Dagur - 11.12.1999, Síða 2

Dagur - 11.12.1999, Síða 2
fc % V* Q. V V» * Nfc v* '* » v* ** N •» V, 5% 5V k U U H X » V .r> 2- LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 FRÉTTIR Jólamaturinn er nú næstum 7% dýrari en hann var fyrir síðustu jól. Vonir ráðamanna um árvissa verðbólgu- lækkuu í desember brugðust í ár. Lauds- menn heilsa því nýrri öld í næstum 6% verðbólgu. íslendingar heilsa nýrri öld í 5,6% verðbólgu. Verðbólgan er nú á fullri ferð í jólamánuðinum, öfugt við síðustu sex árin, þegar vísitala neysluverðs hefur jafnan lækkað nokkuð í desember, eink- um matvöruverð. Matur og drykkir hækkuðu nú um 0,3% milli mánaða og jólamaturinn er nú næstum 7% dýrari en fyrir síðustu jól. Matar- og drykkjar- vörur, aðrar en búvörur og græn- meti, eru nú að jafnaði ríflega 9% dýrari en í desember í fyrra. En svo er fremur hóflegum hækkunum á kjötvörum (2,5%) og mjólkurvörum (4,3%) íyrir að þakka að búvöruliðurinn hefur aðeins hækkað tæp 4% síðan um sfðustu jól. Mesta hækkun síðan 1991 Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,4% milli mánaða, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar og er nú 5,6% hærri en í desember- byrjun í fyrra. Fara verður allt aftur í desember 1991 til að finna dæmi um meiri hækkun vísitölunnar desember-desem- ber. Síðan 1993 hefur vísitalan aldrei hækkað meira en 2,1% og samamlögð hækkun síðustu fimm ára, desember 1993 til desember 1998, er aðeins um 8%. Um 5,6% hækkunin á þessu ári er þannig meira en þreföld meðalhækkun síðustu fimm ára. Um helmingur af hækkuninni milli mánaða var vegna 2% hækkun íbúðaverðs. Rúmlega 1% hækkun á bensíni hafði Ifka sitt að segja og 1% hækkun á snyrtingu og snyrtivörum vóg litlu minna. Jólaolið og gosið 11% dýrara ení fyrra Fróðlegt er að skoða nánar hvað einstakir liðir matar og drykkjar- vara hafa hækkað frá síðasta jólamánuði. „Jólagosið/öIið“ er nú 11,4% dýrara en fyrir ári og feitmetið sömuleiðis. „Jólaávext- irnir“ eru 10,5% dýrari, ýmsar unnar matvörur sömuleiðis og sætindi kosta jafnaðarlega 9% meira en fyrir ári. „Jólabrauðið" og aðrar kornvörur eru nú um 8% dýrari og grænmeti og kart- öflur eru rúmlega 7% dýrari. „Jólakaffið" er eitt af því fáa sem ekki hefur hækkað fram úr hófi, aðeins 2%, frá síðustu jólum. Hvort 14% meðalhækkun á fiskliðnum gildir líka um þor- láksmessuskötuna, verður ekki ráðið af vísitölutilkynningu Hag- stofunnar. — HEI Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Mistök í erfiðri aðgerð Kona sem metin er með 30% varanlegan miska eftir Iækna- mistök í skurðaðgerð við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA), fær samkvæmt niður- stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur 1,5 milljón króna bætur, sem er sama upphæð og konan krafði. í máíinu var því ekki haldið fram að viðkomandi læknir hefði gerst sekur um stórkost- legt gáleysi og lá fyrir að hol- skurðsaðgerðin hefði verið mjög erfið. Við uppkvaðninguna kom fram það mat Qölskipaðs hér- aðsdóms, að gera þyrfti miklar kröfur til háskólamenntaðra sér- fræðinga og taldi dómurinn að læknirinn hefði ekki brugðist við eins og gera yrði kröfu til og voru þau mistök metin honum til sakar. — fþg Því midur haföi ég rétt fyrir mér „Raunverulega er þetta ekki ný staða, þetta hefur gerst áður. Eg hef haldið því fram fyrir daufum eyrum að Vestfirðingar þurfi að tryggja sig betur en þeir hafa gert fyrir svona löguðu með því að al- menningur í fjórðungnum ráði yfir fyrirtækjum með aflaheim- ildir. Því miður hafði ég rétt fyrir mér í þessu Básafellsmáli. Það hefur ræst að stórir aðilar áttu hér allt of mikið af aflaheimild- um og fóru með þær út og suður, stungu peningunum í vasann og eru sjálfsagt að braska með þá í fjárfestingafélögum hingað og þangað um heiminn. Fólkið situr hér eftir tekjulítið og ekki