Dagur - 11.12.1999, Side 3
LAUGARDAGVR 11. DESEMBER 1999 -111
SÖGUR OG SAGNIR
Framhald afforsíðu
Eftir opnun skrifstofunnar 4
Glasgow var svo opnuð skrifstofa
í London í ársbyrjun 1957 vegna
flugsins sem hófst þar um vorið.
Hlutverk mitt á þessu „dauða"
tímabili var að útvega farþega frá
meginlandinu með öðrum flugfé-
lögum til London, sem síðan
héldu áfram með Loftleiðum til
Islands og Bandaríkjanna.
Eftir lokunina stóð til að ég
ætti að flytjast til baka til skrif-
stofu Braathen í Ósló. En ég gat
sannfært Braathen og aðra yfir-
boðara mína í Ósló og Reykjavík
um að markaður væri fyrir Loft-
leiðir hér á meginlandinu, ef við
gætum haldið uppi flugsamgöng-
um allt árið með þróaðri vél en
DC-4 Skymasternum, til dæmis
Douglas DC-6B, sem flaug hrað-
ar og hafði þrýstirými og 85 sæti.
Góðar fréttir
Góðu heilli var ákvörðunin um
að Ioka endanlega skrifstofunni í
Luxembourg afturkölluð haustið
‘58 og flug tekið upp að nýju vor-
ið ‘59, og þá flugum við frá Lux-
embourg um Amsterdam til
Reykjavíkur og áfram til New
York. Seaboard & Western Air-
Iines annaðist þá tæknilegt eftir-
lit f Luxembourg, en meiriháttar
viðhald fór fram á verkstæðum
Braathen á Sola við Stafangur.
Baráttan imi farþegana
Eg notaði hílinn minn og ferðað-
ist um Þýskaland, Lrakkland,
Belgíu og Holland til að auglýsa
flugfélagið hjá ferðaskrifstofum.
Og það gaf góða raun. Larþeg-
arnir komu með lest til Luxem-
bourg eða með eigin bílum beint
á flugvöllinn. Mikill hluti far-
þeganna voru amerískir hermenn
frá flugbækistöðvunum í Bit-
burg, Spangdalem og Birkenfeld
í Þýskalandi, þar sem amerískar
orustuflugvélar voru staðsettar. I
Frakklandi voru einnig margar
amerískar bækistöðvar, Metz,
Toul Rosiers, Grostenquin,
Zweibriicken o.s.frv. Amerísku
hermennirnir ásamt ættingjum
og vinum í þessum tveim löndum
voru stór hluti viðskiptavina okk-
ar. Hermannamarkaðurinn í
Frakklandi lagðist að vísu af eftir
að de Gaulle sagði Frakldand úr
NATO. Ameríkanarnir urðu í
framhaldi af því að yfirgefa allar
herbækistöðvar sínar í Frakk-
landi. En það gerðist ekki fyrr en
1966, og þá höfðum við fengið
mjög góðan meðvind og vorum
því ekki Iengur háðir amerfsku
hermannaumferðinni frá Frakk-
landi. En lengi vel, eftir að við
hófum starfsemi okkar í Luxem-
bourg, fór meirihluti ferðamanna
sjóleiðis til Ameríku. Það var
fyrst undir lok sjöunda áratugar-
ins að álíka margir farþegar ferð-
uðust með flugvélum og skipum.
Loksins DC-6B
Sumarið ‘59 var áfram aðeins ein
brottför á viku frá Luxembourg
um Glasgow, Reykjavík og Gand-
er til NewYork, og enn með DC-
4. Haustið ‘59 var enn ákveðið
að fljúga ekki veturinn ‘59/’60.
Sumarið 1960 var flogið frá apríl
og fram í nóvember, en veturinn
‘60/’61 var síðasti veturinn án
flugs. Frá vori ‘61 var svo flogið
allt árið, og þá með hinum lang-
þráðu DC-6B vélum, sem flugu á
„bara“ 18 tímum frá Luxembourg
til New York. Frá þeim tíma inn-
leiddum við lægri fargjöld, aðeins
320 dollara á Iágannatímanum
milli Luxembourg og New York
og það stóð ekki á árangrinum.
Ef ég hefði nú bara getað boðið
þetta verð strax 1955, í staðinn
fyrir rúma 500 dollara á farmiða,
þá hefði ég fengið hjólin al-
mennilega í gang löngu fyrr. En
reksturinn á gömlu DC-4 vélun-
um, með aðeins 55 sæti, útilok-
aði svo Iág fargjöld.
