Dagur - 11.12.1999, Qupperneq 4
I
r
t
r
r
\
y
F
4 - LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
FRÉTTIR
Þetta gæti orðið æ algengari sjón á landsbyggðinni ef fram heldur sem horfir.
Unga fólkio flýr
landsbyggðina
FlóttafólMð af landsbyggð-
iniii er allt ungt íólk, 16-
35 ára, en þeiin eldri hefur
hlutfailslega fjölgað síð-
ustuárin.
Ungu fólki, 16-35 óra, fækkaði á lands-
byggðinni um 5.500 manns (18%) á síð-
ustu fjórum árum, 1994-98. A sama
tíma fjölgaði þessum aldursbópi um 7% á
höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt nýrri
vinnumarkaðsskýrslu Hagstofunnar. Aft-
ur á móti hefur hlutfallslega fjölgað í
eldri aldurshópunum á landsbyggðinni,
allra mest í hópi þeirra sem nú nálgast
ellilaunaaldurinn. Sláandi er að háskóla-
menntuðum á höfuðborgarsvæðinu fjölg-
aði um 3.900, rúman Ijórðung, þessi
Ijögur ár á sama tíma og þeim fækkaði
um 100 á landsbyggðinni, þar sem að-
eins 16% háskólamenntaðra eru búsettir,
en 45% fólks með grunnskólamenntun.
Unga fólkið flýr - með bðrnin
Skýrslan leiðir glöggt í ljós að allan fólks-
flóttann af landsbyggðinni má rekja til
þess að unga fólkið hefur yfirgefið hana
þúsundum saman síðustu íjögur árin.
Arið 1994 var nánast jafnvægi í hlutfalli
einstakra aldurshópa í sveit og bæ. Þá
bjuggu um 40% allra landsmanna á
starfsaldri á landsbyggðinni, raunar eilít-
ið hærra hlutfall unga fólksins (16-35
ára), eða 41%. En í fyrra hafði hlutfall
þessa unga fólks hrunið á landsbyggðinni
í aðeins 34,5% og þar með hækkað að
sama skapi fyrir sunnan. Þessi breyting
svarar til þess að ungu fólki á lands-
byggðinni hafi fækkað um 4.800 manns
(16%), auk þess sem við er að búast að
þessi aldurshópur hafi tekið með sér suð-
ur ein 2-3 þúsund börn (sem nú eru
væntanlega að sprengja utan af sér leik-
skóla og grunnskóla höfuðstaðarins).
Landsbyggðin eldist
A hinn bóginn hefur hlutfall fólks á aldr-
inum 35-75 ára heldur hækkað á lands-
byggðinni, eða úr tæpum 40% allra
landsmanna á þessum aldri fyrir fjórum
árum í 40,5% í fyrra. Allra hæst er hlut-
fall landsbyggðarmanna raunar í hópi
þeirra sem nú nálgast ellilaunin (55-65
ára) því 43% allra á þessum aldri bjuggu
á landsbyggðinni en aðeins 57% á höfuð-
borgarsvæðinu - þar sem 61% allra lands-
manna voru þó búsettir í lok síðasta árs.
Vinnusemi meiri úti á landi
Síðustu Qögur ár hefur fólki á vinnualdri,
16-74 ára, fjölgað um 7.500 á höfuð-
borgarsvæðinu en fækkað um 2.100 á
landsbyggðinni. Þeir sem eftir eru virð-
ast reyna að bæta það upp með að vinna
meira. Því þrátt fyrir mikla fækkun hefur
vinnuafli landsbyggðarinnar (59.200
manns) ekkert fækkað, heldur atvinnu-
þátttaka einfaldlega aukist úr rúmlega
82% upp í 84% á þessum fjórum árum -
og er orðin um um 3% hærri en á höíuð-
borgarsvæðinu. Þar jókst vinnuafl um
6.800 manns en atvinnuþátttaka hins
vegar sára lítið, og var rúmlega 81% í
fyrra. Munurinn er mestur meðal 65-75
ára fólks. Um 47% þess aldurshóps er í
vinnu á landsbyggðinni en 38% syðra,
þar sem hlutfall vinnandi er líka lægra
meðal 25-45 ára fólks. — HEI
Sérfræðingar heita
pottsins í innanhússmál-
efnum RÚV segja mikla
fléttu í uppsiglingu varð-
andi yflrmannamál stofn-
unarinnar. Sem kumiugt er
þá mun Sigurður Valgeirsson
hætta sem deildarstjóri
innledrar dagskrár um ára-
mót og við brotthvarf hans
byrjar kapallinn að rekja sig.
Við starfi Sigurðar mun sam-
kvæmt þvi taka Rúnar Gunn-
arsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins,
en í starf Rúnars mun svo Bogi Ágústsson fara,
en starf aðst. framkvæmdastjóra er ekki talið
eins stressandi og fréttastjórastarfið og Bogi er
að ná sér eftir vægt hjartaáfall sem kunnugt er.
Við þetta losnar starf fréttastjóra og yrði þá Elín
Hirst sett í það starf, en pottverjar segja það
lengi hafa legiö fyrir að hún ætti frama vísan á
fréttastofu Sjónvarps...
Sigurður 1/algeirs-
son.
í pottinum þenda menn líka á
að öll þessi flétta verði í raun
til bráðabirgða, vegna þess að
í undirbúningi er að búa til
sameiginlegt fréttasvið út-
vaips og sjónvarps hjá RÚV. í
umræðunni um þessa sam-
einingu liefur verið talað um
hvor þeirra fréttastjóra, Kári
Jónasson eða Bogi Ágústsson, yrði settur yfir
sviðið. Samkvæmt kenmngum pottverja yrði
það þá Bogi - enda bæði í réttum flokki og lipur í
samskiptum þegar fléttur eru annars vegar...
