Dagur - 11.12.1999, Blaðsíða 9

Dagur - 11.12.1999, Blaðsíða 9
8 - LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 Dgptr. LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 - 9 FRETTASKYRING Bankabréfin á útsölu? SIGURDÓR SIGURDORSSON OG BJÖRN JÓHANN BJORNSSON SKRIFA Eftir nokkra daga hefst sala á hréfum í ríkisbönkimiiin að andvirði 6,2 milljarða króna. Almenningi verður tryggður að- gangur að hluta þeirr- ar fjárliæóar en af- ganginn bítast stóru fjárfestamir um. Um- deild sala, að mati þingmanna jafnt sem fj ármálamarkaðarins. Kennitölusöfnun fer aftur af stað. Mikil umræða hefur verið um sölu ríkisins á 15% hlutum í Bún- aðarbanka og Landsbanka. Um- ræða um Iagafrumvarp, sem heimilar söluna, var fjörug á þinginu í vikunni og sýndist þar sitt hveijum. Helst var gagnrýnt af hálfu stjórnarandstöðunnar að verið væri að selja bankana á undirverði. Frá Ijármálamarkaðn- um hefur síðan heyrst sú gagn- rýni að gengi bréfanna sé of hátt. Frumvarpið var staðfest í gær á Alþingi og salan hefst næsta mið- vikudag. Henni á að vera lokið tveimur dögum síðar, eða föstu- daginn 17. desember, þannig að hamagangurinn verður mikill hjá fjárfestum í næstu viku. Líklegt má telja að kennitölusöfnun eigi sér stað aftur, Iíkt og gerðist með fyrstu einkavæðingu ríkisbank- anna í fyrra. í frumvarpinu, og þar með fyr- irkomulagi sölunnar, er gert ráð fyrir að selja 10% hlut í áskriftar- sölu til almennings, en að 5% verði seld í tilboðssölu. Gengið á bréfum Landsbanka var ákveðið 3,8 í áskriftarsölunni og 4,1 í Búnaðarbankanum. Sama gengi á að vera að Iágmarki í tilboðssöl- unni. Þess má geta að í gær stóð gengi Landsbankabréfa í 4,05 og 4,33 hjá Búnaðarbanka. Skráð hlutafé Landsbankans nemur 6,5 milljörðum króna. Ríkið hefur til þessa átt 85% hlut, eða sem nemur 5,5 milljörðum, en ætlar nú að Iækka hlutinn nið- ur í 70%. Það sama gildir í Bún- aðarbankanum. Ríkið á þar 85% hlut af 4,1 milljarða króna nafn- verði hlutafjár. 6,2 milljarða markaðsvirði Það sem nú fer í sölu eru því 975 milljónir að nafnvirði f Lands- bankanum og 615 milljónir í Búnaðarbankanum. Þar af fara 650 milljónir í áskriftarsölu til al- mennings í Landsbankanum og 410 milljónir í bréfum Búnaðar- banka. Markaðsvirði þessa hluta, miðað við sölugengið í útboðinu, er því 2,4 milljarðar í áskriftarsöl- unni í Landsbankanum og 1,7 milljarðar í Búnaðarbankanum. Markaðsvirði 5 prósentanna í til- boðssölunni er 1,2 milljarðar í Landsbankanum og 840 milljónir í Búnaðarbankanum. Þar er mið- að við lágmarksgengi. I það heila tekið er markaðsvirði bréfanna í báðum bönkunum að lágmarki 6,2 milljarðar króna. Eins og áður sagði deildu þing- menn um bankasöluna. Um leið hafa hugmyndir um sameiningu banka komið inn í umræðuna og þar eru skoðanir jafnvel enn skiptari en vegna sölunnar. And- stæðingar sölunnar á 15% hlut ríkisins eru með þau rök helst íyr- ir sínu máli að nauðsyn beri til að ríkið eigi einn stóran og sterkan banka í landinu, sannkallaðan þjóðarbaka. Þeir segja líka að með því að selja nú 15% hlut í Landsbankanum og sameina hann síðan íslandsbanka sé ríkið komið í minnihluta og Islands- banki, sem að meirihluta til er í eigu „kolbrabbans" svo nefnda, muni því ráða ferðinni og í raun yfirtaka Landsbankann. Sameining nauðsynleg