Dagur - 19.02.2000, Blaðsíða 11
TJgur-
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
h. j
Breyttir tíniiir í Króatíu
Nýr forseti í Krdatíu
ætlar hætta öllum
stuðniugi við harð-
skeytta Bosníu-Króata
sem vilja sameinast
Króatíu.
Hinn nýkjörni forseti Króatíu,
Stipe Mesic, tók formlega við
embætti í gær. Viðstaddir athöfn-
ina voru meðal annarra 69 full-
trúar erlendra ríkja, þar á meðal
Madeleine Albright utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og Chris
Patten, sem sér um utanríkismál
í framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins.
Óhætt er að segja að veruleg
tímamót hafi orðið í Króatíu og
allt bendir til þess að stefnumál
og stjórnahættir nýja forsetans
verði afar frábrugðnir því sem
tíðkaðist meðan Franjo Tudjman
var við völd. Hversu margir er-
lendir fulltrúar voru viðstaddir
sýnir ótvírætt fram á stuðning
þeirra við umbótastefnu nýja for-
setans.
Mesic hefur ótvírætt lýst því
yfir að hann styðji ekki harð-
skeyttan hóp þjóðernissinnaðra
Króata í Bosníu, sem vilja sam-
einast Króatíu. Skilaboð hans til
Bosníu-Króata eru þau að föður-
Iand þeirra sé Bosnía og Her-
segóvína, en ekki Króatía. Þeir
eigi því að einbeita sér að því að
tryggja sér framtíð í sínu eigin
landi.
Tudjman, sem lést seint á síð-
asta ári, var hins vegar alla tíð
eindreginn stuðningsmaður
Bosníu-Króata og hafði mikinn
áhuga á að stækka Króatíu með
því að innlima Króatíuhéröðin í
Bosníu. Tudjman dældi meðal
annars um 700 milljónum ís-
lenskra króna á ári til vopnaðra
hópa Bosníu-Króata, þótt óljóst
sé hvert allir þcir peningar fóru á
endanum.
Mesic hefur sömuleiðis á
stefnuskránni að bæta ástandið í
mannréttindamálum og vinna að
umbótum í lýðræðisátt í sam-
vinnu við þingið. Meðal annars
verður unnið að því að minnka
völd forsetans en auka völd
þingsins í staðinn, en Tudjman
hafði tekið sér nánast alræðis-
völd í landinu meðan hann var
við völd.
Mesic er 65 ára, þykir ljúfur á
manninn og með húmorinn í
góðu lagi. Hann tók þátt í stúd-
entauppreisn árið 1971 og sat
fyrir vikið í fangelsi um eins árs
skeið. Mesic var fulltrúi Króatíu í
forsætisráði Júgóslavíu um nokk-
urra mánaða skeið árið 1991, en
þá var sambandsríkið að byrja að
liðast í sundur.
Mesic var reyndar einn nánasti
stuðningsmaður Tudjmans allt
þangað til 1994, en þá snerist
Mesic gegn stefnu Tudjmans
gagnvart Króatíumönnum í
Bosníu. Nú í kosningabaráttunni
gagnrýndi Mesic harðlega spill-
ingu sem viðgengst meðal ráða-
manna í Króatíu, þar sem þeir
sem voru í náðinni hjá Tudjman
fengu það óspart launað í fríð-
indum af ýmsu tagi.
Mesic þótti ekki hafa mikla
möguleika í upphafi kosninga-
baráttunnar, en vann að lokum
yfirburðasigur á mótframbjóð-
anda sínum, Drazen Budia, nú í
byrjun febrúar. Mánuði áður tap-
aði gamli valdaflokkurinn, flokk-
ur Tudjmans forseta, fyrir banda-
lagi sex stjórnarandstöðuflokka í
þingkosningunum.
Umbótasiimar gegn íhaldi
Þingkosniiigar fóru
fram í íran í gær og
Jjykir líklegt að um-
bótasinnar beri sigur
úr býtum.
Tvær meginfylkingar kepptu um
atkvæði trana í þingkosningun-
um í gær, en það eru annars veg-
ar umbótasinnar sem vilja, í sam-
starfi við Khatami forseta, gera
frekari félagslegar og pólitískar
breytingar og hins vegar íhalds-
öflin sem vilja halda sem fastast í
hugsjónir íslömsku byltingarinn-
ar sem ráðið hafa ríkjum undan-
farna tvo áratugi.
Bæði konur og karlar sem orð-
in eru eldri en sextán ára hafa
kosningarétt í Iran, en alls áttu
nærri 40 milljónir Irana rétt á því
að greiða atkvæði f gær. Góð
þátttaka var í kosningunum og
mátti sjá Iangar biðraðir víða við
kjörstaði. Fastlega var búist við
því að umbótasinnarnir myndu
ná meirihluta á þinginu, ekki síst
vegna þess hve kosningaþátttak-
an var góð. Hátt hlutfall ungra
kjósenda var sérstaklega talið
koma umbótasinnum til góða.
Fari svo að umbótasinnar nái
meirihluta fær Mohammad
Khatami forseti stuðning þings-
ins til þess að auka einstaklings-
frelsi og styrkja réttarríkið.
Khatami hlaut vfirburða sigur í
forsetakosningunum árið 1997,
og er talið að það megi rekja ekki
síst til góðrar kosningaþátttöku
yngri kynslóðarinnar.
