Dagur - 06.05.2000, Síða 16

Dagur - 06.05.2000, Síða 16
32 - LAUGARDAGUR 6. MAÍ 2000 Opnunardagurínn Fluguveiðar að sumri (165) Sjónvarpið á staðnum og allti Opnunardagur- inn! Þvílík há- tíð. Reyndar er það svo að opn- unardagarnir eru jafn margir og veiðimennirnir. Sumir búnir að vera að síðan fyrstu ísar hörf- uðu og hægt var að kasta fyrir sjóbirting eða bleikju. En opnunardagurinn í Elliðavatni er 1. maí. Mökkur manna kominn fyrir allar aldir uppeftir, margir í árlegu kapp- hlaupi um staðinn sinn. Eg slappaði af. Stemmning að búa í borg þar sem götur er mannlaus- ar á mánudagsmorgni af því að verkalýðurinn á sinn dag. Og tek- ur fimmtán mínútur að komast í veiði. Setti þjóðlega dægurtónlist á fóninn :og blístraði. Uppi við vatn kom í Ijós hvers vegna engir bílar voru á götunum, þeir voru allir komnir þangað. Os við gamla bæinn þar sem Einar Benediktsson sleit barnsskónum. Víð álinn var hópur veiði- manna,himbrimapar líka, álftir á flæðiengjunum og jafnvel sjón- varpið mætt til að taka þátt í há- tíðinni. Fiskar voru greinilega í minnihluta á þessari fjöldasam- komu. Spáð og spjallað Sjálfur ritstjóri Veiðimannsins, Gylfi Pálsson mættur: „Menn reyna alltof lítið straumflugu al- mennt“ segir hann sinni þægilegu þularröddu. Eg monta mig af því að hafa hnýtt tvo litla rektora til að sýna svöngum urriðum í Helluvatni, norður af hinu eigin- lega Elliðavatni. Einn nánungi veður í land og maður sér glitta í rauðan kvið á bleikju. Ég hugsa með mér að líklega muni ekki hægt að metta 5000 með afla dagsins, en tvö hundruð manns líði betur á sálinni þegar um Helluvatn Ár og dagur síðan ég reyndi sfð- ast í Helluvatni. Fer afsíðis þar sem ég er einn í mildum regnúða, ekki þarf að renna upp í hálsmálið, set saman og rölti niður að rennandi vatni við gras- hakka í skjóli hrauns. Það lygnir og nú gjósa upp flugur. Mý! Það er aldeilis að náttúran er með á nótunum segi ég við sjálf- an mig og hana, tek rektórinn af og set litla brúna flugu undir, gerða úr fjöðrum fitukirtils and- arinnar. Hún gefur oft þegar flugur gjósa upp undan bökkum. En ekki núna. Fer í rektorinn sem á að líkja eftir sílum og freista stórra urriða sem stund- um fást í þessu vatni. Dreg mis- hratt en fæ ekki líf. Breyti enn um: fer í þyngda púpu með kúluhaus og nota tökuvara til að vera viss um að missa ekki af fínlegu narti bleikjunnar, án ár- angurs. Skipti í peacock, klass- i'skan, en fæ ekki svar. Nú bæt- ist við og myndast hópur veiði- manna á bakkanum hjá mér. Fyrst dettur mér í hug að það sé góðs viti: Þessir vel búnu menn sem greinilega kunna að læðast með bökkum hljóti að vita hvað þeir eru að gera. Svo dettur mér í hug að þeir séu bara að elta mig, þessi vel búni veiðimaður með fallegan hatt hljóti að vita hvað hann er aðgera! Erum við kannski allir fífl að elta hvern annan? Útúrdúr Skammt fyrir neðan vatnsból Reykvíkinga eru lænur og lygnur með grunnu vatni milli hólma, áður en hið eiginlega vatn tekur við. Eg ímynda mér að þar geti legið urriðar á grjótbotni. Það er lygnt og ég æfi mig að kasta var- lega á stillt og grunnt vatn. Gengur misjafnlega. Lengi taum- inn og nota grennra girni svo þetta sé ekki alveg jafn friðspill- andi. Gengur betur. En enginn fiskur kemur. Rölti og hitti einn vel búnu mannanna við bifreið. Jú, hann hefur fengið fisk, jafnvel góða veiði, á þessu svæði. En ekki núna. Vatnsendi Nú er Magnús Hjaltested á Vatnsenda fallinn frá. Þegar rcnnt er