Kristinn H. Gunnarsson er for- maður þingflokks Framsóknar- flokksins og hann á einnig sæti í efnahags- og viðskiptanefnd. Hann segir að það væri rétt að slá eigi 7-9% af markaðsverði bréf- anna en það væri gert til að fá einstaklinga til að kaupa bréf og að þeir eigi smá hagnaðarvon. „Það má eflaust deila um hvort yfir höfuð eigi að gera þetta en þar sem ekki er um mikið frávik frá væntanlegu markaðsverði að ræða tel ég þetta ekki skipta neinu máli,“ sagði Kristinn. Hann var spurður hvort hann óttist ekki að bréfin í ríkisbönk- unum safnist á fárra hendur á eftir markaði? „Þróunin á undanförnum árum bendir ekki til þess að svo verði. Islandsbanki, sem er einkabanki, er í dreifðri eignaraðild þótt eng- ar reglur eða hömlur séu settar á eignaraðild. Eg fæ ekki séð að það séu nein öfl í gangi sem stef- na að því að ná yfirráðum yfir stórum banka. Það er hins vegar önnur spurning sem menn eiga eftir að velta fyrir sér hvort það sé nokkuð slæmt að einhver stór að- ili eigi banka,“ segir Kristinn H. Gunnarsson. / tengslum við söluna á 15% hlut ríkisins í Búnaðarbanka og Landsbanka hefur umræðan um sameiningu banka skotið upp kollinum. Á að sameina ríkisbankana fyrst og selja svo? Á Landsbanki að sameinast ísiandsbanka eða Búnaðarbanka? Áfram verður rifist yfir svörum við þessum spurningum. - samsett mynd: pjetur Efasemdir uni samemingu Einar Oddur Kristjánsson alþing- ismaður segir það tvímælalaust rétt að selja þessa 15% hluti í rík- isbönkunum. Hann segir að það hefði mátt selja fyrr og þess vegna segist hann vona að fljótlega verði meira selt. „Hins vegar verðum við að gæta okkar dálítið í umræðunni, ekki bara um banka, heldur almennt, um þessar sameiningar. Að mínu viti hljóta þær að hafa sín tak- mörk. Við verðum að gæta okkar vegna þess að þetta er svo Iítið hagkerfi, samkeppni þarf að ríkja, við verðum að gæta þess að sam- keppni ríki á markaðnum. Við megum ekki ganga of langt í sam- einingu fyrirtækja almennt séð. Samþjöppunin má ekki vera of mikil og þvf er það engin töfra- lausn að sameina," segir Einar Oddur. Hann segist ekki hafa skoðað það sérstaldega hvernig staðan á bankamarkaðnum yrði ef íslands- banki og Landsbanki yrðu sam- einaðir og þess vegna ekki vilja tjá sig um það. Hann sagðist bara vilja ítreka efasemdir sínar um sameiningu fyrirtækja. Gengur ekM upp Jóhann Ársælsson alþingismaður átti lengi sæti f bankaráði Lands- bankans. Hann segir að á Alþingi sé í einfaldleika sínum verið að skipta á heimild sem bankamála- ráðherrann hefur til að auka hlutafé sitt og heimild til þess að selja hlutabréf. Það sé því ekki hægt að selja stærri hlut í bank- anum en menn hafi heimildir til og það sé Alþingi sem ákveður heimildirnar. „Umræðan hér á Alþingi er í gangi fyrst og fremst vegna þess að menn þykjast sjá vísbendingar um að til standi að fara að sam- eina banka. Afstaða mín til þcss er sú að ég tel að ríkið eigi að eiga ráðandi hlut í stærsta Ijármálafyr- irtæki landsins á meðan það á annað borð á í fjármálafyrirtækj- um. Eg vil kalla slíkan banka Þjóðbanka. Einhvern tíma getur komið að því að ferlinu ljúki en það er ekki strax. A meðan það varir á rfkið að eiga ráðandi hlut í þjóðbankanum. Ef menn sam- eina Islandsbanka og Lands- banka, eftir að ríkið hefur selt 15% hlut í