Dagur - 13.05.2000, Side 7

Dagur - 13.05.2000, Side 7
X y v r <\h RITSTJÓRN ARSPJALL S) l' l\ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 - 7 Efnahagsstjóm að hætti AMulesar Úr Sígildum sögum: Gyðjan Aþena stöðvar Akkiles í að drepa Agamemnon konung eftir að Akkiles hafði reiðst honum. Þegar ég var að taka til í skáp heima hjá mér í vikunni rakst ég á nokkur blöð af Sígildum sög- um - víðfrægu „menningarlegu" hasarblöðunum sem voru með íslenskum texta. Fyrir 10 árum eða svo var eitthvað af þessum blöðum endurútgefið og ég keypti þá nokkur blöð, svona út á minninguna um hversu verðmæt þau þóttu þegar tíðkaðist að menn skiptu á hasarblöðum á þrjú sýningum í Austurbæjarbíói og Stjörnubíói. Eg fór að fletta einu þessara blaða - það var blaðið um lllionskviðu þar sem sagði frá stríðinu um Trójuborg. Satt að segja var ég alveg hissa hvað textinn í teiknimyndablöð- unum var hrár og á köflum illa unninn, því í minningunni var hann það alls ekki. Það kom þó ekki í veg fyrir að ég færi að renna yfir blaðið, skoða mynd- irnar og rifja upp með sjálfum mér þennan einhvern frægasta og langvinnasta bardaga heims- bókmenntanna. Akkiles Þar var náttúrulega fræknastur stríðsmanna Grikkja Akkiles son- ur gyðjunnar Þetisar og manns hennar Peleifs. I dag er Akkiles þó eflaust best þekktur fýrir hæl sinn, sem þó var það síst glæsi- lega við þennan mikla kappa. Þetis móðir Akkilesar var eins og menn vita afar metnaðargjörn fyrir hönd sonar síns og vildi gera hann ódauðlegan, eins og hún var. I því skyni fór hún með hann þegar hann var kornabarn til Undirheima og dýfði honum í ána Styx og brenndi burtu dauð- leika hans með eldi. Hins vegar þorði Þetis ekki að sleppa barn- inu alveg í ána og hélt því um hælinn á honum, og var þar því þurr blettur. Annars staðar lék vatnið um barnið og gerði Akki- les ónæman fyrir vopnum. Bletturinn á hælnum, Akkilesar- hællinn, varð hins vegar hans mikli örlagavaldur. Hins vegar kom þessi blettur lítið við sögu í frægðarferli Akkilesar, sem varð mikill stríðsmaður, stoltur en afar drambsamur og taldi fátt ef eitthvað vera sér ómögulegt. (Enda með góð sambönd hjá guðunum.) Velgegnin ölvar Þegar velgengnin er langvinn og mikil er eðlilegt að menn trúi því að ekkert geti komið fyrir þá. Þeir storka örlögunum og leika sér að eldinum, en samt gengur allt einhvern veginn upp. Enda man ég ekki eftir að hafa nokk- urs staðar séð að Akkiles hafi gert einhverjar sérstakar varúð- arráðstafanir vegna hælsins á sér. Og þegar síst skyldi bankar ógæfan upp á - eiturör Parísar hitti Akkiles í hælinn þegar Akkiles hugðist ganga til við- ræðna við Trójukonung og eitrið dró þennan glæsilega hermann fljótt til dauða. Bardagar mögn- uðust um allan helming í kjöl- farið þar til Grikkir brugðu á það ráð að smíða Trójuhéstinn fræga og ætla ég ekki að rekja þá sögu frekar. Grísk klassík og efnahagsmál Það er oft talað um að þessar grísku goðsögur eða kviður séu klassískar og eigi erindi á öllum tímum. Sígildar sögur. Það er mikið til í því. Til dæmis má Ieika sér að því að sjá heilmiklar samsvaranir milli sögu Akkilesar annars vegar og sögu Davíðs Oddssonar og ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hins vegar. Bæði hlutu í vöggugjöf ákveðna forgjöf. Yfirnáttúrulegar varnir Akkilesar voru öflugar og ytri að- stæður hafa verið rfkisstjórninni afar hagstæðar lengst af. Hins vegar er ástæðulaust að gera lít- ið úr því að ríkisstjórnin hefur spilað vel úr sínum spilum rétt eins og Akkiles. Enda hafa mikl- ar efnahagslegar hetjudáðir verið unnar, þó svo að margir muni ef- laust verða til að benda á að engu að sfður hefði ýmislegt mátt enn betur fara. En hjá báð- um má líka greina ölvaðan hugs- unarhátt velgengninnar, nánast hroka gagnvart hættumerkjum og löngun til að storka örlögun- um og leika sér að eldinum. Þetta er þó virkilega hættuleg af- staða því engum cr hollt að gleyma veikleikum sínum og al- kunna er úr Islendingasögum að „dramb er falli næst“. Margradda kór Síðustu vikur og kannski misseri virðist það sjónarmið hafa ríkt hjá Davíð og ríkisstjórninni að hún þyrfti ekki að taka aðvörun- um og ekki að hlusta á „úr- töluraddir" og „heimsendaspá- menn.