Dagur - 13.05.2000, Qupperneq 11

Dagur - 13.05.2000, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2000 - 11 XWwr. FRÉTTIR Háhitagufa fyrLrsurDoð Bláa lónið í Grindavík er gott dæmi um vel heppnaða tenginu ferðaþjón- ustu og jarðhita. Heilsutengd ferða- þjónusta. Sóknarfæri víða nm land. Mark- aðir í N-Evrópu, Japan og B aiidaríkj uniiin. Viðast hvar um landið eru miklir möguleikar til að byggja upp heilsutengda ferðaþjónustu með notkun jarðhita og vatns. Fyrir almenna afþreyingu virðist efna- samsetning vatns ekki skipta máli. Þarna er m.a. um að ræða staði eins og Stykkishólm, Sel- tjarnarnes, Húsavík, Öxarfjörð, Krýsuvík, Hveragerði og Nesja- velli. Þá eru einnig sóknarfæri fyrir ferðaþjónustu á þessu sviði í Eyjafirði, Borgarfirði, Barða- strönd og víðar á Vestfjörðum svo ekld sé minnst á Suðurland. Þá bendir frumathugun til þess að helstu markhópar séu í Norð- ur-Evrópu, einkum í Þýskalandi og í Japan og Bandaríkjunum. Fyrir Japansmarkað er talið væn- legra að eiga kost á háhitagufu til að útbúa súr böð sem þeir eru hrifnir af. Jarðhiti til ferðaþjónustu Þetta kemur m.a. fram í skýrslu um nýtingu jarðhita til ferða- þjónustu og þá einkum með til- liti til baðlækninga. Skýrslan sem unnin var fyrir Auðlinda- deild Orkustofnunar og Orku- sjóð var kynnt á sérstökum kynn- ingar og umræðufundi sem haldinn var í vikunni. Þessir að- ilar og Útflutningsráð hafa í sameiningu Ieitað leiða til að nýta jarðhita í ferðaþjónustu. I því skyni hefur íslenskt vatn ver- ið flokkað eftir þýskum stöðlum um heilsuvatn og markaður kannaður fyrir heilsuböð. I ávarpi sínu á fundinum sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra að þarna sé um áhuga- vert verkefni að ræða sem væri liður í því að nýta auðlindir landsins á sviði jarðhita og vatns til að laða að ferðamenn og efla um leið atvinnu- og lífskjör í Iandinu. í skýrslunni kemur fram að salt jarðhitavatn, brennisteinsríkt og flúorríkt sé að finna í talsverðum mæli hér á landi. Á háhitasvæðum sé jafn- framt möguleild til að vinna jarð- hitaleir og nýta útfellingar. Hrefna Kristmannsdóttir verk- efnisstjóri hjá Orkustofnun segir að ljóst sé að töluverð viðbótar- vinna sé framundan við mark- aðskönnun þva auðlindin sé til staðar. Hún segir að þessum hluta verkefnisins verði lokið með almennri kynningu og kynningarfundum með sveitarfé- lögum sem hafa mesta mögu- leika á að koma upp þessari ferðaþjónustu. — GRH Skattekjur „mokast“ inn í rfldssjóð Almeim stjóm og lög- gæsla 25% dýrari en fyrir ári. Beinar skatttekjur nú 20% hærri en í fyrra. Ríkissjóður fékk nær 3 milljörð- um eða 20% hærri upphæð í beina -skatta fyrstu þrjá mánuði ársins en á sama tíma í fyrra (17,2 milljarða í stað 14,3 í fyrra). Tekjuskattur einstaklinga (brúttó) er nú nær 13% hærri, eignarskattar hafa hækkað álíka og tekjur af fjármagnstekju- skatti, eru nú næstum 60% hærri en fyrir ári, eða 3,6 millj- arðar króna á aðeins þrem mán- uðum. Tekjuhækkun af óbeinum sköttum er helmingi minni, tæp 10%. Skil á virðisaukaskatti (14 milljarðar) og bensíngjöldum eru að vísu 14% hærri en í fyrra. Áfengisgjöld hafa hækkað um 9%, tryggingagjöld 5% og bif- reiðagjöld eru nú aðeins 4% hærri en á sama tíma í fyrra. Heildartekjur ríkissjóðs voru tæplega 50 milljarðar á fyrsta ársljórðungi, rúmlega 12% eða 5,5 milljörðum hærri í fyrra, samkvæmt Hagtölum Seðla- hankans. Kerfið blæsút Ríkisútgjöldin hafa á sama tíma hækkað um 10,5% og voru rúm- ir 45 milljarðar jan.