Dagur - 19.02.2000, Side 6
6 -LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
ro^tr
ÞJÓÐMÁL
Útgáfufélag: DAGSPRENT
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: elías snæland jónsson
Aðstoðarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: STRANDGÖTU 31, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVfK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Sfmar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: riistjorl@dagur.ls
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á MÁNUÐI
Lausasöluverð: iso kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: greta@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@ff.is
Sfmar auglýsingadeildar: (REYKJAVÍK)563-i6i5 Amundi Ámundason
(REYKJAVfK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYR 1)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Simbréf augiýsingadeiidar: 460 6i6i
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(akureyri) 551 6270 (reykjavIk)
Til eru fræ
í iyrsta lagi
Fyrir nokkrum misserum var gert stórátak til að efla Kvikmynda-
sjóð Islands. Það var eins og skyndilega hefði runnið upp fyrir
mönnum að þarna væri vísir að skrautgarði, sem aðeins vantaði
herslumuninn til þess að springa út. Og kvikmyndagerð hér á
landi hefur svo sannarlega sprungið út, fyrst og fremst vegna
eigin útsjónasemi og verðleika, en líka vegna opinbers stuðnings
af ýmsu tagi. Oft hafa framlög úr kvikmyndasjóði skilið milli
feigs og ófeigs í þessum efnum - ráðið því að þeir hæfileikar og
þau fræ grósku sem til staðar er í landinu nái að vaxa og verða
blóm.
í öðru lagi
I vikunni var tilkynnt um úthlutun úr sjóðum Rannís, Vísinda-
sjóði og Tæknisjóði. Sú heildarúthlutun hljóðaði upp á 288
milljónir og fór í 225 verkefni. Athygli vekur hversu hátt hlut-
fall af þeim umsóknum sem bárust voru metnar styrkhæfar eða
rúm 92%! Engu að síður er ljóst að af 385 lánshæfum umsókn-
um fá 160 vel ígrundaðar umsóknir og fullkomlega styrkhæfar
engan styrk. í landinu er greinilega mikil rannsóknargróska og
efni í fagran skrautgarð. En hvort sá garður nær sér á strik er al-
veg óvíst, þegar svo mörg fræanna fá þann dóm, að falla í jörð
og verða aldrei blóm.
í Jiriðjalagi
Svo vill til að styrldoforð Kvikmyndasjóðs á næsta ári er sama
upphæð og Vísindasjóður hefur í ár til að styrkja grunnrann-
sóknir. Að óreyndu hefði mátt búast við að rannsóknarstarfið
hefði meira fé til ráðstöfunar, ekki síst í ljósi þess að á hátíðar-
stundum segjumst við ætla að sigla þjóðinni í gegnum ólgusjó
framtíðar með þekkingu og nýsköpun. Ekki svo að skilja að Kvik-
myndasjóður hafi úr of miklu að spila, síður en svo. En einmitt
sá sjóður ætti þó að sýna hvílíkum skrautgarði það getur skilað
þegar framlögin hækka. Höfum við efni á að vísa frá sér 160
snjöllum rannsóknartilboðum frá vísinda- og hugvitsmönnum
okkar? Hættan er einfaldlega sú, að sparnaður á þessu sviði sé
misráðin dyggð og breyti þjóðarskútunni á endanum í eitt af
þessum skipum, sem aldrei landi ná. Birgir Guðmiuidsson
Undirskriftamafía
Garri hefur haft það fyrir sið
að vera fastheldinn á undir-
skriftir. Helst að nafn Garra
rati á skuldabréf sem tekin eru
í banka til að greiða upp
skuldabréf sem eru í vanskil-
um í öðrum banka. Og svo
debet- og kreditkortanótur.
Þær undirskriftir skipta raun-
ar ekki neinu máli því eins og
alþjóð veit er það lenska af-
greiðslufólks að líta hvorki á
mynd viðskiptavinar á kortinu
né á undirskriftina á sölukvitt-
uninni. Þetta þykir Garra rétt
að fram komi nú, þegar sú
tíska að gera nafna- og kenni-
tölusöfnun annaðhvort að fé-
þúfu eða þá í öllu
falli að einhvers kon-
ar þúfu til að vernda
(nema hvort tveggja
sé), er orðin að hels-
ta vaxtarsprotanum
annars mjög hrað-
skreiðu og umfangs-
miklu nýsköpunar-
þjóðfélagi undir Iok
tuttugustu aldarinn-
ar.
Þær eru nefnilega orðnar
nokkrar, undirskriftaherferð-
irnar, sem teljast í hópi frægra
átaka og eru gjarnan dregnar
fram þegar ný holskefla dynur
yfir. En Garri skrifar aldrei
undir.
