Dagur - 13.05.2000, Blaðsíða 1
Gagmýnir flýtimed-
ferð forsetaskatts
Alþýðusambandið tel-
ur skyudiafgreiðslu á
afnámi skattfríðiuda
forseta íslands fárán-
lega. Vill málið til
umsagnar. Ósómi,
skömm og sóðaskap-
ur, sögðu gagnrýnend-
ur á þingi.
Sú ákvörðun forseta Alþingis að
hleypa frumvarpi Péturs H.
Blöndals og fleiri þingmanna um
afnám skattfríðinda forseta Is-
lands áfram til fullnaðaraf-
greiðslu, þrátt fyrir að málið væri
lagt fram á allra síðustu dögum
þinghaldsins, mætti í gær harðri
gagnrýni einstakra þingmanna,
einkum þó þingmanna Samfylk-
ingarinnar. 3 þingmenn flokks-
ins greiddu atkvæði gegn af-
brigði frá þingsköpum, sem
heyrir til algjörra undantekn-
inga. Þá er Ijóst að vinnubrögðin
sæta gagnrýni utan þings og seg-
ir Ari Skúlason, framkvæmda-
stjóri ASI, að nauðsynlegt sé að
gaumgæfa þær afleiðingar sem
málið kann að hafa.
„Það er fáránlegt að koma með
mál eins og þetta
tveimur dögum
áður en þing hætt-
ir. Þetta mál
þarfnast ítarlegrar
umræðu og auð-
vitað ber að senda
það út til þeirra
sem áhuga hafa á
því að hafa skoðun
á því, svo sem til
ASI, enda um
Iaunamál að
ræða,“ segir Ari.
Forsetinn verður
viðmiðun
Hann segir að því
sé ekki að leyna að
hann hafi heyrt að einn tilgang-
urinn á bak við þessa breytingu
sé að forsetaembættið búi til þak
á Iaun opinberra embættis-
manna. „Með því að skattleggja
forsetann en jafnframt búa svo
um hnútana að hann komi út úr
þessu á sléttu. Þá hækka laun
hans gífurlega mikið og þar með
þakið. Fólkið í ASÍ hefur mátt
horfa upp á erfiðar aðstæður í
efnahagslífinu og verið stillt upp
við vegg með um-
ræðu um stöðug-
leika - og því hefur
verið samið um
launahækkanir
sem eru langt und-
ir væntingum okk-
ar fólks. Því horfir
maður á þetta
undrandi augum.
Það er út af fyrir
sig fullkomlega
eðlilegt að skatt-
leggja forsetann
eins og aðra, en
það er um leið full-
komlega óeðlilegt
að viðhafa þennan
hraða afgreiðslu-
tíma. Það þarf lengri tíma í bæði
afgreiðsluna og breytinguna sjál-
fa,“ segir Ari.
Sem fyrr segir samþykkti þing-
heimur í gær að taka málið á
dagskrá. Margir þingmenn Sam-
fylkingarinnar gerðu grein fyrir
atkvæði sínu; sumir samþykktu
afbrigði með þeim fyrirvara að
málið fengi eðlilega meðferð í
nefnd og yrði sent út til umsagn-
ar - sem þýddi að málið yrði ekki
afgreitt fyrir þinglok.
„Skömm fyrir þingið“
Þrír þingmenn vildu þó alls ekki
samþykkja afbrigði og sagði einn
þeirra, Lúðvík Bergvinsson, að
það væri „mikill ósómi" af mál-
inu og „nánast skömm fyrir þing-
ið“. Sagði hann framlagningu
málsins á elleftu stundu þing-
haldsins minna á Iélegan brand-
ara. Gísli S. Einarsson sagði að
málið væri „sóðaskapur" hvað
vinnbrögðin varðar.
Fleiri þingmenn gagnrýndu
málið á þeirri forsendu að því
væri hleypt í gegn á sama tíma
og um 90 þingmál fengjust ekki
rædd, þótt sum þeirra varði brýn
hagsmunamál fólks, t.d. frum-
varp um afnám skerðingar á bót-
um öryrkja vegna tekna maka
þeirra. - FÞG
- Sjá einnig fréttaviðtal við
Pétnr H. Blöndal bls. 4.