Kviamar færðar út
Eg útnefndi fyrstu aðalumboðs-
mennina í Belgíu og Frakklandi
1956 og í Hollandi ári seinna. I
Þýskalandi höfðum við jú þegar
skrifstofuna í Hamborg, og lítil
skrifstofa var opnuð í Frankfurt
seinna. I Sviss og Italíu (Genf og
Róm) sátu aðalumboðsmenn
Braathens. Sem sagt: Frá 1960
var sigurinn tryggður, og ég færði
út kvíarnar og stækkaði mark-
aðssvæðið frá ári til árs. Trek
Airways, nú Luxavia, hafði einnig
hafið flug með lágum faijöldum
frá Jóhannesarborg til Luxembo-
urg og ég útnefndi það félag sem
aðalumboðsaðila okkar í Suður-
Afríku og annað félag sem um-
boðsaðila okkar í Rhódesíu, (nú
Zimbabwe). Luxavia (áður Trek
Airways) hefur fram á þennan
dag fært okkur tugþúsundir far-
þega frá Suður-Afríku.
Gróska
1 byrjun sjöunda áratugarins kom
ég í kring miðasölu í Grikldandi
og Tyrldandi, eftir að hafa út-
nefnt aðalumboðsmenn í Aþenu,
Ankara og Istanbul. I Hong
Kong höfðum við, síðan á tímum
Braathens, aðalumboðsmann
sem útvegaði okkur farþega frá
Luxembourg til Bandaríkjanna,
og leiðin frá Hong Kong til Lux-
embourg var þá oft farin með Sí-
beríulestinni, vegalengd sem
nemur þúsundum kílómetra. Það
er hægt að slá því föstu, að við
vorum sterkur segull fyrir þessa
langferðamenn. Ur því að hag-
stætt fargjald okkar frá Luxem-
bourg til New York gat Iaðað að
okkur farþega úr svo fjarlægum
heimshluta, dró ég þá ályktun, að
einnig væri unnt að stappa upp
farþegum handa okkur í Mið-
austurlöndum og mér tókst að
endurlífga fyrrum aðalumboðs-
mann Braathens í ísrael, og í ár-
anna rás höfum við fengið IJölda
farþega þaðan. Þeir farþegar
komu sjóleiðis frá Haifa til
Marseille, og tóku þar lest til
Luxembourg.
Framtak í Miðausturlöndiuu
Um miðbik þessa áratugar, þess
sjöunda, útncfndi ég aðalum-
boðsmenn í flestum Miðaustur-
löndum: Líbanon, Jórdaníu,
Sýrlandi, Irak, Iran, Kuwait og
Saudi-Arabíu. En vandinn fyrir
farþegana okkar þaðan var að
komast til Luxembourg. Eftir að
við höfðum opnað eigin skrif-
stofu í Beirut, tókst mér með
manni mínum þar, Robert
Mehrabian, að vekja áhuga
MALEVs (Hungarian Airlines) á
að hefja vikulegt flug frá Buda-
pest tií Luxembourg. I framhaldi
af því fékk ég flugmálastjórann
hér, Pierre Hamer, og aðalfor-
stjóra Luxairs, Roger Sietzen,
með mér til höfuðstöðva
MALEVs í Budapest til að fylgja
rnálinu eftir.
Tæknibækistöð í Luxem-
bourg
Arið 1963 réði ég fyrsta flugvirkj-
ann hingað, Gunnar Björgvins-
son, og við byggðum smám sam-
an upp eigin viðhaldsþjónustu á
Findel. Þegar leið á sjöunda ára-
tuginn var ákveðið að flytja við-
haldsdeild okkar frá New York til
Luxembourg, og á árunum sem
fóru í hönd varð fjöldi tækni-
manna okkar hér u.þ.b. 100. Það
var hópur mjög hæfra verkfræð-
inga, tæknimanna, flugvirkja
o.s.frv. Aðrir starfsmenn félags-
ins voru þá orðnir 80 talsins,
þannig að starfslið okkar hér
nam samtals 180 manns. Þessa
tæknideild yfirtók Cargolux
1974, vöruflutningafélag sem að
frumkvæði okkar var stofnað
1970 í samvinnu við Luxair og
Salen skipafélagið sænska.
