Dagur - 23.03.2000, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2 0 0 0 -19
Fólki verður aldrei nógu vel
þakkað fyrir að vilja rétta ná-
unga sínum hjálparhönd.
Flvort sem hann vill þiggja
hana eða ekki. Flugurinn
sldptir mestu máli f því sam-
bandi og ber fólkið hálfa leið.
Mannkynið á sér marga vel-
gjörðarmenn þrátt fyrir mis-
jafna fortíð og allar götur frá
miskunnsama Samveijanum
fram á seinni daga Páls Pét-
urssonar frá l löllustöðum II í
ráðuneyti. Og má ekki á milli
sjá hvor Samveijinn hefur
vinninginn. En það er nú önnur saga.
Fatahjálp og fatafall
I gamla daga voru hvorki til félagsmálastofn-
anir eða félagsmálaráðuneyti og varla Höllu-
staðir II ef grannt eru skoðuð gömul landa-
bréf. Ríkti þá samhjálpin ein í sveitum lands-
ins og dugði betur en allt heila velferðarkerfið
í dag því hugur fylgdi þá máli en nú er velferð-
in orðin fjölmenn atvinnugrein. Næstum stór-
iðja. Menn slógu einfaldlega saman í nýjan
búsmala og slógu upp nýjum hlöðum þegar
áföll riðu yfir fólkið á næsta bæ. Maddömm-
urnar á betri bæjum og höfuðbólum sáu um
að útvega þurfandi fólki nauðsynjar og veg-
lausum samastað. Allt gekk þjóðfélagið ein-
hvern veginn upp að kvöldi dags og sólin kom
upp næsta morgunn. Svo einfalt var það nú.
En þrátt fyrir vaxandi aðstoð hins opinbera
er rausn gainla bændasamfélagsins enn við
lýði í dag. Borgaraleg klúhhastörf karla og
h'knarfélög kvenna hafa tekið við hlutverki
Maddömmunar á höfuðbólinu. Hér er ekki átt
við svokallað félagshyggjufólk og annað fólk af
sama sauðahúsi sem sprottið hafa upp af
gamla sósíalismanum og forverum hans í
austri. A meðan borgaralegu félögin leggja
bæði vinnu og verðmæti af mörkum án endur-
gjalds reiknar félagshyggjufólldð sér laun fyrir
hvort tveggja og sendir ríkissjóði reikninginn.
En það er nú líka önnur saga.
Samanlögð hjálpsemi Islandssögunnar
bliknar þó við hliðina á nýlega útréttri hjálpar-
hönd sem birtist í frumvarpi tveggja þing-
kvenna félagshyggjunnar á Alþingi og er afar
sjaldgjæft að sjá óeigingjarnt framlag úr þeirri
átt. Enda metur alþýða manna að verðleikum
fólk sem er svo lánsamt að vita hvað náungan-
um er fyrir bestu og vill breyta samkvæmt því.
Reyndar breyta lífi náungans samkvæmt því
en það gerir ekkert til á meðan hugur fylgir
máli. Enda hefur DV upplýst í viðtali með
ljósmynd af öðrum flutningsmanni frumvarps-
ins í lopapeysu að þingfrúin sjálf býr yfir
ómetanlegri reynslu á því sviði þjóðlífsins sem
frumvarpið tekur til bæna.
Föttn falla við ljósopið
Flutningsmaður er sumsé gömul fatafella úr
Kvennalistanum og leggur nú fram lagafrum-
varp á Alþingi í skjóli Grænna vinstrimanna
um að banna alla aðstoð og þjónustu við um-
fangsmikla þætti kynlífsíþrótta í þéttbýli á Is-
landi. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið áður en
ótímabær dónaskapur hlýst af þessu skelfilega
kynlífi öllu saman. En samkvæmt frétt í DV
man fatafellan tímana tvenna í bransanum og
UMBUBfl-
LAUST
„Nektin er kynlífinu
sams konar örvun og
ölið er sterka víninu. Og
á eftir eða undan nöktu
kynlífi kemur stundum
kynlífsþjónusta."
Fötinfallavið
bæði í fötum og án fata og jafnvel án þykku
ullarpeysunnar. A sínum tíma háttaði hún sig
nefnilega sjálf framan við ljósopið hjá meistara
Rúnari Gunnarssyni ljósmyndara og sjón-
varpsstjóra og lagðist af því tilefni nakin upp í
dívan í gömlu húsi í miðborginni ef rétt er far-
ið með heimildir í fréttinni. Ljóst er því að
seinni tíma stríp á knæpum miðborgarinnar á
sér sögulegan aðdraganda í gömlu húsi á
sömu slóðum.
