíð þessa lands og þjóðlífs. Þegar síra Páll hafði látið gera þann minnis- varða, sem kirkjan er á Stað sfð- an 1904, var farið hægt og jafnt upp á við eða haldið í horfinu í 38 ár, síðan hratt á undanhallinu niður skriðuna. Ósjálfrátt, þar sem enginn ræður ferð, nema rás viðburðanna, sem er slík í blæ og andbyr á mannlífsströndinni við ómæli úthafsins. A alla grein í fé- lagsveru, andlegu lífi og von eru manninum sett mörk aðstæðn- anna. Bæði hann og umhverfi hans eru skapaður leyndardómur Guðs. Síra Þorvaldur á Isafírði, sem vígði kirkjuna við söng og dýrð, hefur ekki getað ímyndað sér glæsta framtíð á Hesteyri né öran vöxt þorpsins og lét því aldrei draga sóknamörk, er skipt hefðu Aðalvíkursveit. - Fiskið þverr, fólkið missir þolinmæði Iít- illa tækifæra. Og það fer, þegar styijaldarárin höfðu raskað lög- máli aldalangrar kyrrstöðu. Hesteyrarkirkjan, sem var ein hinna snotru, nýju trékirkna í landinu í ári aldarinnar, varð að- eins stundartákn í Aðalvíkursveit. En samt til allrar þjónustu búin í hinu unga útgerðarþorpi. Þar voru 49 manns, þegar kirkjan var reist, 74 á vísitazíusumri herra Þórhalls, 59 við heimsókn herra Jóns Helgasonar. - Ekki var þó ofninn enn kominn í kirkjuna 1928, þegar síra Sigurgeir Sig- urðsson prófastur visiteraði, og það, sem honum fannst enn verra: ekki hljóðfæri. Bauðst þá læknisfrúin til að vera organisti, sem hún hafði endranær vikizt vel við, en stofuorgel hennar þá borið út í kirkju. Frú Martha Sig- urðardóttir Bachmann, söngfólk- ið og síra Runólfur Magnús gáfu sjaldgæft færi hátíðarinnar í hinu fámenna plássi í mikilli einangr- un Hesteyraríjarðar. Af því líka, að húsið messaði sjálft eins og sagt er um fallegar kirkjur. Allt var málað bjart og ljóst, stóll og altari einnig, skreytt gylltum list- um og var til þess tekið, hve stórt og haglegt smíðið var. - Hvorki Hesteyringum, Strandamönnum né öðrum í Aðalvíkursveit gat blandazt hugur um vegleik þessa húss né kirkjuhelgi. Bezt var, að öll sóknarbörn Staðarkirkju ættu hina stóru kirkjugjöf, en ásamt heimakirkjunni, þ.e. nýja guðs- húsið yrði kapella í sókninni. Slík samheldni og einurð, hrifn- ing hins nýja, glæsta og reista, en varhugurinn og virðingin fyrir því fyrra, sem gæti verið á förum, sýnir tryggðirnar, sem voru með mönnum í Aðalvíkursveit. Lfka óttann við björgin og hafið, sem þó voru grundvöllur lífsins norð- ur við heimskaut. 800 manna prestakallið, sem herra Þórhallur biskup sá fyrir sér með höfuðkirkju og prestsetur á Hesteyri 1913, varð aldrei nema hugmynd. Þó rak að því, að Grunnavíkur- og Aðalvíkurbrauð- in voru sameinuð. - Af því að mannlaust var að verða 1952. Vegna hinnar afar löngu og merku þjónustu síra Runólfs Magnúsar Jónssonar, 33 ár, eru þeir fljótlega taldir prestarnir, sem þjónuðu Hesteyrarkirkju. Síðasti Staðarpresturinn var síra Finnbogi L. Kristjánsson, sem vígðist til sóknarinnar 1941 og var í hálft fjórða ár. A undan honum og eftir gegndi síra Jón- mundur á Stað í Grunnavík ná- grannaþjónustu. Loks síra Þor- bergur Kristjánsson. Sóknirnar fyrir norðan voru lagðar til Bol- ungarvíkurbrauðs með lögum 1970. Þá var Iöngu orðið kirkju- laust á Hesteyri og guðshús fram- tíðarvonanna flutt til Súðavíkur, en mannauðar hinar fornu sóknir norðan Rits og Vébjarnarnúps. AKUREYRARKIRKJA Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Strengja- sveit úr Tónlistarskólanum á Akureyri leikur. Hlaðborð í Safnaðarheimilinu eftir guðs- þjónustu þar sem hiver leggur sitt til á borð- ið. Drykkir í boði safnaðarins. Fundur í Æskulýðsfélaginu kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN, AKUREYRI Sunnudagaskóli kl. 11. Bænastund kl. 16:30. Almenn samkoma kl. 17. Unglingasamkoma kl. 20. Heimilasamband kl. 15 mánudag. KAÞÓLSKA KIRKJAN, AKUREYRI Messa laugardag kl. 18. Messa sunnudag kl. 11. SJÓNARHÆÐ, AKUREYRI Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13:30. Al- menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17. Barna- fundur