Forsendulausir
Og Garri er líka fullviss um að
feikjmargir þeirra sem rita
nafn sitt á mótmælalista, gera
það af því að þeir vilja vera
með og líkjast fjöldanum en
ekki af því að þeir hafi nægjan-
legar forsendur, það er þekk-
ingu á viðkomandi málefni, til
að vita hvað þeir gjöra.
Nýjasta herferðin er auðvit-
að hin fræga umhverfisvina-
herferð gegn áframhaldandi
mannlífi á Austurlandi (eða ef
til vill næstnýjasta ef Valdi
V
kaldi kvótakóngur og Jón vinur
Jóhannesar í Neytó eru taldir
með). Umhverfisvinirnir ætl-
uðu að ná svona mörgum,
fengu ekki nema svona fáa,
segjast ekki hafa ætlað að fá
nema þetta marga og bæta svo
gráu ofan á svart með því að
saka einhverja óprúttna, óskil-
greinda óbótamenn um versta
glæp allra glæpa; að hafa
stolið blöðum með undirskrift-
um.
Tækifæri
Þetta leiðir hugann að nauð-
syn á einhvers konar reglum
og siðakódum við undirskrifta-
safnanir á tölvuöld.
Garri dæmir ekki
um það hvort list-
um var stolið eða
hvers konar fólk
það er sem stendur
fyrir söfnuninni
sjálfri. Hins vegar
er Garri þess full-
viss að með allri
þeirri tækni sem til
er í dag að þegar safnað hefur
verið þúsundum undirskrifta,
væri hægt að nýta síðan tölvu-
tæknina til að afrita þessar
undirskriftir og stofna til víð-
tæks og umfangsmikils gróða-
fyrirtækis með því að nýta
þessar undirskriftir í margs
konar tilgangi; á skuldabréf og
víxla eða til hvers kyns fjár-
skuldbindinga sem hinn hug-
myndaríki brotamaður getur
nýtt sér án þess að þurfa sjálf-
ur að standa skil á nokkru -
allt lendir jú á þeim sem í sak-
leysi sínu og sennilega fávisku
skrifaði undir mótmælaskjal
sem allar Iíkur eru á að við-
komandi hafi ekki skilið til
fulls.
Þess vegna skrifar Garri ekki
undir neitt.
GARRI.
Garri skrifar ekki und-
ir neitt ótilneyddur.
JÓHANNES
SIGUBJÓNS-
SON
skrifar
Hvenær er maður fátækur og
hvenær er maður ekki fátækur?
Það er spurningin sem brennur á
mörgum á íslandi í dag, ekki síst
þeim sem ekki eiga til hnífs og
skeiðar. I nýbirtri könnun Rauða
krossins á lífskjörum á Islandi
eru sterkar vísbendingar, ef ekki
staðfesting á fátækt meðal ým-
issa samfélagshópa. Landsfaðir-
inn Davíð Oddsson hafnar því
hinsvegar alfarið að fátækt sé við
lýði meðal landsins barna. Hins-
vegar segir hann að hér á landi
sem og annarsstaðar verði æfin-
lega til fólk sem á í fjárhagserfið-
leikum og það íylgi mannlegu
samfélagi að „einhver búi þröngt
en aðrir eyði umfram efni“.
Annar leiðtogi, Jesús Kristur,
orðaði þessa sömu hugsun eitt-
hvað á þá leið að fátæka hefðum
við alltaf á meðal vor. Davíö kýs
hinsvegar að forðast orðalagið
fátækt og notar skilgreininguna
að „búa þröngt“.
Að vera eða
ekki vera fátækur
Skilgreiningaratriði
Og raunar er umræðan um fá-
tækt á Islandi dálftið erfið og út
úr kú ef menn eru ekki sammála
um skilgreiningu á fyr-
irbærinu. Þannig af-
neitar Davíð fátækt á
Islandi, en samráð-
herrra hans í ríkis-
stjórn, Páll Pétursson
félagsmálaráðherra,
sem er væntanlega
mestri nálægð ráðherr-
anna við vandamál
hinna „efnaminni",
segir að 40% bænda lifi
undir fátæktarmörk-
um. Og þriðji ríkis-
tjórnarþingmaðurinn,
séra Hjálmar Jónson,
tekur undir með meisturum sín-
um Davíð og Jesúm og segir ekk-
ert samfélag laust við fátækt.
Hann er hinsvegar að hluta til
ósammála Davíð og telur að
fr^rn þqfj ko/pj.c), ,vísbendijigar„
um fátækt á íslandi.
