Dagur - 18.04.2000, Blaðsíða 4
20 -ÞRlfíJUDAGUR 18. APRÍL 2000
7 ÍFW 1 L \ \J)1 XI
IBÆKIIR
Ljóðferðaljóð
I Grænu skyggnis-
húfunni eru ferða-
Ijóð eftir Sigurlaug
Elíasson, þar sem
hann vitnar til
staða kunnra sem
ókunnra, sem tala
til hans, hver með sínu móti.
Sigurlaugur Elíasson er
fæddur á Borgarfirði eystra
1957. Að loknu stúdentsprófi
nam hann við málaradeild
Myndlista- og handíðaskólans.
Hann býr nú á Sauðárkróki.
Mál og menning gefur
Grænu skyggnishúfuna út.
Dægurmyndir
Myndir dægranna
er heiti á ljóðabók
eftir Þórarin Guð-
mundsson á Akur-
eyri. Er þetta sjötta
bók hans sem út
kemur. I henni er að finna 74
ljóð, en bókin er 88 blaðsíður
að stærð.
Höfundur tekur fram, að
hvert ljóð stendur sem sjálf-
stæð mynd, en sums staðar
mynda þó tvö eða þrjú Ijóð
samhverfu. Myndir dægranna
eru ekki ákveðið heildarþema,
heldur er sem dægrin hafi þyrl-
að upp myndunum, sem koma
víða að en eiga allsterkan sam-
hljóm.
Höfundur gefur bókina út en
Offsetstofan á Akureyri annað-
ist alla prentvinnu.
Nýstárleg
vegahandbók
Ut er komin bókin Þjóðsögur
við þjóðveginn eftir Jón R.
Hjálmarsson. Er þetta nýstár-
leg vegahandbók, þar sem
heimsóttir eru þ'ölmargir staðir
í alfaraleið hringinn í kringum
landið, sem og nokkrir á fáfarn-
ari stöðum, og rifjaðar upp
þjóðsögur og sagnir sem ættað-
ar eru frá þessum stöðum.
Þetta eru alls um 60 sögur, sem
skipað er niður með hliðsjón af
vegakerfi landsins, þannig að
auðvelt sé að finna sagnir frá
þeim slóðum sem ferðast er um
hverju sinni. Við upphaf hverr-
ar sögu er gerð grein fyrir sögu-
sviðinu, helstu kennileitum lýst
og einnig markverðum stöðum
og fyrirbærum í nágrenninu.
Bókin er gefin út undir nafni
Almenna bókafélagsins, sem er
dótturforlag Vöku-Hclgafells.
Elókiö samband
við áfengið
Bókaútgáfan For-
Iagið sendir frá sér
bókina Drykkja-
Ástarsaga eftir
bandarísku blaða-
konuna og rithöf-
undinn Caroline Knapp. í sög-
unni lýsir höfundur ílóknu
sambandi sínu við áfengi um
tveggja áratuga skeið, þykjustu-
Ieiknum með fíknina og því
ægivaldi sem drykkjan hafði á
lífi hennar.
Hún þóttist stjórna áfengis-
neyslu sinni en laumaðist á
barinn á leiðinni á klósettið og
faldi vínflöskur á ótrúlegustu
stöðum. Henni tókst að dylja
neyslu síná vel, mætti alltaf í
vinnuna og neytti ekki áfengis
þar þótt hver mínúta væri
henni lcyöl uns hún gat á ný ylj-
að sér við áfengið. Að endingu
náði hún tökum á fíkn sinni og
hóf hina hægu göngu til nýs
sjálfsskilnings án áfengis.
Ragnheiður Margrét Guð-
mundsdóttir þýddi bókina.
LEIKLIST
Haukur
flgústsson
skrifar
Föstudaginn 14.
apríl frumsýndi
Leikfélag Akur-
eyrar leikritið
„Tobacco Road"
eftir Erskine
Caldwell í leik-
gerð Jack
Kirklands en ís-
lenskri þýðingu
Jökuls Jakobs-
sonar. Leik-
stjóri uppsetn-
ingarinnar er Viðar Eggertsson,
leiktjöld og búningar er verk
Snorra Freys Hilmarssonar, lýs-
ing unnin af Ingvari Björnssyni
en hljóðmynd hönnuð af Krist-
jáni Edelstein.
„Tobacco Road“ gerist í Iand-
búnaðarhéraði í suðurríkjum
Bandarfkjanna. Bændurnir,
sem erjuðu landið kynslóð fram
af kynslóð, eiga það ekki leng-
ur. Þeir misstu það í hendur
stóreignamanna, „fjármagnseig-
enda“, sem síðan töpuðu þess-
um iðulega illa fengnu eignum
sínum í hendur banka í hrun-
inu mikla, þegar kauphallir
brustu og almenn örbirgð lagð-
ist yfir sem næst alla banda-
rísku þjóðina. Fólkið, sem
þarna býr, hefur sér ekkert til
bjargræðis. Það hefur ekki fé
til þess að kaupa sér útsæði.
Því er engin uppskera, engar
tekjur, ekkert til þess að lifa af,
hvorki matur né annað, sem
telst til viðurværis og frum-
þarfa manna. Við þessar kring-
umstæður hefur fólkið komist
niður á endanlegt stig uppgjaf-
ar og falls siðanna, þar sem
flest telst leyfilegt til þess að
draga fram lífið og ef til vill
lánast að halda í dreggjarnar af
brostnum vonum.
Sviðsmynd Snorra Freys
Hilmarssonar er vel unnin.