kl. 18 mánudag. HRlSEYJARKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11. Aðventukvöld kl. 20. STÆRRA-ÁRSKÓGSKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11. Barnakórsæfing kl. 11:50. MÖÐRUVALLAPRESTAKALL Aðventukvöld I Möðruvallakirkju í Hörgár- dal kl. 20:30. Kór kirkjunnar syngur. Lesin verður jólasaga, fermingarbörn flytja helgi- leik og telpur úr kór Þelamerkurskóla syng- ja um heilaga Lúsíu. Ræðumaður verður Sigurður Guðmundsson vígslubiskup. Eftir athöfnina selja fermingarböm friðarljós frá Hjáiparstarfi kirkjunnar. LAUFÁSPRESTAKALL Svalbarðskirkja: Kirkjuskóli laugardaginn 27. nóv. kl. 11. Guðsþjónusta 1. sunnudag í aðventu kl. 14. Fermingarfræðsla í safnað- arstofunni kl. 11. Fjölskyldur fermingar- bama eru hvattar til að koma til messu. Grenivíkurkirkja: Kirkjuskóli laugardag kl. 13:30. Kyrrðar- og bænastund sunnudags- kvöldkl. 21. Grenilundur: Guðsþjónusta 1. sunnudag í aðventu kl. 16. HVERAGERÐISKIRKJA Sunnudagaskóli kl. 11:00. Aðventusam- koma kl. 20:30. Aðventutónlist í flutningi kirkjukórs og organista. Ræðumaður Anna Ólafsdóttir frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Tekið verður við samskotum tii styrktar Hjálpar- starfinu. SELFOSSKIRKJA Aftansöngur á aðfangadag aðventu, laug- ardaginn 27. nóv. Messa og sunnudaga- skóli kl. 11 fyrsta sunnudag í aðventu. Tón- leikar Unglingakórs Selfosskirkju kl. 20. EYRARBAKKAKIRKJA Barnaguðsþjónusta i Eyrarbakkakirkju kl. 11. Messa kl. 14. LÁGAFELLSKIRKJA Aðventukvöld kl. 20:30. Ræðumaður Salóme Þorkelsdóttir, fyrrv. forseti Alþingis. Einsöng- ur Margrét Árnadóttir sópran. Flautuleikur Martial Nardeau og Guðrún Bingisdóttir. Skólakór Mosfellsbæjar. Kirkjukór Lágafells- sóknar. Kirkjukaffi í safnaðarheimilinu. Barnastarf i safnaðarheimilinu kl. 11. ÞINGVALLAKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11, ath. breyttan messu- tíma. Að lokinni messu er aðalsafnaðar- fundur í Þingvallasafnaðarheimilinu á Þing- vallabæ. ÁSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjón- usta kl. 14:00. Kaffi eftir messu. Aðventu- kvöld kl. 20:30. Þorgeir Andrésson syngur einsöng. Kórsöngur, almennur söngur, hug- vekja. Kirkjubíllinn ekur. BÚSTAÐAKIRKJA Barnamessa kl. 11:00. Kveikt á fyrsta kerti aðventukransins. Hátiðarguðsþjónusta kl. 14:00. Eftir messu verður vöfflukaffi í safn- aðarheimili. Aðventukvöld kl. 20:30. Kirkjukórinn, barnakór, stúlknakór og bjöl- lukór leika fyrir kirkjugesti. Frá kl. 19:30 mun Bjöllukór kirkjunnar ásamt fjölda söngvara stytta okkur biðina. Ræðumaður kvöldsins er Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra. DÓMKIRKJAN Messa kl. 11:00. Dómkórinn syngur. Stutt helgistund kl. 12:00 fyrir börn. Kveikt verð- ur á fyrsta kerti aðventukransins. Aðventu- kvöld kl. 20:30. Ræðumaður verður Einar Benediktsson, sendiherra. Skólakór Kárs- ness og Dómkórinn syngja. ELLIHEIMILIÐ GRUND Guðsþjónusta kl. 10:15. Rangæingakórinn leiðir söng. Organisti Kjartan Ólafsson. GRENSÁSKIRKJA Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl. 11:00. Kirkjukór Grensáskirkju. Organisti Árni Arinbjarnarson. HÁTEIGSKIRKJA Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Messa kl. 14:00. Helga Krabbe, einkabarn Þorvalds vitamálastjóra, rakti minnin frá sumrum bernsku sinnará Hesteyri. I löfundur er prófastur cí LANDSPÍTALINN Messa kl. 10:00. Sr. Maria Ágústsdóttir. HALLGRÍMSKIRKJA Hátíðarmessa kl. 11:00. Biskup Islands, herra Karl Sigurbjörnsson prédikar. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Helgað- ur verður steindur gluggi yfir kirkjudyrum. Glugginn er eftir Leif Breiðfjörð og er dán- argjöf Stefaníu Guðríðar Sigurðardóttur. Að- ventutónleikar Barna- og unglingakórs Hall- grímskirkju kl. 17:00. LANGHOLTSKIRKJA Kirkja Guðbrands biskups. Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11:00. Gradualekórinn syngur. Kveikt á fyrsta aðventukertinu. Aðventuhá- tíð kl. 20:00. Guðrún Ásmundsdóttir flytur ræðu. Börn úr kórskólanum flytja lúsíuleik. Kór Langholtskirkju syngur. LAUGARNESKIRKJA Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Börn tendra Ijós á aðventukransinum. Kór Laug- arneskirkju syngur. Messukaffi og djús fyrir börnin á eftir. Messa kl. 13:00 með altaris- göngu i dagvistarsalnum Hátúni 12. Þor- valdur Halldórsson syngur. Aðventukvöld kl. 20:00 og afmælishátíð Laugarneskirkju. Kór og Drengjakór Laugarneskirkju syngur. Að athöfninni lokinni býður sóknarnefnd upp á súkkulaði og smákökur. NESKIRKJA Félagsstarf aldraðra laugardag kl. 13:00. Steingrímur Hermannsson fyrrverandi for- sætisráðherra og seðlabankastjóri segir sögur. Reynir Jónasson leikur undir fjölda- söng á harmoniku. Kaffiveitingar. Sunnu- dagaskólinn kl. 11:00. Börn úr Do Re Mi koma í heimsókn. Átta til níu ára starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14:00. Að- ventustund kl. 17:00. Ávarp sr. Örn Bárður Jónsson. Kór Melaskóla og Kór Neskirkju syngja. Telpurnar Helene Inga og Catherine María Stankiewicz leika á pianó og selló með móður sinni Unni Maríu Ingólfsdóttur, fiðluleikara. Hugleiðing Geir H. Haarde, flár- málaráðherra. Lokaorð sr. Frank M. Hall- dórsson. SELTJARNARNESKIRKJA Messa kl. 11:00. Fermingarbörn kveikja á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Helgað verður textillistaverk eftir Herdísi Tómas- dóttur. Barnastarf á sama tíma. Aðventu- kvöld kl. 20:30. Sigurgeir Sigurðsson, bæj- arstjóri Seltjarnarness, flytur aðalræðu kvöldsins. Selkórinn og Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju flytja tónlist. Þuríður G. Sig- uröardóttir syngur einsöng. Hljóðfæraleikar- ar eru Symon Kuran á fiðlu, Zbigniew Dubik á fiðlu, Helga Þórarinsdóttir á lagfiðlu og Lovísa Fjeldsted á selló. Veislukaffi eftir stundina. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINNN Þjóðlagamessa kl. 14:00. Gitar, bassi og pí- anó. Barnastarf á sama tíma. Maul eftir messu. ÁRBÆJARKIRKJA Kirkjudagur Árbæjarsafnaðar. Barnaguðs- þjónusta kl. 13. Kveikt á aðventukransinum. Guðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna kl. 14. Kirkjukór Árbæjarkirkju syngur. Organleikari Pavel Smid. Kristín R. Sigurðardóttir syngur einsöng. Kaffisaia Kvenfélags og skyndi- happdrætti Líknarsjóðs Kvenfélagsins eftir guðsþjónustu. Aðventuhátíð í kirkjunni kl. 20.30. Barnakór, kirkjukór og gospelkór kirkjunnar syngja. Þór Magnússon þjóð- minjavörður flytur hátíðarræðu. Rarikkórinn syngur í 20 mínútur í kirkjunni, áður en að- ventusamkoman hefst. BREIÐHOLTSKIRKJA Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á sama tíma. Organisti: Daniel Jónasson. Tómasarmessa kl. 20. Fyrirbænir og fjöl- breytt tónlist. Kaffisopi að messu lokinni. DIGRANESKIRKJA Kl. 11. Messa. Organisti: Bjarni Jónatans- son. Sunnudagaskóli á sama tíma. Léttur málsverður eftir messu. FELLA- OG HÓLAKIRKJA Guðsþjónusta kl. 11.Kór Fella- og Hóla- kirkju syngur. Organisti Lenka Mátéová. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. GAFARVOGSKIRKJA Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl. 11. Sunnudagaskóli i Engjaskóla kl. 11. Guðs- þjónusta í Grafarvogskirkju kl. 14. Sr. Sigur- jón Árni Eyjólfsson héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Organisti: Hörður Bragason. HJALLAKIRKJA Messa kl. 11. Félagar úr kór kirkjunnar syn- gja. Organisti Jón Olafur Sigurðsson. Barnaguðsþjónusta kl. 13 og í Lindaskóla kl. 11. KÓPAVOGSKIRKJA Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Prest- ur sr. Guðni Þór Ólafsson. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Aðventuhátíð kl. 17. SEUAKIRKJA Kl. 11 Krakkaguðsþjónusta. Kveikt á fyrsta aðventukertinu. KI.14 Guðsþjónusta. Barnakór Seljakirkju og Kór Seljakirkju syn- gja. KI.16 Guðsþjónusta í Skógarbæ. Kl. 20. Aðventukvöld. Kór Fjölbrautaskólans í Breiðholti og sönghópurinn Kangasystur syngur. Haukur ísfeld flytur hugvekju.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.