Oft er sagt að saklaust ölið sé byijunarreitur
fyrir sjálft áfengið og leiðin að sterkari dry'kkj-
um liggi um (yrstLi ölkolluna. Sama má segja
um nektina. Nektin er kynlífinu sams konar
örvun og ölið er sterka víninu. Og á eftir eða
undan nöktu kynlífi kemur stundum kynlífs-
þjónusta. Eða þekkist einhver lesandi kynlífs-
þjónustu sem veitt er af kappldæddu fólki í
stofuhita og jafnvel í ullarpeysumr Nektin er
nefnilega ein helsta forsendan fyrir vel heppn-
uðu kynlífi svo fötin þvælist ekki fyrir unaðin-
um og telji ekki heldur fyrir áfallaíausri þjón-
ustu víð kynlífið.
Gengisföll í súlubyggö
En margt býr í miðbænum ekki síður en
þokunni. I frumvarpinu er varað við nektar-
stöðum frekar en öðrum stöðum í miðborg
Reykjavfkur og eru sumir þeirra þó aðeins
steinsnar írá garnla nektarstaðnum hvar fyrsta
skráða fatafallið í þingsögunni fór fram þegar
flutningsfella lagafrumvarpsins braut ísinn og
felldi sjálf fötin sín á dívan við ljósop á sínum
tíma. Miðborgin hefur því löngum verið sann-
kölluð nektarnýlenda og Islendingar sannir
fellibylir. Nú er miðborgin ekld lengur bara
fræg fyrir að gengi íslensku krónunnar var fellt
þar reglulega á tímum Viðreisnar heldur líka
fyrir föt sem stúlkur fella við súlur og rúm-
stokka á dívönum og jafnvel Iíka Álafosspeys-
ur.
Samkvæmt frumvarpinu er striplið við súl-
una úrskurðað klám og striplið við dívaninn
úrskurðuð list. Ohætt er að una við þennan
úsrksurð enda er oft stutt á milli Feigs og
Ófeigs í gömlum húsum í miðborginni og má í
því sambandi rifja upp að listfengasta bíó-
mynd klámsögunnar heitir einmitt Við rúm-
stokkinn. Eða er hún máski klúrasta bíómynd
listasögunnar? I rauninni gildir einu úr því
sem komið er svo lengi sem listfeng fataföll
þrífast við stokka og steina og súlur í miðborg-
inni frekar en dýrkeypt gengisföll. En hitt er
svo annað mál:
Af öllum þeim stöðum sem bjóða upp á
kynlífsþjónustu á Islandi hítur fyrsta nektar-
lýrirsætan á Alþingi íslendinga frá landnámi
nærri greninu og ræðst á hina nektarstaðina í
miðborg Reykjavíkur. Hér gætir hvorki háttvísi
né stéttvísi. Af hverju hjólar flutningsfellan
ekki frekar í Landssímann sem hýsir allar
helstu líynlífsþjónustur landsins eða DV sem
birtir voldugar auglýsingar þeirra ásamt öllum
sjónvarpsstöðum og útvarpi? Ótaldir eru þá
hinir ýmsu klámhundar snuðrandi um borgina
en væntanlega eru þeir frekar verkefni fyrir
hálf misheppnaða kattahreinsunardeild borg-
arstjórans í Reykjavík á mcnningarári.
Ávallt viðbúin!
Skátahreyfingin er einn hollasti félagsskapur á
íslandi og einbeittur vilji skátanna til að láta
gott af sér leiða á hverjum degi er til fyrir-
myndar. En hversu góðar skátastúlkur sem við
kunnum annars að vera megum við aldrei
verða svo kappsfullar að leiða gömlu konuna
yfir götuna með valdk Hún verður helst að
eiga erindi þangað sjálf.
■menningar]
LÍFIÐ
Hvað er Leon-
ardo da Vinci?
Leonardo da Vinci
er starfsmenntaá-
ætlunin sem hóf göngu sína
árið 1994. Markmið Leonardó
áætlunarinnar er að bæta fag-
kunnáttu og fæmi fólks í
starfsmenntun og símenntun
sem og að geta af sér nýjungar
í starfsmenntun bæði fyrir
skólakerfið og atvinnulífið. Ár-
angur Islendinga í Leonardó
áætluninni hefur verið mjög
góður og hafa þölmargir ís-
lendingar notið styrkja úr
henni. Um 600 íslenskir nem-
endur og starfsmenn hafa farið
í náms/starfsdvöl til Evrópu-
landanna og 19 tilrauna-, yfir-
færslu og rannsóknaverkefni
undir íslenskri verkefnastjóm
hafa verið styrkt.
