Dagur - 28.01.2000, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 2000 - 13
ÍÞRÓTTIR
Þórdí s hetj a FH
Hrafnhildur Skúladóttir, FH, skorar eitt af fjórum mörkum sínum gegn Haukum í fyrrakvöld.
Handbolti - Úrvalsdeild kvenna - Úrslit og leikir
Gr/KR Vík. Valur Hauk. ÍBV Stjarn. FH Fram ÍR KA Aftureld.
Grótta/KR 21:17 15:15 24:18 21:18 24:21 20:14 2.2. 29.2. 19:20 23:18 34:14
Víkingur 15:15 26.2. 2.2. 26:22 21:21 27:22 17:15 24:17 39:20
Valur 19:21 29.1. 18:19 18:18 20:16 23:27 30:17 28:7 11.2. 28:12
Haukar 30. L 18:18 18:16 23:23 27:22 17:17 13.2. 1.3. 32:16 31:18
ÍBV 24:25 22:22 29.2. 24:22 32:26 25:24 28.1. 12.2. 26:20 33:10
Stjarnan 26.2. 16:15 23:26 2.2. 21:20 22:20 27:21 28:19 23:9 40:18
FH 23:21 29.2. 19:22 23:22 27:14 12.2. 31:23 25:17 32:17 40:16
Fram 28:26 19:21 26:23 23:21 28:23 18:26 26.2. 20:18 26:17 2.2.
ÍR 14:29 15:22 2.2. 16:26 13:20 16:13 15:19 19:17 22:16 26.2.
KA 10:21 13:18 18:19 17:20 26.2. 19:30 16:16 17:23 29.1. | 33:19
Afturelding 19:34 12.2. 15:35 19:35 4.2. 29.1. 17:37 17:33 14:28 3.3. 1
Finini leikir fóru fram
í úrvalsdeild kvenna í
handknattleik í fyrra-
kvöld þar sem FH-ing-
ar, topplið deildarinn-
ar, lagði erkifjendur
sína, Hauka, með eins
marks mun í
Kaplakrika.
Þegar Hafnarfjarðarliðin FH og
Haukar mætast í innbyrðis leikj-
um í handboltanum er venjulega
hart barist og mikil spenna jafnt
meðal leikmanna og áhangenda
liðanna. A þvi varð engin breyting
í fyrrakvöld, þegar kvennalið fé-
laganna mættust í Kaplakrika,
þar sem Þórdís Brynjólfsdóttir
bjargaði báðum stigunum fyrir
FH-inga, með því að skora sigur-
markið beint úr aukakasti eftir
venjulegan Ieiktíma.
Dramatískar lokaminútur
FH-ingar höfðu leitt allan seinni
hálfleikinn, eða þar til um það bil
tvær mínútur voru til leiksloka.
Þá náðu Haukarnir með mikilli
baráttu að jafna í 20-20 og
komust síðan yfir t 20-21 með
marki Heklu Daðadóttur, sem
skoraði þrjú mörk í röð á
lokamínútunum. FH-ingum tókst
síðan að jafna í 22-22, með marki
Þórdísar Brynjólfsdóttur úr
vítakasti og var þá aðeins um hálf
mínúta til leiksloka. En í staðinn
fyrir að halda boltanum, skutu
Haukar ótímabæru og slöppu
skoti sem Jólanta Slapikiene,
góður markvörður FH-inga varði
auðveldlega. FH-ingar náðu upp
úr því skyndisókn sem endaði
með aukakasti á lokasekúndunni
sem átti eftir að færa þeim sigur-
inn í leiknum. Haukastelpurnar
sem eru mun hávaxnari en stöllur
þeirra í FH, stilltu sér upp i varn-
arvegg, en á ótrúlegan hátt tókst
Þórdísi Brynjólfsdóttur að skjóta í
gegnum varnarmúrinn og í netið
framhjá Hjördísi Guðmundsdótt-
ur, góðum markverði Hauka, sem
varði alls 17 skot í leiknum.
Haukarnir áttu auðsjáanlega von
á að Hrafnhildur Skúladóttir
framkvæmdi kastið og lögðu því
alla áherslu að gæta hennar.
Hrafiiliildur tekin úr umferð
Það má segja að sigur FH-inga í
Ieiknum hafi verið sanngjarn, því
liðið sýndi á köflum mun betri
leik en Haukarnir, þó bæði lið
hafi gert sín mistök, sérstaklega í
sóknarleiknum. FH leiddi í upp-
hafi leiks, en Haukar náðu þó að
jafna um miðjan hálfleikinn og
komust svo tveimur mörkum yfir.
