Dagur - 28.01.2000, Blaðsíða 16
Eins og allir vita er skotveiði mikið stunduð á
íslandi. Algengt gæsaskot inniheldur rúm 40 g
af blýi en blý er þungmálmur sem er reyndar
enn óæskilegri en kadmíum. Þetta þýðir að eitt
haglaskot mengar álíka mikið og 32 tonn af
Folduáburði. Til landsins eru flutt árlega um 30
tonn af blýi til innlendrar skotframleiðslu en þau
30 tonn valda álíka mikilli mengun og um 23
milljónir tonna af Folduáburði. Ef árleg notkun
Folduáburðar væri 60 þúsund tonn, sem er það
sama og heildamarkaðurinn er á íslandi, þyrfti
387 ára notkun Folduáburðar til að menga jafn
mikið og árleg skotveiði á íslandi gerir.
Þetta dæmi er sett fram til að vekja bændur til
hugsunar um hvar mörkin fyrir skaðsemi
kadmíum liggja. Hvaða raunverulegu áhrif hefur
það t.d. hvort áburður inniheldur 10 eða
20 mg/kg fosfórs? Meðan vísindalegar niður-
stöður liggja hvergi fyrir um þessi áhrif, er
hægðarleikur að fara offari í þessari umræðu.
Við hvetjum bændur til að fylgja dómgreind sinni
og hrista af sér það haglél hræðsluáróðurs sem
dunið hefur yfir að undanförnu. Meta sjálfir hvort
þær staðreyndir sem fyrir liggja nægi til að koma
í veg fyrir að þeir geti tryggt sér gæðaáburð frá
ísafold á góðu verði - og spara þannig umtals-
verðar fjárhæðir í þessum stóra útgjaldalið sem
áburðarkaup eru.
Nú þarf að bregðast við eins og skot
því 12% afslátturinn gildir aðeins út janúar.
þegar sparsemin ræður
símar 482 3767 og 482 3768
INGVAR VÍKINGSSON / fÍT