Dagur - 01.12.1999, Page 13

Dagur - 01.12.1999, Page 13
MIDVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1999 - 13 XWht. ÍÞRÓTTIR ÓróleiM í austrmu Rússneskir hermenn gera klárt fyrir órólegan lelk í Moskvu. Úr leik S/avia Prag og Steaua Bukarest íþriðju umferð UEFA-bikarsins. Spartak Moskva með afgerandi forystu í Rússlandi. Dyuamo Kiev taplaust í Úkra- ínu. ÓróleiM í Búlgar- íu og Rúmeníu. Slavia Prag á toppnum í Tékklandi. Eftir nokkra lægð austur-evr- ópskrar knattspyrnu eftir póli- tískar hræringar og ófriðarástand síðustu ára er ástandið í boltan- um heldur að breytast til hins betra. Astandið er þó misjafnt eftir löndum og hefur óróleiki áhangenda liðanna í sumum þeirra oftar en ekki sett leiðin- legan svip á leiki. Má þar nefna síendurtekið ofbeldi á leikjum í rússnesku deildinni og einnig síðustu uppákomur í Búlgaríu, þar sem ástandið hefur verið verst að undanförnu. Hér að neðan Iítum við yfir stöðuna í helstu úrvalsdeildum Austur-Evrópu: Hlé í Rússlandi Að undanförnu hefur ekkert ver- ið leikið í rússnesku úrvalsdeild- inni á meðan leikið hefur verið í bikarnum. Moskvu-Iiðin þrjú Spartak, Lokomotiv og CSKA raða sér í efstu sæti deildarinnar, þar sem Spartak hefur afgerandi forystu í efsta sætinu með 72 stig, sjö stigum meira en Lokomotiv sem er í öðru sætinu. Staðan á toppniun í Rúss- landi: Spartak Moskva 30 22 6 2 75-24 72 Lokom. Moskva 30 20 5 5 62-30 65 CSKA Moskva 30 15 10 5 56-29 55 Sigurganga Dynamo stöðvuð Fyrir leiki 15. umferðar úkra- ínsku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu, sem hófst um helgina, höfðu meistarar Dynamo Kiev unnið tólf deildarleiki í röð. A mánudaginn mættu meistararn- ir, sem eru taplausir á toppi deildarinnar með tólf sigra og tvö jafntefli, svo liði Shakhtar Donetsk, sem er í fjórða sæti deildarinnar og náðu aðeins 0-0 jafntefli á útivelli. Þrátt fyrir að hafa hvílt flesta af sínum bestu leikmönnum, var Dynamo betra Iiðið í leiknum, en tókst ekki að brjóta á bak sterka vörn heimaliðsins. Meistarar Dynamo Kiev hafa á undanförnum mánuðum leitað að nýjum framherja til að fylla skarðið sem Andriy Shevchenko skildi eftir sig í framlínu liðsins, þegar hann gekk til liðs við AC Milan í sumar. Ur því kynni að rætast á næstunni, því mjög lík- lega mun Georgfumaðurinn Ge- orgi Demetradze, sem að undan- förnu hefur leikið með rússneska úrvalsdeildarliðinu Alania Vla- dikavkaz, skrifa undir samning við liðið í næstu viku. Hlé verður nú gert á keppni í úkrafnsku deildinni fram yfir áramótin, en Dynamo á þó eftir að leika einn frestaðan leik gegn Prykarpattya Ivano-Frankivsk, sem er í fjórtánda sæti deildar- innar og fer sá leikur fram á föstudaginn. Með sigri í leiknum getur Dynamo náð tíu stiga for- skoti í deildinni. Staðan á toppnum í Úkraínu: Dynamo Kiev 14 12 2 0 31-6 38 Kryvbas Kryviy Rih 15 9 4 2 26-14 31 Vorskla Poltava 15 8 3 4 31-18 27 Hajduk Split í toppsætið I Króatíu skaust Hajduk Split á topp úrvalsdeildarinnar um helg- ina, eftir 5-0 heimasigur á botn- liði lowly Istra í 15. umferðinni. Meistarar Króatía Zagreb, sem lengst af hafa verið í toppsætinu, töpuðu á sama tíma 3-1 á útivelli gegn Rijeka, sem er í fjórða sæti deildarinnar og féllu þar með niður í annað sætið. Þeir eiga þó einn leik til góða gegn Cibalia, sem er í sjöunda sætinu og gætu þar með sigri komist upp að Hadjuk á stigatöflunni. Drazen Ladic, markverði Za- greb og króatíska landsliðsins, var vísað af leikvelli fyrir gróft brot á 36. mínútu leiksins, en hann hafði áður fengið að líta gula spjaldið fyrir mótmæli. Staðan á toppnum í Króatiu: Hajduk 15 11 3 1 39-15 36 