En FH-stelpurnar gáfust ekki
upp og eftir mikinn hamagang
náðu þær aftur eins marks for-
ystu, 12-11, áður en flautað var
til hálfleiks. Þær héldu síðan
uppteknum hætti í upphafi
seinni hálfleiks og höfðu þá fljót-
Iega náð fjögurra marka forskoti
17-13. Þá gripu Haukarnir til
þess ráðs að taka Hrafnhildi
Skúladóttur úr umferð og við það
hrundi sóknarleikur FH-inga.
Hauleastelpurnar gengu á Iagið og
þegar þær höfðu minnkað mun-
inn í 20-18 sögðu þær lok lok og
læs á FH-inga, sem skoruðu ekki
mark í heilar níu mínútur. Þá var
komið að þætti Heklu Daðadótt-
ur hjá Haukum, sem skoraði þrjú
mörk í röð og síðan dramatískum
lokamínútunum sem áður er Iýst.
Harpa sá rautt
Það munaði miklu fyrir Hauka
að missa baráttukonuna Hörpu
Melsted útaf með rautt spjald á
lokamínútunum. Hún skoraði
4/1 mörk, eins og Hanna Stef-
ánsdóttir sem einnig átti góðan
leik. Annars átti Tinna Halldórs-
dóttir einna bestan Ieik hjá
Haukum og þá sérstaklega í fyrri
hálfleiknum og varð hún marka-
hæst með 5 mörk.
Hjá FH átti makvörðurinn
Jólanta Slapikiene bestan Ieik,
en hún varði alls 20 skot. Annars
var liðið mjög jafnt, með Þórdísi
Brynjólfsdóttur markahæsta með
7/5 mörk og þær Dagnýju og
Hrafnhildi Skúladætur og Guð-
rúnu Hólmgeirsdóttur næstar
með 4 mörk.
FH-Iiðið steig að vonum trillt-
an dans eftir sigurmarkið, enda
mikið í húfi í jafnri baráttu um
deildarmeistaratitlinn, þar sem
þrjú lið, FH, Gróttá/KR og Vík-
ingur, eru jöfn á toppi deildar-
innar með 23 stig. Haukamir
koma svo í fjórða sæti með 19
stig, en eiga einn leik til góða
eins og Víkingur.
Marina meö 13 mörk
I Safamýrinni fór fram annar
baráttuleikur, milli Reykjavíkur-
liðanna Fram og Vals, þar sent
Framarar unnu þriggja rnarka
sigur, 26-23, á Hlíðarendaliðinu.
Framarar fengu ellefu víti í
leiknum og skoraði Marina Zou-
eva úr tíu þeirra, en hún skoraði
alls 13 mörk.
Leikurinn var lengst af mjög
jafn og spennandi og leiddi Valur
með einu marki í hálfleik, 11-12,
eftir að liðin höfðu skipst á for^
ystunni. Valsstelpurnar mættu
ákveðnar til leiks í seinni hálfleik
og höfðu fljótlega aukið forskot-
ið í þrjú mörk, 12-15, áður en
Framarar vöknuði aftur til lífs-
ins. Þegar leið á hálfleikinn
höfðu Framstelpurnar jafnað í
19-19 og sigldu svo framúr á
lokakaflanum á mikilli seiglu og
tryggðu þriggja marka sigur.
Hjá Fram var Marina Zoueva
að vonum markahæst með sín
1 3/10 mörk og næstar þær Haf-
dís Guðjónsdóttir með 4 og syst-
ir hennar Díana Guðjónsdóttir
og Björk Tómasdóttir með 3
hvor.
Hjá Val voru Brynja Steinsen
og Sigurlaug Rúnarsdóttur
markahæstar mcð 4 mörk hvor,
þar sem Sigurlaug skoraði 3 úr
vítum og Arna Grímsdóttir kom
næst með 3 mörk.
Jóna Björg skoraði líka 13
mörk
A Seltjarnarnesi fór fram leikur
Gróttu/KR og Aftureldingar þar
sem Grótta/KR vann tuttugu
marka sigur, 34-14, á gestunum.
Staðan í hálfleik var 15-5 og átti
Afturelding aldrei möguleika í
leiknum.
Jóna Björg Pálmadóttir var
langmarkahæs; hjá Gróttu/KR
með 13 mörk, cn Jolanta
Limbaite hjá Aftureldingu með 5
mörk.
Stjömusigur í Garðabæ
I Garðabæ fór fram leikur
Stjörnunnar og IBV, þar sem
heimaliðið vann eins marks sig-
ur, 21-20, á Eyjaliðinu eftir
spennandi leik. Eftir að staðan
var 10-9 fyrir Stjörnuna í hálf-
leik var jafnræði með liðunum
lengst af og ekki fyrr en á
lokakaflanum sem Stjarnan náði
öruggu þriggja marka forskoti,
sem Eyjastelpurnar minnkuðu í
eitt mark á lokasekúndunum.