Bogi Ágústsson.
í framhaldi af
„ókeypis" - keppni
bankanna og síma-
fyrirtækjanna um
viðskiptavini fram-
tíðarinnar, netverjana, veltu pottverjar því fyrir
sér hvert framhaldið yrði ef Landsbanki og ís-
landsbanki sameinuðust. Niðurstaðan lá auðvit-
að í augum uppi en af samkeppnisástæöum
þorðu pottveijar varla að segja það upphátt:
Landssíminn og Íslandssími hljúu að sameinast
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Haraldur Bríem
sóttvamalæknir
Inflúensa afstofniA
erkomin til landsins.
Bólusetningar mikilvægar
fyrireldrafólk og þá sem
veikirerufyrir.
”*HL'fiMrfdlídffi
Bólusetningar margborga sig
- Hver eru helstu einkennin semfólkfær?
„Það komu þrjú tilfelli í röð hérna fyrir
nokkrum dögum hjá Islendingum sem ekki
hafa verið að ferðast. Það þýðir að inflúens-
an er komin. Einkenni inflúensunnar eru
beinverkir, hiti og höfuðverkur stundum í
tengslum við það. Einnig hósti, hálssærindi
og almenn vanlíðan. Eldra fólk getur orðið
veikt lengi og verið lengi að jafna sig og oft
er hætta á lungnabólgu í kjölfar inflúensu ef
maður fer ekki vel með sig. Það sem við ger-
um alltaf á haustin er að leggja til að allir
sem eru yfir sextíu ára láti bólusetja sig,
bæði fyrir inílúensu og gegn þeim lungna-
bólgubakteríum sem geta komið í kjölfarið."
- Borga bólusetningar sig?
„Þær borga sig aldeilis tvímælalaust. Allir
kostnaðarútreikningar sýna það. Jafnvel eru
til tölur um að það borgi sig að bólusetja
yngra fólk vegna þess að það dregur úr fjar-
vistum úr vinnu. Við höfum líka lagt til að
allir sem starfa til dæmis í heilbrigðisþjón-
ustunni og umgangast gamalt og Iasið fólk
láti bólusetja sig og sjúkrahúsin hafa boðið
upp á þetta. Þá er tilgangurinn bæði að
vernda starfsmanninn en líka sjúklingana
þannig áð ‘itarfsfólkið sé ekki a$ bera flens-
r\/l< tcf : r • fytívt i:. ifiíí í$t*í .I;i n rrunv / i
una inn á sjúkrastofnanir. Á hverju ári koma
samt upp efasemdir um gagnsemi bólusetn-
inga vegna þess að einhver sem fékk bólu-
efni fékk flensu og það mun alltaf gerast.
Heildaráhrifin eru samt mjög hagkvæm."
- Eru breytingar ú milli úra ú eðli inflú-
ensunnar?
„Já, á hverju ári kemur ný samsetning af
bóluefni. Þetta gerist þannig að inflúensan
á oftast upptök sín í suð-austur Asíu, þar er
það tölfræðilega Iíklegast af því að þar er
flest fólkið. Síðan fer hún yfir á suðurhvelið
þegar þar er vetur og kemur svo hingað þeg-
ar fer að hausta hér. Við höfum alltaf um
hálft til eitt ár til að undirbúa okkur lýrir
þessa venjulegu inflúensu. Það gerist yfir-
leitt í febrúar eða mars að Alþjóða heilbrigð-
isstofnunin gefur út tilskipun um hvað eigi
að nota næst. Það hefur gengið eftir.“
- Getur inflúensa samfara öðrum veik-
indum dregið fólk til dmtðo?
„Já, ef maður er mjög gamall eða lasburða
eða er með einhverja undirliggjandi sjúk-
dóma þá getur flensan verið dropinn sem
fyllir mælinn. Þessvegna erum við að bólu-
setja fólk sem hefur undirliggjandi sjúk-
dóma, er gamált og svo framvegis. ,En bólu-
setningar eru mjög óvenjuleg heilbrigðisað-
gerð að því leyti að þær vernda aðra um
leið.“
- Hvað þatfmaður að reikna með löngum
tíma ef tnaður fær flenstma?
„Það er misjafnt en má alltaf búast við
einhverjum dögum, upp í viku eða hálfan
mánuð í sumum tilvikum. Því eldri eða veik-
ari fyrir sem þú ert því lengri verður tíminn.
Það hafa verið til lyf gegn inflúensu en þau
hafa haft talsverðar aukaverkanir og það
hefur ekki verið venja að nota þau hér. En
það eru að koma sennilega mjög fljótlega á
markaðinn, hvort sem það næst fyrir þenn-
an inflúensufaraldur eða ekki, lyf sem eru
ntjög öflug í að draga úr einkennum inflú-
ensunnar. Þau stytta veikindatímann veru-
lega og gera það þannig að þau eru sérhönn-
uð á þessa veiru. Ef þú finnur að þú ert að
fá flensueinkenni þá geturðu stoppað fjöl-
földun veirunnar og lnin fjarar út og þú
verður ekki mikið veikur. En ég held að eng-
inn myndi segja að það ætti að hætta bólu-
setningum. Þetta lyf er hins vegar mjög
verðmætt að hafa fyrir fólk sem er í áhættu
og þolir illa veikindin." — Hi
‘ fújöd Ti!ýt‘ iúl'i'filöi"<fi’itlr1bbló ‘ffl;