Dagur - 11.12.1999, Side 4
IV-LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
SÖGUR OG SAGNIR
Tíl athugimar varðandi kirkju-
bók séra Odds á Miklabæ
Báðar síður blaðsins í kirkjubók Mikiabæjar 1779, sem miðjan hefur verið kiippt úr. Á biaðinu eru eingöngu
skráðar barnaskírnir frá janúar og fram í september. Ekkert bendir raunar tii skemmdarverks, heldur hefur eitt-
hvað verið þarna inn fært afslysni og klippt úr jafnharðan, áður en iengra var haldið. Færslur á hvorri síðu eru
heiiar og óskertar og standast á, sem best má vera.
Líklega var það Hannes Þor-
steinsson þjóðskjalavörður, sem
hélt því fyrstur fram 1928 (í
Blöndu IV bls. 71) að „ferhyrnt
stykki" hefði verið klippt úr árinu
1778 í kirkjubók Miklabæjar-
sóknar, en þar hefði að líkindum
verið skráð færsla um ráðskonu
séra Odds Gíslasonar, Solveigu,
sem fyrirfór sér það ár að tali
margra skilríkra heimilda. Hann-
es gat sér þess til að skemmdar-
verk þetta hefði unnið „einhver
sá, er viljað hefur afmá nafn Sol-
veigar úr tölu heiðarlegs fólks þar
í prestakallinu".
Ymsir hafa fetað í fótspor
Hannesar varðandi spjöll þessi á
kirkjubókinni og lagt í þau áþek-
ka merkingu. Fyrir skemmstu var
óspart á þetta drepið í tengslum
við Ieikrit Ragnars Arnalds um
Solveigu, bæði í leikskrá sýning-
arinnar og umsögnum um hana.
Jón Jóhannesson á Siglufirði tók
saman nokkuð ýtarlegan þátt um
séra Odd og Solveigu, er birtist í
Grímu 1948. Segir þar að dálítið
stykki hafi verið skorið úr blaði í
kirkjubókinni „einmitt þar sem
dánardægur Solveigar hefur ver-
ið,“ og drepið er á þá tilgátu
ónefnds Skagfirðings að séra
Oddur hafi „skrifað þar einhverja
athugasemd eða eitthvað það,
sem vandamönnum hans hafi
ekki verið um að geymdist". Sölvi
Sveinsson, sem tekið hefur sam-
an heimildir um séra Odd og Sol-
veigu og unnið úr þeim, svo að
naumast verður betur gert (Skag-
firðingabók 1986), vitnar til at-
hugasemdar Hannesar Þor-
steinssonar um spjöllin á kirkju-
bókinni 1778, en efast raunar
um að með þeim hafi verið reynt
að má út nafn Solveigar. Nýjustu
upprifjun á sögu Odds og Sol-
veigar er að finna í Degi 13.nóv.
síðastliðinn, og getur þar enn að
líta ályktanir samhljóða Hannesi
Þorsteinssyni um „ferhyrnda
stykkið" 1778.
Ný þjóðsaga, afkvæmi hinnar
gömlu, hefur hér, eins og for-
móðir hennar, krafist langra líf-
daga - og fer sínu fram, þótt stað-
reyndin sjálf, svart á hvítu, blasi
við mönnum, allsgáðum og alsjá-
andi. „Ferhyrnda stykkið" í
kirkjubók Miklabæjarsóknar var
ekld klippt úr árinu 1778 - held-
ur 1779! Sölvi Sveinsson birtir
meira að segja mynd af báðum
síðum blaðsins úr kirkjubókinni
með ritgerð sinni í Skagfirðinga-
bók, og ártalið ætti ekld að vefj-
ast fyrir heilskyggnum manni,
sama hvor síðan er lesin: þar
stendur skýrum stöfum 1779.
Annað mál er það, að kirkju-
bókin kemur ekld að liði varðandi
Miklabæjar-Solveigu, föðurnafn
hennar, ætt eða uppruna, þegar
skoðað er dánarár hennar, 1778.
Eitthvað virðist raunar skorta á
færslur í bókina það ár, ekkert
virðist bókað fyrr en Gísli, sonur
séra Odds, fæðist 11. maí, en
það er mánuði eftir að Solveig
lést samkvæmt annál Hallgríms
Jónssonar djákna. Síðan eru
barnsskírnir skráðar í bókina það
sem eftir er ársins, en fermingar
og hjónavígslur vantar með öllu.
Fyrsta innfærð greftrun er dag-
sett 26. maí, en síðan strikað yfir
og mánaðarheitinu breytt í febr-
úar; fimm manns eru síðan sagð-
ir jarðsettir þetta sumar og haust,
fram í október. Ekki er Solveigu
hér að finna, enda þess ekki að
vænta um persónu sem holað var
niður án kirkjulegs yfirsöngs.
Ohætt mun að staðfesta þá álykt-
un Sölva Sveinssonar, að trúlega
hafi Iát Solveigar aldrei verið fært
til bókar: „Hún féll fyrir eigin
hendi og sagði sig úr kristinna
manna lögum með þeim voða-
verknaði."
Solveig ráðskona stytti sér ald-
ur á Miklabæ laugardaginn fyrir
pálmasunnudag, 11. apríl 1778.
Klippingin úr árinu 1779 kemur
henni ekki hið minnsta við. Eftir
er að vita hvort framansögðum
reimleikum kringum kirkjubók-
ina slotar við slíkar fortölur.
Slæðingur af þessu tagi hefur svo
sem hrist af sér annað eins.
TAKMARKAÐ MAGN AÐEINSJ25)
EINTÖK í BOÐI. FYRSTIR KOMA,
FYRSTIR FÁ! AÐEINS Á VÍSÍr.ÍS
netverð kr.995
almennt verð kr.1.990,
SO°/o afsláttur
HAGKAUP
www.visir.is