Dagur - 09.12.1999, Side 9

Dagur - 09.12.1999, Side 9
8- FIMMTVDAGUR9. DESEMBER 1999 FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1999 - 9 FRÉTTASKÝRING ro^ir Tkyptr. BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Deiliskipulag og breyting á deiliskipulagi í Reykjavík Reitur sem markast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vitastíg. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 26. október 1999 deiliskipulag fyrir reit sem markast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu og Vitastíg. Tillagan var auglýst þann 6. ágúst og var til kynningar til 3. september 1999. Athugasemdafrestur var til 17. september og bárust 8 athugasemdir og ein að honum liðnum. Umsagnir sveitarstjórnar um þær hafa verið sendar þeim er þær gerðu. Til að koma á móts við athugasemdirnar voru gerðar nokkrar breytingar á tillögunni bæði varðandi form og efni. Engar efnislegar breytingar voru gerðar nema til að koma á móts við þau sjónarmið sem fram komu í athugasemdunum. Breytingarnar eru í grófum dráttum þessar: Kvaðir voru skýrðar, fallið var frá breytingu á notkun bakhúsanna nr. 51 b og 53a við Laugaveg, húsið að Laugavegi 51 b var sett undir hverfisvernd, samþykktur skúr á Hverfisgötu 70 var teiknaður inn á uppdrátt, skýrar var kveðið á um tilhögun bílageymslna við Hverfisgötu, leiðréttar voru hæðarmerkingar á lóðunum nr. 53b og 55 auk þess sem formi og texta tillögunnar var breytt til að gera hana skýrari. Ártúnshöfði, athafnasvæði. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 1. júní 1999 deiliskipulag athafnasvæðis á Ártúnsholti. Tillagan var auglýst þann 23. mars og var til kynningar til 24. apríl 1999. Athugasemdafrestur var til 7. maí og bárust 7 athugasemdabréf. Borgarráð Reykjavíkur hefur afgreitt athugasemdirnar og hefur þeim aðilum sem þær gerðu verið sendar umsagnir. Magnús Brandsson, sparisjóðsstjóri. Ágúst Sigurlaugsson, starfsm. Einingar-lðju. Guðbjörn Arngrímsson, bæjarfulltrúi. Brynhiidur Vilhjálmsdóttir, húsmóðir. Hafdís Kristjánsdóttir, verkakona. Þeir sem óska nánari upplýsinga um skipulögin og niðurstöður borgarráðs um þær geta snúið sér til Borgarskipulags Reykjavíkur. í vanda Ásgeir Logi Ásgeirsson, bæjarstjóri. Víðir Jónsson, skipstjóri. Hnípinn bær Ólafsfírðingar lenda í miklu áfalli við gjald- þrot fiskvinnslufyrir- tækis Sæunnar Axels. Dagur heyrði hljóðið í bæjarbúunum í gær. Gjaldþrot fiskverkunarfyrirtækis- ins Sæunnar Axels ehf. í Olafsfirði kemur heimamönnum flestum í opna skjöldu og ekki sfður hversu stórt það er, en skuldir fyrirtækis- ins eru um 830 milljónir króna. Um 60 Ölafsfirðingar missa at- vinnuna nú á aðventunni í Olafs- firði og fara á atvinnuleysisskrá. Engin vinnsla var þar í gær, og tóm og myrkvuð fiskvinnsluhúsin báru þögult vitni um það sem gerst hefur. Engar líkur eru tald- ar á því að hjólin fari aftur á snú- ast fyrr en á næsta ári, jafnvel ekki fyrr en í mars. Bæjarstjórinn, Asgeir Logi As- geirsson, segir að í lengstu lög hafi vonir staðið til að fyrirtækið færi ekki í gjaldþrot. íbúarnir séu almennt slegnir yfir þessum tíð- indum og hafi áhyggjur af ástand- inu, enda ekki í aðra vinnu fyrir þetta fólk að Ieita. Af hálfu