Dagur - 18.04.2000, Síða 1
Ballöður í
háum tónum
Sauðkrækingar sigr-
uðu í Söngkeppni
framhaldsskólanna,
sem haldin varum
helgina. Fenguferða-
úttekt og tíma í hljóð-
veri að launum, sem
hvorutveggja gagnast
vel.
Sauðkrækingar komu, sáu og
sigruðu í Söngkeppni framhalds-
skólanna, sem haldin var í Laug-
ardalshöll í Reykjavík á laugar-
daginn. Það voru þeir Sverrir
Bergmann Magnússon og Brynj-
ar Elefsen, nemar í Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra, sem
þar voru á ferð og söng Sverrir
lagið An þín, sem á frummálinu
heitir Always og er eftir Jon Bon
Jovi. Brynjar, sem lék undir á gít-
ar, íslenskaði texta lagsins og
naut þar aðstoðar Auðuns Blön-
dal.
Sáttur vlð hvaða
sæti sem var
Keppendur í söngvarakeppni
framhaldsskólanna að þessu
sinni komu frá velflestum fram-
haldsskólum landsins. I öðru
sæti varð Flensborgarskólinn í
Hafnarfirði, en fulltrúi hans var
Jóhannes Haukur Jóhannesson
sem söng lagið Taumlaus transi,
sem er úr söngleiknum Rocky
Horror Picture Show. Voru hon-
um til aðstoðar í söngnum þau
Sigurður E. Baldvinsson og Kol-
brún Lilja Sigurðardóttir. I þriðja
sæti varð Helgi Valur Ásgeirsson
úr Fjölbrautaskóla Suðurlands á
Selfossi sem söng lagið Halle-
lujah eftir Leonard Cohen.
Helga Val til aðstoðar var Anton
Orn Karlsson, sem lék undir á
gítar.
„Eg bjóst aldrei við sigri, í raun
hefði ég verið sáttur við hvaða
sæti keppninnar sem var,“ sagði
Sverrir í samtali við Dag. Hann
og Brynjar hafa víða komið fram
að undanförnu og skemmt gest-
um og gangandi. Einkum hefur
það verið norðan heiða, svo sem
á veitingastöðunum Kaffi Króki
og Ólafshúsi, sem báðir eru á
Sauðárkróki. Ferill Sverris í tón-
listinni nær þó alllangt aftur,
hana hefur hann verið viðloðandi
síðustu fimm árin og meðal ann-
ars gáfu þeir Sverrir og Brynjar á
sínum tíma út geisladisk; en í því
tilviki var framboðið þó meira en
eftirspurnin því diskurinn seldist
í aðeins fimmtíu eintökum.
Sigurrós frábær
Tónlistin er h'f og yndi Sverris
Bergmanns. „Mér finnst Sigur
Bós frábær hljómsveit," segir
hann, en segir ýmsar sveitir er-
lendar séu í eftirlæti hjá sér og
nefnir þar meðal annars Foot
Fighthers og Live. „Þegar ég stfg
sjálfur á svið finnst mér alltaf
skemmtilegast að syngja róleg lög
í háum tóntegundum. Það er
toppurinn," segir hann.
Þeir Sverrir Bergmann og
Brynjar fóru ekki tómhentir heim
eftir góða Reykjavíkurferð, þegar
þeir héldu aftur norður í Skaga-
fjörðinn sæla f gær. Þeir fengu að
launum tíma í hljóðveri sem ætti
að gagnast þeim vel til þess að
marka sér enn frekari sess í tón-
listinni. „Síðan fékk ég 1 50 þús-
und króna úttekt í ferðavinning
sem er líka fínt því ég er að ljúka
stúdentsprófi nú í vor og útskrift-
arferöin er framundan. Já, ég er
að fara suður til náms, set stefn-
una á tölvufræði í háskólanum,
enda praktískt að fara í slíkt
nám."
-SBS.
I
Atta sinfium á
Bókaðu í síma 570 3030 og 460 7000
•730 kr . mei flu^vallarsköttum
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is