Dagur - 11.12.1999, Síða 8
Vm~LAUGA RDAGUR 11. DESEMBER 1999
O^ur
Kirkjustarf
Sunnudagur 12. desember
- þriðji sunnudagur í aðventu
AKUREYRARKIRKJA
Sunnudagaskóli í Kjarnalundi kl. 11. Guðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju kl. 17.00. Athugið
breyttann tíma. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdótt-
ir.
GLERÁRKIRKJA
Barnasamvera og guðsþjónusta kl. 11.00.
Kór Menntaskólans á Akureyri syngur. For-
eldrar hvattir til að mæta með börnunum.
Aðventukvöld kl. 20.30. Valgerður Sverris-
dóttir, alþingismaður tlytur hugleiðingu.
SJÓNARHÆÐ
Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30. Al-
menn samkoma á Sjónarhæð kl. 17.00.
Mánudagur, barnafundur kl. 17.30.
KAÞÓLKSA KIRKJAN Á AKUREYRI
Messa á laugardag kl. 18.00. Messa á
sunnudag kl. 11.00.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Á AKUREYRI
Laugardagur, bænastund kl. 20.00. Sunnu-
dagur, sunnudagskóli fjölskyldunnar kl.
11.30. Kl. 16.30 vakningasamkoma.
MÖÐRUVALLAPRESTAKALL
Sameiginlegt aðventukvöld fyrir Bægisár-
og Bakkasókn í Bakkakirkju í Öxnadal kl.
20.30. Kór kirkjunnar syngur, lesin jólasaga,
fermingarbörn flytja helgileik og telpur úr
Þelamerkurskóla syngja um heilaga Lúsíu.
Ræðumaður.sr. Birgir Snæbjörnsson.
HRÍSEYJARKIRKJA
Laugardagur, helgistund í kirkjugarðinum í
Hrísey kl. 18.00. Sunnudagur, jólatónleikar í .
Stærra Árskógskirkju kl. 20.30. Heimamenn
syngja.
GRENIVÍKURKIRKJA
Aðventukvöld kl. 20.30. Kór Grenivíkurkirkju
syngur. Nemendur úr Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar leika á hljóðfæri, lesin verður jóla-
saga. Ræðumaður er Halldór Blöndal, for-
seti Alþingis.
LAU FÁSPR ESTAKALL
Svalbarðskirkja
Kirkjuskóli laugardag kl. 11.
Laufáskirkja
Aðventustund kl. 13.30 í upphafi hátíðar
Gamla bæjarins.
LAUGALANDSPRESTAKALL
Saurbæjarkirkja
Aðventukvöld kl. 21.00. Ræðumaður Sig-
urður Steinþórsson, fjármálastjóri.
ÞINGVALLAKIRKJA
Aðventustund barnanna kl. 14.00.
LÁGAFELLSKIRKJA
Guðþjónusta kl. 14.00. Barnastarf kl. 11.00.
SELFOSSKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11.00. Há-
degisbænir kl. 12.00.
EYRARBAKKAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Aðventukvöld
kl. 20.30. Ræðumaður Óskar Magnússon,
fv. skólastjóri.
BÚSTASAKIRKJA
Barnamessa kl. 11:00. Léttir söngvar, bibl-
íusögur, bænir, umræður og ieikir við hæfi
barnanna. Foreldrar hvattir til að koma
með börnum sínum. Guðsþjónusta kl.
14:00. Árnesingakórinn syngurvið messuna
ásamt Kirkjukór Bústaðakirkju. Einsöngur
Þorsteinn Þorsteinsson og Kristín Sig-
tryggsdóttir. Söngstjórar Sigurður Bragason
og Guðni Þ Guðmundsson. Pálmi Matthís-
son.
STOKKSEYRARKIRKJA
Aðventukvöld mánudaginn 13. des. kl.
20.30. Ræðumaður Kristjana Sigmunds-
dóttir.
ÁSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11:00. Guðsþjón-
usta kl. 14:00. Kaffi eftir messu. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
DÓMKIRKJAN
Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór Tónlistarskól-
ans í Reykjavík syngur. Sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Aðventuhátíð barnanna kl.
13:00. Lúðrasveit Laugarnesskóla og Kór
Vesturbæjarskóla. Sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Guðsþjónusta kl. 14:00. Barn borið til skírn-
ar. Einsöngur Elín Ósk Óskarsdóttir. Org-
anisti Kjartan Ólafsson. Sr. Sigurður Arnar-
son.
GRENSÁSKIRKJA
Barnastarf kl. 11:00. Guðsþjónusta kl.
11:00. Barnakór Grensáskirkju syngur undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Sr. Ólafur Jóhannsson.
HALLGRÍMSKIRKJA
Messa og barnastarf kl. 11:00. Karlakór
Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks
Kristinssonar. Organisti Hörður Áskelsson.
Sr. Jón D. Hróbjartsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Kristjáni Val Ingólfssyni.
LANDSPÍTALINN
Messa kl. 10:00. Sr. María Ágústsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Sr. Gylfi Jónsson. Messa kl. 14:00. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Gylfi Jóns-
son.
