Dagur - 28.01.2000, Side 1
Verð í lausasö/u 150 kr.
83 og 84. árgangur- 19. tölublað
Föstudagur 28. janúar 2000
Frá Akranesi.
4 milljónir
fyrir sparkid
Hæstiréttur hefur staðfest þá
niðurstöðu Héraðsdóms Vestur-
Iands, að stúlka, sem ásamt
þremur öðrum stúlkum, réðist á
Ingunni G. Pétursdóttur aðfara-
nótt 20. janúar 1996 á Akranesi
og veitti henni alvarlega áverka,
skuli greiða Ingunni 3,6 milljón-
ir króna í miska- og skaðabætur,
auk vaxta og málskostnaðar.
Hinum stúlkunum þremur var
einnig stefnt en þær sýknaðar.
Stúlkurnar fjórar voru í refsi-
málinu dæmdar vegna líkams-
árásarinnar. I refsimálinu var
talið að líkamstjón það sem Ing-
unn hlaut af árásinni stafaði
eingöngu af atlögu einnar
þeirra, en hún greiddi Ingunni
höfuðhögg með hnésparki eftir
að atlögu hinna að Ingunni
lauk. Höfðaði Ingunn mál á
hendur þeim öllum til heimtu
skaðabóta. I dómi héraðsdóms
var sú með hnésparkið dæmd til
að greiða Ingunni bætur, en hin-
ar sýknaðar.
Héraðsdómux staðfestur
Niðurstaða héraðsdóms var
staðfest á grundvelli þess að
ekki væri unnt að byggja á því að
atlagan í heild teldist samverkn-
aður stúlknanna fjögurra og var
ekki talið að sérstakt samband
hefði verið milli þeirra á meðan
á atburðum stóð. Var litið á hið
alvarlega hnéspark sem sérstak-
an verknað og ekki talið að tjón
það sem sú olli Ingunni gæti tal-
ist sennileg afleiðing hegðunar
hinna stúlknanna. Ingunn leit
hins vegar á árásina sem eina
samfellda atlögu. Stúlkurnar
voru þá allar 15-16 ára, nema
sú með hnésparkið, sem var 18
ára og í raun áhorfandi til að
byrja með. Gekk hún, eftir að
hinar hættu, að Ingunni og
greiddi henni höfuðhögg, þan-
nig að „hún keyrði höfuð
stúlkunnar niður með handtaki
á móti krepptum fæti“. - FÞG
Málaferll eða
Presturiiui
dæmdur
Sóknarpresturinn á Möðruvöll-
um í Hörgárdal Torfi K.
Stefánsson var í gær dæmdur í
45 daga skilorðsbundinn fang-
elsisdóm til 2ja ára í Héraðsdómi
Norðurlands eystra. Hann var
fundinn sekur um líkamsárás á
vinkonu sína í sumarhúsi í Borg-
arfirði í september sl. Skv. dóm-
inum varð prestinum og kon-
unni sundurorða við kvöldverð-
arborðið, sem endaði þannig að
presturinn lamdi konuna sem
hlaut áverka og andlegt áfall,
sem lýst var í ákæru. Prestur var
ódrukkinn og viðurkennir átök
en ekki með þeim hætti sem
ákæra segir. Dómurinn telur þó
„sannað, að ákærði hafi .... veist
að konunni með þeim afleiðing-
um, að hún hlaut áverka þá, sem
lýst er í ákæru.“ Auk fangelsis-
dóms er presturinn dæmdur til
að greiða konunni 160 þús. kr.
bætur, auk sakarkostnaðar.
Starfsmenn Arnarfells ehf. á Akureyrl unnu I blíðviðrinu í gær við að reisa lengstu bogabrú landsins yfir Fnjóská,
rétt hjá Laufási í Grýtubakkahreppi. Brúin verður stálbogabrú með steyptri yfirbyggingu. Akbrautin verður 144
metra löng og tvíbreið. mynd: brink
valdbeitingu
Það er ljóst að lögin
u m miðlægan gagna-
grunn brjúta í bága
við tvenn lög, segir
Þorsteinn Jóhannes-
son yfirlæknir. Pétur
Pétnrsson yfirlæknir
segir að málið verði að
fara dómstólaleiðina.
