Dagur - 18.04.2000, Qupperneq 8
ÍIMaiES!illilBIIiSSÉ[M3Íiiasl[iS!ilES3l'EgSl[l[!igíIS3|IM3gO^SÍEB!il(iSSll^iÍ[!aSIIMSll]B3hEaiiIS31!^l^
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 462 2520 - Akureyri
BÍLASALA - Sími 461 2960
SMÁTT OG
STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDOR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.is
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir.
„Flugleiðir verða
að fara að sldpta
um súrefni í flug-
vélunum."
Kristján Jóhanns-
son söngvari í sjón-
varpsviðtali um
hálsbólgu sem
hann fékk á Ieið-
inni til Islands og
varð ósöngfaer.
Frelsið
Sighvatur Björgvinsson sagði á dögunum,
þegar við hann var rætt um hugsanlega aðild
Islands að ESB og livort hún myndi ekki
skerða fullveldi landsins, að hann teldi svo
ekki vera. Hann sagði að í samstarfi þyrftu
menn alltaf að taka tillit til annarra. Hann
tók dæmi af Robinson Cruso. Þegar hann
bjargaðist eftir skipsstrand upp á eyðieyju var
hann einn, algerlega frjáls og engum háður.
Samt leið honum illa. Svo kom Frjádagur og
þá þurfti Robinson Cruso að taka tillit til
hans en leið samt mun betur vegna þess að
hann hafði félagsskap. Loks komst hann um
borð í skip og heim til Englands. Þá þurfti
hann að taka tillit til alls og allra og þá leið
honum best.
Tölvuvírusar
Hér koma fleiri hættulegir tölvuvírusar sem
menn þurfa að leita að:
REYKJAVÍKURLISTA VÍRUSINN: Þegar
hann kom fyrst í tölvunni þinni sagðist hann
ætla að bæta hana, en skyndilega tekurðu
eftir því að tölvan þín notar miklu meira raf-
magn en áður og rafmagnsreikningurinn
hækkar og hækkar og hækkar.
MINNIHLUTA VÍRUSINN: Getur ekki
eyðilagt neitt en gagnrýnir allt sem þú gerir
(ákaflega pirrandi vírus).
VSÍ/ASI VÍRUSINN: Tölvan þín frýs,
skjárinn skiptist í tvennt með sömu skilaboð-
unum báðum megin. Skilaboðin segja þér að
það sé hinum aðilanum að kenna að tölvan
þín sé frosin.
Gestur heima
Eg birti á dögunum vísu eftir þann frábæra
hagyrðing Guðrúnu Arnadóttur frá Odds-
stöðum í Lundareykjadal. Hér kemur önnur
sem hún orti þegar hún orðin fullorðin kona
kom á æskustöðvarnar á Oddsstöðum. Þá var
allt hennar fólk farið burt og ókunnugt fólk
sat jörðina. Miklar breytingar höfðu átt sér
stað og þá orti Guðrún.
Annað flest er orðið breytt,
öllu er hest að gleyma,
hugann festir aðeins eitt,
að eg er gestur heima.
„Tónlist var Halldóri mjög hugleikin, honum
fannst hún vera ofar orðunum. Hann talar
mikiö í verkum sinum um fug/asöng og
hversu allt væri audveldara ef fólk myndi
bara tísta og syngja en væri ekki bundið af
tungumálinu, “ segir Þórarinn Stefánsson,
píanóleikari.
GamaUmnngt í
bland við nytt
Tvöfaldur hljómdiskur nreð lög-
um við ljóð Halldórs Kiljans Lax-
ness er í undirbúngi hjá útgáf-
unni Polarfonia Classics. Þórar-
inn Stefánsson píanóleikari hefur
umsjón með útgáfunni og annast
hluta af undirleiknum. A diskun-
um verður fjöldi sönglaga sem
saminn hcfur verið við texta Hall-
dórs, og segist Þórarinn halda að
þar verði þorrinn af þeim saman
kominn. Efni diskanna verður í
bland gamalkunnugt en einnig
verða þar fjölmörg lög sem ekki
hafa heyrst áður. Þórarinn segir
að ekki sé verið að búa til ný lög
við texta sem áður hafi verið
hljómsettir. „Mörg þessara laga
eru hreinar perlur eins og „Maí-
stjarnan“ eftir Jón Asgeirsson og
einnig má nefna „Islenskt vöggu-
ljóð“. A öðrum diskinum er nýtt
lag við kvæðið „Klettinn", sem
Oliver Kentish samdi sérstaklega
fyrir þetta tilefni. Þarna verða líka Iög Atla
Heimis Sveinsson úr leikgerðinni af Sjálfstæðu
fólki. Atli Heimir hefur fært þessi lög í nýjan
búning fyrir Sólrúnu Bragadóttur, söngkonu,
sem syngur á öðrum diskinum, en á hinum syng-
ur Bergþór Pálsson að einu undanskildu. Það er
Angus domini eftir Leif Þórarinsson, sem er flutt
af Elsu Waage og félögum úr Caput hópnum,"
segir Þórarinn.
