Dagur - 22.12.1999, Blaðsíða 10

Dagur - 22.12.1999, Blaðsíða 10
10 -MIDVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1999 SM AflUGL YSINGAR Veiðileyfi _________________________ Sala veiðileyfa í Litlá í Kelduhverfi hefst 4. jan. n.k. hjá Margréti í síma 465-2284. Veiðin hefst 1. júní 2000. Húsnæði óskast íbúð óskast á Akureyri eða nágrenni. Upplýsingar í síma 464.4490. (búð óskast í miðbæ Akureyrar. Upplýsingar í síma 862-2856. Happdrætti Bókatíöinda Vinningsnúmer í happdrætti Bókatíðinda 22. desember er 21.328. Kirkjustarf ÞORLAKSKIRKJA Aftansöngur á aðfangadag kl. 18.00. HJALLAKIRKJA í ÖLFUSI Hátiðarguðsþjónusta á jóladag kl. 14.00. VIÐ ERUM MIÐSVÆÐIS MELVEGUR 17 • HVAMMSTANGA S(MI 451 2617 • FAX 451 2890 Sýslumaöurinn á Akureyri Hafnarstræti 107, 600 Akureyri, s: 462 6900 UPPBOÐ Framhald uppboös á eftirfarandi eign veröur háö á henni sjálfri sem hér segir Hafnarstræti 94, A-1 hluti, viöb. aö norðan, Akureyri, þingl. eig. Flosi Jónsson, geröarbeiöendur Fjárfestingarbanki atvinnul hf og íslandsbanki hf, miðvikudaginn 29. desember 1999 kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, 21. desember 1999. Harpa Ævarrsdóttir, ftr Frumsýning á íslandi Halti Billi frá Miðey eftir Martin McDonagh Leikstjóri Hallmar Sigurðsson Mánudaginn 27. desember kl. 20:30 Þriðjudaginn 28. desember kl. 20:30 Miðasala í síma 462 1129 Sjómannafélag Eyjafjarðar Fundarboð Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn að Skipagötu 14, 4. hæð (Alþýðuhúsinu) miðvikudaginn 29. desember 1999 og hefst kl.11.00 fh. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Önnur mál Hólmgeir Jónsson framkvæm- darstjóri Sjómannasambands (slands verður gestur fun- darinns. Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar. nyjfl bío RÁÐHÚSTORGI THx SÍMI 461 4666 twwmt kl. 16:30,18:40, 21 og 23:30 kl. 16:50 m/ísl.taii ■ HVAB ER Á SEYBI? BLYSFÖR FRIÐARHREYFINGA Samstarfshópur friðarhreyfinga stendur fyrir blys- för niður Lauga- veginn á Þorláks- messu. Safnast verður saman ld. 17.30 á Hlemmi og lagt af stað klukkan 18. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Hamrahlíðarkór- inn og barnakórar taka þátt í blysför- inni sem endar með stuttum fundi á Ingólfs- torgi. Þar mun Eyrún Ósk Jónsdóttir, nemi flytja ávarp Samstarfs- hóps friðarhreyfinga og kórarnir syngja saman. Fundarstjóri verður Kolbeinn Óttarsson Proppé, sagnfræðingur. Þetta er 20. árið sem friðarganga er farin á Þorláksmessu og líta margir á hana sem ómissandi hluta jólaundirbúningsins. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi og á leiðinni. Þorláksmessugleði Kóngur einn dag er nýr geisla- diskur með þeim KK og Magn- úsi sem er komin út. Tónleik- ar þeirra félaga í Kaffileikhús- inu hafa alltaf verið fjölsóttir og því hvetur Kaffileikhúsið gesti sína til að panta miða tímanlega. Tónleikarnir verða í Kaffileikhúsinu fimmtudaginn 23. desember kl. 22:00. Þeir sem þekkja til vita að Kristján og Magnús eru óborg- anlegir á sviði og sjást alltof sjaldan í Reykjavík. Þó hefur Kristjáni brugðið fyrir hjá kaupmanninum á horninu á Gullteig og Laugarteig og sést hefur til Magnúsar við af- greiðslustörf í hljóðfæraversl- uninni RÍN, annars hafa jreir farið huldu höfði. Kímni þeirra og gáski fara einstaklega vel með frábærri