Dagur - 22.12.1999, Page 12
12 - MIDVIKUDAGU R 22. DESEMBER 1999
ERLENDAR FRÉTTIR
-Ðufítvr
IÞROTTIR
YMISLEGT
Ottast að 3 0 þús-
imd hafi farist
Griðarlegt mannfall
og tjón í flóðuniun í
Venesúela. Mestu
hamfarir í S-Amer-
íku. Rauði kross ís-
lands kemur til að-
stoðar
Hjálpars itir vinna hörðum
hönduni venesúela að jrví að
grafa up ík eftir flóðin miklu
í síðus viku. Tala látinna
hækkar <ðugt og samkvæmt
fregnum gær óttuðust stjórn-
völd a< >5 til 30 þúsund
manns :<iu farist. Um miðj-
an dag r höfðu um 5 jrús-
und Iík idist og um 15 j)ús-
und mai hafa misst heimili
sín. Þet; ru mestu hamfarir
sem ri< hafa yfir landið á
þessari d og einhver þau
mestu í ður-Amcríku í sein-
ni tíð.
„Því i ur eru þúsundir enn
grafnir irnum. Eg óttast að
við munum aldrei komast að
því hve mörg mannsh'f fóru.
Við getum verið að tala um 25
þúsund eða jafnvel 30 þús-
und,“ var haft eftir varnar-
málaráðherra Venesúela í gær.
Flest fórnarlambanna liggja
grafin í aurflóðum í fjallshlíð-
um og undir heilu björgunum
sem hrundu. Verst varð ríkið
Vargas úti, skammt frá höfuð-
borginni Caracas, en fjöldi fá-
tæks fólks hafði komið sér fyr-
ir í fjallshlíðum. Flóðið hreif
með sér heilu þorpin og Ijóst er
að tjónið nemur mörgum
hundruðum milljarða króna.
Uppbyggingin í landinu mun
taka mörg ár.
Milljón frá íslandi
Þess má að lokum geta að
Rauði kross Islands sendi í gær
frá sér 1 milljón króna til
hjálparstarfa Alþjóða Rauða
krossins í Venesúela. Ætlar
Rauði krossinn á næstu þrem-
ur mánuðum að aðstoða 50
þúsund fórnarlömb flóða og
aurskriða í landinu. Rauði
kross Venesúela hefur tekið
virkan þátt í björgunarstörfun-
um frá upphafi. Rúmlega
1.300 starfsmenn og sjálfboða-
liðar hafa mannað leitarflokka,
flutt fólk úr sjálfheldu, komið
slösuðum undir Iæknishendur
og mannað fjölda hjálparstöðv-
ar. Björgunarstarfið heldur
áfram, en einnig er mikil þörf á
neyðaraðstoð við fátækar fjöl-
skyldur sem misst hafa heimili
sín. A næstu dögum verður
lögð áhersla á að útvega mat,
hreint drykkjarvatn, teppi, föt
og neyðarskýli.
Þeir sem vilja leggja Rauða
krossinum lið við hjálparstarf-
ið geta sent peningaupphæð af
greiðslukorti sínu á vef Rauða
krossins. Slóðin er www.rcd-
cross.is. Einnig er hægt að
leggja beint inn á reikning 12
hjá SPRON á Seltjarnarnesi
(11 51-26-12) eða lagt fé inn á
sama reikning með því að fylla
út gíróseðla sem liggja frammi
í bönkum og sparisjóðum.
Getur ekld
skýrt
strandið
Sjópróf héldu áfram í Noregi í
gær vegna Sleipnisslyssins.
Skipstjórinn, Sverre Hagland,
gat við yfirheyrslur engar skýr-
ingar gefið á strandi hraðferj-
unnar. Hann fúllyrti að ferjan
hafi siglt í rétta stefnu og að
hann hafi fylgst vel með sigl-
ingunni og afstöðu skipsins við
vitann. AUt háfi litið rétt út eða
þar til Sleipnir sigldi skyndi-
lega upp á sker. Hann neitar
að hafa verið frá sér vegna
áfalls, eftir slysið, enda muni
hann í smáatriðum allaat-
burðarás.
HEIMURINN
Hvatt til samstöðu
Á fundi sínum í gær með nýkjörnum leiðtogum stjórnmálaflokka
á rússneskaþinginu hvatti Vladimir Pútín forsætisráðherra þá til
að hafa samvinnu við ríkisstjórnina við efnahagsumbætur í land-
inu og hernaðaraðgerðirnar í Tjetseníu. Putin sagði að rússneska
þjóðin legði traust sitt á hið nýkjörna þing og enn meira en lyrr
því nú væru mörg alvarleg vandamál að glíma við.
Forsetakosniiigar á Sri Lairka
Forsetakosningar í Sri Lanka hófust £ gær. Stjórnmálaspekingar
reikna með að oddviti stjórnarandstöðunnar, Ranil Wikre Mes-
inge, veiti Kumaratunga forseta harða keppni. Líkur jukust hins
vegar á endurkjöri forsetans þegar henni var sýnt banatilræði um
síðustu belgi. Öryggisráðstafanir eru miklar á kjörstöðum.
Kristinn Björnsson.
Glæsilegur árangur hjá Kristiui
Kristinn Björnsson, skíðakappi, náði fjórða sætinu á heimsbikarmótinu í
svigi sem fram fór í Kranjska Gora í Slóveníu í gærdag. Kristinn sem var
með rásnúmer 42, fékk mjög slæma braut í fyrri ferðinni og lenti þá í 29.
sæti. í seinni ferðinni hafði hann rásnúmer tvö og fékk þá mjög góða
braut, sem skilaði honum besta brautartímanum og forystu í keppninni.
