Dagur - 04.12.1999, Page 2
2 -LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 1999
FRÉTTIR
Vaka-HelgafeU á
öldur ljósvakans
Ótafur Ragnarsson, nú stjórnarformaður Vöku-Helgafells, er á leiðinni með fyrir-
tækið á útvarpsmarkaðinn
Váka-Helgafell ætlar
sér enn stærri hlut á
fj ölmiðlamarkaðnum
með kaup á þriðjungs-
hlut í ljósvákafyrir-
tækinu Fíiuim miðli.
Samkvæmt áreiðaniegum heim-
ildum Dags ætla forráðamenn
Vöku-Helgafells að kynna á
næstunni þátttöku sína í rekstri
ljósvakafyrirtækisins Fíns miðils,
sem rekur 6 útvarpsstöðvar á
höfuðborgarsvæðinu. Eftir því
sem blaðið kemst næst þá ætlar
Vaka-Helgafell að kaupa þriðj-
ungshlut í fyrirtækinu af banda-
rískum aðaleiganda þess, Saga
Communications, sem er í eigu
Vestur-Islendingsins Ed Christi-
an. Bandaríkjamenn hafa átt
75% hlut í Fínum miðli og Út-
varp FM, sem feðgarnir Arni
Samúelsson og Björn Árnason f
SAM-bíóunum eiga, á 25% hlut.
Þessi fjárfesting Vöku-Helga-
fells er í samræmi við fyrri yfir-
lýsingar nýrrar stjórnar um að
fyrirtækið ætli sér enn stærri
hlut á fjölmiðlamarkaðnum hér
á landi sem alhliða miðlunarfyr-
irtæki. Uppstokkun var gerð á
rekstrinum og eigendaskipti áttu
sér stað þegar Fjárfestingarbanki
atvinnulífsins, FBA, keypti 50%
hlut af Ólafi Ragnarssyni og fjöl-
skyldu. Eitt af fyrstu verkum
nýrrar stjórnar var að kaupa út-
gáfufyrirtækið Iceland Review.
Auk hefðbundinnar tímarita- og
bókaútgáfu þar er haldið úti dag-
legri fréttaþjónustu á Netinu á
ensku.
Sjöunda rásiu í bígerð
Fínn miðill varð til fyrir tveimur
og hálfu ári er Aflvaki og Útvarp
FM sameinuðust. Þeir SAM-bíó
feðgar framseldu á sínum tíma
50% hlut til Saga Commun-
ications sem þeir keyptu af Afl-
vaka og síðan juku Bandaríkja-
menn sinn hlut í 75%. Nýlega
slitnaði svo upp úr viðræðum
Fíns miðils og Islenska útvarps-
félagsins um kaup þess síðar-
nefnda á stórum hlut í Fínum
miðli. Upp frá því hófust viðræð-
ur við Vöku-Helgafell.
Fínn miðill starfrækir nú sex
stöðvar, eins og áður sagði, og
hefur staðið til að fara með þá
sjöundu í loftið. Stöðvarnar eru
FM95.7, X-ið, Gull 90.9, Klassík
FM, Skratz og Létt 96.7. - BJB
SainiyUi-
inyin lokar
liriiigiiuiii
Reykjavíkurfélag Samfylkingar-
innar verður stofnað í dag og
hafa þá félög verið stofnuð f öll-
um kjördæmum landsins, en
rætt er um flokksstofnun á fyrri
hluta komandi árs.
Stofnfundurinn verður hald-
inn á Grand Hótel við Sigtún í
dag kl. 14. Eftir að lög félagsins
hafa verið samþykkt verður
stjórn félagsins kosin. A fundin-
um munu þingmenn Samfylk-
ingarinnar flytja ávörp, auk tón-
listarflutnings og upplesturs.
Stjórn fundarins verður í hönd-
um Össurar Skarphéðinssonar.