tónlist sem við Is- lendingar höfum fengið að njóta árum saman. Miðapantanir eru allan sólar- hringin í síma 551-9055. Jól á Broadway A jóladag verður kvöldverður og sérstök skemmtun fyrir er- lenda ferðamenn á Broadway. Á annan í jólum verður stórdansleikur með hljómsveit- inni Skítamóral. Miðasala og borðapantanir alla daga í síma 533-1 100. Jól á Gauk á Stöng Á Þorláksmessu verður djammið á Gauk á Stöng í höndum hljómsveitarinnar „Hálft í Hvoru" Þetta er gömul hefð á Gauknum og vel við hæfi á síð- asta Þorlák árþúsundsins. Á annan í jólum mun hljómsveit „Papar“ skemmta gestum. En þeir láta ekki þar við sitja og halda áfram með írskri stemmningu mánudagskvöldið 27. desember. Félag eldri borgara Ásgarði, Glæsibæ Línudanskennsla Sigvalda verður í dag miðvikudag ld. 17.00. Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 588-2111 frá kl. 9.00 til 17.00. Gluggar Sýning Aðalheiðar Eysteins- dóttur - Gluggar - sem nú stendur yfir í Bókasafni Há- skólans á Akureyri verður frá og með Þorláksmessu til 3. jan- úar opin alla virka daga frá kl. 8-16 nema mánudaginn 27. desember, þann dag er safnið lokað. Frá 3. janúar verður sýningin aftur opin frá kl. 8 - 18 fram að síðasta sýningar- degi sem er 8. janúar. ■ fra degi 356. dagur ársins og 9 dagar eftir I dag eru vetrarsólstöður Sólris kl. 11.21 og sólarlag kl. 15.30 Þau fæddust 22. desember • 1898 fæddist Árni Friðriksson, fiski- fræðingur. • 1905 f’æddist bandaríska Ijóðskáldið Kenneth Rexroth. • 1905 fæddist Stefán Jónsson rithöf- undur. • 1917 fæddist leikarinn Frankie Darro. • 1949 fæddust hinir áströlsku syngj- andi tvfburar, Robin og Maurice Gibb. • 1964 fæddist Marta Ernstdóttir, hlaupari. TIL DAGS Þetta gerðis 22. desember • 1894 franski herforinginn Alfred Dreyf’us var dæmdur fyrir Iandráð og sendur til Djöflaeyju. Þetta markar upphaf Dreyfussmálsins. • 1897 stundaklukka var sett upp í turni Dómkirkjunnar í Reykjavík, klukka sú sýnir vegfarendum, ennþá hvað klukk- an slær. • 1919 Landsyfirréttur kvað upp dóm í síðasta sinn. • 1941 Franklin Delanor Roosevelt, for- seti Bandaríkjanna og Winston ChurchiII hittust f Washington. • 1972 Lagið „It never rains in Southern California" með Albert Hammond trónaði á toppi Billbordlist- ans. Vísa dagsins Við skulum standa hlið við hlið og hlaða niður í svaðið, hjálpa þeim á höfuðið sem hafa upp úr staðið. Hjörleif’ur JÓnsson frá Gilsbakka. Afmælisbam dagsins Italska tónskáldið Giacomo Puccini fæddist í bænum Lucca þapn 22. desember árið 1858. Hann sýndi tónlistarhæfilæka í æsku og því lá beinast við að hann lærði að spila á orgel. Hann var á 16. ári þegar hann skrifaði fyrstu verk sín. Hann fór til Mílanó og hélt þar áfram námi og þar var fyrsta ópera hans sett á svið árið 1883. Af verkum hans eru Manon Lescaut, Tosca, La Bohem og Madama Butterfly talin merkust. Puccini lést af hjartaáfalli árið 1924. „Vitleysan er algengasta frumefnið í al- heiminum og hví skyldum við ekki ræða hana.“ Frank Zappa Heilabrot Hvað er á milli himins og jarðar? Svar við síðustu heilabrotum: í orða- bókinni. Veffang dagsins Á vefnum má finna margskonar sögulegan fróðleik. Ef farið er inná http:llthehi- storynet.com rekst skoðandinn á ýmislegt skondið og skemmtilegt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.