Nína Björnsdóttir varð marka-
hæst hjá Stjörnunni með 7 mörk
og Ragnheiður Stephensen næst
með 6 mörk. Hjá ÍBV skoraði
Anita Andersen mest eða 5 mörk
og Ingibjörg Jónsdóttir var næst
með 4 mörk.
Ömggur Víkmgssigur
KA veitti Víkingum óvænta mót-
spyrnu í upphafi leiks í Víkinni,
þar sem heimaliðið hafði aðeins
tveggja marka forskot í hálfleik,
10-8. I scinni hálfleik dró svo (
sundur með liðunum og lauk
leikurinn með sjö marka sigri
Víkinga, 24-17.
Kristín Guðmundsdóttir var
markahæst Víkinga með 7 mörk
og Heiðrún Guðmundsdóttir
næst með 4. Hjá KA var Martha
Hermannsdóttir markahæsti
með 7 mörk og þær Þórunn Sig-
urðardóttir og Heiða Valgeirs-
dóttir næstar með 4 mörk.
Næsti leikur:
í kvöId:Kl. 20.00 ÍBV - Fram
Staðan:
FH 16 10 3 3 401:308 23
Grótta/KR 16 1 1 1 4 374:296 23
Víkingur 15 9 5 1 321:266 23
Haukar 15 8 3 4 354:289 19
Valur 16 8 2 6 358:295 18
Stjarnan 16 9 0 7 369:326 18
Fram 15 8 0 7 344:343 16
ÍBV 14 6 3 5 323:301 15
ÍR 15 5 0 10 254:313 10
KA 16 1 1 14 273:381 3
UMFA 14 0 0 14 227:480 0
Örn Arnarson
NærÖm
lágmark-
inuum
helgina?
Alls 38 íslenskir sundmenn
munu um helgina taka þátt í al-
þjóðlegu sundmóti á Sjálandi í
Danmörku, þar sem Olympíu-
hópur SSI mun gera fyrstu at-
löguna að Ólympfulágmörkun-
um fyrir Sydney í haust. Örn
Arnarson á þar mesta möguleika
á að ná settu lágmarki í 200 m
baksundi og jafnvel í 200 m
skriðsundi og aldrei að vita hvað
Jakob J. Sveinsson gerir í 200 m.
bringusundinu.
Sundmótið sem heitir „Sjæl-
land Open“ er nú haldið í 20.
skipti og hafa þátttakendur
aldrei verið fleiri, eða alls 540
frá ellefu þjóðum. Búist er við
1950 ræsingum, auk 150 boð-
sunda á mótinu og sýnir það vel
stærð þess. Flest besta sundfólk
Norðurlanda í unglinga- og full-
orðinsflokkum er meðal þátttak-
enda og mun eins og okkar fólk,
reyna við sett lágmörk.
Laugin sem keppt er í er 50 m
löng með 10 keppnisbrautum og
er samþykkt af Alþjóða sund-
sambandinu, sem ein af fáum
keppnislaugum í Evrópu til að
ná lágmörkum í. Islenski
Ólympíuhópurinn, sem er skip-
aður þeim Eydísi Konráðsdótt-
ur, Keflavík, Friðfinni Kristins-
syni, Selfossi, Jakobi J. Sveins-
syni, Ægi, Ríkharði Ríkharðs-
syni, Ægi, Kolbrúnu Yr Krist-
jánsdóttur, Akranesi, Hjalta
Guðmundssyni, SH, Erni Arnar-
syni, SH, Ómari Snævari Frið-
rikssyni, SH og Láru Hrund
Bjargardóttur, SH, ntunu því
nota tækifærið vel til að ná sfnu
besta og má búast við góðum ár-
angri. Jafnvel verðlaunasætum
miðað við skráðan árangur, þar
sem eftirtaldir eiga mesta mögu-
leika:
Örn Arnarson seni á besta
skráða tímann á mótinu í 200 m
baksundi, Eydís Konráðsdóttir
sem á 2. besta tímann í 100 m
flugsundi, Lára Hrund Bjargar-
dóttir sem á 3. besta tímann í
200 m skriðsundi, Kolbrún Yr
Kristjánsdóttir sem á 3. besta
tímann í 100 m baksundi og 3.
besta f 50 m skriðsundi og Hjalti
Guðmundsson sem á 2. besta
tímann í 100 m bringusundi.
Af þeim keppendum sem ekki
eru þegar f Ólympfuhópnum á
Elín Sigurðardóttir, SH, mesta
möguleika, en hún á 2. besta
tímann í 50 m skriðsundi og
hefur örugglega hug á að kom-
ast aftur í Ólympíuhópinn, en
hún var meðal þátttakenda á
Ólympíuleikunum í Atlanta árið
1996 og stefnir á Sydney.