Landsbankanum, er ríkið komið í minnihluta í þess- um sameinaða banka. Því er ég andvígur. Eg vil einnig benda á að menn eru búnir að reikna það út, og þótt ráðherra viðurkenni ekki að til sé skýrsla um málið, hafa samt komið tölur úr skýrslunni sem segja að tæpir tveir milljarð- ar sparist með því að sameina þessa tvo stærstu banka. Hvernig á þá Búnaðarbankinn að keppa við þennan risa? Það gengur ekki upp,“ segir Jóhann Ársælsson. Lög um dreifða eignaraðild Steingrímur J. Sigfússon, eins og aðrir þingmenn VG, er á móti söl- unni á hlut ríkisins í ríkisbönkun- um. Hann segist telja að það eigi ekki að hreyfa við eignarhlut ríks- ins í bönkunum að svo stöddu. „Fyrst þarf að fá botn í það hvað menn ætla sér með þennan hlut. Er vænlegur kostur að huga að sameiningu Landsbanka og Bún- aðarbanka? I öðru lagi á hér fyrst að setja í Iög ákvæði um dreifða eignaraðild í fjármálastofnunum áður en menn hrófla frekar við eignarhlut ríkisins. I þriðja lagi er ég þeirrar skoðunar að í landinu eigi að vera einn öflugur þjóð- banki. Það verður best tryggt með meirihluta eignaraðild ríkisins. Augljóslega eru Landsbankinn og Búnaðarbankinn eðlilegur stofn í öflugan þjóðbanka," segir Stein- grímur Jóhann. Hann segir að huga þurfi að samkeppninni á bankamarkaðn- um. En með sameiningu ríkis- bankanna yrði til minni banki en ef menn slá saman Landsbanka og Islandsbanka. „Það vill nú svo til að talsmenn Islandsbanka höfðu af því áhyggj- ur þegar hugmyndin um samein- ingu ríkisbankanna kom fram fyr- ir nokkrum árum. Rök þeirra voru þau að sá banki yrði svo stór á markaðnum. Það virðist hins veg- ar ekki halda aftur af mönnum núna Jvegar viðæður um samein- ingu Islandsbana og Landsbanka eru í farvatninu sem yrði enn stærri banki. En samkeppni verð- ur að tryggja á markaðnum með öllum ráðum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon. Kristinn H. Gunnarsson: Ég fæ ekki séð að það séu nein öfl í gangi sem stefna að því að ná yfirráðum yfir stórum banka. il ' Jóhann Ársælsson: Tel að ríkið eigi að eiga ráðandi hlut í stærsta fjármálafyrirtæki landsins á meðan það á annað borð á í fjármálafyrirtækjum. Steingrímur J. Sigfússon: Það vill nú svo til að talsmenn íslandsbanka höfðu afþví áhyggjur þegar hug- myndin um sameiningu ríkisbank- anna kom fram fyrir nokkrum árum. Einar Oddur Kristjánsson: Hins vegar verðum við að gæta okkar dálítið í umræðunni, ekki bara um banka, heldur almennt, um þessar sameiningar. •Mr.Wp. ^iiv11HIÖjkíí^,rht*iHölá^HíIrj • 'Hyúhlilifíd ft!Hu ‘HffHu ðiUlfv iríWfHiVi*/• ihiií’SSiS’Wr^', ',rWíiitT->í4ri‘‘flÍífy.,*Híf4<Jr,ii'.F'AHíK- Hreinn Loftsson: Markaðsgengi ríkisbankanna hefur tvöfaldast á rúmu ári og eðlilegt að ríkið reyni að ná í hluta afþeirri verðmætaaukningu. 1 t|f—-- - Sigurður Einarssón: Þarna er um stóra upphæð að ræða / dreifðu út- boði og því þarf meiri hvata fyrir fjárfesta og aðra einstaklinga til að kaupa þessi bréf. Markaðsgengið hefur tvöfaldast Hreinn Loftsson, formaður einka- væðingarnefndar bendir á, í til- efni af gagnrýni sumra þing- manna um að afsláttur á gengi bréfanna væri veittur í áskrifarsöl- unni til almennings, að á rúmlega einu ári hafi markaðsgengi hluta- bréfa i bönkunum tveimur nærri tvöfaldast. Ríkið væri með vænt- anlegri sölu að ná til sín