for- ráðamanna fyrirtækisins var ann- ara Ieiða, m.a. nauðasamninga, auk þess sem leitað var eftir því að fá byggðakvóta sem kunnugt er auk fyrirgreiðslu frá Byggða- stofnun. En til hvers að leita nauðasamninga ef engin breyting er í sjónmáli á rekstri fyrirtækis- ins? Er það heiðarlegt gagnvart skuldunautum? „Það sem er að gerast hér er ekkert sér ólafsfirskt fyrirbrigði. Við getum t.d. horft vestur á firði til Rauða hersins og Básafells og síðan Vinnslustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum til að sjá að víða eru stórkostleg vandræði í fiskvinnsl- unni. Við Islendingar stöndum frammi fyrir einu allsherjar vandamáli, en byggðin hér í Ólafsfirði, eins og viðar, byggir á sjósókn og fiskverkun og er und- irstaða þeirrar velsældar sem hér hefur verið. Spurningin er hvort það gerir það áfram. - Mun bæjarstjórnin með ein- hverjum hætti koma að þessu mdli? „Bæjarstjórn fundaði um málið á þriðjudag, sama dag og fyrir- tækið var úrskurðað gjaldþrota, og hefur þungar áhyggjur af þessu máli. Þetta kom bæjar- stjórninni á óvart, en ég veit ekki hvort hún mun með einhverjum hætti koma að því að hjólin fari aftur að snúast í þessari fisk- vinnslu. En það verður ekki að óbreyttu ástandi, það sjá allir. En skilningur margra stjórnmála- manna er mjög takmarkaður á þessum vanda. Meira púður fer til dæmis í Eyjabakkana," segir Asgeir Logi Asgeirsson, bæjar- stjóri. Sparisjóður Ólafsfjaröar greiðir laun Sparisjóður Ólafsfjarðar og Spari- sjóðabankinn eiga um helming allra skulda Sæunnar Axels, eða á fimmta hundrað milljónir króna. Magnús Danfel Brandsson, spari- sjóðssjóri, segir ekki gott að segja til um hvort það sé glatað fé, en hann voni að það verði sem minnst, en auðvitað séu einhverj- ar skuldir f uppnámi og undir þeim hatti sé sparisjóðurinn eins og aðrir kröfuhafar. Það er for- gangsverkefni sparisjóðsins, bæj- arfélagsins og fleiri aðila sem hagsmuna eiga að gæta að þarna verði komið af stað fiskvinnslu að nýju sem allra fyrst,“ segir Magn- ús Brandsson. Magnús, telur að fyrsta skrefið ætti að vera að tala við stærstu aðilana í sjávarútvegi við Eyja- fjörð, eins og Snæfell, Samherja, Utgerðarfélag Akureyringa og Þormóð ramma-Sæberg sem gætu séð sér hag í því að nýta sér húsnæði Sæunnar Axels og þá verkþekkingu sem er til staðar hjá starfsfólkinu. „Það á ekki að fara út í það að endurreisa þessa fiskvinnslu af hjálpsemi við fólkið eða bæjarfé- lagið, heldur til þess að hafa af því hagnað. Fiskvinnsla á lands- byggðinni er engin félagsmála- starfsemi frekar en annar at- vinnuvegur, menn eiga að hafa af allri atvinnustarfsemi hagnað. Það er eins og að pissa í skóinn sinn, það er ekki volgt nema í smá tíma. Ólafsfirðingum svíður að sjá sértækar aðgerðir eins og á Þingeyri þar sem komið er með kvóta og fjármagn, en gagnvart okkur virðast ríkja önnur sjónar- mið. Mér finnst að Byggðastofn- un hafi skyldur í því að koma hér að endurreisninni,“ segir Magnús Brandsson. Sparisjóður Ólafsfjarðar hefur boðist til að borga þau laun hjá Sæunni Axels, sem átti að greiða sl. föstudag. Þau geta starfsmenn fengið með þvf að framselja til Gjaldþrot fiskverkunarfyrirtækisins Sæunnar Axels í Úlafsfirði kemur heimamönnum