Dagur - 06.05.2000, Qupperneq 7

Dagur - 06.05.2000, Qupperneq 7
Ð^ur_ LAUGARDAGUR 6. MAI 2000 - 23 LÍFID I LAj'JÐJj'JU j son sem höfum alltaf veriö tilbúin til að fórna eigin stöðu í pólitfk- inni fy'rir Samfylkinguna. Eg er ekki jafn viss um að Olafur Ragn- ar Grfmsson og Jón Baldvin hefðu verið tilbúnir til að fórna sinni persónulegu stöðu innan stjórnmálanna til að samciningin >Tði að raunveruleika, þótt þeir hafi átt þennan draurn ekki síður en við. Formennirnir þurftu að stfga til hliðar og gefa þessu nýja stjórnmálaafli svigrúm til að vaxa og dafna undir nýrri forystu, í þessu tilfelli Össurar Skaqthéð- inssonar sem við fögnum mjög og treystum. Við afhendum honum þetta fjöregg og hann mun fara mjög vel með það. Eg veit það. Ef honum tekst ekki að Ieiða okkur í samstarfi þá tekst það heldur ekki neinunt öðrunt í þingflokki Sam- fj'lkingarinnar.“ Framtíðin er björt - Nú varstu talsmaður Samfylking- arinnar í síðustu kosningabaráttu, af hverju ákvaðstu að bjóða þig ekkifram til formanns? „Eg sagði frá upphafi að ég teldi að núverandi forystumenn A-flokkanna hefðu mikilvægu hlutvcrki að gegna við að þróa og ljúka samfylkingarferlinu. En hluti af því að búa til nýtt stjórn- málaafl er endurnýjun í forystu. Ef við sent vorum í forystu höfð- um á einhveijum tímapunkti Iöngun til að gegna embætti fyrsta formanns Samfyikingar þá urðu slíkar langanir einfaldlega að víkja, því þessunt nýja flokki er hollast að nýr maður taki við for- ystu.“ - Þú bj’ðtir þigfram lil varafor- mennsku i SamfylkingUnni. Ein- hverjir hafa orðið til að segja að það væri flokknum fyrir bestu að þií hyrfir alveg úr forystunni. „Ég held að þeir sem þetta segja viti ekki hvað þeir eru að tala um. Eg fékk á tímahili milda hvatningu til að gefa kost á mér til formennsku, ekki síður frá Al- þýðullokksfólki en Alþýðubanda- lagsfólki. Það þótti mér mjög vænt um en þegar ég skýröi þær ástæður sem ég hef Ivrir að gera það ekki mætti ég líka skilningi. Eins og ég sagði áðan tel ég að nýr og öflugur maður verði að taka við formennsku. Eg er ósköp einfaldlega að bjóða fram starfs- krafta mína til að fara í þá vinnu sem framundan er við að byggja upp samfylkingarfélög í öllum sveitarfélögum og nýta þá þekk- ingu sem ég hef sem forystumaö- ur í stjórnmálaflokki fyrir Sam- fý'lkinguna en undir leiðsögn for- mannsins." - llvemig formaður heldurðu að Össur Skarphéðinsson verði? „Eg held að hann verði mjög góður formaður. Hann er afburða greindur og hefur afar góða út- geislun. Það er ekki alltaf nóg að formaður sé vel að sér í hinunt ýmsu málum sem snerta pólitík- ina hcldur þarf hann einnig að hafa ákveðna útgeislun og geta laðað fólks til samstarfs og sátta þegar á reynir. Össur er líka hæfi- lega óútreiknanlegur stjórnmála- maður, getur kornið jafnvel sfnum samherjum til margra ára á óvart með skoðunum sínum og sér sí- fellt nýja fleti á málum.“ - Hvað segirðu um þá gagnryni að Samfylkingin sé Alþýðuflokkur- inn endurfieddur? „Það er bara della, sem sjálf- stæðismenn og vinstrigrænir, sér- stakur dekurflokkur Davíðs, halda fram og reyna stöðugt að troða ofan í þjóðina. Þeir eru aug- ljóslega hræddir við Samfylking- una og það sameinar þá eins og margt annað. Sjálfsagt er það líka til að einhveijir Alþýðuflokks- menn eigi sér þann draum að flokkurinn verði nýr Alþýðuflokk- ur á sama hátt og það er draumur einhverra Alþýðubandalagsmanna að hann verði nýtt Alþýðubanda- lag og einhverra úr Kvennalistan- um að hann verði sérstakur kvennaflokkur. Eg hlýt að leggja ntegináherslu á að þessa hugsun verða rnenn að leggja til hliðar, hvort scm það eru Alþýðuflokks- menn, Alþýðubandalagsmenn eða Kvennalistakonur. Við erum að skapa nýtt stjórnmólaafl sem hef- ur jöfnuð, félagshyggju og kven- frelsi fremst á stefnuskrá. Það er undir okkur öllum komið hvort þetta tekst. Og ef menn sýna ekki heilindi í því að búa til þessa nýju breiðfylkingu þá kemur það niður á fylgi flokksins og möguleikum okkar á að konia stefnumálum okkar í framkvæmd. Þetta veit Samíylkingarfólk og okkur hefur tekist að vinna okkur út úr þeim vandamálum sem upp hafa kom- ið og þannig verður það í framtíð- inni, sem er björt. Eg verð greinilega vör við að fólk væntir sér mikils af Samfylkingunni. Samfylk- ingin á að vera stjórnmálaafl sem tekur ekki bara mið af pólitísku umhverfi innan- lands heldur líka stöðu okk- ar meðal þjóðanna. Það er löngu tímabært að þannig stjórnmálaafl verði til. Þetta er flokkur með rætur í stefnu og störfum þeirra flokka sem að Samlylking- unni standa