Dagur - 16.03.2000, Blaðsíða 8

Dagur - 16.03.2000, Blaðsíða 8
8 -FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 ímpra WÓNUSTUMIÐSTÖÐ frumkvöðla og fyrirttokja Fy ri rtæ kj astef n u m ót í Danmörku 8. og 9. júní Markviss leið til að ná árangri erlendis Kynningarfundur á vegum Evrópumiöstöðvar Impru og Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar verður haldinn í fundarsal Atvinnuþróunarfélagsins 20. mars n.k. kl. 10.00, að Strandgötu 29 á Akureyri. Á Europartenariat fyrirtækjastefnumótinu munu um 400 dönsk fyrirtæki og um 2500 fyrirtæki frá 60 öðrum löndum leita samstarfs á sviði viðskipta, tækni, þróunarstarfs og á fleiri sviðum. íslensk fyrirtæki geta tekið þátt í mótinu, sér að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar og skráning hjá Berglindi Hallgrímsdóttur hjá Evrópumiðstöð Impru, Iðntæknistofnun, sími 570 7100, berglindh@iti.is og Bjarna Þórólfssyni hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar sími 461 2740 bjarni@afe.is Umbrot/hönnun Óskum eftir að ráða starfsmann í umbrot blaðsins á Akureyri. Reynsla og kunnátta í notkun Freehand, Photoshop og Quark xpress Umsóknir berist í afgreiðslu Dags, Strandgötu 31, 600 Akureyri, merkt: Umbrot Aóalfundur íslandsbanka hf. Aðalfundur íslandsbanka hf. árið 2000 verður haldinn í Súlnasal Radisson SAS Saga Hótel mánudaginn 20. mars 2000 og hefst kl. 14:00. Dagskrá 1. Aðalfundarstörf í samræmi við 10. grein samþykkta bankans. 2. Tillaga um heimild til bankaráðs til kaupa á hlutabréfum í íslandsbanka hf. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæðaseðlar og aógöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra í íslandsbanka hf. á Kirkjusandi í Reykjavík, 16. og 17. mars nk. frá kl. 9:00 til 16:00 og á fundardegi frá kl. 9:00 til 13:00. Einnig verða atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar afhentir á fundarstað frá kl. 13:00 til 14:00 á fundardegi. Hluthafar eru vinsamlegast beðnir að vitja aógöngumiða og atkvæðaseðla sinna á Kirkjusandi fyrir kl. 13:00 á fundardegi eða I síðasta lagi milli kl. 13:00 og 14:00 á fundarstað. 7. mars 2000 Bankaráð fslandsbanka hf. ISLAN DSBAN Kl www.isbank.is Akureyrarbær Slökkvilið Akureyrar Slökkvilið Akureyrar vantar fólk til sumarafleysinga, tíma- bilið maí til september 2000. Starfið felst í vaktavinnu vegna slökkvi- og sjúkraflut- ningaþjónustu auk ýmissa starfa sem þessu tvennu fylgir. Útkallsskylda er utan vinnutíma. Æskilegt er að umsæk- jendur uppfylli skilyrði reglugerðar um réttindi, menntun og skyldur slökkviliðsmanna auk samþykktar fyrir Slökkvilið Akureyrar. Helstu atriði þeirra eru: • Vera á aldrinum 20 - 28 ára, reglusamir og háttvísir. • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskyn- jun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða inniloku- narkennd. • Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkviliðsman- na eða sambærilega menntun og reynslu. • Hafa ökuréttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. • Hafa góða almenna þekkingu. þ.m.t. nokkra tungumálakunnáttu og gott vald á íslenskri réttritun. Laun samkvæmt kjarasamningi Landssambands slökkvil- iðsmanna eða STAK og launanefndar sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjórar á slökkvistöðinni, Árstíg 2, síma 461 4200 og upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmannastjóri í síma 460 1060. Umsóknum skal skila í upplýsingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 24. mars 2000. Slökkviliðsstjóri. Ætla að vera leiðandi I gærkvöldi var formlega opn- uð verslunin Top Shop í Lækjar- götu í Reykja- vík. Verslunin í Lækjargötu er sú fyrsta á Norðurlönd- um en Baugur hf. hefur feng- ið rekstrarleyfi fyrir Top Shop á öllum Norðurlöndunum og hyggur á opnun fleiri verslana. Sigrún Andersen er fram- kvæmdastjóri verslunarinnar, og segist hún í samtali við heima- síðu Baugs hf, - http/Avww baugur.is - að hún geri sér frek- ar góðar vonir um aðsóknina í verslunina fyrstu dagana. Top Shop merkið hafi á sér gott orð og komi sterkt inn á markaðinn. Að hennar dómi fyllir þetta merki upp í ákveðið tómarúm á íslenskum markaði. Fram kemur hjá Sigrúnu að hún telur að fólk hér á Iandi þekki flest þetta merki það sé markmiðið hjá fyrirtækinu að Top Shop verði nokkuð Ieiðandi og mótandi í íslensku tískuflór- unni, enda sé það alþjóðlegt að- alsmerki búðanna að innleiða nýjustu straumana á markaðinn hverju sinni. „Islendingar eru yf- irleitt fljótír til,“ segir Sigrún, „opnir og þora í tískunni, enda almennt meðvitaðir um stefnur þar og strauma.11 Vetra ríþrótta hátíð ÍSÍ 2000 á Akureyri Dagskrá helgarinnar 17.-19. mars 2000: Föstudagur 17. mars Hlíðarfjall: Kl. 18.00 Þórsmót í hefðbundinni skíðagöngu, 12 ára og yngri Skautahöll: Kl. 19.00 - 23.00 Skautadiskó Laugardagur 18. mars Ferðafélag Akureyrar: Mæting í Strandgötu 23. Skíðaferð í Svarfaðardal Bikarmót SKÍ í unglingafl.: Stórsvig 13-14 ára drengir Bikarmót SKÍ í unglingafl.: Svig 13-14 ára stúlkur Coca Cola mót í skíðagöngu með frjálsri aðferð, 12 ára og yngri íslandsganga Bakkavarar: Skíðastaðagangan: 5km, 10km og 20 km almenningsganga Akureyrarmót í listhlaupi Opið fyrir almenning Úrvalstöltarar frá Hestamannafél. Létti sýna Vetrarleikar Hestamannafélagsins Léttis 9. mars Bikarmót SKÍ í unglingafl.: Stórsvig 13-14 Bikarmót SKÍ í unglingafl.: Svig 13 - 14 ára Úrslitaleikir í Curling Leikir á almenningstíma Opið fyrir almenning Útilífsmiðstöð skáta að Hömrum: Ratleikur fyrir alla fjölskylduna með eða án skíða Skíðagöngubrautir í Hlíðarfjalli og Kjarnaskógi opnar alla daga þegar veður leyfir (Sjá einnig Leirutjörn) ára stúlkur drengir Kl. 9.00 Hlíðarfjall: Kl. 10.00 Kl 11.00 Kl. 11.00 Kl. 14.00 Skautahöll: Kl. 11.00 - 13.00 Kl. 13.00 - 18.00 Kl. 21.00 - 23.00 Leirutjörn: Kl. 13.00 - 17.00 Sunnudagur Hlíðarfjall: Kl. 10.00 Kl. 11.00 Skautahöll: Kl 10.00-12.00 Kl. 13.00 - 15.00 Kl. 13.00 - 18.00 Kl. 13.00

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.