LANGHOLTSKIRKJA
Kirkja Guðbrands biskups.
Messa kl. 11:00. Þóra S. Guðmannsdóttir
syngur einsöng. Prestur sr. Jón Helgi Þórar-
insson. Organisti Jón Stefánsson. Kveikt á
aðventukertunum. Kaffisopi eftir messu.
Barnastarf í safnaðarheimili kl. 11. Umsjón
Lena Rós Matthíasdóttir.
LAUGARNESKIRKJA
Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kór
Laugarneskirkju syngur. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Hrund Þórarinsdóttir stýrir
sunnudagaskólanum með sínu fólki. Prestur
sr. Bjarni Karlsson. Messukaffi og djús fyrir
börnin á eftir. Messa kl. 13:00 í Dagvistar-
salnum Hátúni 12. Þorvaldur Halldórsson
syngur aðventu og jólalög. Gunnar Gunn-
arsson leikur á flygil. Sr. Bjarni Karlsson,
Margrét Scheving og Guðrún K. Þórsdóttir
djákni annast þjónustu. Kvöldmessa kl.
20:30 með Djasskvartett Gunnars Gunnars-
sonar. Kór Laugarneskirkju syngur. Sr.
Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir þjóna og flytja samtalsprédikun. Sig-
urbjörn Þorkelsson og fleiri Gídeonmenn
taka þátt í messunni. Messukaffi.
NESKIRKJA
Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Átta til níu ára
starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Sr. Frank M. Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA
Messa kl. 11:00. Selkórinn syngur undir
stjórn Jóns Karls Einarssonar. Organisti
Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf á sama
tíma.
ÁRBÆJARKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. árdegis. Dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson annast guðsþjónustuna. Org-
anleikari: Pavel Smid. Barnaguðsþjónusta kl.
13. Bænir-fræðsla-söngvar- sögur og leikir.
Foreldrar, afar, ömmur eru boðin hjartanlega
velkomin með börnunum. Prestarnir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN
Aðventukvöld kl. 20:30. Endurkomukvöld.
Ræðumaður Kristín Jónsdóttir, framhalds-
skólakennari. Drengjakór Laugarneskirkju
syngur og Kór safnaðarins syngur undir
stjórn Péturs Maté. Kaffi og smakk á
smákökunum. Menn komi kappklæddir til
kirkju vegna ólags á hitakerfi.
BREIÐHOLTSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 11.
Altarisganga. Aðventutónleikar kl. 20. Sig-
rún Hjálmtýsdóttir syngur ásamt kór Breið-
holtskirkju. Daníel Jónasson leikur á orgel.
Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA
Kl. 20.30. Þriðja sunnudag í aðventu. Guð-
laug Erla Jónsdóttir ætlar að kynna okkur
starf Mæðrastyrksnefndar Kópavogs.
Skólakór Snælandsskóla sér um tónlistar-
flutning kvöldsins undir stjórn Heiðrúnar
Hákonardóttur og auk þess leikur Ögmund-
ur Jóhannsson á klassiskan gítar. Kaffisala
á eftir aðventustundinni er til styrktar
Mæðrastyrsnefnd í Kópavogi. Stjórnun og
undirbúning kvöldsins er í höndum Safnað-
arfélags Digraneskirkju.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Umsjón Margrét
Ólöf Magnúsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14.
Gerðubergskórinn kemur í heimsókn og
syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Hug-
vekju flytur Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni.
Prestarnir þjóna fyrir altari. Kaffiveitingar að
lokinni guðsþjónustu. Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA
Sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju kl.
11:00. Prestur Sr. Vigfús Þór Árnason. Um-
sjón: Hjörtur og Rúna. Barnakórinn syngur,
yngri deild. Stjórnandi Oddný Þorsteins-
dóttir. Organisti Hörður Bragason. Sunnu-
dagaskóli í Engjaskóla kl. 11:00. Prestur Sr.
Anna Sigríður Pálsdóttir. Umsjón: Signý,
Guðrún og Guðlaugur. Guðsþjónusta kl.
14:00 í Grafarvogskirkju. Prestur Sr. Anna
Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org-
anisti Hörður Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Hjörtur Hjartarson
þjónar. Drengjakór skipaður drengum úr
Kór Snælandsskóla og félagar úr kór Hjalla-
kirkju syngja. Söngstjórar: Heiðrún Hákon-
ardóttir og Jón Ólafur Sigurðsson. Barna-
guðsþjónusta í kirkjunni kl. 13 og í Linda-
skóla kl. 11. Aðventusöngvar kl. 20.30.
Kammerkór Hjallakirkju syngur. Prestur sr.
Hjörtur Hjartarson. Söngstjóri: Jón Ólafur
Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrð-
arstund á þriðjudag kl. 18. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA
Barnaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Prest-
ur sr. Guðni Þór Ólafsson. Börn úr leikskól-
anum Kópasteini flytja helgileik. Organisti:
Hrönn Helgadóttir. Jólatrésskemmtun í
safnaðarheimilinu Borgum að lokinni guðs-
þjónustu.