Kristinn hélt forystunni lengi vel, eða þar til kom að heimsbikarhafanum
Thomas Stangassinger frá Austurríki, sem hafði fjórða besta tímann úr
fyrri ferðinni. Tveir aðrir keppendur náðu svo að komast fram fyrir Krist-
inn, en það voru sigurvegari mótsins, Didier Plaschy ffá Sviss, en hann
náði besta tímanum í fyrri umferðinni og Austurríkismaðurinn Benja-
min Raich, sem lenti í öðru sæti. Tomas Stangassinger varð í þriðja sæti.
Þessi árangur Kristins er sá þriðji besti sem hann hefur náð á heims-
bikarmóti til þessa, en áður hafði hann náð öðru sætinu í tvígang. Eftir
þrjú fyrstu mótin er Kristinn í áttunda sæti stigakeppninnar í svig með
79 stig.
Röð efstu inaiuia Staðan í stigakeppninni:
Didier Plaschy, (Sviss) 1:40.39 Didier Plaschy, (Sviss) 203
Benjamin Raich, (Aust.) 1:40.48 Thomas Stangassinger, (Aust.) 200
T. Stangassinger, (Aust.) 1:41.13 Benjamin Raich, (Aust.) 163
Kristinn Bjömsson (Isl.) 1:41.30 Finn-Christian Jagge, (Nor.) 116
Christian Mayer, (Aust.) 1:41.38 Kjetil-AndrÉ Aamodt, (Nor.) 114
Matjaz Vhrovnik, (SIó.) 1:41.41 Matjaz Vhrovnik, (Slóv.) 106
Jure Kosir, (Sló.) 1:41.50 Jure Kosir, (Slóv.) 96
Har. Strand-Nilsen, ,(Nor.) 1:41.50 Kristinn Björnsson, (Isl.) 79
R. Schoenenfelder, (Aust.) 1:41.52 R. Schoenenfelder (Aust.) 78
Giorgio Rocca, (Ital.) 1:41.60 Matteo Nana (ítal.) 76
Dregið í körfuhLkarniun
I fyrrakvöld var dregið um það hvað Iið mætast í 8-liða úrslitum bikar-
keppni KKI og RENAULT í körfuknattleik. Bikarmcistarar Njarðvíkinga
mæta KFl á Isafirði, Tindastóll fær Grindvíkinga í heimsókn á Sauðár-
krók, Haukar taka á móti Selfyssingum í Hafnarfirði og Selfoss og Ham-
ar fær KR-inga í heimsókn í Hveragerði. Leikirnir fara ffam 9. janúar.
í kvennaflokki voru sex lið í hattinum, þar sem bikarmeistarar KR-
inga drógust á móti Tindastóli og fer leikurinn ffam á Sauðár-
króki.Grindvíkingar fá IS í heimsókn til Grindavíkur, en Keflavík og KFI
sitja hjá. Leikurinn í Grindavík fer ffam 8. janúar en á Sauðárkróki 9.
janúar.
Desailly til Lazio?
Það heyrist nú (jöllum hærra að franski landsliðsmaðurinn Marcel Des-
ailly hjá Chelsea, sem varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í leiknum
gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni um helgina, sé að hugleiða flutning
til ítalska liðsins Lazio eftir yfirstandandi leiktímabil. Lazio mun vera til-
búið til að greiða 6 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem þegar hefur
lýst yfir að hann hafi áhuga á að fara aftur til ftalíu, þar sem hann lék
með AC Milan, áður en hann flutti sig yfir til Englands.
Að hans sögn vill hann leika þar næstu tvö tímabilin, áður en hann
heldur aftur á heimaslóðir í Frakklandi, til að ljúka ferlinum hjá
Marseille. Slök frammistaða Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur mun
eflaust hafa ýtt undir þessa afstöðu Frakkans, sem sér fram á að liðið nái
jafnvel ekki Evrópusæti, sem hann getur engan veginn sætt sig við.
Hagi leiionaður aldarinnar í Rúmeníu
Gheorghe Hagi var á mánudaginn útnefndur knattspymumaður aldar-
innar í Rúmeníu. Hann hefur á undanförnum árum verið helsti lykil-
maður rúmenska landsliðsins og helsti leiðtogi þess innan sem utan vall-
ar. „Það er mikill heiður að vera útnefndur leikmaður heillrar aldar og ég
get ekki hugsað mér nokkuð ánægjulegra," sagði Hagi eftir samsæti sem
rúmenska knattspyrnusambandið hélt honum til heiðurs.
Hagi, sem er 34 ára, byijaði að leika með landsliðinu árið 1981 og hef-
ur síðan leikið 119 landsleiki og skorað í þeim 35 mörk.
Hann hefur með Iandsliðinu tekið þátt í þremur úrslitakeppnum HM
og einni úrslitakeppni EM og leiddi Rúmena alla leið í fjögurra liða úr-
slit HM árið 1994, sem er besti árangur sem liðið hefur náð.
„Mín æðsta ósk núna er að komast með félögum mfnum í úrslita-
keppni EM á næsta ári og ná þar þeim besta árangri sem rúmenskt lands-
lið hefur náð þar til þessa,“ sagði Hagi, en þar leikur Rúmenía í riðli með
Englendingum, Þjóðverjum og Portúgölum.
.júhsrionol/i /loíf i firiiöirinfiQ i rií>2noflu2 (ibIIA i TTÍl I
í kringum 5 þúsund lík hafa fundist í fiódunum í Venesúeia og fjöidi látinna á eftir að hækka, dag frá degi.