Dagur - 22.12.1999, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. D E S E M B E R 1999 - S
FRÉTTIR
Sverðin úr slíðnim
vegna Orkuveitu
Ardgreiðslur í borgar-
sjóö vegna Orkuveit-
unniir. Vaxandi gagn-
rýni. Viðræður við ná-
grannasveitarfélög og
borg. Niðurgreiðsla á
rekstri borgarsjóðs.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar
hefur samþykkt að leita eftir við-
ræðum við nágrannasveitarfélög-
in vegna samskipta við Orku-
veitu Reykjavíkur vegna arð-
greiðslna fyrirtækisins í borgar-
sjóð. I framhaldi af því hefur
bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar
ritað borgarstjóra bréf út af hita-
veitusamningi bæjarins við
Orkuveituna þar sem óskað er
viðræðna um það mál.
Þráðurmn tekiim upp
Þessi samþykkt bæjarstjórnar var
gerð í framhaldi af fyrirspurn
sem Lúðvík Geirsson og Ingvar
Viktorsson bæjarfulltrúar Sam-
fylkingarinnar Iögðu fram á
fundi bæjarráðs fyrir skömmu.
Þar spurðu þeir bæjarstjóra hvar
viðræður bæjaryfirvalda við ráða-
menn Reykjavíkurborgar væru
staddar um samskipti sveitarfé-
Iaganna vegna Hitaveitu Reykja-
víkur. Þeir spurðu einnig hvort
einhver fundur hefði verið hald-
inn um þetta mál með borgaryf-
Lúðvík Geirsson.
irvöldum og hvenær bæjarstjóri
hyggðist taka þessi mál til frekari
umræðu.
Kemur ekki öðrum við
Þetta mál hefur verið í láginni
um nokkurt skeið, eða frá því
borgin og Hafnarfjarðarbær
fengu sitthvort lögfræðiálitið á
stöðu sinni í þessu máli í fyrra.
Hinsvegar mun vera vaxandi
gagnrýni meðal nágrannasveitar-
félaganna vegna málsins, en þau
telja að með aukinni arðgreiðslu
veitunnar í borgarsjóð sé borgin
að skattleggja þá í eigin þágu.
Borgarstjóri segir að þetta mál
hefði einfaldlega dagað uppi síð-
an í fyrra. Ingibjörg Sólrún
bendir á að Orkuveitan sé í eigu
Reykvíkinga þar sem framleidd
sé vara og seld á því lægsta verði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
sem þekkist hérlendis. Ná-
grannasveitarfélögin hafa ákveð-
ið að kaupa þá vöru af Orkuveit-
unni, enda sé það hagur þeirra.
Borgarstjóri segir að öðru leyti sé
það einfaldlega málefni borgar-
yfirvalda hvernig Orkuveitan sé
rekin og hvernig hennar fé sé
ráðstafað. Við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar borgarsjóðs 2000
kom fram að sóttir verða 3 millj-
arðar til Orkuveitunnar til við-
bótar við einn milljarð í fyrra.
Heildarskuldir veitunnar, að frá-
töldum lífeyrissjóðsskuldbind-
ingum, hafa sextánfaldast frá ár-
inu 1994 og m.a. vegna mikilla
fjárfestinga á Nesjavöllum og
landakaupa á hitasvæðum.
Niðurgreiðsla á rekstri
Gunnar I. Birgisson, þingmaður
Gunnar I. Birgisson.
sjálfstæðismanna og bæjarfull-
trúi þeirra í Kópavogi, segir að
bæjarstjórnin hafi svo sem ekki
verið að nudda neitt í þessu máli
að undanförnu, hvað sem síðar
kann að gerast á nýju ári. Engu
að síður sé það á hreinu að
Kópavogabúar og íbúar annarra
sveitarfélaga sem skipta við
Orkuveituna séu að greiða niður
reksturinn hjá borginni og það
hafa menn verið að gagnrýna.
Meðal annars hefur borgin verið
að færa niður eigið fé Orkuveit-
unnar með arðgreiðslum og
skuldsetja fyrirtækið og þær
skuldir þarf einhvern tíma að
borga. Þá sé Ijóst að í framtíðinni
munu taxtar Orkuveitunnar
hækka, svo hægt sé að greiða
skuldirnar. - GRH
Guöni Ágústsson: Gjörningur
fyrirrennarans erstaðreynd.
Stefna vegna
Kambssels
„Þetta eru viðbrögð sem ég hef
ekkert að athuga við og eru ekki
óeðlileg miðað við dóma sem
hafa verið að falla að undan-
förnu. En þessi gjörningur fyrir-
rennara míns er staðreynd og
honum j>et ég ekki rift,“ segir
Guðni Agústsson landbúnaðar-
ráðherra, aðspurður um stefnu
Jóhanns Einarssonar og Asgeirs
Asgeirssonar til ógildingar á sölu
jarðadeildar landbúnaðarráðu-
neytis á jörðinni Kambssels í
Djúpavogshreppi.
Guðmundur Bjarnason, fýrir-
rennari Guðna, seldi Helga
Jenssyni og Atla Arnasyni, eigin-
manni fyrrum varaþingsmanns
framsóknarflokksins, jörðina á
750 þúsund krónur 6. nóvember
á síðasta ári, án auglýsingar, en
stefnendur höfðu jörðina á
leigu. Málið þykir ekki ólikt
dómsmáli jarðanna Brúna og
Tjarna, undir Eyjafjöllum. En
súsala var ógild í undirrétti og
bíður nú afgreiðslu í Hæstarétti.