Ari Skúlason: Afgreiðslu-
hraðinn fullkomlega óeðlileg-
ur - ASÍ vill veita umsögn.
Málsmeð-
ferð kærð
Guðjón St.
Marteinsson,
dómsformað-
ur í Stóra
fíkniefna-
málinu,
ákvað í gær
að í ljósi umfangs málsins en
ætla má að málflutningur taki 3-
4 vikur, myndi hann ekki helja
aðalmeðferð málsins fyrr en I 1.
september. Kolbrún Sævarsdótt-
ir, settur saksóknari, Iagði þegar
fram bókun um að ákvörðun
dómarans yrði kærð til Hæsta-
réttar með kröfu um að aðal-
meðferð hefjist í síðasta lagi 15.
júní.
Akvörðun Guðjóns varð um
leið til þess að lögmenn þeirra 9
sakborninga sem enn sitja í
gæsluvarðhaldi kröfðust þess að
skjólstæðingar þeirra yrðu þegar
látnir lausir, en ekki var tekin af-
staða til þess í gær. - FÞG
Krakkarnir í Valsárskó/a á Svalbarðsströnd hafa verið í tímum í spunadansi hjá Únnu Richards og í gær var komið
að því að Ijúka námskeiðinu með danssýningu. Dansinn fór fram ofan í sundlaug við skólann í góða veðrinu í gær
og túlkuðu krakkarnir annars vegar marbendla og hins vegar sjómenn. mynd brink
Umræðan
verður erfið
„Það verður mikil umræða um
Evrópumálin í Framsóknar-
flokknum, en eru ekki flokkar til
að taka á mikilvægum og erfiðum
málum? Flokkurinn mun taka af-
stöðu til málsins og halda áfram
að leiða umræðuna. Eg geri mér
alveg grein fyrir því að umræðan
mun verða erfið, en ég kvíði
henni hins vegar ekkert. Ég hef
áður tekist á við vandasöm verk í
Framsóknarflokknum." Þetta
segir Halldór Ásgrímsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, í helgarviðtali
Dags, en þar fjallar hann meðal
annars um Evrópumálin, sam-
skiptin við Bandaríkin, Samfylk-
inguna og fjölmiðla.
„Mig er búið að dreyma fyrir
því að þau lendi í níunda sæti,“
segir Björk Bjarnadóttir í Nes-
kaupstað, móðir Eurovisionfar-
ans Einars Ágústs Víðissonar. Svo
sem búast má við ætlar Björk og
Iíklega velflestir Islendingar að
eyða kvöldinu í kvöld fyrir framan
sjónvarpið. Nánar um það í helg-
arblaðinu. I rúma þrjá áratugi var
Glenda Jackson ein virtasta leik-
kona Breta. Arið 1990 sneri hún
sér alfarið að stjórnmálum og
settist á þing fyrir Verkamanna-
flokkinn árið 1992. Viðtal við
hana er í helgarblaðinu.
Þær eru söngelskar systurnar
Selma og Hrafnhildur Björnsdæt-
ur þótt tónlist-
arsmekkurinn
sc ólíkur. Ragn-
heiður Jóns-
dóttir er tví-
mælalaust í
hópi merkustu
skáldkvenna Is-
lendinga á 20.
öld, en óverðskulduð þögn hefur
ríkt um verk hennar. Þetta segir
Kolbrún Bergþórsdóttir í nýrri
grein um bókmenntaarfinn.
Við minnum líka á umfjöllun
um bíó, bækur, listir og matar-
gerð, veiði, sakamál og margt
margt fleira. Góða helgi!
Selma og
Hrafnhildur.
s
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
Kynning á nýjustu línunni í innréttingum frá HTH
auk 20% afsláttar af öllum raftækjum sem keypt eru
með innréttingunni
Verið velkomin í glæsilegan sýningarsal okkar á 3.hæð í Lágmúianum