Fundurinn er opinn öllum
velunnurum og stuðningsmönn-
um Samfylkingarinnar. - FÞG
Hafnargjöld oröin 4,2 miUjónir
Marel Trading hætti frá
1. desember sl. að greiða
hafnargjöldin fyrir rúss-
neska togarann Omnya,
sem legið hefur í Akur-
eyrarhöfn frá september-
mánuði 1997, fyrst við
Torfunefsbryggju, fáum
til yndisauka, enda skipið
haugryðgað. Hafnargjöld
skípsins nema nú 4,2
milljónum króna.
Breyting hefur orðið á
samrekstri Marels og
rússnesku útgerðarinnar
KarelRybFlot AO í Mur-
mansk hvað varðar ráðgjöf og veiðistýringu og því mun útgerðin sjálf
greiða hafnargjöld skipsins. Tvö skip múrmönsku útgerðarinnar
komu til minni háttar klössunar og viðgerða hjá Slippstöðinni á árinu
en engin teikn eru á lofti um það að gert verði við Omnya. Eins og
fyrri desembermánuði fara viðhaldsverkefni hjá Slippstöðinni vax-
andi, þar sem útgerðarmenn vilja nota þennan tíma til viðhalds skip-
unum. Unnið verður alla virka daga í desember hjá Slippstöðinni,- GG
Lausn biskups kostar bálf lauu
Sú lausn Karls Sigurbjörnssonar biskups í deilunni um sr. Gunnar
Björnsson á Holti við sóknarbörn sín, að fela honum „sérverkefni",
en fá prófastinn sr. Agnesi Sigurðardóttur til að sinna sókninni, mun
kosta 70-80 þúsund krónur á mánuði.
Sr. Gunnar hefur fengið starfsleyfi í þrjá mánuði til að sinna hin-
um óskilgreindu sérverkefnum. Úmframkostnaðurinn úr ríkisjóði
felst í því að sr. Agnes fær laun fyrir aukaþjónustu, sem samkvæmt
heimildum Dags nema hálfum fastalaunum sóknarprests. í lögum
um þjóðkirkjuna er reyndar skýrt kveðið á um fjölda sóknarpresta og
sérþjónustupresta, og mun hafa myndast svigrúm innan ramma lag-
anna með sameiningu sókna og ætti þessi lausn sem slík ekki að
raska fjárlögum að ráði. - fþg
Eimskip fær nýtt skip
Eimskip hefur tekið á svokallaða purrleigu gámaskipið Ossian.
Leigusamningurinn er til tveggja ára og á þeim tíma hefur Eimskip
rétt á að kaupa skipið. Félagið mun sjá um rekstur, viðhald og mönn-
um skipsins sem mun bera nafnið Mánafoss. Skipstjóri verður Guð-
mundur Kr. Kristjánsson og Valdimar Jóhannsson yfirvélstjóri.
yiánaigssi cr ætlað að sigla í strandsigiingum í stað Bakkafoss, sem
’fer’ í brinur verkefni. Skiþið verður afhcnt í Rotterdam í næstú'viku
og er væntanlegt til íslands fyrir jól.
Jdn Steinar kærður
Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
fræðingur, verjandi sýknaða há-
skólaprófessorsins í kynferðis-
brotamálinu, hefur veríð kærður
til úrskurðarnefndar Lögmanna-
félags Islands, vegna málflutnins
síns í fjölmiðlum í kjölfar dóms-
ins. Kærandinn er Margrét Kr.
Jónsdóttir sálfræðingur, einn sér-
fræðinganna sem rannsökuðu
stúlkuna sem kærði og Iögðu mat
á trúverðugleika sakargifta.
