Dagur - 16.03.2000, Page 12

Dagur - 16.03.2000, Page 12
12 - FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 FRÉTTIR Eru móti Vatna- j ökulsþj ó ðgarði Sveitarstjómir Skútu- staða- og Bárðdæla- hreppa telja rétt að Óbyggðauefnd ljúki störfum áður eu svæði á háleudiuu verði gerð að þjóð- görðum. Eyþing, samband sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, getur fyrir sitt leyti fallist á að fyrirhugaður Vatnajökulsþjóð- garður afmarkist af jöðrum jök- ulsins og Skaftafellsþjóðgarði. Stjórn Eyþings telur ógerlegt að ná sátt um að stærra svæði utan jökulsins falli undir þjóðgarðinn en til þessa hefur verið talað um, meðal annars vegna nýtingar- sjónamiða og þess hvernig stjórnsýslu náttúruverndarmála er háttað. Brýnt sé að taka stjórnsýslu náttúruverndar, og þar með talinna þjóðgarða, til endurskoðunar þannig að for- ræði heimamanna, það er þeirra sveitarstjórna sem í hlut eiga, sé tryggt- Óbyggðanefnd ljúM störfiun Sveitarstjórnir Bárðdælahrepps og Skútustaðahrepps hafa einnig fjallað um málið og sent frá sér sameiginlega umsögn um málið. Það segir að sveitarstjórnirnar telji rétt að telja rétt að Obyggðanefnd ljúki störfum sín- um áður en svæði á hálendinu verði gerð að þjóðgörðum. Nauð- syn þess að gera Vatnajökul að þjóðgarði með því hraði sem að er stefnt, er ekki auðséð, enda að mörgu að hyggja og ástæður til að gaumgæfa málið mun vand- legar en settur tímarammi gefur tækifæri til. Verði sá kostur engu að síður valinn að hraða sam- þykktum um Vatnajökulsþjóð- garð, telja sveitarstjórnirnar frá- leitt að samþykkja aðrar hug- myndir en þá að mörk þjóðgarðs- ins verði jaðar jökulsins og Skaftafellsþjóðgarðurinn eins og hann er í dag.“ Heiiiiameiin sviptir stjóm eigin mála Sveitarstjórnimar segjast sakna að ekki skuli hafa verið lagt mat á efnhagsleg áhrif af stofnun þjóðgarða á íslandi og leitað til sveitarstjórna um áhrif stofnun- ar og rekstrar á sveitarfélagið. „I þessu sambandi má benda á Byggðastofnun til að leggja mat á framangreind atriði. Eins og lögum er háttað lýtur stjórn þjóðgarða stjórn Náttúruverndar ríkisins. Reynsla sveitarfélaga af samskiptum við Náttúruvernd ríkisins er misgóð. Að óbreyttu er enn hoggið í sama knérunn með stofnun þjóðgarða. Heimamenn eru sviptir stjórn eigin mála. Við ákvörðun um stofnun og rekstur þjóðgarða verður m.a. að hafa eftirfarandi atriði í huga: ferða- þjónustu, orkunýtingu, veiðar í ám og vötnum, beit, eyðingu og viðnám gegn ágangi vargs. Þá ber og að nefna samband við landeigendur. Gjarnan er haft á orði að íbúar þéttbýlis þurfi í auknum mæli að leita á vit friðsemdar í ósnortinni náttúru. Ekki skal slíkt í efa dregið. Eins og íbúaþróun hefur verið háttað undanfarin ár hefur aukinn fjöldi Iandsmanna sest að á suðvesturhorni landsins. Því er ekki síst mikilvægt að auðvelda íbúum þessa landssvæðis aðgang að ósnortinni náttúru. Því væri ef til vill heppilegra að beina sjónum að stofnun þjóðgarða í meiri nálægð við fólkið en Vatna- jökulsþjóðgarðurinn er,“ segir í umsögn sveitarfélaganna tveggja. — GG Barentsráð- iðfundar Utanríkisráðherrrafundur Bar- entsráðsins var haldinn í Oulu í Finnlandi í vikunni. Þetta var 7. ráðherrafundur ráðsins sem stofn- að var í ársbyrjun 1993. Sverrir Haukur Gunnlaugsson, ráðuneyt- isstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir hönd Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Á fundinum var rætt um ýmsa þætti þess starfs sem fram fer á vegum Barentsráðsins á sviði efnahagsmála, umhverfismála, orkumála, samgangna og heil- brigðismála. Meðal mála sem fundurinn lagði áherslu á voru samningaviðræður við Rússland um samstarf til að bægja frá hætt- unni af geislavirkum úrgangi í norðvestur hluta Rússlands, norð- læg vídd Evrópusambandsins og hlutverk Barentsráðsins. Þá var lögð áhersla á að efla samvinnu og tengsl í fjölþjóðasamstarfi sem ffam fer á vettvangi Eystrasalts-, Barents- og Norðurskautsráðsins. 