Skýringin á misvísandi mati
þingmannana þriggja (vitring-
anna?) á fátækt á Islandi, hlýtur
að liggja í mismun-
andi skilgreiningu
þeirra á hugtakinu.
Davíð setur sem sé fá-
tæktarmörkin mun
neðar en Páll, hugsan-
lega á sama stig og
hungurmörk og vissu-
lega hafa fáir haldið
því fram að á Islandi
sé mikil hætta á að
menn deyji úr hungri.
Davíð og Wilde
I þessu samhengi er
hinsvegar athyglisvert
að Davíð hefur nýverið kynnt
áform rfkisstjórnarinnar sem
niiöa að því aðýta undir almenn-
an sparnað á Islandi. Varla ætl-
ast forsætisráðherra þó til þcss
að þeir sem „búa við þröngap ,
kost“ leggi mikið af mörkum í
þessum „almenna sparnaði". Og
hugtakið almennur sparnaður er
auðvitað hugsanavilla í landi þar
sem hópur fólks hefur ekki
minnstu möguleika á því að
spara. Það er í raun siðleysi að
tala urn slíkt.
Og í því sambandi er við hæfi
að vitna í annan orðhagan rithöf-
und, Oscar heitinn Wilde, sem
sagði eitthvað á þessa leið: „Hin-
um fátæku er oft hrósað týrir
sparnað. En að hvetja fátæklinga
til að spara er bæði fáránlegt og
móðgandi. Það er svipað og að
ráðleggja sveltandi manni að éta
minna. Það væri í raun algjört
siðleysi hjá fátækum verkamönn-
um að reyna að ástunda sparnað.
Enginn maður á að vera reiðu-
búinn til að þess að sýna fram á
að hann geti lifað eins og illa
fóðruð skepna“.
Þessi orð kollega síns ætti Ijúf-
ur J^pfjsJ^irpfý hjuglejða,,
Erfátækt á ísland?
Oktavía Jóhannesdóttir
bæjaifulltrúi ogformaðurfélagsmála-
ráðsÁkureyrarbæjar.
„Það fer ekk-
ert á milli
mála. Ástæð-
an er sú að
greiðslur
sem örorku-
og ellilffeyr-
isþegar fá
eru ekki
nógu háar,
né heldur lægstu launataxtar
launafólks. Úr þessu verður því
að bæta, meðal annars með
hækkun bóta og launa, því að
draga úr tekjutengingu og því að
hjálpa fólki í þá stöðu að geta
hjálpað sér sjálft.“
Helgi S. Guðmundsson
formaður bankaráðs Landsbanka
íslands.
„Miðað við
aðrar þjóðir
tel ég að ekki
sé fátækt á
Islandi. En
auðvitað er
hér mikill
fjöldi fólks
sem á bágt
og þar hafa
verið nefndir þeir sem eru sjúkir
og fólk í Iáglaunastéttum. Og
sjálfsagt má nefna fleiri hópa.
En við verðum hinsvegar að vera
mjög vel vakandi í þessum efn-
um og tilbúin að veita samfélags-
hjálp þeim sem hana þurfa."
Oddur Helgi HaUdórsson
bæjaifiilltrui á Akureyri.
„Fátækt er
vissulega til
staðar á Is-
landi og
auðnum er
misskipt.
Stjórnvöld
gætu gert
margt til
þess að jafna
lífskjörin í landinu, en þau eiga
ekki að vinna alveg í hina áttina.
Sú þróun hófst fyrir alvöru þegar
örfáum einstaklingum var gefinn
Útvegsbankinn fyrir rúmum ára-
tug og síðan hefur verið haldið
áfram á sömu braut. Og ekki er
heldur eðlilegt að fáeinir menn
geti gengið út með fleiri millj-
arða eftir kannski 17 til 18 ára
starf."
Jóhannes Jónsson
kaupmaður í Bónus.
„Vissulega er
fátækt á ís-
landi, en ég
held að hún
sé á undan-
haldi. Ég tel
að við í Bón-
us höfum
gert okkar til
þess að útrý-
ma henni og orðið eitthvað
ágengt. Margir hafa komið til
okkar og leitað eftir aðstoð þegar
þröngt er í búi - og einnig hafa
rnargir þakkað okkur fvrir lágt
vöruverð sem þeir segja að hafi
orðið til að bæta lífskjör sín. En
hvað er fátækt? Það er afstætt og
misjafnt hvernig fólk spilar úr
sinipp pe^ijrjgum." ,; ,, , , , , ,,,,