Dagur - 03.06.2000, Side 1
1
MS-siúklingar sitja
fastir í kemsdeilu
Tregða í heilbrigöis
kerfLiiu hefur valdið
því að stór hópur MS-
sjúkliuga fær ekki
þaim skanunt af
taugalyfi sem til þarí.
Hið versta mál, segir
landlæknir.
„Ég veit ekki hvað skal segja. Það
er eins og að þessir sjúklingar séu
fastir í einhverjum Bermúda-þrí-
hyrningi. Það virðist vera einhver
togstreita milli stofnana sem við
líðum fyrir. Einnig er það erfitt
fyrir lækna að vita að þeir séu að
gefa Iyíjaskammt sem dugar ekki.
Vonandi fara þessi mál að leys-
ast,“ segir Vilborg Traustadóttir,
formaður MS-félagsins, en stór
hópur MS-sjúklinga, um 80-100
manns, hefur ásamt sínum
taugalæknum staðið í stappi við
heilbrigðiskerfið hér á landi síð-
astliðin tvö ár til að fá aukinn
skammt af lyfinu Interferon beta,
sem heldur sjúkdómnum niðri og
seinkar einkennum hans um
mörg ár. Sjúklingarnir, sem flest-
ir eru á aldrinum milli tvítugs til
fimmtugs, hyggja
sína framtíð á þessu
lyfi. Rannsóknir
hafa sýnt með
óyggjandi hætti að
sá skammtur sem
gefinn er í dag, 22
milligrömm einu
sinni í viku, gæti
lengt lífdaga sjúk-
linganna verulega,
ef hann væri gefinn
þrisvar í viku.
Betrumbót var síð-
ast lofað 1. apríl sl.
en enn hefur ekkert gerst.
Ekkl til eftirbreytni
Sigurður Guðmundsson Iand-
læknir sagði í samtali við Dag að
embætti hans hefði reynt mikið
til að koma málinu í höfn, enda
væri það skylda heilbrigðiskerfis-
ins. Svo virtist sem einhver
tregða væri í kerfinu sem væri
ekki til eftirbreytni. Vandamál
virtust vera vegna skiptingu
greiðslna milli Tryggingarstofn-
unar og spítalanna.
„Pólitískur vilji er fyrir þessu
og faglega séð er
þetta engin spurn-
ing. Það er hið
versta mál að við
getum ekki boðið
upp á þessa með-
ferð. Við verðum að
gera allt sem í okk-
ar valdi stendur til
að flýta þessu. Það
er ekki mjög skyn-
samlegt að beita
meðferð sem ekki
skilar tilætluðum
árangri," sagði Sig-
urður. Meðal aðgerðanna er að
koma á framfæri klínískum leið-
beiningum um bestu noktun lyfs-
ins í samráði við taugalækna.
Einnig verði reynt að meta í
starfshópi lækna hve margir sjúk-
lingar hefðu not af þreföldum
skammti og að þeir fái hann sem
fyrst.
Skammturinn sem MS-sjúk-
lingar hafa fengið seinkar helstu
einkennum sjúkdómsins um 25-
30%, þ.e. um 3 ár á 10 ára tíma-
bili, en þrefaldur skammtur er
sagður gefa 65-70% árangur. Eft-
ir því sem næst verður komist er
svona lítill skammtur af lyfinu
ekki gefinn í öðru vestrænu
landi, þar sem það er á annað
borð notað. Annað lyf svipaðs
eðlis er einnig í gangi, einkum í
Bandaríkjunum.
Interferon beta var óskráð þar
til um síðustu áramót. Þegar lyf-
ið var tekið í notkun árið 1996
kostaði ársskammtur fyrir hvern
sjúkling 700 þúsund krónur og í
dag er hann kominn niður í
kringum 400 þúsund krónur.
Þrefaldur skammtur gæti því
kostað á bilinu 1,1 til 1,2 millj-
ónir króna.
Málið í hnút
Aðspurður um ástæður þess að
afgreiðsla málsins hefur tafist í
kerfinu, sagði Þórir Haraldsson,
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra, að málið væri í hnút sem
það ætti ekki að vera í. Vonandi
fyndist lausn innan tíðar. - BJB
létta mörgum MS- sjúkling-
um h'fið, væri skammturinn
þrefaldadur.