-mars. At- hygli vekur að almenn stórn og löggæsla hafa kostað 25% meira það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Af einstökum mála- flokkum er langmest hækkun á vaxtagjöldum 28%, iðnað- ar/orkumálum 27% og heilbrigð- ismálum 16%, en athygli vekur að útgjöld vegna tryggingamála eru nú 4% lægri en fyrir ári. Og utanríkismálin hafa kostað 11% minna en í fyrra. - HEI Dröfn Friðfiimsdóttir látin Dröfn Friðfinnsdóttir graf- íklistakona á Akureyri er látin. Hún var fædd 21. mars 1946 og var dóttir hjónanna Sigríðar Kristín- ar Einarsdóttur og Frið- finns S. Arnasonar. Nám við Handíða- og mynd- listaskólann í Reykjavík stundaði Dröfn árið 1963 og á síðasta áratug við Myndlistaskólann á Akur- eyri og í Finnlandi. Um dagana liélt Dröfn margar einkasýningar og tók þátt í fjölda samsýn- inga, bæði heima og er- lendis. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar, meðal Dröfn Friðfinnsdóttir á vinnustofu sinni. annars menningarverð- laun finnska sjónvarpsins árið 1996 og heiðursviður- kenningu í Tékkóslóvakíu 1998 og sama ár var hún bæjarlistarmaður á Akur- eyri. Dröfn var einn af bestu grafíklistamönnum ls- Iands og sótti mikið form og liti í listsköpun sinni í náttúruna, landið og sitt nánasta umhverfi sem var henni mjög hugleikið. Eiginmaður Drafnar var Guðmundur Óskar Guð- mundsson og eignuðust þau þrjár dætur og fimm barnabörn. Kvennafangelsi fær GiiUprjóna Tinna-Prjónablaðið Ýr hefur veitt Kvennafang- elsinu í Kópavogi viður- kenningu sína, Gullpijóna ársins 2000. Hjá Kyenna- fangelsinu hefur Aslaug Ólafsdóttir haft yfirum- sjón með handmennt. Undanfarin ár hafa fjöl- margar fallegar flíkur orð- ið til innan veggja fangels- isins og er það ekki síst fyrir atbeina Aslaugar að margar konur hafa aftur Frá afhendingu Gullprjónanna í vikunni. tekið upp íslenska hand- verkið. Að hennar sögn hefur slíkt hjálpað, ekki bara viðkomandi, heldur líka haft jákvæð áhrif á starfsandann. Listaverk Langholtsskólanemenda afkjúpað Forelarafélag Langholtsskóla heldur hinn árlega vordag næstkomandi laugardag 13.maí. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur til kl. 16 . Meðal dagskrárliða er ávarp skólastjóra, borgarstjóri kemur og afhjúpar lista- verk eftir nemendur skólans kl. 13:30. Skemmtiatriði á vegum nemanda, söngur, dans og leikþættir. Frá kl. 13:15 - 14:30. Sýning á vinnu nem- enda í heimastofnunum þeirra og kennarar á staðnum. Andlitsmálun, Ieiktæki og hægt að fara á hestbak. Nemendur 4. bekkjar spreyta sig á pönnukökubakstri. Pylsur á grillinu, seldar á vægu verði. Kaffisala í um- sjón nemenda. Bestu kveðjur Helga S. Sigurjónsdóttir í stjórn