með of bjarta framtíð sem íbúar hér á svæðinu. Eg vona að það sé til nóg af vestfirskri seiglu í mönn- um að þeir klóri nú í bakkann og reyni að byrja upp á nýtt í smá- um stíl,“ sagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða spurður um viðbrögð við örlögum útgerðarfyrirtækisins Básafells. Pétur sagði að það væri reynd- ar ekki jafn auðvelt að byrja upp á nýtt og á árum áður. Nú þurfi menn ekki bara fagurt fley, dugnað og áræði heldur leyfi til að fiska, þ.e. kvóta. Það leyfi sé ekki í höndum neinna athafna- manna heldur allskonar fjárfesta um allar trissur. Hvort menn væru að byrja upp á nýtt á réttan hátt sagði Pétur að það hefði verið rangt að berja ekki í brestina og reyna að safna fé til að halda eftir einhverjum aflaheimildum Básafells. Ekki að pakka saman og flytja suður. Láta frekar reyna á vestfirsku seigluna. — BJB Nauðasanmingiir KÞ í næstu viku Héraðsdómur Norðurlanas eystra tekur fyrir ltröfu um staðfestingu nauðasamnings Kaupfélags Þing- eyinga á Húsavík gagnvart kröfu- höfum þann 15. desember nk. Samkvæmt samningnum þarf að greiða 65% af nauðasamningsupp- hæðinni, sem er 232 milljónir króna, innan þriggja vikna, en heildarupphæð nauðasamnings er 357 milljónir króna en skuldir KÞ námu 458 milljónum króna. Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu, sem margir eiga stórar kröfur á KÞ, hafa gert sér vonir um að fýrsta greiðs- lu yrði innt af hendi fyrir jól, en samkvæmt þriggja vikna reglunni eiga þeir það ekki víst. Því kann svo að fara að bændur fái ekki þær greiðslur sem þeir væntu fyrir jól. Þó er vitað að allt kapp verður lagt á að greiða sem fyrst, en til þess þarf að fá fjármagn frá Landsbank- anum. Eftirtstöðvarnar á að greiöa með þremur jiilnum afborgunum, fyrs- ta greiðsla 1. febrúar árið 2000, önnur greiðsla I. ágúst 2000 og þrið- ja og síðasta greiðsla 1. apríl 2001. — GG Sprengiefnið ófundið Enn hefur ekki tekíst að upplýsa um hvarf mikils magns sprengiefnis í Kópavogi um síðustu helgi. Málið er enn f rannsókn en engar áþreif- anlegar vfsbendingar hafa komið fram. Brotist var inn í sprengiefnageymslu við Hagasmára 1 og úr henni stolið 25 túpum af dínamíti og svipuðum fjölda af hvellhettum. Þetta gera um 50 kíló af sprengiefninu. Sennilegast er talið að sprengiefn- ið hafi horfið milli kl. 16 á Iaugardag og fram á mánudagsmorgun. - FÞG Vaka-Helgafell 1 Fíiunn miðli í samræmi við frétt Dags frá því um síðustu helgi var það gert op- inbert í gær að Vaka-Helgafell hefði keypt þriðjungshlut í Ijós- vakafyrirtækinu Fínum miðli, eða 34%. Um nýtt hlutafé er að ræða og halda fyrri eigendur sín- um eígnarhlutum, þ.e. banda- ríska fyrirtækið Saga Commun- ications og Samfélagið efh, fyrir- tæki SAM-bíó feðganna Arna Samúelssonar og Björns Arna- sonar. I tilkynningu frá samn- ingsaðilum segist Vestur-Islend- ingurinn Ed Christian, aðaleig- andi Saga Communications, vera mjög ánægður með inn- komu Vöku-Helgafells. Olafur Ragnarsson, stjórnarformaður Vöku-Helgafells, tekur í sama streng og segir þetta íyrsta skref útgáfufyrirtækisins í útvarps- rekstri. - bjb Bimaðarbankiim í ókeypis-slagiim Búnaðarbanki íslands hefur nú bæst í slaginn um netverjana og mun í samstarfi við Landssímann bjóða landsmönnum upp á ókeypis net- aðgang frá áramótum. Eins og hjá öðrum bönkum mun þessi þjón- usta standa öllum til boða, óháð því hvort viðkomandi er í viðskiptum hjá bankanum eða ekki, einungis þarf að greiða lýrir símanotkunina. Hægt er að skrá sig nú þegar, á slóðinni www.binet.is eða með því að hringja í Búnaðarbankann. Með í „kaupunum" fylgir það tilboð til viðskiptavina Búnaðarbankans að þeir geta nýtt sér tölvukaupatilboð frá ACO, þar sem ekkert þarf að greiða út en sfðan 3.550 krónur að meðallali á mánuðí í þrjú ár.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.