“ Nú er svo komið að að- vörunarkórinn er orðinn mar- gradda og teygir sig um öll helstu svið samfélagsins, en enn virðast forsætis- og fjármálaráðherra ekki trúa því að neitt geti raskað stöðugleikanum eða þcim ár- angri sem þeir hafa náð. Halldór Asgrímsson og framsóknarmenn hafa raunar ekki sýnt af sér þetta sama dramb, þó þeir virðist engu að síður ótrúlega rólegir f stöðunnni. Kannski má skýra þessi rólegheit með þvf að fram- sóknarmenn hafa þegar tekið út sinn skammt af gagnrýni f þessu samstarfi án þess að samstarfs- flokkurinn hafi blandað sér mik- ið í það mál. Nú þegar málin snerta ráðuneyti sjálfstæðis- manna telji þeir því eðlilegt að sjálfstæðismenn fái að standa fyrir sínum málum í friði líka. Hver veit? Róm brann En hvernig sem því er farið þá hafa Samtök iðnaðarins um nokkurt skeið hrópað eins og sært dýr vegna gengisþróunar- innar og innlendu kostnaðar- hækkananna og iðnaður er hugsanlega á Ieið úr landi. Ferðaþjónustan er komin í bull- andi tap og verkalýðshreyfingin, sem er nýstaðin upp úr samning- um á „skynsamlegu nótunum" sér fram á að forsendur séu að bresta vegna ofþenslunar í sam- félaginu. Fyrir rúmum áratug voru aðstæður vissulega dálítið öðruvísi, en þó ekki, því sjálf- stæðismenn sem stýrðu efna- hagsmálum voru ekki að bregð- ast við yfirvofandi efnahags- vanda. Þá var flutt fræg ræða á Hótel Sögu sem kölluð var „Róm brennur". Nú kannast enginn við neina eldhættu nema sérfræð- ingar Seðlabanka og Þjóðhags- stofnunar, Iaunþegasamtökin og Samtök iðnaðarins. Og svo auð- vitað stjórnarandsstaðan. I eldhúsdagsumræðum feng- um við að heyra frá ráðherrum að vandinn, að svo miklu Ieyti sem hann væri til, fælist í út- lánaaukningu bankanna og Seðlabankinn yrði að grípa í tau- mana. Vissulega er útlánaaukn- ing viðskiptabankanna hluti vandans og Seðlabankinn hefur vissulega verið að hækka vexti og ræða við viðskiptabankana. Gallinn er hins vegar sá að bankinn hefur einfaldlcga engin bitastæð vopn önnur. BlikUjós Seðlabanka Og talandi um Seðalabankann, þá sendi hann fyrir nokkrum dögum frá sér mikla skýrslu um efnahags- og peningamál. I þeir- ri skýrslu kemur greinilega fram að ýmis teikn eru á lofti í efn- hagsmálum. Viðskiptahallinn að verða einsdæmi meðal vest- rænna þjóða og ekkert lát virðist ætla að verða á ofþenslunni í ár eða á næsta ári með tilheyrandi erlendri skuldasöfnun og aukn- um viðskiptahalla. Það sem Seðlabankinn er að tala um er einfaldlega ógnun við stöðug- leikann þegar til lengri tíma er litið, hugsanlega hrun og tilheyr- andi eignatap bæði bjá lána- stofnunum og einstaklingum. Það sem Seðlabankinn nefnir sem hugsanleg viðbrögð gegn þenslunni er fyrst og fremst að- hald á sviði opinberra fjármála. Auk ýmissa sparnaðarhvata er bent á hefðbundnari leiðir s.s. skattahækkanir eða samdrátt út- gjalda. I nýju hefti af Peninga- málum Seðlabankans eru skila- boðin mjög á þessum nótum: „Eigi að síður virðist ljóst að þeg- ar öllu er á botninn hvolft sé leit- un að betri úrræðum til að auka þjóðhagslegan sparnað en venju- bundnar aðhaldsaðgerðir." Bætt í, ef eitthvað er! Hugsanlega er það fyrir neðan virðingu Davíðs og Geirs að taka við ráðlcggingum frá fyrrverandi pólitíkusum, í það niinnsta er ekki mikið gert með afdráttar- Iausar skoðanir Seðlabankans (og auð\átað fjölmargra annara). En drambið, sem velgengni und- anfarinna ára hefur alið af sér er slíkt að menn láta ekki einvörð- ungu ábendingar um aðhald og skattahækkanir sem vind um eyru þjóta, heldur er beinlínis farið í sérstök átök til að ganga sem mest gegn þeim. Lækkað vörugjald af stórum bensínfrek- um jeppum þýðir aukinn inn- flutning og hundruða milljóna tekjutap hjá ríkissjóði. Og nú var lika talinn rétti tíminn til að gera sérstakt 9 milljarða átak næstu fimm árin í vegamálum og leysa í leiðinni úr erfiðri deilu milli stjórnarliða úr R-kjördæmum og landsbyggðarkjördæmum. Það er náttúrulega verið að gefa Seðla- banka og öðrum sem talað hafa um ofþenslu langt nef. (Og auð- vitað hefur stjórnarandstaðan ekki bein í nefinu til að halda uppi efnislegri gagnrýni á þessa „vinsælu" ákvörðun). Slíka ákvörðun tekur tæplega nokkur nema sá sem er sannfærður um að hann sé ódauðlegur. Akkiles- arnir í íslensku efnahagsstjórn- inni ráða ferðinni og þá varðar ekki um aðvaranir frá dauðleg- um mönnum. ViösMptahallinn AMdlesarhæll Hins vegar hættir þeim sem vel gengur til að gleyma því að líka þeir eiga sér veika bletti, Akkiles- arhæla, sem geta orðið gott skot- mark ef menn ugga ekki að sér. Hinn sögulegi viðskiptahalli er augljóslega hæll hinna dramh- söntu íslensku Akkilesa. Það er kannski kominn tími til að læra svolítið af grískri klassík - Sígildu sögunum: Engar hetjur og engar hetjudáðir, hversu glæsilegar sem þær annars kunna að vera eru ódauðlegar. Þetta er bara ekki flóknara en það - því miður.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.