Dagur - 09.12.1999, Síða 12

Dagur - 09.12.1999, Síða 12
12 - FIMMTUDAGUH 9. DESEMBEH 1999 ERLENDARFRETTIR Rússum hótað refsiaðgerðuin Rússnesk stjómvöld segjast ekki hafa lengt frestinn, sem íbúum Grosní var gefinn. Sameinuðu þjóðrinar, Evrópu- ráðið og Oryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu vara Rússa eindregið við því að gera alvöru úr þeirri hótun sinni að leggja Grosní, höfuðborg Téténíu, í rúst og tortíma öllu fólki sem þar kann að vera eftir að frest- ur, sem Rússar settu íbúum borgarinnar, rennur út á laug- ardag. Þetta kemur fram í sam- eiginlegri yfirlýsingu frá þess- um þremur alþjóðastofnunum. Þýskaland, sem er stærsti lánardrottinn Rússa, hefur enn fremur sagt að ólíklegt sé að nokkur lán verði greidd til Rússa meðan Téténíustríðið heldur áfram að harðna. Ger- hard Schröder, kanslari Þýska- lands, sendi bæði Boris Jeltsín forseta Rússlands og Vladimír Pútín forsætisráðherra orð- sendingu þar sem hann krefst þess að lokafrestur sá sem íbú- um Grosnf var gefinn verði tekinn til baka. Þá sagðist Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í gær vilja að það verði tekið til um- ræðu á leiðtogafundi ESB í Helsinki nú í lok vikunnar hvort leggja eigi refsiaðgerðir á Rússland vegna Téténíustríðs- ins. A mánudaginn fordæmdi Prodi framferði Rússa í Tétén- Rússar segjast hafa náó Urus-Martan á sitt vald í gær eftir haröa bar- daga. íu, og þá sérstaklega frestinn sem Rússar gáfu íbúum Grosní til þess að koma sér burt úr borginni áður en hún yrði lögð í rúst. Rússar báru í gær til baka fréttir vestrænna sjónvarps- stöðva um að þeir hefðu lengt frestinn, sem Grosníbúar hafa til þess að yfirgefa borgina. Hins vegar milduðu þeir orða- lagið nokkuð og sögðu hótun- ina einungis hafa beinst að skæruliðum, ekki óbreyttum borgurum. Rússar tilkynntu borgarbú- um sfðastliðinn mánudag að þeir, sem ekki hefðu komið sér burt á laugardaginn, myndu teljast vera glæpahyski og hryðjuverkamenn og þar af leiðandi réttdræpir í hernaði Rússa gegn íslömskum skæru- liðum. Rússneski herinn hefur haldið uppi nánast stöðugum árásum á borgina undanfarið og íbúar borgarinnar varla þor- að út fyrir dyr, hvað þá að koma sér á brott frá borginni. , Rússneski herinn segist hafa náð borginni Urus-Martan á sitt vald, en harðir bardagar hafa verið þar síðustu daga. Að mati rússneska hersins voru um það bil 2000 íslamskir skæruliðar í borginni, en þeir munu nú hafa yfirgefið Urus- Martan. Þar í borg hafa helstu bækistöðvar skæruliðanna ver- ið. Madeleine Aibright. HEIMURINN Albii ght segist bjartsýn ISRAEL - Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði ísraelsmenn og Sýrlendinga hafa komíst vel áleiðis í áttina að friðarsamkomu- lagi, en hún var þá komin til Jerúsalem eftir að hafa hitt ráðamenn Sýrlands ojg Israels að máli. Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, tók undir þetta með henni. Jafnframst sögðust þau bæði bjartsýn á að Ísraeísmönnum og Palestínumönnum myndi takast að standa við áætlun sína um að ljúka samn- ingum innan rúmlega tveggja mánaða. Palestínu- menn slitu hins vegar öllum viðræðum við Israels- menn á mánudag og kreljast þess að allri uppbyggingu á landnáms- svæðum ;í Vesturbakkanum verði hætt áður en áfram verður haldið. Tiulíian liggur fyrir dauðanum KRÓAI ÍA - Allt bendir til þess að Franco Tudjman, forseti Króatíu, eigi skammt eftir ólifað. Læknar sögðu í gær að ástand hans væri mjög