Islamskir harðlfnumenn undir
forystu AIi Khameinis æðsta-
prests hafa haldið, meirihluta sín-
um á þingi, þótt sá meirihluti sé
ekki stór. Vinsældir þeirra meðal
íbúa Iandsins hafa dvínað tölu-
vert undanfarið, sérstaklcga
meðal yngri kynslóðarinnar sem
ekki man bvltingartímana frá þvf
1979.
Leiðtogar umbótasinna segja
að eitt Ivrsta verk þeirra, nái þeir
meirihluta á þingi, verði að fella
lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir
að setja megi blaðamenn f fang-
elsi fyrir að viðra gagnrýni á
kl^kpstpttina. ; ^ v
Norks Hydro skemmir erfðaefni í
fiskum
NOREGUR - Norska ríkisútvarpið skýrði frá því í gær að bæði fisk-
ur og skeldýr í nágrenni álvers í eigu Norsk Hydro í Noregi hafi orð-
ið fyrir erfðaskaða af völdum tjöruefna sem losuð eru í hafið. Fullyrt
var að breytingar hefðu orðið á erfðaefni fiskanna, en þetta er í fyrs-
ta sinn sem sýnt er fram á tjón af þessu tagi í villtum fiski. Vitnað er
í norskan líffræðing, Endre Aas að nafni, sem hefur gert rannsóknir
á því hvaða áhrif tjöruefnin hafa á gall og Iifur í fiski. Rannsóknirn-
ar voru gerðar við álver á eyjunni Karmoy, sem er skammt frá Hauga-
sundi á Rogalandi, en töluverð mengun er í sundinu við eyjuna. Aas
segir vel hugsanlegt að finna megi sams konar tjón á fiskum nálægt
öðrum álverum.
Suharto mætti ekki í yfirheyrslu
INDÓNESÍA - Suharto, fyrr-
verandi forseti Indónesíu,
mætti ekki í gær til yfirheyrslu
hjá þingnefnd sem er að rann-
saka undarleg bankaviðskipti á
árinu 1998 meðan Suharto var
enn við völd, en þá dældi seðla-
banki Indónesíu tugum millj-
arða króna inn í allmarga
banka sem stóðu vægast sagt
illa fjárhagslega, þannig að
nánast engin von var til þess að
neitt af þessu fé yrði greitt til
baka. Suharto er orðinn 78 ára
og lögfræðingar hans segja
heilsufar hans ekki nógu gott
til þess að hann geti mætt í yf-
irheyrslu. Að vísu líti hann lík-
amlega vel út, „en heilinn er
ekki í góðu lagi lengur,“ var
haft eftir einum lögmanna
Suhartos. Þetta er í annað sinn í þessari viku sem Suharto mætir ekki
til opinberrar yfirheyrslu, en á mánudag hafði saksóknari landsins
kallað á hann. Saksóknarinn íhugar nú að setja Suharto í stofufang-
elsi, sem væri í samræmi við lög landsins.
Mótmæli gegn Haider í dag
AUSTURRÍKI - Búist er við að um 200.000 manns láti sjá sig á mót-
mælafundi í Vín gegn nýju hægristjórninni, sem Frelsisflokkur Jörgs
Haiders á aðild að. Ef þetta gengur eftir verður þetta fjölmennasti
mótmælafundur þar í landi frá því 1945.
Blásýrumengim í Dóná sögð aukast
UNGVERJALAND - Nýjustu mælingar á blásýrumagni í Dóná benda
til þess að mengunin sé að aukast að nýju. Mengunin barst fyrir
nokkru yfir landamærin frá Júgóslavíu til Búlgaríu, og í gær fundust
50 dauðir fiskar í Dóná í Búlgaríu. Ungverskur líffræðingur skýrði
ennfremur frá því í gær að 500 tonn af dauðum fiski hafi náðst á
land úr ánni Tísa frá því blásýrumengunarinnar varð fyrst vart.
Kína í WTO á árinu?
KINA - Framkvæmdastjóri Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO)
telur góðar líkur á því að Kínverjar hljóti aðild að stofnuninni strax á
þessu ári. Kínverjar hafa sóst eftir aðild að stofnuninni sfðastliðin
þrettán ár, en þeir þurfa að semja sérstaklega við öll aðildarríki stofn-
unarinnar um skilmála. I lok síðasta árs náðust samningar milli Kín-
verja og Bandaríkjamanna um meginatriði aðildar, og í gær sagði
Moore, framkvæmdastjóri WTO, að Kínverjar væru stöðugt að bæta
ástand málahjá.sér þannig að allt benti til þess að af aðild geti orð-
ið innan skamms. Moore sagði þetta að Ioknum viðræðum við kfn-
verska ráðamenn, sem hann átti í gær.
Bretar skutu Glenn Miller niður
BRETLAND - Meira en hálf
öld er liðin frá því tónlistar-
maðurinn og sveiflukóngurinn
Glenn Miller, sem naut heims-
frægðar fyrir lög á borð við „In
the Mood“ og „Moonlight Ser-
enade", fórst aðeins fertugur
að aldri með flugvél á leið til
Parísar frá Englandi. Nú er
loks fengin skýring á því sem
gerðist þann 1 5. desember árið
1944. Skýringin fannst í flug-
bók ensks flugverkfræðings,
þar sem segir að flugvél Millers
hafi farist í sprengjuregni frá
breskum orrustuflugvélum.
Bresku flugmennirnir höfðu
hætt við árásarflug til Þýska-
lands og losað sig við sprengjur
sínar yfir Ermarsundi í stað-