foreldra- félags Langholtsskóla. Ríiiirniasainningur um tölvur Nýr rammasamningur um Tölvur, jaðartæki, rekstrarvörur og skyldan búnað hefur verið undirritaður af Ríkiskaupum og nokkrum tölvufýrir- tækjum. Samningurinn er umsvifamesti samningurinn í rammasamn- ingakeríj Ríkiskaupa, og hefur velt um 300 m.kr. Aðilarnir sem samn- ingurinn er gerður við eru: Aco hf., EJS hf., Nýherji hf., Opin kerfi hf. og Tæknival hf. Þetta eru Ieiðandi aðilar í þessum viðskiptum á Islandi og gefst áskrifendum rammasamningskerifsins umtalsvert svigrúm í vali á búnaði auk þess sem í boði eru góð kjör sem nást fram meðsamstöðu kaupenda. En seljendur fá á móti stóran hóp viðskiptavina og njóta þeirr- ar viðurkenningar sem felst í því að vera valinn sem seljandi í ramma- samningakerfið, enda miklar kröfur gerðar til gæða vöru þjónustu og fag- mennsku í hvívetna. Vilja íslenskt nafn - Stihla Nafni Ijarskiptafyrirtækisins TNets, sem er í eigu Landsímans, Lands- virkjunar og TölvuMynda, hefur verið breytt og heitir fyrirtækið nú Stilda. Auk þess að nafnið var mjög líkt vörumerki erlends fyrirtækis, þá var ákveðið að betur færi á því að hafa nafn fyrirtækisins íslenskt. Stikla vinnur nú að uppsettningu Tetra-farstöðvakerfis síns, sem byggt er á búnaði framleiddum af Nokia í Finnlandi og mun fyrirtækið bjóða þjón- ustu sína á næstu vikum. Mótmæla láguin daggjöldum Aðalfundur Sjómannadagsráðs sem á og rekur Hrafnistuheimilin í Reykjavík og í Hafnarfirði mótmælir harðlega þeim mismun á dagjöldum sem fram kemur í nýlega undirrituðum samningi heilbrigðis- og tryggina- málaráðuneytisins vegna nýs hjúkrunarheimilis við Sóltún og þeim dag- gjöldum sem Hrafnistuheimilin búa við í dag. Daggjöld Hrafnistuheimilanna hafa samkvæmt upplýsingum frá Sjó- mannadagsráði verðið vanreiknuð til margra ára, sem leitt hefur til mjög erfiðs reksturs undanfarin árn. Reynt hefur verið að fá leiðréttingu á dag- gjöldum án þess að það hafi borið árangur og horfir nú til verulegs tap- reksturs á þessu ári. 1 ljósi þeirra daggjalda sem hjúkrunarheimilinu við Sóltún verður greitt krefst aðalfundurinn þess að daggjöld Hrafnistu- heimilanna verði leiðrétt nú þegar. Útskriftartónleikar Dóra Erna Ásbjörnsdóttir ft.v.) er að Ijúka 8. stigi á píanó og þau Snorri Hjálmarsson, Guðfinna Indriðadóttir og Margrét Guðjónsdóttir eru að Ijúka 8. stigi í söng við Tónlistarskóla Borgarfjarð- ar og munu þau öll halda útskriftartónleika sína um helgina. - mynd: ohr Tónlistarskóli Borg- arljarðar útskrifar nú Ijóra nemendur með 8. stig. Að þessu sinni útskrifar skól- inn nemanda með 8. stig í píanóleik, það er Dóra Erna As- björnsdóttir og mun hún halda sína út- skriftartónleika í Borgarneskirkju laug- ardaginn 13. maí nk. kl. 1 7:00. Þrír söngnemend- ur luku 8. stigs prófi að þessu sinni. Það eru Guðfinna Ind- riðadóttir, Margrét Guðjónsdóttir og Snorri Hjálmarsson. Þau munu halda útskriftartónleika sunnudaginn 14. maí nk. kl. 20:30 í Borgarnes- kirkju. Tónleikarnir eru öllum opnir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.