og hefur mikla möguleika á að verða ferskur og skapandi. Það er verk að vinna - Hver eru mikilvægustu verkefnin í tslenskum stjórn- málum samtímans? „Mikilvægustu verkefnin eru sem fyrr jöfnuður og réttlæti og þetta verða alltaf mikilvægustu verkefnin. Við þurfum að leggja kapp á að starfa með samtökum launa- fólks. Umhverfísmálin verða áreiðanlega fyrirferðamikil í stjórnmálum næstu ára og á því sviði er mildð verk að vinna. Sama er að segja um byggðamálin og ég hef trú á að þessir málaflokkar eigi eftir að tvinnast meira sam- an og þá á öllu jákvæðari nótum en verið hefur. Ég tel líka afar brýnt að styrkja stöðu Islands meðal þjóð- anna. EES sanmingurinn dugar ekki til og við verðum að fara í sérstaka umræðu urn stöðu okkar innan Evr- ópu. Ríkisstjórnin hefur al- gjörlega brugðist í þeim efn- um. Halldór Asgrímsson hefur þó sýnt lífsmark og já- kvæða viðleitni en mér sýn- ist Davíð Oddsson ætla að traðka hana niður jafnóðum. Við þetta verður ekki unað. Við höfum fengið skýrslu frá vegna vcikinda, örorku og ýmissa utanaðkomandi aðstæðna. Þetta fólk hefur orðið undir hjá þjóð sem skipar sér á bekk meðal rik- ustu þjóða heirns. Það þarf að hreyta forgangsröðuninni í ís- lensku þjóðfélagi og bæta veru- Iega hag þeirra verst settu. Þetta verður eitt af meginverkefnum Samfylkingarinnar." - Nú gengu á tímabili sögur um að þú ætlaðir að hætta í pálitik, var eitthvað hæft íþeim? „Það er kannski draumur ein- hverra en ég verð að hryggja þá hina sömu með því að ég er ekki að hætta í pólitík. Það er verk að vinna sem ég vil gjarnan taka þátt í. Ég er að sjá draum rætast. En þegar þessu kjörtímabili lýkur er ég búin að vera sextán ár á Al- þingi, hef verið oddviti sveitafé- lags í átta ár og verð þá orðin 49 ára gömul. Það er býsna góður hluti, af ekki mjög langri ævi, sem hefur farið í pólitíkina. Eg hlýt að velta því fyrir mér, eins og aðrir stjórnmálamenn, hvenær tími sé kominn til að breyta til og víkja fyrir nýju fólki og nýjum sjónarmið- um. í pólitík þarf með jöfnu millibili að eiga sér stað ákveðin endurnýjun og 'við eigum hvert um sig að vera vel vakandi fyrir henni." - Hefurðu ekki metnað til að verða ráðherra? „Allir sem fara í pólitík hljóta að hafa metnað til að verða ráðherra. Auðvit- að vildi ég verða ráðherra, hvort sem ég væri utan þings eða sæti á þingi. Það er ekkert sem segir að þótt einstaklingur hætti á þingi geti hann eða hún ekki orðið ráðherra. Við í Sam- lylkingunni eigum einfald- lega að vinna pólitíkina öðruvísi en aðrir og ef við förum í ríkisstjóm hljótum við að horfa á hæfileika- fólk sem við eigum utan þingflokks jafnt sem innan hans.“ - A þessu langa og stranga ferli þegar mikið mæddi á þér hvarflaði þá aldrei að þér að þetta væri einfaldlega ekki þess virði? „Nei, aldrei. Ef okkur tekst það ætlunarverk að búa til öflugt mótvægi við stjórnarstefnu núverandi ríkisstjórnar, sem er mikil nauðsyn á, þá hefur sann- arlega ekki verið unnið til einskis. Verkefhin eru næg. Það hefur aldrei hvarflað að mér að gefast upp í þessu starfi frekar en öðru sem ég hef tekið mér fyrir hendur. Það skiptir líka miklu að ég hef ávallt átt stóran hóp stuðnings- fólks sem hvetur mig áfrant.“ „EES samningurinn dugar ekki tii og við verðum að fara í sér- staka umræðu um stöðu okkar innan Evr- ópu. Ríkisstjórnin hefur algjörlega brugðist í þeim efnum. Halldór Ásgrímsson hefur þó sýnt lífsmark og já- kvæða viðleitni en mér sýnist Davíð Oddsson ætla að traðka hana niður jafnóðum." utanríkisráðherra sem á að taka til umrætðu á Alþingi nú eftir helgina. Ég tel að sú umræða sé aðeins lyrsta yfirferð. Stjórnmála- flokkarnir hljóta að leggja ntilda vinnu í að skoða rækilega hvern kafla skýrslunnar og efna til op- innar umræðu og móta stefnu sína í framhaldi af því með hags- muni þjóðarinnar að leiðarljósi. Ein ískyggilegasta þróunin í ís- lensku samfélagi er að bilið milli hinna ríku og þeirra sem ntinna eiga er að breikka ískyggilega mikið á stuttum tíma. Við búum í litlu samfélagi sem ætti að vera auðvelt að móta þannig að þar ríki réttlæti. En réttlæti og jöfn- uður er ekki á forgangslista þess- arar rfkisstjórnar og hún er því miður búin að vera alltof lengi við völd. Ég tek á móti stórum hópi fólks í viðtöl sem ég er með á skrifstof- unni minni. Þetta fólk leitar til mfn vegna þess að það á í vand- ræðum af ýmsum ástæðum, oft Það hefur aldrei hvarflað að mér að gefast upp I þessu starfi frekar ert öðru sem ég hef tekið mér fyrir hendur."

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.