Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 1

Dagur - 04.12.1999, Blaðsíða 1
Laugardagur 4. desember 1999 82. og 83. árgangur - 232. tölublað Verð ílausasölu 200 kr. Helga sSgð á leið í banKann Allar líkur taldar á því að Helga Jónsdótt- ir borgarritari verði bankastjóri í Seðla- bankanum í stað Steingríms Her- mannssonar. Miklar sögur hafa verið í gangi síðustu daga um það hver verði þriðji Seðlabankastjórinn, en sá stóll hefur verið laus síðan Stein- grímur Hermannsson lét af störfum á sfðasta ári. Vangavelt- urnar fóru af stað vegna frum- varps sem lagt hefur verið fyrir Alþingi um flutning Seðlabank- ans frá viðskipa- til forsætisráðu- neytis. Málið hefur verið að velkjast hjá stjórnarflokkunum síðan Steingrímur hætti. Það hefur sætt gagnrýni að banka- stjóri skyldi ekki ráðinn þar sem þeir eiga að vera þrír, lögum samkvæmt. Mörg nöfn hafa verið nefnd í samhandi við væntanlegan bankastjóra. Samkvæmt heim- ildum, sem Dagur telur áreiðan- legar, eru allar líkur taldar á því að Helga Jónsdóttir borgarritari verði þriðji banka- stjóri Seðlabank- ans. Hún hefur í gegnum tíðina gegnt mörgum ábyrgðarmiklum embættum. Hún var aðstoðarmaður forsætisráðherra, þegar Steingrímur Hermannsson geg- ndi því embætti. Helga var líka for- setaritari, stjórnar- formaður Lands- virkjunar og hún starfaði um árabil sem einn af stjórn- endum hjá Alþjóða- bankanum, sem fulltrúi lslands. Safna plúsum Með því að ráða Helgu Jónsdótt- ur í starf bankastjóra telja fram- sóknarmenn sig safna plúsum en æði margir mínusar hafa hlaðist á flokkinn undanfarið og útkom- an í skoðanakönnunum eftir því. I fyrsta lagi yrði Helga fyrsta konan sem gegnir bankastjóra- starfi á Islandi. I öðru lagi er Ilokk- urinn þá ekki að ráða pólitíkus í embættið og í þrið- ja lagi er Helga sögð afar hæf manneskja í þetta starf. Staðan auglýst Davíð Oddsson sagði í umræðum á Alþingi sl. fimmtu- dag að ákveðið hefði verið að aug- lýsa stöðu Seðla- bankastjóra lausa til umsóknar, en það verður að gera lögum sam- kvæmt. Þessi yfirlýsing forsætis- ráðherra þýddi að búið er að ákveða hver fær stöðuna. Hann sagði líka að það yrði viðskipta- ráðherra, Finnur Ingólfsson, sem myndi skipa í stöðuna. Margir nefndir Mjög hefur verið sótt að Finni Ingólfssyni viðskiptaráðherra að skýra frá því hver verði næsti Seðlabankastjóri. Hann hefur varist allra frétta og gerir það enn. Þó opnaðist örlítil glufa á fundi hjá framsóknarmönnum í Kópavogi á dögunum. Þar var Finnur spurður um málið og svaraði hann því til að það væri ekki búið að ákveða hver það yrði en þegar spurningin var ítekuð sagði hann að bankastjórinn yrði úr „réttum Ilokki." 1 vor og sumar var mikið rætt um það að Halldór Guðbjarnar- son, fyrrum Landsbankastjóri, fengi stöðuna, framsóknarmenn hefðu lofað honum henni. Sjálf- stæðismenn voru því andvígir og þess vegna var Halldór gerður að forstjóra VISA. Síðustu daga hafa mörg nöfn verið nefnd í sambandi við Seðlabankastjóra- stöðuna; Halldór Asgrímsson, Finnur Ingólfsson, Davíð Odds- son og jafnvel Páll Pétursson og að þannig yrði ráðherravandamál framsóknarmanna Ieyst. - s.DÓR Helga Jónsdóttir borgarritari er sögd á leiðinni í banka- stjórastól í Seðlabankanum. 57% styðja Pál Samkvæmt niðurstöðum síðustu spurningar Dags á frétta- vef Vísis.is sögðust 57% þeirra sem þátt tóku það rétt hjá Páli Péturssyni félagsmála- ráðherra að hætta ekki sjálfviljugur í ríkisstjórn- inni. Alls tóku hátt í 2.500 manns þátt í að svara, sem telst mjög góð þátttaka. 43% þeirra töldu Pál ekki gera rétt með þessari ákvörðun. Ný spurning Dags hefur verið sett á Vfsi.is. Hún hljóðar svo: „A að gera enn einn stjórnmála- manninn að Seðlabankastjóra?“ Slóðin er www.visir.is Páll Pétursson. IbtfMT . mom vísir.is Jólaundirbúningur er kominn í fullan gang hjá landsmönnum og eru leikskólarnir engin undantekning þar á. Síðustu tvo daga var sett upp jólaverkstæði í leikskólanum Hálsaborg í Reykjavík. Þangað komu foreldrar og tóku þátt í gleðinni með börnunum og hjálpuðu meðal annars til við piparkökubaksturinn. mynd: e.ól. Galdur var lif andi veruleiM „Galdur var hluti af veruleika- skynjun fólks. Hér var ekki um sjúkleika, óeðli eða afkimabar- dús að ræða heldur óumræðilega staðreynd. Engum kom til hugar að draga mátt galdurs í efa þótt deilt væri um krafta einstakra galdramanna." Þetta segir Matthías Viðar Sæmundsson, einn helsti sérfræðingur þjóðar- innar í galdraöldinni, f viðtali við helgarblað Dags - en þar skegg- ræðir hann við annan áhuga- mann um galdra, Hrafn Gunn- laugsson, kvikmyndaleikstjóra. I dag leggur Asbjörg Kristins- dóttir af stað áleiðis til Tókýó í keppni um titilinn Miss International 1999. En hvað skyldi fegurðardrottning á leið í alheimskeppni taka með sér og hvaða aðstoð fær hún? Þú lest allt um það í helgarblaði Dags. Feðgarnir Hörður Helgason og Helgi Jónsson hafa brallað ýmislegt saman sem feðga er sið- ur og nú hafa þeir gefið út hroll- vekju eftir sig. Þeir segja frá því í helgarblaðinu. Gísli Marteinn Baldursson og Ólafur Teitur Guðnason eru höf- undar Bókar aldarinnar sem hef- ur að geyma rúmlega 270 topp tíu lista yfir margvísleg svið sem tengjast öldinni sem nú er að Ijúka. Helgarblaðið birtir for- vitnileg sýnishorn. Og svo er það allt hitt í helgar- blaði Dags: Kynlífspistill, bók- menntagagnrýni, matarupp- skriftir, veiðiþáttur, bíórýni, spurningaþáttur, krossgáta, poppsíða og margt margt fleira. Góða helgi! wmmmmm Afgreiddir samdægurs Venjulegirog demantsskomir trúlofunarhringar GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI ■ SÍMI 462 3524

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.