Langflestir þeirra sem greiddu
atkvæði um spurningu Dags á
Netinu segja að einkalíf forseta
íslands komi þeim ekkert við.
Mikil þátttaka var í atkvæða-
greiðslunni, því rétt um tvö þús-
und manns svöruðu spurning-
unni: „Skiptir einkalíf forsetans
þig máli?“ Yfirgnæfandi meiri-
hluti, eða 90%, svöruðu því neit-
andi. Aðeins 10% töldu að
einkalíf forsetans skipti þá máli.
Spurt var í tilefni af blaða-
mannafundi þar sem forsetinn
opinberaði trúlofun sína og Dor-
rit Mousaieff.
Nú er hægt að greiða atkvæði
um nýja spurningu Dags á Net-
inu. Hún hljóðar svo: A „kynvill-
ingur“ að vera bannorð f fjöl-
miðlum? Spurt er vegna fram-
kominnar kæru á hendur sjón-
varpsstöðinni Omega. Slóðin er
sem fyrr www.visir.is
Sjómeim, til haniingju
Sjómannadagurinn á morgun er haldinn hátíðlegur víða um land. Umfjöllun tengd sjómannadegi er að finna víða í
blaðinu t dag. Viðtal er við formann Sjómannasambandsins á bls. 4, ritstjórnarspjall á bls. 7 er helgað þessum
degi, á bls. 18 er rætt við formenn sjómannadagsráðs á Akureyri og í Reykjavík og umfjöllun er í íslendingaþátt-
um. Á myndinni eru kátir sjómenn Margrétar EA, á leið í land í vikunni með metafla. Þeir halda án efa upp á
daginn, líkt og kollegar þeirra um land allt. mynd: brink
tJrill forræðis-
hyggja sjálf-
stæðismanna
„Núna er umburðarlyndið alger-
lega horfið og í staðinn er komin
úrill forræðishyggja þar sem
flokkurinn gerist eins konar hug-
myndalögga að sovéskum sið.
Það sást vel þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn lagðist í hælana á
mætum klerki fyrir að skrifa
smásögu sem flokknum þótti
vond en ekki síður þegar þetta
gamla bólvirki kirkjunnar taldi
viðeigandi að halda upp á þús-
und ára afmæli kristnitökunnar
með því að lemja sjálfan hisk-
upinn opinberlega fyrir að vera
klisjukall af því hann leyfði sér
að telja að bilið milli ríkra og fá-
tækra hafi breikkað f góðærinu."
Þetta segir Ossur Skarphéðins-
son formaður Samfylkingarinnar
m.a í helgarviðtali.
Margs er að gæta í útlöndum;
sólin, matarræðið og skordýrin
geta verið varhugaverð. Farar-
stjóri hjá Samvinnuferðum
Landsýn upplýsir lesendur Dags
um hvað ber að varast.
Islenskur saltfiskur er veislu-
matur víða, en ekki bara mánu-
dagsmatur alþýðunnar. Elvar
Reykjalín segir frá því í Matar-
gatinu.
Þeir eru orðnir
þekktir í fjöl-
miðlum bræð-
urnir Sigurjón og
Sindri Páll Kjart-
anssynir. Sigur-
jón hóf feril sinn
1994, en Sindri
byrjaði í brans-
anum síðastliðið haust. Nánar
um þá bræður í helgarblaðinu.
Dagur mun næstu vikur birta
verðlaunasögur úr smásagna-
samkeppni Menningarsamtaka
Norðlendinga og Dags. Og að
sjálfsögðu er byrjað á sögunni
sem fékk fyrstu verðlaun.
I þættinum Sönn dómsmál er
að þessu sinni fjallað um ban-
væna afbrýðissemi.
Margt fleira - góða helgi!
Sigurjón og
Sindri Páll.
DEH-P3100-B
• 4x45 magnari • RDS
• Stafrænt útvarp FM MW LW
• 24 stöðva minni • BSM • Laus framhlið
• RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn
• Loudness þrískiptur
| Setjum tækið f bílinn
þér að kostnaðarlausu
Gerir góðan bíl betri
Qelslagötu 14 • Slml 462 1300