flestum í opna skjöldu og ekki síður hversu stórt það er en skuldir fyrirtækisins eru um 830 milljónir króna. Sparisjóðsins þann hluta Iauna- kröfunnar á Ríkisábyrgðasjóð. Um 50 manns áttu að fá greidd Iaun sl. föstudag hjá Sæunni Ax- els, að upphæð 2,3 milljónir króna. Hábölvað mál „Eg er mjög undrandi á þvf að fyr- irtækið skuli vera komið í gjald- þrot. Ég kom hingað fyrir fimm árum og fannst þá að Sæunni Ax- els væri með betri fiskvinnslufyr- irtækjum landsins. Þetta er mikið áfall fýrir íbúanna, og ekki síður hvað þetta er há upphæð sem fyr- irtækið skuldar. Þetta gæti orðið meira en einn milljarður króna þegar öllum kröfum í þrotabúið hefur verið lýst. Eg er ekki trúað- ur á að þetta áfall þjappi Ólafs- firðinum saman og að það komi aðrir rekstraraðilar að þessum fiskvinnslurekstri, eins og t.d. sjávarútvegsfyrirtæki við Eyja- fjörð eins og talað er um hér í bænum. Þetta er ekki svona ein- falt. Hér er t.d. ekki hagkvæmt að gera út smábáta sem gætu verið að draga að töluvert hráefni. Þetta er alveg hábölvað mál, alls ekkert grín,“ segir Víðir Jónsson, skipstjóri á Kleifarbergi. Heift út í kerfið en ekki eigendur Sæunnar Axels Agúst Sigurlaugsson er starfs- maður verkalýðsfélagsins Eining- ar-Iðju í Ólafsfirði. Hann segir þetta gjaldþrot mikið áfall fyrir þá félagsmenn sem nú horfi fram á atvinnuleysi, og raunar Ólafsfirð- inga alla. Fólk hafi almennt Iifað í þeirri von að það tækist að leysa vanda Sæunnar Axels og halda fýrirtækinu gangandi. Fólkið sé þó ekki með neina heift út í eig- endurna, heldur miklu fremur kerfið og aðgerðarleysi stjórn- valda, enda hafi uppsagnartími þess verið margendurnýjaður en fyrst átti það að hætta I. október síðastliðinn. „Þetta er dugnaðarfjölskylda sem hefur rekið fyrirtækið og unnið mikið sjálft í vinnslunni. Ef þau geta ekki rekið svona vinnslu þá óttast ég að það sé yfirleitt erfitt hvar sem er á landinu. Að þetta skuli koma upp nú rétt fyrir jól er ennþá erfiðara. Það hefur ekki verið vinna hjá fiskverkun Sigvalda Þorleifssonar síðasta mánuð vegna hráefnisskorts og fólkið hefur verið heima. A mánudaginn kemur fer það fólk einnig á atvinnuleysisskrá, hátt í 20 manns og 5 manns hjá Garð- ari Guðmundssyni svo það verða margir Ólafsfirðingar atvinnu- lausir um jól og fram á nýja öld. Það er aðeins verið að vinna fisk hjá Stíganda, innan við 10 manns. Það er skelfilega lítið í svona útgerðarplássi," segir Agúst Sigurlaugsson. Ef ekki aftur vtnnsla fer allt í klessu „Eg bjóst ekki við því að ástandið væri svona svart. Ég hélt að Sæ- unn væri bara að mótmæla því að hún fengi ekki byggðakvóta. Hún tók við miklum rekstri og var skyndilega orðinn stærsti atvinnu- rekandinn, við hlið frystitogar- anna. Kannski hefur það verið of stór biti að kyngja og því ætti þetta kannski ekki að koma á óvart. Ef það byrjar ekki aftur vinnsla þarna fer allt í klessu hér. Það má vel íhuga það að bæjar- sjóður komi að endurreisninni með einhverjum hætti, en dragi sig síðan út. Mér líkar mjög vel í Ólafsfirði og vil búa hérna með minni fjölskyldu, eiginmanninum sem er á sjó og tveimur drengjum, öðrum nýfæddum og tveggja ára,“ segir Brynhildur Vilhjálmsdóttir, heimavinnandi húsmóðir. HryUHegt ef ekM