- FÞG
Tíu ára nemendur úr 5. bekk E í Melaskóla gengu til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra í gær með þá
ósk í farteskinu að 1. janúar árið 2000 verði dagur friðar í Reykjavik Ingibjörg varð við erindinu og lýsti borgarstjórnin þessu
yfir á fundi sínum í gær. mynd: eól.
Góð færð um allt land
Færð er nú víðast góð um landið
og nokkuð góðar horfur fyrir
næstu daga en breytmgar á færð
fara þó að sjálfsögðu nokkuð eft-
ir veðrinu. Miðað við veðurspá er
þó tilefni til nokkurrar bjartsýni.
Víða er orðið lítið um hálku um
sunnan- og vestanvert landið.
Jeppafært er um Dynjandisheiði
en ófært um Hrafnseyrarheiði.
Syðri leiðin til Patreksfjarðar er
fær en mikil hálka frá Króksfjarð-
arnesi til Brjánslækjar. Hálka og
hálkublettir eru víða á Norður-
og Austurlandi en hálkan er þó á
undanhaldi. Auður vegur er frá
Reykjavík til Víkur í Mýrdal en
hálkublettir austan Víkur.
Að sögn Björns Svavarssonar
vegaeftirlitsmanns hjá Vegagerð-
inni verður mokað að morgni að-
fangadags aðeins framyfir há-
degi. Allur mokstur liggur niðri á
jóladag en hefðbundinn mokstur
á annan dag jóla. Bakvakt verður
þó hjá vegaeftirlitinu alla jóla-
dagana. - HI
RíMð lokar á gamlársdag
Ákveðið hefur verið að hafa fjár-
hagskerfi ríldssjóðs lokuð á gaml-
ársdag. Er það gert til þess að
lágmarka vandamál sem geta
skapast í tölvukerfum vegna ár-
talsins 2000. Á gamlársdag verð-
‘ ilr því hvorki greitt úr ríkissjóði,"
né tekið við greiðslum, auk þess
sem engar tollafgreiðslur verða
þann dag. Síðasti greiðsludagur
opinberra gjalda og síðasti dagur
tollafgreiðslna á þessu ári verður
því 30. desember. Afgreiðslur
Ríkisféhirðís* isýsltrfnáhfiiéfnhí 1
ætta, Tollstjórans í Reykjavík og
Tryggingastofnunar ríkisins
verða lokaðar á gamlársdag.
Venjubundin starfsemi allra
þessara stofnana hefst síðan á ný
mánudaginn 3. janúar 2000. - HI
i 6i; ,igíU Ut>,jiaq þ'im ,Ác).ynþi ?
Flugleiðir selja hlut í Equaut
Flugleiðir hafa selt 34% af hlut sínum í
alþjóða fjarskiptafélaginu Equant. Sölu-
verð bréfanna að frádregnum sölukostn-
aði er 430 milljónir króna, sem er beinn
hagnaður félagsins og kemur í rekstrar-
reikning og efnahagsreikning ársins 1999. - Equant varð til út úr
starfsemi SITA, fjarskiptafélags flugfélaga, og er alhliða Ijarskiptafyr-
irtæki á alþjóðamarkaði. Hlut SITA í Equant var skipt milli aðildar-
flugfélaga SITA í hlutfalli við viðskipti félaganna við SITA árunum
1990 til 1998. Þannig komu liðlega 200 þúsund hlutir í Equant í hlut
Flugleiða fyrr á þessu ári. - SBS.
Á funmta tug þúsimda undirskrifta
ÁTimmta tug þúsunda undirskrifta hafa safnast
undanfarna daga í undirskriftarsöfnun Um-
hverfisvina til stuðnings kröfunni um lögform-
legt mat á umhverfisáhrifum Fljótdalsvirkjunar.
Segir í frétt frá Umhverfisvinum að söfnunin
hafi tekið kipp síðustu daga sem þeir segja að
megi „ ... rekja til vaxandi andúðar almennings á
vinnubrögðum Alþingis í þessu þýðingarmikla
máli og endurtekinna ábendinga virtra fræði-
manna um að Fljótsdalsvirkjun sé óarðbær fram-
Jakob Frimann er í k''æmd,“ eins og orðrétt segir. Umhverfisvinir
fotystu umhverfisvina. lalda undirsknftarsöfnun smm afram, að minna
—— ------- kosti tn loka januar. - SBS.
Skattar hækka um 0,03%
Staðgreiðsluhlutfall skatta á árinu 2000 verður 38,37%, samanborið
við 38,34% á þessu ári og hækkun milli ára verður því 0,03%. Þetta
er samkvæmt ákvörðun fjármálaráðuneytisins sem tekur úrskurðar
skv. lögum um tekju- og eignarskatt. Á næsta ári verður tekjuskatts-
hlutlall 26,41%, sem er hið sama og í ár. Meðalútsvar er skv. ákvörð-
unum sveitarstjórnar 11,96%, en þetta hlutfall er 11,93% í ár og
hækkunin er því 0,03%. - Sveitarfélög geta ákveðið útsvar á bilinu
11,24% til 12,04%. Af 124 sveitarfélögum nota 81 hámarkið, en 34
sveitarfélög eru með útsvar frá 11,60% og upp að hámarkinu. Níu
sveitarfélög eru með útsvar Iægra en 11,60% og sex þeirra halda sig
jtjliííeyfíjÁgt fágfpá.jjír - sbs.