Föstudaginn 24.
mars mun Björn
Bjarnason
menntamálaráð-
herra ýta öðrum
hluta Leonardo da
Vinci starfs-
menntaáætlun Björn
ESB á íslandi úr Bjarnason.
vör. Opnunarráð-
stefna verður
haldin í IDNÓ við Reykjavík-
urtjörn og hefst kl. 14. Erindi
flytur frú Marta Ferreira deild-
arstjóri í mennta- og menning-
ardeild Evrópusambandsins,
sem hingað er komin af þessu
tilefni. 1.150.000.000 Evra
eða um 80 milljörðum króna
er varið til þessa hluta áætlun-
arinnar frá 2000-2006
Standið ykkur konur
Nefnd um aukinn hlut kvenna
í stjórnmálum hefur staðið fyr-
ir verklegum framhaldsnám-
skeiðum til þcss að efla starf
stjórnmálakvenna. Námskeiðin
eru haldin í samvinnu við End-
urmenntunarstofnun Háskóla
íslands og verða næstu nám-
skeið haldin 31. mars til 1.
apríl og 3.-5. apríl. Um er að
ræða framhald námskeiðsins:
Efiing stjórnmálakvenna, fé-
lagsmál, ræður, greinaskrif og
fjölmiðlar, sem yfir 80 konur
tóku þátt í.
Skráning fer fram hjá End-
urmenntunarstofun Háskóla
íslands. Nánari upplýsingar
fást á Skrifstofu jafnréttismála
hjá Unu Maríu Óskarsdóttur,
verkefnisstjóra nefndar um
aukinn hlut kvenna í stjórn-
málum.
\_______________________/
VakSsViðars.
Páfiim leitar sátta
Jóhannes Páll annar páfi mun
líklega talinn með merkustu
mönnum sem gegnt hafa þessu
æðsta embætti ..kaþólskii kirkj-
unnar í Rómaborg. Hann kom úr
allt öðru umhverfi en fyrirrennar-
ar hans - varð fyrsti og væntan-
lega eini þegn kommúnistaríkis
til að ná kjöri sem páfi. 1 valdatíð
sinni í Páfagarði hefur hann beitt
sér fyrir öðrum áherslum í mikil-
vægum málum en flestir fyrir-
rennarar hans, þótt hann hafi
fylgt hefðinni í sumu. Nú síðast
vakti hann athygli og aðdáun fyrir að
biðjast fyrirgefningar á syndum kaþólsku
kirkjunnar í gegnum tíðina.
Þessa dagana er páfinn í heimsókn í
Landinu helga, það er að segja á sögu-
slóðum biblíunnar. Um leið er hann að
heimsækja ríld gyðinga. Eitt af því sem
kaþólska kirkjan hefur sögulega séð á
samviskunni er að magna upp andúð í
garð gyðinga vegna þess að þeir hafi ráð-
ið Jesús af dögum. Með heimsókn sinni
á biblíuslóðir er páfinn öðrum
þræði að leita sætta við forna
andstæðinga kirkjun nar um leið
og hann boðar frið í heimshluta
þar sem fjandskapur hefur verið
ríkjandi.
Vondir páfar
Þegar páfinn leitar eftir fyrirgefn-
ingu synda kaþólsku ldrkjunnar í
aldanna rás þá er af nógu að
taka. Stundum á hinum myrlcu
miðöldum var páfastóll leiksopp-
ur glæpalýðs sem misnotaði em-
bættið herfilega til veraldlegrar vald-
níðslu. Um þetta liggja fyrir slíkar sögu-
legar staðreyndir, að ekki þarf um að ef-
ast. Meðal ágætra frásagna af því hroða-
lega tímabili í sögu kaþólsku kirkjunnar
má vísa á bókina „The Bad Popes“ eftir
enska rilhöfundinn E.R. Chamberlin.
Þar er farið í gegnum sögu páfanna frá
því skömmu fyrir árið þúsund og frarn til
þess tfma að Martin Lúter hóf þá upp-
reisn gegn páfanum í Róm sem endaði
MENNINGAR
VAKTIN
með siðaskiptunum.
Ljóst er að það sem gerði páfastól að
gróðrastíu spillingar og grimmdar\'erka á
þessum tíma var samtvinnun hins and-
lega og veraldlega. Páfarnir reyndu að
safna til sín auði og pólitískum völdum
og það Ieiddi snarlega til víðtækrar spill-
ingar.
Þótt kaþólska kirkjan sé vellauðug nú
á tímum, og hafi á þessari öld lent í
margvíslegu fjármálabraski þar sem
rekkjunautar hafa jafnvel verið úr ítölsku
mafíunni, þarf enginn að efast um að
núverandi páfi er stórmerkur maður sem
hefur gert mikið til að bæta ímynd páfa-
ríkisins. Hann hefur farið víða um heim-
inn og alls staðar vakið athygli og aðdá-
un - og það langt út fyrir raðir kaþólskra
manna.