verður fiskviunsla í Ólafsfirði Guðbjörn Arngrímsson situr í minnihluta bæjarstjórnar Ólafs- fjarðar. Hann segist ekki vita hvort hægt hefði verið að forðast þetta gjaldþrot því aldrei hafi komið inn á borð bæjarstjórnar neitt erindi frá Sæunni Axels, hvorki um stuðning né annað. Það hafi hins vegar komið á óvart að fyrirtækið skyldi verða gjald- þrota þó honum hafi verið kunn- ugt um að fyrirtækið væri ekki í góðum málum vegna kvótaleysi og þurft hefði að kaupa allt hráefni á mörkuðum dýrum dóm- um. „Bæjarstjórnin mun öll freista þess að halda hér uppi atvinnu fyrir þá sem þess æskja, en mér er ekki Ijóst hvort sveitarstjórnin get- ur eitthvað gert í málinu þar sem við búum orðið við þannig kerfi í fiskvinnslu. Það er illmögulegt að ná í kvóta án þess að borga fyrir hann óheyrilegt verð þó svo for- ráðamenn þjóðarinnar tali um það á gamlárskvöld og 17. júní að við allireigi fiskveiðikvótann. Þró- unin í fiskvinnslu á landinu öllu Háskóli íslands, austan Suðurgötu. Borgarráð Reykjavíkur samþykkti þann 28. september 1999 deiliskipulagsvæðis Háskóla íslands austan Suðurgötu. Tillagan var auglýst þann 23. mars og var til kynningar til 24. apríl 1999. Athugasemdafrestur var til 7. maí og bárust tvö athugasemdabréf. Borgarráð Reykjavíkur hefur afgreitt athugasemdirnar og hefur þeim aðilum sem þær gerðu verið sendar umsagnir Deiliskipulög þessi hafa verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar og hlutu gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda. AKUREYRARBÆR er mjög slæm og ég hugsa til þess með hryllingi ef staður eins og Ólafsfjörður fer að byggjast upp öðru vísi en að hér verði fisk- vinnsla. Ég sé ekkert að því að sveitarfélag eins og Ólafsfjörður eigi í fyrirtækjum en því miður eru menn þannig þenkjandi í meirihlutanum að bærinn eigi ekki að vera að vasast f atvinnu- rekstri. Fyrir 10 árum átti Ólafs- fjarðarbær hlut í frystihúsi og tog- ara og hefði bærinn átt hlutinn tveimur árum lengur þá ætti hann hugsanlega kvóta í dag eins og Ak- ureyri gegnum UA, og þá væri staðan hér öðru vísi,“ segir Guð- björn Arngrímsson. Sæium ekki með bæjarfélagið áherðunum „Eg hef verið heima í 4 vikur vegna hráefnisskorts hjá mínum vinnuveitenda, Sigvalda Þorleifs- syni, en á Iaunum. Það var allt og djúpt tekið í árinni hjá Sæunni að segja að hún væri með bæjarfélag- ið á herðunum. Ég hvíldi aldrei á herðunum á henni, en hún var að bjarga sínu fyrirtæki. Eg held að það það bíði mín vinna eftir ára- mót en þá verður aftur farið að kaupa fisk á mörkuðum,“ segir Hafdís Kristjánsdóttir. Viðtalstímar bæjarfulltrúa Mánudaginn 13. desember 1999 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Valgerður Hrólfsdóttir og Oktavía Jóhannesdóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra að Geislagötu 9, 1. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 460 1000. Aðalfundur knattspyrnudeildar Aðalfundur Knattspyrnudeildar verður haldinn fimmtudaginn 9. desember 1999 kl. 20:30 í fundarsal KA heimilisins. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar hvattir til að mæta á fundinn. Stjórn Knattspyrnudeildar KA. GEIRA. GUÐSTEINS- SON

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.