Vikulega verður mörgum
stnnum á dag
Flugtíðnin frá Luxembourg til
Bandaríkjanna var einu sinni í
viku fram til 1961 og jókst síðan
smám saman til þriggja, Ijögurra
og fimm skipta vikulega. Og
seinna daglega. A áttunda ára-
tugnum vorum við með 3-4 flug
á dag, þ.e.a.s. 23 lendingar og
flugtök á viku. Flugvélarnar voru
yfirleitt fullbókaðar með 250 far-
þega á flugvél, þ.e.a.s. allt að
þúsund farþegar inn og þúsund
farþegar út á Findel á degi hverj-
um. 1970 höfðum við flutt eina
milljón farþega á Luxembourg-
Island-Bandaríkjaleiðinni, ásamt
dótturfélagi okkar International
Air Bahama á leiðinni Luxembo-
urg-Nassau/Bahamas. 1973
nam farþegafjöldinn 2 milljón-
um, 1977 þrem milljónum; fimm
milljóna markinu náðum við
1985, og í nóvember 1991 var
farþegafjöldinn kominn upp í
heilar 6 milljónir, það er að segja
sextánfalda íbúatölu Luxembo-
urg. Farþegametið á ári var tæp-
lega 350.000. Það náðist á hin-
um „gullna“ áttunda áratug,
bestu árum okkar. Þau árin voru
Loftleiðir með yfir 50 % af heild-
arfarþegafjöldanum á Findel.
Ftjálsræði í bimingpiimnim
1978 var leidd í lög f Bandaríkj-
unum hin svokallaða „Open Sky
Policy", sem heimilaði flugfélög-
um í Atlantshafsflugi að lækka
sín hefðbundnu IATA-fargjöld.
Þetta leiddi að sjálfsögðu til
miklu harðari samkeppni fyrir
Flugleiðir, og eftir 1980 fækkaði
farþegum svo um munaði á Lux-
embourg-Bandaríkjaleiðinni. A
þessum árum hófum við samn-
ingaumleitanir við yfirvöld í Lux-
embourg um að stofna nýtt far-
þegaflugfélag með Luxair (á
sama hátt og við höfðum 1970
stuðlað að stofnun vöruflutn-
ingafélagsins Cargolux). Þar sem
Flugleiðir höfðu flogið mörgum
sinnum á viku non-stop milli
Luxembourg og Bandaríkjanna,
án millilendingar á Islandi, höfð-
aði þetta beina flug svo sterkt til
lúxembúrgískra yfirvalda að þeim
var mikið í mun að þetta flug
gæti haldið áfram. Þeir í Luxem-
bourg lýstu sig fúsa til að ríkis-
styrkja þessi fyrirhuguðu beinu
flug á vegum nýja flugfélagsins,
því að þetta flug hafði mikla
efnahagslega þýðingu fyrir Lux-
embourg. Samningaumleitan-
irnar báru þó ekki árangur, þan-
nig að kistuleggja varð ráðagerð-
irnar.
Björgun á elleftu stundu
Erfiðleikarnir sem voru því sam-
fara að halda uppi Luxembourg-
Bandaríkjaflugleiðinni jukust
stöðugt og 1980 gengum við Sig-
urður Helgason forstjóri Flug-
leiða á fund þáverandi forsætis-
ráðherra Luxembourg, Pierre
Werner. Sigurður Helgason
sagði honum, að við værum til-
neyddir að hætta flugi okkar í
Luxembourg. Pierre Werner
svaraði því til að hann væri á
þeirri skoðun að það væri óhugs-
andi. Hann sagði: I 25 ár höfum
við nú haft reglubundið flug frá
Luxembourg til Bandaríkjanna,
og það er að mínu áliti óhugsandi
að leggja niður flugsamgöngur
við Bandaríkin og Island, sam-
herja okkar í NATO, á meðan
Aeroflot er með nálega daglegt
flug milli Moskvu og Luxembo-
urg. (Kalda stríðið milli Austurs
og Vesturs var þá í algleymingi.)
Viku eftir fundinn hringdi for-
sætisráðherrann í mig og spurði
mig hvort 90 milljónir franka
dygðu til þess að við gætum fram
haldið flugsamgöngunum á kom-
andi vetri (‘80/’81). Ég svaraði
því til, að ég héldi að svo væri.
Og okkur tókst að halda uppi
þrem flugum á viku veturinn sem
fór í hönd.