Rróatía 14 10 3 1 39-10 33 Osijek 15 8 2 5 27-23 26 Höfuðborgarliðin í efstu sætum Þegar 15 umferðum er lokið í júgóslavnesku úrvalsdeildinni eru höfuðborgarliðin Obilic Belgrad og Partizan Belgrad jöfn að stigum í toppsætum deildar- innar með 40 stig, þar sem bæði Iiafa unnið 13 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum leik. Þriðja liðið frá höfuðborginni Belgrad, Rauða Stjarnan, er svo í þriðja sætinu með 34 stig, tíu stigum meira en Sutjeska sem er í fjórða sætinu. Það má því ætla að risarnir frá Belgrad, Obilic og meistarar Partizan muni enn sem oftar berjast um meistaratit- ilinn og ólíklegt að Rauða Stjarn- an muni blanda sér í þann slag í ár. Staðan á toppnum í Júgóslavíu: Obilic 15 13 1 1 30-11 40 Partizan 15 13 1 1 30-1 1 40 Red Star 15 10 4 1 35-9 34 Ólæti í Búlgaríu I Búlgaríu er Levski Sofia í toppsæti úrvalsdeildarinnar með 37 stig eftir tólf Ieiki, þremur stigum meira en CSKA Sofia, sem er í öðru sætinu með 34 stig. Ofbeldi meðal stuðnings- manna hefur sett ljótan blett á búlgörsku knattspyrnuna í vetur og virðist það engan endi ætla að taka. Um helgina kom síðast til óláta fyrir útileik CSKA Sofia gegn Belasitsa Petrich, sem end- aði með miklum látum og of- beldi, þar sem lögreglan á staðn- um fór hamförum gegn óeirða- seggjunum. Lögreglan greip í taumana þegar áhangendur heimaliðsins hófu að kasta grjóti að áhang- endum gestanna, sem svöruðu með því að kasta öllu lauslegu úr áhorfendasvæðunum, eins og setum og öðru dóti, til baka. Sjónvarpsupptökur sýndu lög- regluna lemja á áhangendum gestanna með kylfum, þegar þeir hugðust gera gagnárás á svæði heimaliðsins. Talsmaður lögreglunnar sagði að átta manns hefðu verið hand- teknir og tólf hefðu meiðst í lát- unum. Þar af fjögur börn. CSKA Sofia tapaði leiknum 2- 0 og þar með náði Levski þriggja stiga forystu á toppnum með 4-1 heimasigri á Botev Plovdiv, sem eru um miðja deild. Staðan á toppnum í Búlgariu: Levski Sofia 14 i2 1 1 40-7 37 CSKASofia 14 11 i 2 27-8 34 Nefto. Bourgas 14 9 4 1 22-9 31 Dinamo með öragga forystu Eftir nítján umferðir í rúmönsku úrvalsdeildinni er Dinamo Búkarest Iangefst á toppi deild- arinnar með 50 stig, 11 stigum meira en Rapid Búkarest sem er með 39 stig í öðru sætinu. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir að meistaratitillinn lendi hjá lið- inu, þó enn séu fimmtán um- ferðir eftir í keppninni. Liðið hefur skorað 56 mörk og fengið á sig 14 sem sýnir að yfirburðir þess eru miklir. Það tapaði þó sínum fyrsta leik í deildinni um helgina, þegar það mætti Gloria, sem er í fimm sæti deildarinnar og tapaði 0-1 á sjálfsmarki Giani Chirita. Nokkur óróleiki var meðal stuðningsmanna Iiðsins, sem beindu spjótum sínum að Corn- el Dinu þjálfara, sem nýlega seldi tvo sterka leikmenn frá fé- laginu. Það voru framherjarnir Adrian Mutu, sem fór til Inter Milan og Ioan Vladoiu sem fór til þýska liðsins Kickers Offen- bach. A sama tíma vann annað liðið í deildinni, Rapid Bukarest, 2-1 sigur á FCM Bacau, sem er í sjö- unda sætinu. Staðan á toppnum í Rúmeníu: Dinamo Bukarest 19 16 2 1 56 14 50 Rapid Bukarest 19 12 3 4 32 20 39 Ceahlaul P. Neamt 19 11 4 4 27 22 37 Slavia Prag á toppnum Eftir 15 umferðir í tékknesku úr- valsdeildinni er Salavia Prag eitt á toppi deildarinnar með 37 stig og fjögurra stiga forystu á meist- ara Sparta Prag, sem er í öðru sætinu. Eftir 2-0 tapið gegn Porto í Meistaradeild Evrópu, vann Sparta Prag mikilvægan 0- 1 útisigur á Drnovice, sem er í fjórða sætinu, þar sem framherj- inn Vratislav Lokvenc skoraði sigurmarkið á 33. mínútu leiks- ins. Slavia Prag náði svo á mánu- daginn fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar með 3-1 heimasigri á Boby Brno, sem er í áttunda sæti deildarinnar. Staðan á toppnum í Tékklandi: Slavia Prag 15 11 4 0 25-7 37 Sparta Prag 15 10 3 2 37-13 33 Bohem. Prag 15 6 6 3 15-9 24 Spennandi barátta í Ungverjalandi I Ungverjalandi fer nú fram spennandi barátta þriggja liða á toppi úrvalsdeildarinnar og eftir 14. umferðina sem lauk um helgina voru Dunaferr og MTK Budapest með 29 stig eftir 14 leiki og Vasas með 28 stig eftir jafnmarga leiki. A mánudaginn hófst svo 16. umferðin með útileik Dunaferr gegn Gyor, sem lauk með 4-2 sigri toppliðsins, sem þar með náði þriggja stiga forystu í deild- inni. Meistarar MTK, hafa verið að leika mjög vel að undanförnu undir stjórn Hollendingsins Henk ten Cate og spá flestir þeim sigri í deildinni, þegar upp verður staðið. Vasas náðu 3ja sætinu í deild- inni cftir síðustu umferð þegar þeir unnu 3-0 heimasigur á Tata- banya þar sem Attila Szili, fyrr- um leikmaður 1860 Múnchen, ásamt þeim Imre Aranyos og Fer- enc Szilveszter skoruðu mörkin fyrir Vasas. Staðan á toppnum í Ungverjalandi: Dunaferr 15 9 5 1 37-14 32 MTK Budapest 14 8 5 1 26-11 29 Vasas 14 9 1 4 25-11 28 Burt með eftirlitið „Ofvirkir dóm- arar sem eru skíthræddir við „Stóra bróður" í~ áhorfenda- stúkunni eru að gera út af við enska bolt- ann,“ segir Ge- orge Graham, framkvæmdastjóri Tottenham. „Eg tel að dómararnir séu undir allt of mikilli pressu og að allt frumkvæði til að taka réttar ákvarðanir og meta hlutina rétt út frá Ieiknum, sé þess vegna horfið," sagði Graham við enska fjölmiðla í gær. „Það er eins og þeir hafi það á tilfinningunni að „Stóri bróðir" sé að fylgjast með þeim og að þeir þurfi að gera allt eftir bók- inni. Þeir eru því sífellt hræddir um að fá slæma dóma frá eftir- litinu og reyna því að fara ná- kvæmlega eftir reglunum eins og þær eru skráðar, án tillits til þess hvað er að gerast inni á vellinum," bæti Graham við. Nokkrir þjálfarar í úrvalsdeild- inni hafa að undanförnu lýst óá- nægju sinni yfir dómgæslunni í vetur og þá sérstaklega vegna óvenjulegs fjölda gulra og rauðra spjalda sem farið hafa í loftið. Gott dæmi er Ieikur Leeds gegn Southampton um helgina, þar sem David Jones sá sig tilneyddan til að gera at- hugasemdir við störf dómarans og sagði að það væri nógu erfitt að leika gegn Leeds, án þess að hafa dómarana líka á herðun- um. „Staðreyndin er sú að dóm- aranir fá það á tilfinninguna að eftirlitsmennirnir séu settir þeim til höfuðs og þeir vita að Philip Don, yfirmaður dómara- mála, hefur vald til að setja þá af ef honum dettur það í hug,“ sagði George Graham, sem horfði upp á sína menn hjá Tottenham fá sex gul spjöd f leiknum gegn Newcastle um helgina. Við það tækifæri sagði hann: „Losið okkur við eftirlitsmenn- ina og gefið dómurunum tæki- færi til að vinna sína vinnu í friði.“ Arsenal býður í Spánverja Arsene Wen- ger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, hefur boðið spánska annarrar deild- ar liðinu Lavante, tvær milljónir punda fyrir framherj- ann unga, Vicente Rodriguez, eftir því sem Pedro Villaroel, forseti spánska félagsins, sagði við fjölmiðla í gær. Villaroel segir að tilboð Arsenal sé langt frá því sem fé- lagið vill fá fyrir þennan 18 ára gamla markaskorara, sem þeir verðleggja á þúsund milljónir peseta, sem er um 3,8 milljónir punda. „Ef þeir bjóða þá upp- hæð, yrðu allir ánægðir," sagði Villaroel, sem bætti því við að helmingur upphæðarinnar rynni til fjárfestingarfélags, sem keypti helmings hlut í leikmanninum á sfðasta ári.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.