Dagur - 11.12.1999, Síða 6
VI - LA UGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MINNINGARGREINAR
Sigurbjörg Helgadóttir
Sigurbjörg Helgadóttir f.
30.11.1919, lést 4. desember
1999 áAkureyri.
Foreldrar hennar voru María
Guðmundsdóttir og Helgi
Guðnason. Systkini hennar
samfeðra: Kristinn, Reymar,
Anna og Bima. Bræður hennar
sammæðra: Bjöm og Hrólfur.
Albræður tvíburarnir Sigurður
og Björgvin og var Sigurbjörg
yngst þessara 9 sysdkina. Oll
eru þau látinn nema Hrólfur,
93 ára.
Sigurbjörg giftist 1954 Ragn-
ari Amasyni sjómanni f. 1921,
d. 1998. Dætur þeirra eru:
Kolbrún Björk, f.1954, gift
Páli Jónssyni, f. 1954, þau eiga
3 börn. Svanhvít Björk, f.
Ástkær móöir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
ODDNÝ SESSELJA SIGURGEIRSDÓTTIR
Álfabyggö 22,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. desember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Guðný Ögmundsdóttir, Knútur Karlsson,
Margrét Ögmundsdóttir, Snorri Rögnvaldsson,
barnabörn og barnbarnabörn.
Elsku vinir.
Hinni einstöku hlýju og hugarþeli, sem að okkur hefur
streymt f undangengnum erfiðleikum og við hinn sára missi,
verður best líkt við sunnan þei á íslensku vori. Það styrkir þá
trú okkar að Herdís hafi reynst vel í þessu lífi og mun veita
henni byr undir vængi sálarinnar á nýrri vegferð.
Megi hinn mikli höfundur lífsins blessa ykkur öll.
Hafið hjartans þökk.
Þór, Stefán, Sigurður, Þórdís,
Þurý, Anna Sjöfn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚSTJÓNSSON,
bóndi,
Sigluvík,
Vestur-Landeyjum, verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju
laugardaginn 11. desember kl. 14:00.
Hildur Ágústsdóttir, Rúnar Guðjónsson,
Jón Ágústsson, Hrefna Magnúsdóttir,
Eiríkur Ágústsson, Guðríður Andrésdóttir,
barnabörn og barnabarna börn
J-----------------v
ORÐDAGSINS
462 1840
K ____________________r
1956, gift Erni Ingvarssyni, f.
1951, þau eiga 2 syni. Fyrir
átti Sigurbjörg Valdísi Brynju
Þorkeisldóttir, f. 1946, hún er
gift Jóhanni Eyþórssyni, f.
1948, þau eiga 2 börn og 1
barnbarn. Fyrir átti Ragnar
Rögnu Jóhönnu, f. 1943, gifta
Emil Helga Péturssyni, f. 1942
og Sigurð Rúnar, f. 1949, gift-
an Kristínu Arinbjarnardóttur,
f. 1950. Sigurbjörg starfaði
sem matráðskona og verka-
kona. Hún rak um árabil mat-
sölu á Akureyri og síðustu 10
starfsárin var hún matráðskona
í Slippstöðinni á Akureyri.
Útför hennar fór fram frá Ak-
ureyrarkirkju fimmtudaginn 9.
desember.
Til iiiöiimiu frá bama-
börmun.
En hér vantar þig
sem huggaðir, gladdir og annaðist mig.
Hjartað og höndin þín hætti
hvað sem mig grætti.
Bláu aitgun mtn
og brosið mitt, það voru daglaunin þín.
Ég átti ekkert annað að hjóða,
amma mín góða.
Þú fluttist svo fjær,
fóstra mín hlessuð, æ amtna mín kær,
kotndu t vor öræftn yfir
því að þú lifir.
Lifi ég þá,
að launa þér ástfóstrið, það skaltu sjá.
Páll Ólafsson (brot)
* * *
í dag kveðjum við hana ömmu
mína, Sigurbjörgu Helgadóttur,
sem alltaf var kölluð Bogga.
Amma varð áttræð þann 30. nóv-
ember s.l. en þá reyndist vera
stutt eftir, því hún lést síðastlið-
inn laugardag. Það er erfitt að
vera langt í burtu þegar svona
stendur á, en minningarnar um
ömmu, nú síðast í sumar, nokkuð
hressa, ylja okkur hér úti í Edin-
borg. Við komum til hennar um
hvítasunnuna mæðgurnar og
mamma, en síðan fórum við fjöl-
skyldan í bíltúr um Eyjafjörðinn,
fengum okkur ís, grilluðum úti á
svölum hjá henni og áttum með
henni góðar stundir. Valdís Huld
dóttir okkar var hrifin af Boggu
langömmu sem átti ýmislegt snið-
ugt dót til að lána lítilli skottu.