alvarlegt, en hann hefur tvisvar gengist undir aðgerð á þörmum frá því í nóvemberbyrjun. Allt stjómskipulag í Króatíu miðast mjög við sterkt forsetavald Tudjmans, en fyrir bálfum mánuði Iýsti þing landsins því yfir að hann væri óhæfur til að stjórna landinu vegna bágrar heilsu. Svindlað í New York BANDARIKIN - Tugir kennara og noklu-ir skólastjórar í New York hafa orðið uppvísir að því að láta nemendum sínum fyrirfram í té svör við prófum í nokkrum fögum, meðal annars í ensku og stærðfræði. Þetta er viðamesta prófasvindl sem vitað er um í bandarískum skól- um, og hefur þctta verið stundað um fimm ára skeið. Ástæðan er sú að skólar í New York eru undir miklum þrýstingi um að standa sig í samkeppni við aðra skóla. Meðal annars er fjárhagsstaða þeirra kom- in undir því hversu vel nemendum gengur á prófi. Sjálfsmorð líklegt Rannsóknarmenn, sem hafa nú um nokkurt skeið haft til nánari skoðunar upptökur úr flugstjórnarklefa egypsku þot- unnar sem hrapaði út af aust- urströnd Bandaríkjanna í lok október, telja enn mestar lfkur á því að annar flugstjóra vélar- innar hafi vísvitandi steypt vél- inni í hafið og þar með bæði framið sjálfsmorð og grandað öllum sem um borð voru. Þó segjast þeir eiga eftir að bera nánari kennsl á þær raddir sem heyrast á upptökunni þannig að ljóst verði nákvæmlega hver sagði hvað. Sjálfsmorðstilgátan hefur vakið milda reiði í Egyptalandi allt frá því hún kom fyrst fram, en þar í landi eiga menn ákaf- lega erfitt með að leggja trúnað á að trúaður múslimi hafi framið slíkan verknað. Stórt björgunarskip hóf á þriðjudag tilraunir til að bjarga af hafsbotni flaki flugvélarinn- ar og líkamsleifum þeirra sem fórust. Með egypsku þotunni fórust alls 217 manns, allir sem um borð voru, en vélin var á leið- inni frá New York til Egypta- lands. Vélin, sem var af gerð- inni Boeing 767, hrapaði skyndilega í hafið skömmu eft- ir flugtak frá New York. ÍÞRÓTTIR Stuð á Stjömuimi Stjarnan úr Garðabæ sigraði ís- lands- og bikarmeistara Aftureld- ingar í annað sinn á skömmum tíma þegar liðin mættust í 8-Iiða úrslitum Bikarkeppni HSÍ í íþróttahúsinu Ásgarði í fyrra- kvöld. Leikurinn var ekki síður skemmtilegur og spennandi en leikur liðanna Mosfellsbæ fyrir tíu dögum, þegar Stjarnan vann Aftureldingu 24-27 í deildar- keppninni Stjarnan byrjaði miklu betur í leiknum í fyrrakvöld og náði mest fjögurra mark forskoti sem hélt lengst af í fyrri hálfleik, en staðan var 14-10 í hálfleik. Mosfellingar byrjuðu betur í seinni hálfleik og tókst að jafna leikinn í 14-14 og kom- ast yfir í 18-19 þegar leið á hálfleikinn. Mikil spenna var á lokakaflanum og þegar um það bil ein mínúta var til leiksloka og staðan 22-21 fékk Afturelding gott tækifæri til að jafna eftir að leiktöf var dæmd á Stjörnuna. Góður markvörður liðsins, Birk- ir Guðmundsson, gerði sér þá lítið fyrir og varði dauðafæri frá Gintas. Stjarnan hélt í sókn og aftur var dæmd leiktöf þegar 1 5 sekúndur voru til leiksloka, sem var of stuttur tími fyrir bikarmeistarana og eins marks sigur Stjörnunnar því staðreynd. Hjá Stjörnunni var Birkir markvörð- ur bestur og varði alls 17 skot, þar af 10 í seinni hálfeik. Einnig voru þeir Hilmar Þórlindsson og Arnar Pétursson góðir, en Arnar var marka- hæstur með 6 mörk og Hilmar næstur með 5/1. Hjá Aftureldingu bar mest á Magnúsi Má Þórðarsyni og var hann markhæstur þeirra með 5 mörk. Bjarki Sigurðsson meiddist í leiknum og var ekkert með eftir miðjan