Nú virðist ljóst að deila lækna í
landinu við lslenska erfðagrein-
ingu, og raunar heilbrigðisráðu-
neytið, sem veitti IE starfsleyfi,
er á leið í mikla hörku. Málaferli
sem gætu tekið mörg ár virðist
blasa við. Þó segir Sigurbjörn
Sveinsson, formaður Lældnafé-
lags Islands, að óþarfi sé að fara
með gagnagrunnsmálið fyrir
dómstóla ef íslensk erfðagreining
gerir samning við lækna um að
samþykki sjúklinga sé aflað fyrir
því að setja sjúkraskýrslur þeirra í
miðlægan gagnagrunn. Því hafi
hún ekki Ijáð máls á. Aðrir, eins
og Pétur Pétursson, yfirlæknir á
Akureyri, telja að skera verði úr
málinu fyrir dóm-
stólum.
Þorsteinn Jó-
hannesson, yfir-
læknir Fjórðungs-
sjúkrahússins á ísa-
firði, bendir á í
þessu sambandi að
lögin um miðlægan
gagnagrunn gangi
þvert á tvenn lög
sem fyrir eru.
Þingmenn sáust
ekMfyrir
„Mér sýnist þegar
maður skoðar mál-
ið, þá brjóti lögin
um miðlægan
gagnagrunn í bága við lög sem
fyrir eru. Ekki bara siðareglur
Iækna, sem við getum skýlt okkur
á bak við og eru í þá veru að af-
henda ekki þriðja aðila upplýs-
ingar um sjúklinga án þeirra
samþykkis. En það eru lögin um
réttindi sjúklinga frá 1997, sem
ég vil benda á. Þar segir í 2. kafla
10. gr. „Sjúklingur skal fyrirfram
samþykkja, með
formlegum hætti,
þátttöku í vísinda-
rannsóknum..."
„Ég er því hrædd-
ur um að þing-
menn hafi verið að
samþykkja lög um
miðlægan gagna-
grunn, sem ekki
standast önnur
lög,“ segir Þor-
steinn.
Hann bendir líka
á önnur lög varð-
andi heilbrigðismál
frá 22. apríl 1991
en þar segir:
„Yfirlæknir á
deildum eða ódeildarskiptum
heilbrigðisstofnunum ber ábyrgð
á vörslu og meðferð sjúkraskráa
meðan sjúklingur dvelur þar...“
„Það er því eðlilegt að það sé
kurr í læknum yfir þessu. Menn
sáust ekki fyrir þegar þeir ráku
þetta í gegn á þinginu og það var
bara eitt sem vantaði upp á að
allt væri í lagi með lögin um mið-
lægan gagnagrunn en það var að
hafa þar lausnarorðin: „upplýst
samþykki sjúklings". Það þurfti
ekki meira til þess að allt væri í
himnalagi en þetta var ekki gert,
því miður," sagði Þorsteinn Jó-
hannesson.
Beita verður valdi
Pétur Pétursson, yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar á Ak-
ureryi segir m.a:
„Það er ljóst að við afhendum
ekki nein gögn og það verður
ekki lokið við neina samninga
hér fyrr en dómstólar eru búnir
að skera úr um málið. Ef það fer
ekki dómstólaleiðina er ljóst að
beita verður okkur lækna valdi,
sem myndi hafa það í för með sér
að að læknar hætta hér störfum.
Það þarf mikið að ganga á áður
en maður fer að brjóta gegn sam-
visku sinni," segir Pétur. - s.DÓR
Sjd fréttaskýringu d hls. 8-9.
Pétur Pétursson yfirlæknir:
Ef málið fer ekki dómstóla-
leiðina er Ijóst að beita
verður okkur lækna valdi.
Góð hönnun þarff ekki að kosta meira
Glæsilegur sýningarsalur með
innréttingum hjá okkur i
Lágmúla 8, 3. hæð