hluta af verðmætisaukningu eignar sinnar í bönkunum. Jafnframt væri al- menningi gefinn kostur á að taka þátt í einkavæðingu þessara öfl- ugu fyrirtækja. Slíkt væri til þess fallið að auka sparnað og slá á þenslu um leið og verðmyndun hlutabréfanna yrði vonandi traustari þar sem stærri hluti þeirra yrði í umferð úti á mark- aðnum. „Ovarlegt hefði verið að líta ein- ungis til síðustu viðskipta með hlutabréf í bönkunum við ákvörð- un gengisins þar sem miklar sveiflur hafa verið á markaðsgengi þeirra að undanförnu. Því var Iit- ið til viðskipta yfir lengri tíma eða yfir allt að 30 daga tímabil. Gengi hlutabréfa í áskriftarsölu verður u.þ.b. 7% lægra en meðalgengi hlutabréfa í bönkunum síðustu 7 daga og 9% lægra en meðalgengi bréfanna síðustu 30 daga,“ segir Hreinn. Hreinn segir að einhugur hafi verið í einkavæðingarnefndinni um tillögugerðina. Gengisákvörð- unin styddist við skýr og málefna- leg sjónarmið. Af hálfu bankanna hefði einnig komið stuðningur við hana, til að mynda frá ýmsum sér- fræðingum á markaðnum. „Til- gangur útboðsins er að hvetja sem flesta til að taka þátt. Jafnframt er lögð áhersla á að fólk eigi ekki Iíta á fjárfestingu í hlutabréfum sem möguleika til skyndigróða heldur sem langtímaljárfestingu. Engu að síður er þetta mjög góður kost- ur,“ segir Hreinn. Gengið hátt, að mati Kaupþings Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, segir að almennt séð fagnaði hann einkavæðingu ríkis- fyrirtækja. Samt fannst honum að gera hefði mátt hlutina á vandaðri og skipulagaðri hátt. Leggja ekki fram frumvarp sem keyrt væri í gegn á nokkrum dögum í Alþingi. Sigurður sagðist vera á þeirri skoðun að gengi bréfanna í út- boðinu væri hátt. „Gengið á bönkunum hefur hæltkað mjög skart og er orðið nokkuð hátt. Þegar verið er að selja hlutina í smáskömmtum til almennings þá hefði verið eðli- legra að gefa meiri afslátt frá nú- verandi markaðsgengi bréfanna en gert er. Þarna er um stóra upp- hæð að ræða í dreifðu útboði og því þarf meiri hvata fyrir fjárfesta og aðra einstaklinga til að kaupa þessi bréf,“ sagði Sigurður. Aðspurður bvernig hann teldi útboðið nú þróast sagði Sigurður ómögulegt að segja til um. Hann taldi líklegt að kennitölusöfnun fari í gang en hvort Kauþþing myndi taka þátt í því sagðist Sig- urður ekki geta fullyrt um á þessu stigi. „Við munum að sjálfsögðu skoða þann möguleika að taka þátt, líkt og í öllum útboðum," sagði Sigurður Einarsson. FRETTIR INNLENT ’&sx&áJ 10 þúsimd á isl.is Samkvæmt tilkynningu frá Íslandsbanka og Íslandssíma hafa ríflega 10 þúsund manns skráð sig fyrir ókeypis netáskrift á isl.is. Skráning hófst fyrir viku þannig að rúmlega þúsund manns á dag hafa kosið að nýta sér tilboðið. Opnað verður fyrir tengingar á vefnum 10. janúar næstkomandi. Síminn leigir af Aco Samningur hefur verið undirritaður milli Landssímans og Aco um tímabundið samstarf fyrirtækjanna. I samningnum felst að til ára- móta mun Síminn leigja Aco innréttingar og aðstöðu í Kringlunni til að selja tölvubúnað. Samninginn á að endurskoða fjanúar og ef sam- starfið gengur vel er stefnt að því að auka það og bjóða upp á tölvu- búnað og lausnir frá Aco hjá fleiri þjónustumiðstöðvum Símans. Aco hefur þar á boðstólum nokkrar tegundir af PC og Macintosh-tölvum auk margvíslegs