seinni hálfleik, eftir að hafa verið klipptur út lengst af leiksins. Stjörnutemmning eftir sigurinn gegn Aftureldingu. Fjórða heimatap ísfírðinga í röð Urvalsdeildarlið KFI í körfubolta tapaði enn einum heimaleiknum, þegar Þór frá Akureyri kom í heimsókn til Isafjarðar í fyrrakvöld. Þeir hafa þar með spilað fjóra heimaleiki í deildinni og tapað þeim öllum, en unnið tvo á útivöllum, gegn ÍA og Skallagrími. Sigur Þórsara var þó naumur, því aðeins eitt stig skildu á milli þegar flautað var til leiksloka og varð lokastaðan 89-90. Isfirðingar höfðu frumkvæðið framan af leik og höfðu náð fjögurra stiga forystu í hálfleik 43-39. I seinni hálfleik skoruðu ísfirðingar svo fyrstu fjögur stigin áður en Þórsar komust í gang, en þá kom góður leikkafli hjá gestunum, sem skilaði þeim foryst- unni um miðjan hálfleikinn. Isfirðingar létu þó ekki slá sig út af laginu og komust aftur inn í leikinn og höfðu komist stigi yfir, áður en Þórs- arar sigldu framúr á Iokamínútunum. Hjá KFI var Clifton Bush bestur og stigahæstur með 29 stig og nýr leikmaður, Vinco Pathais, sýndi góð tilþrif og skoraði 21 stig. Halldór Kristinsson átti líka góða spretti og skoraði 17 stig. Bestir hjá Þór voru þeir Daniel Spillers sem var stigahæstur með 29 stig og Oðinn Ásgeirsson og Magnús Helgason, sem spiluðu mjög vel í seinni hálfleiknum. Magnús var næst stigahæstur með 20 stig og Oð- inn skoraði 1 5. Eggjameistaramir lögðu íslandsmeistarana Á mánudag fór f'ram á Sauðárkróki leikur „eggja, elds og ísa“ þegar ís- landsmeistarar Kcflvíkinga heimsóttu Eggjabikarmeistara Tindastóls á Krókinn. Stólarnir tóku Suðurnesjaliðið engum vettlingatökum og unnu sannfærandi íjórtán stiga sigur, 93-79, eftir að staðan var 52-43 í hálfleik. Þetta er annar sigur Tindastóls á meisturunum á stuttum tíma, því þeir sigruðu þá einnig í úrslitaleik Eggjabikarsins í síðasta mánuði. Stólarnir sýndu það í leiknum að þeir eru nú með eitt besta liðið í deildinni og sigurinn var nokkuð öruggur allan leikinn ef frá eru taldir tveir leikkaflar í sitt hvorum hálfleiknum. Eftir að Tindastóll hafði náð þægilegri forystu í upphafi leiksins náðu Keflvíkingar að jafna leikinn og komast yfir um miðjan hállleikinn, en lengra komust þeir ekki að sinni, fyrr en langt var liðið á seinni hálfleikinn að þeir náðu aftur inn- komu í leikinn og komust einu stigi yfir. En lengra komust þeir ekki og Stólarnir sigldu örugglega yfir með góðum leik á lokakaflanum. Það skipti mildu fýrir Keflvíldnga á lokakaflanum að Chianti Robert þurfti að yfirgefa völlinn með fimm villur, eftir að hafa sýnt góðan leik það sem af var seinni hálfleiks. Þeir Shawn Mayers og Kristinn Friðriksson voru bestir hjá Tindastóli og var Mayers stigahæstur með 21 stig, en Kristinn næstur með 18. Hjá Keflvíkingum skoraði Magnús Gunnarsson mest, eða 21 stig og Roberts var næstur með 17. Úrslit leikja í gærkvöld Handbolti Bikarkeppni karla (8-liða lirslit) HK - ÍR 29-26 Grótta/KR - Víkingur 31-32 Valur - Fram 19-22 Fótbolti Meistaradeild Evrópu: Barcelona - Sparta Prag 5-0 Porto - Hertha Berlin 1-0 Bordeaux - Fiorentina 0-0 Man. United - Valencia 3-0 Leitór í kvöld Körfubolti Urvalsdeild karla Kl. 20.00 Skallagrímur - Njarðvík Kl. 20.00 UMFG - KFÍ Kl. 20.00 Keflavík - ÍA Kl. 20.00 KR - Hamar KI. 20.00 Haukar - Snæfell Úrvalsdeild kvenna Kl. 18.00 KR - Keflavík I. deild karla Kl. 20.15 ÍS-ÞórÞorl.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.