Hún sýnir gjörla hið ræfilslega
umhverfi, hálffallið húsið, rusl-
ið og rykið, sem kemur af
skrælnaðri jörðinni. Sterkt at-
riði í uppfærslunni er það, þeg-
ar fjalir taka að hrynja niður í
lokin. Endalokin eru orðin.
Búningar eru einnig vel við
hæfi; rifnar druslur það eina,
sem fólkið á býlinu hefur til
þess að hylja sára nekt óhreinna
líkama sinna.
Hljóðmynd Kristjáns Edel-
steins er sterk. Hún er byggð
að miklu upp úr þungum og
tregafullum blús, scm undir-
„I höfuðhlutverkum í verkinu eru Þráinn Karlsson sem Jeeter Lester og Hanna María Karlsdóttir sem Ada Lester,
eiginkona hans. Bæði ná góðum tökum á persónum sínum, “ segir m.a. í dómnum.
strikar þann lífsharm, sem fyrir
augu og eyru ber. Hann eflist
enn við lýsingu Ingvars Björns-
sonar, bjarta en ekki skerandi
og þó nógu skæra til þess að
gefa til kynna hið þurra og óerj-
aða land.
I höfuðhlutverkum í verkinu
eru Þráinn Karlsson sem Jeeter
Lester og Hanna María Karls-
dóttir sem Ada Lester, eigin-
kona hans. Bæði ná góðum
tökum á persónum sínum. Þrá-
inn á stórgóðan Ieik í til dæmis
ræðum sínum um syndina og
um jörðina, sem Ijölskylda
hans hefur haft lífsviðurværi
sitt af og hann á ekki lengur og
Hanna Marfa nær víða snilld-
artökum á Odu, uppgefinni,
vonlausri, en þó enn gæddri
nokkurri mannlegri reisn.
Börn Lesterhjónanna eru
leikin af Agnari Jóni Egilssyni
sem Budda, Maríu Pálsdóttur
sem Ellieu May, og Önnu
Gunndísi Guðmundsdóttur
sem Pearl. Agnar Jón nær tíð-
ast mjög góðum tökum á hin-
um villta unglingi, sem engu
eirir, er fáráður og eyðileggur
með orðum og æði flest það,
sem hann kemur nærri. María
á í raun heildstæðan stórleik í
túkun sinni á hinni holgóma
Ellieu, samfelldan og víða mjög
áhrifaríkan. Anna Gunndís
sómir sér vel sem fallegasta af-
kvæmið og nær sér víða vel á
flug í túlkun sinni, einkum í
átakasenum.
Sunna Borg fer með hlutvek
Systur Bessiear Rice. Hún nær
vel að draga fram hræsni og
sjálfshafningarhvöt þessa sjálfs-
skiptaða boðanda fagnaðarer-
indisins og fer tíðum á kostum
í hlutverki sínu.
Aðalsteinn Bergmann leikur
Luv Bensey og nær afar sam-
felldri túlkun persónunnar,
sem Ieggst reyndar nokkuð lágt
í skiptum sínum við Lesterfjöl-
skylduna, en stendur þó
nokkrum skörum hærra henni,
þó að komin sé úr sama um-
hverfi.
Kristjana Nanna Jónsdóttir
leikur Ömmu Lester, bugaða af
elli, örbirgð og striti og allra
bitbein og gerir vissulega vel.
Arni Tryggvason fer með smátt
hlutverk Henrys Peabodys og
nær ágætlega að skapa skondna
persónu og Hinrik Hoe Har-
aldsson sker vel í stúf við larfa-
fólkið í túlkun sinni á hinum
fínt klædda bankamanni.
Viðar Eggertson hefur unnið
vel úr verkinu og Ieikurum sín-
um. Sviðsferð er góð og fas og
framsögn leikara almennt mjög
vel við hæfi. I uppsetninguna
koma þó á fáeinum stöðum
dauflegir hlutar, svo sem í
dauðasenu Ödu. Einnig tekst
ekki að fullu að nýta það skop,
sem í verkinu er og undirstrik-
að getur enn frekar vonleysið,
niðurdröbbunina og uppgjöf-
ina, þar sem allt er á Ieið til
Heljar. Uppsetningin er samt
sterk og hittir mjög víða í mark
Hún vekur hugsanir um sam-
svaranir í íslenskum kringum-
stæðum samtímans. Uppflosn-
um fjölskyldna, horfin atvinnu-
tækifæri, eyddar byggðir og
sinnuleysi samfélags og stjórn-
valda; hið gleymda fólk, hinar
verðlausu eignir, hinar brostnu
vonir. Uppsetning Leikfélags
Akureyrar á „Tobacco Road“ á
því erindi við þá, sem leikhúsi
unna og njóta þess að sjá góð-
an leik í verki, sem tekur af al-
vöru á atriðum, sem höfuðmáli
ættu að skipta í mannlegu sam-
félagi.
Kaffibrag'ð
og bamalist
Börn á aldrinum 5 til 9 ára úr
Litla Myndlistarskólanum
íHafnarfirði sýna nú myndir
sínar í Nönnukoti, litla reyk-
lausa kaffihúsinu í Hellisgerði.
Myndirnar eru unnar með
blandaðri tækni og þótt börnin
séu tæplega komin á kaffi-
bragðið þá ræður kaffistemning
ríkjum í myndunum, Jrví unnið
er með uppstillingu úr Nönnu-
koti.
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir
myndlistarmaður er kennari
barnanna í myndlist en hún
rekur Litla Myndlistarskólann í
vinnustofu sinni að Strandgötu
50. Unnendur barnamyndlistar
ættu ekki að láta þessa sýningu
framhjá sér fara. Hún stendur
til 10 maí.
Þótt þau séu varla komin á kaffibragðið kunna þau vel að mála könnu.