tölvubúnaðar. Samhentir ráðherrar Samstarfsráðherr- ar Norðurlanda áttu með sér fund í Reykjavík í vik- unni. Þar voru sameiginleg mál- efni Norðurlanda til umræðu, upp- lýsinga- og tækni- mál samstarfsins og norræn fjárlög fyrir árið 2001. Siv Friðleifsdóttir Iét af formennsku samstarfsráðherr- ” MYN°: ÞÖK anna á fundinum og Marianne Jelved, efnahagsráðherra Danmerkur, tók við. Samhugur var mikill eins og sést á myndinni. Frá vinstri eru það Jonathan Motzfeldt, formaður landsstjórnar Grænlands, Mari- anne Jelved, Siv, Jan Erik Enestam, varnarmálaráðherra Finnlands, og Högni Hoydal, ráðherra í landsstjórn Færeyja. Þrír umsækjendiir um Ólafsvíkur- prestákall Sr. Friðrik J. Hjartarson, sem gegnt hefur embætti sóknarprests í Ólafsvíkurprestakalli frá árinu 1987, hefur verið skipaður í embætti prests í Garðaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi. Þrír umsækjendur eru um Ólafsvíkurprestakall, þau Auður Inga Einarsdóttir, cand theol; sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir og Óskar H. Óskarsson, cand theol. Kirkjumálaráðherra skipar í dag í embætti sóknarpresta til fimm ára. — GG Netveitur fá hlutdeild í gjöldum Landssíminn hefur ákveðið að bjóða netveitum, sem eru í viðskipt- um hjá fyrirtækinu, samninga um hlutdeild þeirra í símagjöldum vegna notkunar Netsins. Greidd verður ákveðin upphæð fyrir hverja mínútu, sem notendur í almenna símakerfinu eru í sambandi við innhringinúmer viðkomandi netveitu. Þessari ráðstöfun er ætlað að gera netveitum kleift að Iækka mánaðargjöld sín fyrir netaðgang mjög verulega og tryggja þannig rekstrargrundvöll fjölda smærri þjónustufyrirtækja á þessu sviði. Landssíminn gerir ráð fyrir að samningar við netveitur geti tekið gildi innan tveggja vikna. I tilkynn- ingu frá Símanum segir að þetta sé liður í heildarendurskoðun á verðskrám fyrirtækisins og aðlögun þeirra að nýju laga- og sam- keppnisumhverfi. María Sigríður á Café Karólínu I dag laugardag opnar María Sigríður Jóns- dóttir málverkasýningu á Café Karolínu í Listagilinu á Akureyri. María fæddist á Ak- ureyri 1969. Undanfarin ár hefur hún búið á Italíu og stundað nám við Accadem- ia di Belle Arti í Flórens. Verkin eru öll unnin með olíu á striga. Engin boðskort _ ______ eru send út vegna opnunarinnar en allir sem áhuga hafa eru hjartanlega velkomnir. Sýningin stendur til 31. desember. Frjálslyudir vilja sameiuingu ríhishankanna Guðjón A. Kristjánsson og Gunnar Ingi Gunnarsson, þingmenn Frjálslynda flokksins, hafa lagt fýrir Alþingi þingsályktunartillögu , „um sameiningu ríkisbanka áður eri þéir verða seldir“. Þeir vilja að Alþingi álykti „að fela ríkisstjórninni að láta kanna hagkvæmni þcss að sameina ríkisbanka áður en til sölu þeirra kem- ur til að tryggja þjóðinni hámarksarð af eign sinni". Vísa þeir til þess að í stefnu ríkisstjórnarinnar komi fram að við sölu ríkisbanka „verði þess gætt að ríkið fái hámarksverð fyrir eign sína í bönkunum." Kom- ið hefur fram opinberlega í viðtölum við stjórnendur banka að þeir telji að bankar verði sameinaðir þegar ríkið á ekki lengur meirihluta. „Því er rétt að sameina bankana fyrst til að þjóðin fái hámarksarð af eign sinni". \\\ ~ HjG María Sigriður Jónsdóttir, myndlistarkona. I

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.