1 ræðu sinni á fundinum beindi Sverrir Haukur athyglinni að þeim hagsmunum sem íslendingar deila með öðrum aðildarríkjum Barentsráðsins, þar á meðal sjálf- bærri þróun og mengunarvömum. Hann fagnaði áhuga á málefnum norðurslóða sem að undanfömu hefur endurspeglast í utanríkis- stefnu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna og Kanada og vakti athygli á áherslum Islands á sviði umhverfismála á norðurslóðum, einkum vernd gegn mengun sjáv- ar og ítrekaði stuðning við sam- starf sem beinist að verndun um- hverfisins fyrir hættum sem stafa af geislavirkum úrgangi. Hótel að fyUast um páskana Bítlalögmwm hljóma í dyinhilviknimi á Ak- uxeyri. Hótel að fyU- ast í vikunni. Hótelin á Ákureyri eru að verða fullbókuð í dymbilvikunni, það er vikunni fyrir páska. Eitthvað er laust fyrri hluta vikunnar en allt er að fýllast þegar nær dreg- ur páskadegi, sem í ár ber upp á 23. apríl. Einhverjar koma til þess að fara í fermingarveislur. Fosshótel KEA býður til dæmis upp á fjölskyldupakka sem gildir í fjóra til fimm nætur með morg- unverði og eins er Flugfélag Is- lands með einhver tilboð á flug- Ieiðinni Reykjavík - Akureyri til dvalar í vetrarparadísinni Akur- eyri, og til þátttöku á Vetrarí- þróttahátíð ISÍ. Stærsti hópur gesta kemur þó á eigin bifreið, ekki síst þeir sem koma til þess að vera á skíðum. Einhverjar menningaruppá- komur verða á Akureyri þessa dagana. Meðal annars mun Karlakór Akureyrar - Geysir verða með tvenna bítlatónleika í vikunni, og fær til liðs við sig stórpopparana Pálma Gunnars- son og Helenu Eyjólfsdóttur ásamt hljómsveit. Það ætti minnsta kosti enginn af 68-kyn- slóðinni að láta slíkt fram hjá sér fara, og heyra karlakór syngja lög eins og Lady Madonna, Sgt. Peppers Ionely hart clubs band eða Yesterday svo eitthvað sé nefnt. Þessa dagana verður einn- ig Halló páskar sem meðal ann- ars felst í blysför í fylgd ýmissa kynjavera. Ekki má gleyma Andr- ésarandarleikunum sem hefjast í vikunni á undan, 13. apríl. Freyvangsleikhúsið Eyjafjarðarsveit 10 mín. akstur frá Akureyri Hér er engin mynd Fló á skinni gamanleikurinn víðfrægi eftir Georges Feydeau. Leikstjóri Oddur Bjarni Þorkelsson. úr „FiÓ Á SKINNI", Sýnlng föstudagskvöld 17. mars kl. 20.30 og laugardagskvöldið 18. mars kl. 20.30 en þær eru margar til Barnaafsláttur, hópafsláttur og enn betra verð fyrir eldri borgara. - og býsna fyndnar Miðapantanir í síma 463-1195 frá kl 16.00 sýningardagana. jííÍÍliu [plDÍnl EiBTI ÍKl hnli nl nl LEIKFÉLA6 AKUREYRAR Samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og leikhópsins Norðanljós Skækjan Rósa -eftir José Luis Martín Descalzo Þýöandi Örnólfur Árnason Ljósahönnun: Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein Leikmynd og búningar: Edward Fuglo Leikstjóri: Helga E. Jónsdóttir Leikari: Saga Jónsdóttir (...Skækjur verða á undan yður inní guðsríki. Matt. 21 - 31) Sýningar iaugard. 18. mars kl. 20.00 laugard. 25. mars kl. 20.00 Allra síöustu sýningar. ■ l Leikhúsið 10 fingur og Leikfélag Akureyrar frumsýna leikbrúðusýninguna „Gosi“ eftir Helgu Arnalds Skólasýningar í miðri viku almenn sýning laugard. 18. mars kl. 14.00 sunnud. 19. mars kl. 14.00 SÍÐUSTU SÝNINGAR Leikstjóri Þórhallur Sigurösson. Ljósahönnun Ingvar Björnsson Hljóðmynd: Kristján Edelstein. Leikendur: Helga Arnalds, Herdís Jónsdóttir og Þórarinn Blöndal GJAFAKORT - GJAFAKORT Einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir. Munið gjafakortin okkar - frábær tækifærisgjöf! ílúl.ilijýiaJiijrlail^.:iii:i7i;ii I talDln) yjlbJ fí ll.FIKIfl.AfiAKIIPtYBABl Miðasalan opin alla virka daga frá kl. 13:00-17:00 og fram að sýningu, sýningardaqa. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.