yfír að þann enda vatnsins verður Þorsteinn sonur hans fyrir svörum, jú, slatti veiðimanna komnir. Ég ákveð að fara út á steinana mína og athuga hvort bleikjan sé komin að. Hún held- ur sig á leirbotni utan við. Nota peacock með kúlu og rauðu skotti á íbjúgum öngli til að leita hana uppi. Kasta langt en fæ ekkert. Akveð að freista urriðans og kasta inn á milli steina meðfram bakk- anum. Þar eru þeir oft þessir skrattar og láta sig litlu skipta þótt ekki sé komið sumar. Sendi fluguna inn á milli grjótsins. Húrra! Líf! Stöngin svignar og hann tekur hressilega í, rífur sig svo upp úr vatninu. Það gerir bara urriði, bleikjan fer sjaldnast í loftköstum, enda ekki jafn sterk í þessu vatni. Stökkið borgar sig fyrir fiskinn. Hann Iosnar af um leið og hann lendir. Ég rölti lengra. Þar er bleikjupunktur sem ég ætla aðprófa. Fleiri Þegar mig ber að hafa tveir veiði- menn komið sér fyrir þar sem ég ætlaði að kasta, flotholtin dugga langt úti hjá öðrum, en hinn æfir fluguköst. Þessi með flotholtið hefur ekkert að gera. Er í gæsa- skyttubúningi með felumynstri, dregur hött yfir sig og húfu með andlitsgrímu, út um hana stendur sígaretta. Hann stendur á bakk- anum og gónir á flotholtið einsog hrakfallabálkur úr Vítenamstríð- inu. Ég kasta á þessa gamal- kunnu bleikjuslóð en fæ ekki högg. Kasta langt út, meðfram bökkum til beggja handa, dreg hægt og hratt. Nú rignir svo stíft í logni að það er eins og guðir lemji trumbur. Hatturinn þyngist í vætunni og ég ákveð að reykur- inn sem liðast upp úr einum sumarbústað þýði að ég sé vel- kominn í kaffi. Opnunardagur- inn er liðinn. Einn fiskur sem slapp. Og kafHbolli í vændum. Þarf maður meira? Halelúja Um kvöldið kemur svo hinn stóri glaðningur dagsins. Þegar ég strýk þvottapokanum yfir háls- ins emja ég af kláða. Hleyp upp í bólum og þrota. Húrra! Mýbit! Halelúja! Hósanna! Flugan er komin upp! -X^mt Cortland 444 flugulinumar fásii 10 gerðum sem hæfa sérhverjum aöstæöum. Framþungu fluguifnurnar fást f 2 gerðum af flotlínum, 3 geröum af sökk-odds línum, Intermediate ásamt 4 geröum af sökklínum. Þvi ekki aö byrja meö Cortland, þú endar þar hvort eö er! Fæst í næstu veiöiverslun. Sportvörugerðin Heildsala-smásala Mávahlíð 41, Rvik, sími 562-8383 CORTLAND , FLUGU LINURNAR .. HÆFA OLLUM AÐSTÆÐUM FLAKK liLEVTA fy------ i«í lill HRELLA MY tiHt KtYMl ÞEKKTI EYéA HAF iWm ,rnr- mm Jliill mfáLA OYC-éifR SL'A TElkÁK * m m&m mritfá- HAFn Waft EFH- INh mbtiA SLAPP- leiKI ÍIHM Nom SKRAF M/töKS HITA Futk L DtöTTuR P’lPuR NAFH- LAUS -IB Jr K'iú GíUBþ- Am v/ö- kvæmt £ YMÖ 5K'/KJu- m, y| UIÁ’SI íllilli TUlVi'iAt PEMlKHA WiF FuGrL L'BLBAA 8 5R&//ÖI LISTI TAPl IQK nm- SAIAA pEGAR duK/ SKART FÆDOI S EKTlti HES'dl twtp. 'iií-ji 'ir.nA‘JiÁh tfsnnfeffj K 'ÍRiH fÓ-ORA mssA KONi NA' NU- I« 0 'AltJ VoT /ö/rí TOLu Llti £66 LLYF- IST imm fJLa& KYKK€ ElRIR HUoM Helgarkrossgáta 185 WTznrmrtyt ■swfoíf' fótoirrn: I krossgátunni er gerður greinarmunur á grönnunt og breiðum sérhljóðum. Lausnarorð sendist til Dags (Hclgarkrossgáta nr. 184), Strandgötu 31, 600 Akureyri eða með símhréfi ínúmer 460-6171. Lausnarorð krossgátu 182 var „sápukúla". Vinn- ingshafi er Berghildur Hermannsdóttir, Furu- lundi 9a á Akureyri og fær hún senda hókina I síð- asta sinn, eftir Ágúst Borgþór Sverrisson. •o oo> 'md> trt-y/ &■ Verðlaun: Slátr- arinn eftir Dean Koontz. Skjald- borg gefur út £|0(fíi ii’ió' k 'lfö rsfíi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.