Dagur - 18.04.2000, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGU R 18. APRÍL 2000 - 21
Tkypu-
LÍFIÐ t LAXDIXU
„Við völdum daginn al því þetta var aímælisdagurinn
hans pabba. bað var reyndar allt mjög hefðbund-
iö, það voru haldnar ræður, það var sungið og svo
fórum við á rúnt á einhverjum jeppa. Þetta var
eiginlega bara rosalega skemmtilegur dagur,“ seg-
ir Kartrín Hermannsdóttir, sem giftist þann 11.
mars sl. Hlyni Bjarka Sigurðssyni í Digranes-
kirkju í Kópavogi. Sr. Pálmi Matthíasson gaf þau
saman. Hún segir að þau hafi fengið sr. Pálma til
að gefa sig saman vegna þess hve skemmtilegur
maður hann sé. „Það var mjög létt yfir öllu og
engin formlegheit. Presturinn gerði grín að þvf að
þegar ég var yngri sagðist ég alls ekki ætla að ná
mér í strák sem væri yngri en ég og alls ekki úr
sveit, en það passaði hvorugt. Þetta var allt sam-
an létt og skemmtilegt."
Fyxst bakar maður og giftir sig svo
Þau Katrín og Hlynur Bjarki kynntust á útihátíð
sem haldin var á Eiðum um verslunarmannahelg-
ina 1992 og segist Katrín ekki hafa ætlað að fara
á þessa hátíð en systir hennar beðið hana að
koma með sér. Hún er ættuð að austan en Hlyn-
ur er úr Skriðdal.
„I veislunni hrugðu vinkonur mínar á leik og
könnuðu hversu vel við þekktum hvort annað.
Það kom í Ijós að hann þekkti mig eiginlega bet-
ur en ég þekkti hann og kom Hlynur mér á óvart
með því. Eftir veisluna fórum við í brúðkaupsferð
austur á Selfoss. Það var þoka þegar við fórum og
það var brjálað veður þegar við fórum til baka yfir
heiðina. Helgin á Hótel Selfossi var hinsvegar
yndisleg. Við eigum tvo stráka, þessi eldri var
rosalega ánægður með að við skyldum gifta okk-
ur. Þegar vinkona mín gifti sig í haust, þá sagði
hann, „jæja, nú giftist þið.“ Svo var amma hans
að spyrja hann í haust hvort við ætluðum nú ekki
Ioksins að drífa í því að gifta okkur, þá sagði
hann: „Nei, fyrst þarf maður að baka og svo gift-
Þann 11. mars sl. voru gefin saman í Dlgraneskirkju, af
séra Pálma Matthiassyni, þau Katrín Hermannsdóttir og
Hlynur Bjarki Sigurðsson. Þau eru til heimils að Kjarrhólum
12 f Kópavogi. [mynd: uúsmyndastofan mynd, hafnarfirði.)
ir maður sig.“ Hann var rosalega ánægður, hann
var hringaberi og stóð sig með stakri prýði. Þeim
yngri, sem er tveggja ára, fannst ekkert til urn
þetta og tók þessu með stóískri ró.“
-PJESTA
1:
% cLötLir {'
t|f f/aifrffíMr ivrpt
. \ ■ frítir bK&mMto
í grunnskólanum í Sandgerði var á dögunum sér-
stök vika tileinkuð sr. Hallgrími Péturssyni
sálmaskáldi og fyrrum presti á Hvalsnesi. Meðal
þess sem börnin lögðu hönd að þá viku var stórt
veggteppi með myndum úr ævi sr. Hallgríms.
Teppið var til sýnis í kirkjunni í Sandgerði þegar
Hallgrímshátíð var haldin þar fyrir skemmstu í
tilefni kristnitökuafmælis. Þar voru einnig fleiri
myndverk eftir nemendur grunnskólans og lista-
skólans og bútasaumsteppi gert af eldri borgur-
urn og gefið kirkjunni við þetta tækifæri. I mynd-
verkum barnanna var greinilegt að sú sorg sem sr.
Hallgrímur og Guðríður kona hans urðu fyrir
þegar þau misstu sólargeislann sinn, hana Stein-
unni litlu, hafði snortið þau.
Þann 8. janúar s/. voru gefin
saman í hjónaband í Dóm-
kirkjunni i Reykjavík afsr. Jak-
ob/ Ágúst Hjálmarsyni, þau
Rosana Ragimova og Gunnar
Konráðsson. (mynd: nýja
mýndastofan.)
Þann 7. ágúst á sl. ári voru
gefin saman íhjónaband afsr.
Sigurði Arnarsyni í Bessa-
staðakirkju, Anna María Þor-
valdsdóttir og Jónas Halldórs-
son. HeimHi þeirra er iÁlaborg
/ Danmörku. ('mynd: uós-
MYNDASTOFA SIGRÍÐAR BACH-
MANN)
Þann 28. ágúst á sl. ári voru
gefin saman í hjónaband af sr.
Sigurði Helga Guðmundssyni í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði þau
Sigurbjörg Guðlaugsdóttir og
Sigurgeir Sigurgeirsson. Heimili
þeirra er að Laufvangi 16 i
Hafnarfirði. (mynd: uósmynda-
STOFA SlGRlÐAR BACHMANN)
Þann 74. ágúst á sl. árí voru
gefin saman í hjónaband afsr.
Bjarna Karlssyni í Laugarnes-
kirkju, þau Olga Sigurðardóttir
og Halldór Másson. Heimili
þeirra er að Laugarnesvegi
104 í Reykjavík. (uósmynda-
STOFA SIGRÍÐAR BACHMANN.)
GUN.