Jón Steinar bar brigður á hlut-
leysi sérfræðinganna í pistli á
Bylgjunni á dögunum og sagði
meðal annars: „Var augljóst að
skýrslur sérfræðinganna sem ég
nefndi voru greinilega litaðar af
mikilli samúð þeirra með kær-
andanum. Við málflutning í hér-
aði var farið yfir þetta. Raunar
höfðu sérfræðingarnir komið fyr-
ir dóm til að svara spurningum
um skýrslur sínar. I þeim ítarlegu
yfirheyrslum taldi ég koma mjög
skýrt fram að skýrslurnar væru
ekki hlutlausar.“
Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður
Barnaverndarstofu: Margt í málflutn-
ing Jóns hljómar fráleitlega frá sjónar-
hóli barnaverndar þótt það kunni að
vera gott og gilt frá lagalegu
sjónarmiði.
Bragi Guðbrandsson, forstöðu-
maður Barnaverndarstofu, hefur
opinberlega gagnrýnt málflutn-
ing Jóns Steinars í kjölfar dóms-
ins. Bragi telur umræðuna frá
hans hendi áreiðanlega hafa
„veruleg fælingaráhrif á þá sem
hugleiða að leggja fram kæru
vegna kynferðisofbeldis". Hann
segir gagnrýnivert að draga fram
og túlka einhliða upplýsingar,
eins og „ástúðlegt" bréf dóttur-
innar til hins kærða og nefna til
sögunnar mál sem kom upp
varðandi kcnnara. Bragi telur
anda bréfsins megi allt eins túlka
sem óskhyggju hennar um eðli-
legt fjölskyldulíf og að ásökun í
garð kennara megi túlka sem
óbeint ákall um hjálp, slíkt sé
þekkt fyrirbrigði í rannsóknum.
Bragi hafnar algjörlega þeirri
túlkun á sýknu mannsins að
framburður stúlkunnar hafi verið
upploginn. „Margt annað í hans
málflutningi hljómar fráleitlega
frá sjónarhóli harnaverndar þótt
það kunni að vera gott og gilt frá
lagalegu sjónarmiði,11 segir Bragi.
- FÞG
42 óupplýst mannshvörf
Samkvæmt svörum Sólveigar
Pétursdðttur dómsmálaráðherra
við fyrirspurn Björgvins G. Sig-
urðssonar varaþingmanns Sam-
fylkingarinnar og bráðabirgða-
samantekt embættis Ríkislög-
reglustjóra eru horfnir menn á
árunum 1945-1999 taldir vera
42. Hér er átt við óupplýst
mannshvörf, að sjómönnum frá-
töldum.
Af þessum 42 tilvikum eru 30
frá 1971 og síðar; 13 á áttunda
áratugnum, 12 á þeim níunda og
5 frá 1991. Sérstök vinna hófst
hjá Ríkislögreglustjóra í maí sl.
við að taka þessar upplýsingar
saman, en þeirri vinnu er ekki
lokið og hér því um bráðabirgða-
tölur að ræða. Takmörkuð gagna-
skráriing fyrrí áfá~hámlár þvTað
unnl var að gefa tæmandi upp-
Björgvin G. Sigurðsson varaþingmað-
ur: Það fjársvelti sem lögreglan hefur
búið við krystallast í getuleysinu við
að upplýsa þessi mannshvörf.
lýsíngar um ýmsÍlegT þáð sem
Björgvin spurði um. Þannig var
aðeins hægt að styðjast við minni
Iögreglumanna um rannsóknir
mannshvarfa, þar sem taliö var
að um hugsanlegt sakamál
(morðmál) væri að ræða og
mundu menn aðeins eftir tilvik-
unum tveimur í Guðmundar- og
Geirfinnsmálum og hvarfi Val-
geirs Víðissonar 1994, sem enn
sætir rannsókn og er óupplýst.
„Svörin eru áfellisdómur yfir
dómsyfirvöldum síðustu áratug-
ina. Það fjársvelti sem lögreglan
hefur búið við kristallast í getu-
leysinu við að upplýsa þessi
mannshvörf. Það vantar sjálfsagt
ekki viljann hjá lögregluyfirvöld-
um, en þvf miður hefur löggæsl-
an verið fjársvelt til tjóns,“ segir
Björgvin, aðspurður um svörin.