Sigurður Helgason hafði allt
frá byrjun haft tröllatrú á Luxem-
bourg-Bandaríkjaleiðinni. Síðan
ég hóf störf hér 1955 hef ég haft
mjög náið samstarf við Sigurð,
allt frá því að hann var forstjóri
Flugleiða í Bandaríkjunum til
loka áttunda áratugarins og fram
að þeim tíma að hann hætti sem
stjórnarformaður Flugleiða.
Árin fimm, frá 1980 til loka
‘84, var ég í stöðugu sambandi
við forystumenn í Luxembourg,
og átti marga fundi með sam-
göngumálaráðherranum og fjár-
málaráðherranum, núverandi
forsætisráðherra, Jacques Santer.
Við fengum, í framhaldi af því,
verulegan fjárhagsstuðning
(rúmlega 250 miljónir franka) frá
lúxembúrgískum yfirvöldum.
Með þennan bakhjarl gat Sigurð-
ur sannfært starfsbræður sína í
stjórn félagsins um að til þess
væri vinnandi og fjárhagslega
mögulegt að halda áfram Luxem-
bourgfluginu. An aðstoðarinnar
frá Luxembourg væru Flugleiðir
tæpast starfandi í Luxembourg í
dag.
Framsýni ráðamaima í
Lnxembourg
Það var Iofsverður vitnisburður
um framsýni yfirvalda í Luxem-
bourg þegar ríkisstjórn þeirra
ákvað að styðja fjárhagslega við
bakið á Flugleiðum. Undan mfnu
sjónarhorni horft litu þeir á
stuðninginn sem framtíðarfjár-
festingu fyrir Findelllugvöll, en
ekki sem gjöf í þakklætisskyni
fj'rír þær fjórar milljónir farþega
sem við höfðum þá flogið með til
og frá Findel.
Flug Flugleiða til Luxembourg
er að sönnu í dag ekki jafn mikil-
vægt og það var fyrir nokkrum
árum. Engu að síður höfum við
allar götur frá 1955 stuðlað veru-
lega að uppbyggingu Findelflug-
vallar í alþjóðlegum skilningi.
Með daglegu flugi frá Luxembo-
urg til íslands og Bandaríkjanna
hafa Flugleiðir á síðustu árum
flutt rúmlega 100 þúsund far-
þega á ári. Það gerir rúmlega 10
% af heildarumferðinni um
Findel, sem í fyrsta sinn 1990 fór
yfir eina milljón markið á ári,
sem er ekki svo lítið í samanburði
við 10.000 farþega umferðina
sem var á Findel 1955, árið sem
ég kom hingað. Það er óhætt að
slá föstu að þetta hefur verið æv-
intýraleg þróun, enda fjöldi af-
bragðsmanna lagt gjörva hönd á
plóginn.
VíMngseðlið
Hvernig ég vilji skilgreina Islend-
inga? Það er stór spurning, en
það er við hæfi að ég fjalli um þá
með fáeinum orðum, svona í lok-
in. Þeir eru einhverjir harðdug-
legustu menn sem ég hef
nokkurn tíma kynnst. Þeir setja
sér takmark, og kappkosta að ná
þvf, láta ekkert aftra sér og taka
ekki „nei“ gilt sem svar. Það er
vafalaust margt sem veldur. Þeir
búa að gamla víkingaupprunan-
um og þangað má sjálfsagt rckja
hinn sterka anda brautryðjand-
ans. Þeir námu harðbýlt land og
hafa háð afar harða lífsbaráttu.
En öll heiðursmerki hafa bak-
hlið. I framgöngu og verkum eru
íslendingarnir, í samræmi við
loftslagið, talsvert harðhnjósku-
legir og kannski ívið of þjóðernis-
sinnaðir. Það getur vitaskuld
bæði verið kostur og galli, allt
eftir kringumstæðum.
Og nieð þessum orðum kveð ég
og þakka þér fyrir ánægjulegt
samstarf.
Évrange, Frakklandi, 1993.
Þessi mynd er tekin á flugvellinum í Luxemborg þegar 30 ára afmælis flugs til Lúxemborgar var minnst. Frá vin-
stri: Einar Aakrann, Sigurður Helgason fyrrverandi forstjóri, Sigurður Magnússon fv. blaðafulltrúi og Kristinn Olsen
stjórnarmaður.