MúsíMíf
Þórarinn segir að stefnt sé að því að
koma diskinum í alþjóðlega dreif-
ingu. Honum fylgi bæklingur sem
innihaldi vandaðar þýðingar á
kvæðunum á þremur tungumálum,
ensku, dönsku og þýsku. Auk þess
sem þar verði ýmsar ritgerðir á
sömu tungumálum. „Það er ærinn
starfi að ritstýra þessurn bæklingi,
að undirbúa alla texta og búa þann-
ig um hnútana að allir séu að vinna
saman. Diskurinn á að koma út í
kringum afmælisdag skáldsins á
næsta ári sem er 23. apríl. I bæk-
lingnum verður bæði efni eftir
skáldið og einnig nokkrar ritgerðir
eftir aðra. Þarna er ritgerð sem
Halldór skrifaði og nefnist, „Morg-
unhugleiðing um músík.“ Helga
Kress skrifar ritgerð sem ber titilinn
„Undirleikur af tónlist" og fjallar
um áhrif tónlisitar á ritsmíðar Hall-
dórs. Eysteinn Þorvaldsson fjallar
um ljóðagerð sagnaskáldsins og Auður Laxness
rifjar upp ýmsa tónlistaiviðburði á Gljúfrasteini.
Tónlist var Halldóri mjög hugleikin, honum fannst
hún vera ofar orðunum. Hann talar mikið í verk-
um sínum um fuglasöng og hversu allt væri auð-
veldara ef fólk myndi bara tísta og syngja en væri
ekki bundið af tungumálinu. Það var mjög mikið
músíklíf á Gljúfrasteini og Halldór spilaði sjálfur á
hljóðfæri." -PJESTA
„Ég vildi hafa
þetta veglegt, enda
tilhlýðilegt þegar
Nóbelsskáld á í
hlut. Kvæði Hall-
dórs Kiljans Lax-
ness hafa staðið
svolítið í skugga
skáldsagna hans. “
SPJflLL
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
ÞRIÐJUDAGUR 18.APRÍL
109. dagur ársins, 257 dagar eftir.
Sólris kl. 5.44, sólarlag kl. 21.12.
Þau fæddust 18. april
• 1047 fæddist bandaríski leikarinn James
Woods.
• 1480 fæddist hin alræmda ítalska her-
togaynja Lucrezia Borgia.
• 1902 fæddist Gizur Bergsteinsson
hæstaréttardómari.
• 1926 fæddist Indriði G. Þorsteinsson
rithöfundur.
• 1953 fæddist bandaríski leikarinn og
tónlistarmaðurinn Rick Moranis.
Þetta gerðist 18. apríl
• 1 902 tóku Danir fyrstir þjóða upp á því
að nota fingraför til þess að bera
kennsl á glæpamenn.
• 1944 var Hermann Jónasson kosinn
formaður Framsóknarflokksins í stað
Jónasar Jónssonar frá Hriflu.
• 1946 lagði Þjóðabandalagið upp laupana,
en í stað þess komu Sameinuðu þjóð-
irnar.
• 1949 varð írska lýðveldið til, þegar írar
sögðu sig úr breska samveldinu.
• 1951 stofnuðu Bretar, Vestur-Þjóðverj-
ar, ítalir, Belgar, Hollendingar og Lúx-
emborgarar Evrópska stál- og kola-
bandalagið.
• 1955 lést þýski eðlisfræðingurinn Al-
bert Einstein.
• 1955 talaði Sukarno, forseti
Indónesíu, fyrstur manna um „þriðja
heiminn".
• 1980 varð Simbabve sjálfstætt ríki, en
hafði áður heitið Ródesía.
Vísa dagsins
Þar gat fleynins frjdlsa manns
farið djarfast skeiða:
ullir vissu að úbyrgð hans
enginn þurfti að greiða.
Þorsteinn Erlingsson
Afmælisbam dagsins
Indriði Guðmundur Þorsteinsson, rit-
höfundur, fæddist í Gilhaga í Ljitings-
staðahreppi í Skagafirði þann 18. apr-
íl árið 1926. Hann ólst upp í Skaga-
firði og á Akureyri, hann gekk í Hérað-
sskólann á Laugarvatni, stundaði ýmis
störf, eins og verslunarstöf og bilreiða-
akstur. Arið 1951 gerðist hann blaða-
maður á Tímanum og varð síðar rit-
stjóri þess blaðs. Hann hefur skrifað
Ijölda bóka en fýrsta skáldsaga hans,
Sjötíu og níu af stöðinni kom út árið
1955 og hefur hún verið kvikmynduð
sem og skáldsagan Land og synir.
Allt sem við eigum er í okkur sjálfum.
Ingibjörg Haraldsdóttir
Heilabrot
Settu tölurnar 1, 2, 3, 4, 5 og 6 í staðinn
fyrir spurningamerkin þannig að reiknings-
dæmið verði rétt. Hver tala má aðeins
koma fyrir einu sinni: ?? x ? = ???
Lausn á síðustu gátu: Hinir ákærðu voru
samvaxnir tvíburar, og því ekki hægt að
dæma annan í fangelsi ef hinn var saklaus.
Veffang dagsins
Sjálfsagt hafa einhverjir hlaupið fyrsta
apríl fyrir fáeinum vikum, og haft mis-
jafnlega gaman af því. í flestum tilvikum
hcfur það þó varla verið jafn skrautleg
reynsla eins og sagt er frá á veffangi dags-
ins. Þar eru 1 3 sögur af fólki sem var plat-
að á all eftirminnilegan hátt:
family.go.com/Categories/Activities/Feat-
ures/family_l 999_03/famf/famf39pranks/