Amma missti hann Ragnar,
manninn sinn, á síðasta ári og í
sumar fór hún að slakna sjálf og
var komin á sjúkradeild á dvalar-
heimilinu Hlíð nú frá haustinu.
Við bjuggum í Hafnarfirði frá
því að ég var lítil en amma á Ak-
ureyri. Við fórum alltaf í heim-
sókn norður á sumrin og stund-
um á veturna líka. Það sem mér
er einna minnisstæðast varðandi
ömmu er hlýjan hennar og góða
skapið. Hún átti létta Iund hún
amma, sama hvort vel eða illa
gekk í lífinu og hvað sem á bját-
aði, gat hún alltaf séð björtu hlið-
arnar og komið með léttleikann
að málinu.
Þrátt fyrir nokkur áföll heilsu-
farslega síðustu árin, náði hún
sér alltaf aftur og var ótrúlekt
þrek sem hún sýndi þegar hún
veiktist alvarlega í ferð til Spánar
fyrir nokkrum árum. Hún náði
sér sem betur fer ágætlega eftir
það, svo við fengum að hafa hana
hjá okkur lengur og sjá hve hún
bjó yfir miklum Iífsvilja og þreki.
Amma var félagslynd, hress og
hafði alltaf mikinn áhuga á alls-
konar Iistgreinum. Hún hafði
gaman af að mála og föndra úr
óvenjulegum hlutum og eftir að
hún var komin á efri ár fór hún á
námskeið í málaralist og gerði
margar skemmtilegar myndir.
Amma hafði unnið ýmis störf
um ævina, lengst sem matráðs-
kona. Hún rak í mörg ár matsölu
á Hótel Akureyri, en sá vinnu-
staður sem ég man eftir er Slipp-
urinn. Amma stjórnaði þar mötu-
neytinu og í mínum huga sem lít-
il stelpa, stýrði amma þessum
„Slipp" meira og minna, enda
hafði ég óljósa hugmynd um hvað
það var á þessum aldri og fyrir
mér var þetta bara Slippurinn
hennar ömmu.
Bogga amma var manneskja
sem lifði lífinu af gleði og gaf
samferðamönnum sínum stóran
hluta af sinni lífsgleði. Við kveðj-
um hana ömmu í dag, en munum
geyma minninguna hennar í
hjörtum okkar.
Anna, Jón Örn og Valdís
Guðfuma Jónsdóttir
Guðfinna Jónsdóttir var fædd
4. júlí 1944 í Hrísey, lést 22.
nóvember síðastliðinn. Minn-
ingarathöfn hefur farið fram.
Hún var jarðsungin frá Fá-
skrúðsljarðarkirkju þann 3.
desember, þar sem æskuslóðir
hennarlágu.
Ekki hafði Guðfinna gengið á
rósum um dagana frekar en
margur annar. „Guð gefur og guð
tekur", við verðum að lúta því
lögmáli. Son sinn hafði Guð-
finna misst í sjóslysi og mörg var
hennar raunin. Ekki hlotnaðist
henni veraldarauður, en margt
var henni gefið til að takast á við
í Iífinu, heilsuleysi og ástvina-
missi. Henni var gefið f ríku
mæli kærleikslund og glaðværð,
sem aldrei kól í stormum lífsins.
Guðfinna átti lengst heima hér
á Akureyri, fjarri öllum ættingj-
um og börnum sínum og sum
þeirra hafa búið í útlöndum.
Alltaf var hugur Guðfinnu hjá
barnabörnunum og sendi hún
þeim gjafir fyrir jól þó kraftar
væru þrotnir.
A sambýlinu í Skútagili hafði
hún átt heima undanfarin ár og
notið þar góðrar umönnunar og
átt gott skjól hjá góðu starfsfólki.
Guðfinna mín, ég þakka þér
allan þann kærleik sem þú auð-
sýndir Erlingi og mér. Bjartar
stjörnur lýsi þér á eilífðarbraut-
inni.
Þtn Sigga.
Vort lif er oft svo örðug för
og andar kallt tfang
og margur viti villuljós
og veikum þungt um gang.
En Kristur segir kom til mtn,
og krossinn tekur vegna þín,
hann Ijær þér hjarta sólarsýn,
þótt syrti um jarðarveg.
Kristján frá DjúpaJæk.
íslendingaþættir birtast í
Degi alla laugardaga.
Skilafrestur vegna minningagreina er til þriðjudagskvölds.
Reynt er að birta allar greinar eins fljótt sem verða má en
ákveðnum birtingardögum er ekki lofað.
Æskilegt er að minningargreinum sé skilað á tölvutæku formi.
^ _____________Ðmmr
ISLENDINGAÞÆTTIR