SELJAKIRKJA
KL. 11. Krakkaguðsþjónusta. Kveikt á 3.
aðventukertinu. Mikill söngur og fræðsla
fyrir börnin. Kl. 14. Guðsþjónusta. Sr. Irma
Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Bjöllukór Bú-
staðakirkju flytur tónlist i guðsþjónustunni
undir stjórn Guðna Guðmundssonar. Org-
anisti er Gróa Hreinsdóttir. Kl. 20.30 Að-
ventutónlist frá ýmsum löndum. Flutt verður
tónlist frá ýmsum löndum og sagt frá siðum
og venjum er tengjast aðventu og jólum
víða um heim. Tónlistina flytja Anna Sigríð-
ur Helgadóttir söngkona og sönghópurinn
Rúdólf. Sóknarprestur.
AFMÆLI
Guimar
Gunnarsson
Sunnudaginn 28. nóvember
síðastliðinn varð heiðursmað-
urinn Gunnar Gunnarsson sex-
tugur. f tilefni þessa merka
áfanga langar okkur að senda
honum afmæliskveðju.
Gunnar á engan sinn líka og er
gaman að vera í návist hans.
Gunnar er einn af íyrstu starfs-
mönnum hæfingarstöðvarinnar
Bjarkaráss og vinnur nú í Lækj-
arási (Húsinu). Undanfarin ár
hefur Gunnar húið í sambýlinu
Lálandi 23 áður að Sigluvogi 5
og þar höfum við kynnst honum.
Gunnar er einstökum hæfi-
leikum búinn þó svo að hann
hafi ekki vald á talmáli þá á hann
auðvelt með að tjá sig með öðr-
um leiðum. Hann naut ekki
tákn með tali kennslu íyrr en nú
hin síðari ár.
Gunnar er maður tilfinninga
og með faðmlögum og kossum
sýnir hann einlæga gleði sína,
að sama skapi kemur fram í lát-
bragði og svipbrigðum óánægja
og reiði.
Hann er maður sem ekki lætur
teyma sig áfram heldur hefur
ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Okkur finnst alltaf góð sagan af
samskiptum hans við systur sína
sem var gestkomandi á heimili
hans. Þegar Gunnari mislíkaði
stjórnsemi hennar pakkaði hann
öllu hennar dóti í ferðatösku og
setti út í dyr, skýrari skilaboð var
ekki hægt að gefa.
Gunnar hefur tvö stór áhuga-
mál það eru kvikmyndir og tón-
list. A hverjum sunnudegi fer
hann með Magnúsi vini sínum í
bíó og ef myndin er góð er allt í
lagi að fara oftar en einu sinni.
Tónlist er einnig í hávegum höfð
og Gunnar er óþrjótandi brunn-
ur á því sviði, geisladiskar eru
ófáir. Ekki er hægt að nefna tón-
listina án þess að minnast á
dansinn en það er alltaf hægt að
taka dansspor við góða tónlist.
Ferðalög eru líka í miklu uppá-
haldi hjá Gunnari. Spánarferðir
eru ófáar og svo finnst honum
líka gaman að vera hjá Jensey á
Selfossi, en þangað hefur hann
farið undanfarin sumur.
Snyrtimennska er hans aðals-
merki og hann fer helst ekki úr
húsi um helgar nema í lakkskóm
og jakkafötum. Það er auðfundið
að Gunnar hefur fengið gott
uppeldi hjá foreldrum og vega-
nestið hefur nýst honum vel út í
lífið. A þessum merku tímamót-
um viljum við óska Gunnari alls
velfarnaðar. Heill þér sextugum.
Fyrir hönd íbúa og starfsfólks
á Lálandi
Laufey og Sigga.
v--ýfARARSTo/^
/SLANDS
Markmið Útfararstofu Islands er að veita trausta og persónulega
þjónustu, Aðstandendur geta leitað útfararstjóra hvenær sólarhrings
sem er. Útfararstofa íslands er aðstandendum innan handar um alla
þá þætti er hafa ber í huga er dauðsfall ber að. Útfararstjórar
Útfararstofu íslands búa yfir mikilli reynslu og hafa starfað við
útfararþjónustu um árabil.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Utfararstofa Islands sér um:
Utfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í
samráði við prest og aðstandendur.
- Flytja hinn látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
- Undirbúa lík hins látna í kistu og snyrta ef
með þarf.
Útfararstofa íslands útvegar:
- Prest.
- Dánarvottorð.
- Stað og stund fyrir kistulagningu og útför.
- Legstað í kirkjugarði.
- Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara
og/eða annað listafólk.
- Kistuskreytingu og fána.
- Blóm og kransa.
- Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
- Líkbrennsluheimild.
- Duftker ef líkbrennsla á sér stað.
- Sal fyrir erfidrykkju.
- Kross og skilti á leiði.
- Legstein.
- Flutning kistu út á land eða utan af landi.
- Flutning kistu til landsins eða frá landinu.
Útfararstofa Islands - Suöurhlfð 35-105 Reykjavfk.
Sími 581 3300 - allann sólarhringinn.