Dagur - 23.08.2000, Side 4
4 - MIDVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2000
FRÉTTIR
;
szr* : í mí pSw Á191
jl5l
Hilmir Snær Guðnason mun leika í Borgarleikhúsinu í vetur auk Þjóðleikhússins. Ekkert er til íþví að hann sé á förum til Leikfélags
íslands. Alla vega ekki þetta haustið. - mynd: gva
Leikhúsdeilaii
er engin deila
I fjölniiðlum hefur geisað
mildð stríð á milíi stóru
leikhúsaima í Reykjavik og
þaö fer eftir því hvaða hlað
er lesið hvar HUmir Snær
Guðnason er í viunu. Dag-
ur fór í ferð að leita sann-
leikans.
„Ég held að þessi miskilningur stafi af því
að að ég hef átt viðræður við Leikfélag Is-
lands um hugsanlegt samstarf við þá en
þá ekki fyrr en næsta vetur. Ég er fastráð-
in hjá Þjóðleikhúsinu þetta leikárið og
mun taka þátt í verkefnum hjá Borgar-
leikhúsinu. Viðræður mínar við Leikfélag
íslands eru enn á umræðustigi og það er
aldrei að vita hvað gerist næsta haust.
Kannski var þetta rétt frétt en bara á vit-
lausu hausti," segir Hilmir Snær Guðna-
son um þá frétt DV að hann sé fastráðin
hjá Leikfélagi Islands í vetur.
Má ekM birta hvaða vitleysu sem er
í Borgarleikhúsinu eru menn pirraðir út
af málinu. „Þetta er hlægilegt og það eru
blöðin sem koma hvað verst út úr þessu.
Er hægt að koma með hvaða vitleysu
sem er í auglýsingaskyni og hún er birt.
Ef blaðamenn heyrðu að Olafur Ragnar
væri orðinn forseti Færeyja mynduð þið
þá ekki hringja fyrst og athuga sann-
leiksgildi sögunnar. Þessi kynning minn-
ir mig einna helst á beru stelpurnar í
Canne sem kasta fötum í von um smáat-
hygli. Ég er þreyttur á að eyða orku í
þetta mál og ætla að snúa mér að mál-
efnum leikhúsins,“ segir Guðjón Peter-
sen, leikhússtjóri í Borgarleikhúsinu.
Guðjón segir að vissulega sé það rétt
að Edda Björgvinsdóttir hafi sagt upp
samningi við húsið. „Það hefur verið
þannig árum saman að leikarar eru lán-
aðir á milli húsa og það er nákvæmlega
það sem er að gerast núna. Friðrik Frið-
riksson og Halldór Gylfason hafa verið
lausráðnir hjá okkur og verða það áfram
því báðir taka þeir þátt í uppfærslu hjá
Borgarleikhúsinu í vetur.“
Allt á misskilningi byggt
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri
hjá Leikfélagi lslands hafði í gær ekki
undan að svara í síma og segir málið hafi
verið blásið upp af fjölmiðlum. „Við
greindum frá því hverjir eru fastráðnir
hjá okkur í vetur en greindum frá því að
Hilmir Snær yrði fastráðinn hjá okkur
næsta haust. Það er hins vegar óná-
kvæmt orðalag því ekki hefur verið geng-
ið frá endanlegum skriflegum samningi
okkar á milli. I einhveijum fjölmiðli kom
málið út eins og við hefðum fastráðið
alla þessa Ieikara en svo er ekki. Við höf-
um eins og undanfarin ár lausráðið leik-
ara en breytingin er sú að við höfum ráð-
ið í fullt starf þetta leikárið 5 Ieikara.
Það sem við gerðum var því einfaldlega
að kynna leikarahóp okkar þetta leikárið
og það eru eðlileg og gleðileg tíðindi.
Það að stilla þessu upp sem einhveiju
stríði við Þjóðleikhúsið er því tilbúning-
ur Ijölmiðla en ekki frá okkur komið.
Fyrsta sýning ársins verður Trúðleikur
eftir Hallgrím H. Helgason. Þar leikstýr-
ir Orn Arnason þeim Friðriki Friðriks-
syni og Halldóri Gylfasyni og við mun-
um síðan bráðlega kynna verkefnaskrá
vetrarins sem er afar spennandi," segir
Magnús Geir. — GJ
Halldór
Ásgrímsson.
í heita pottinum hafa
menn nokkuð rætt það
sem Alfreð Þorsteinsson
sagði í viðtali við DV í síð-
ustu viku um að honum
finndist Framsókiiarílokkurinn
eigi að mynda vinstri stjóm und-
ir forsæti Halldórs Ásgrímssonar
eftir næstu alþingiskosningar.
Pottveiji sem kann að lesa á milli
línanna í pólitík sagði að þetta
væri snallt bragð hjá Alfreð. Ef
hann fengi memi til að miða á
vinstri stjóm eítir þingkosning-
ar eftir tæp 3 ár þá geta framsóknarmenn í
Reykjavík ekki slitið R-listasamstarfinu í horg-
arstj ómarkosningum eftir tæp tvö ár en Alfreð
er afar hlynntur því að það samstarf haldi áfram.
Framsóknarmenn sumir hverjir segja að flokk-
urinn þurfi að bjóða fram sinn lista til að verða
sýnilegri í borgarstjóm. Ehm pottveijixm spurði
hvort flokkuiinn yrði sýnilegri með einn eða tvo
borgarfulltma í stjómarandstöðu?!...
En það em fleiri
snúningar á yf-
irlýsingum Al-
freðs, m.a. þeim
að hann telji að
næsti varafor-
maður þurfi að
koma af höfuð-
borgarsvæðinu.
Slíkt er af mörgum talið ígildi þess að Alfreð sé
að bjóða Siv Friðleifsdóttur upp í dans, en hún er
sú eina af meintum varaformannsefnum sem
kemur úr þéttbýlinu. Hvort úr þessu verður póli-
tískt bandalag fyrir flokksþingið þykir hins veg-
ar enn of snemmt að spá um...
Og meira um framsóknarmenn og vinstri stjóm
eftir 3 ár. Framsóknarmaðurinn í hópi pottveija
sagði það almennt álit framsóknarmanna að
mun betra yrði að starfa með því unga liði sem
nú er í foiystu Samfýlkingar og VG heldur en
þeiin gömlu jöxlum sem vom í foiystusveit A-
flokka fyrir nokkram áram. Þess vegna gæti orð-
ið mun auðveldara að mynda vinstri stjóm nú
en áður var.
Alfreð
Þorsteinsson.
Siv Friðleifs-
dóttir.
FRÉTTAVIÐTALID
ílest komið á sinn stað
Ingunn
Guámundsdóttir
fonnaðurSamtaka sunnlenskra sveit-
arfélaga.
Suntilenskir sveitarstjómar-
menn leggja tilaðaíhugað
verði með uppkaup hættulegra
húsa ogaðóeðlilega lágt
brunabótamat þegarónýtra
húsa verðifelltað endurstofn-
verði
- Hafa ekki vandamál í kjölfar jarðskjálfl-
anna komið á ykkar borð hjá Samtökum
sunnlenskra sveitarfélaga?
„Það er Ijóst að brunabótamatið er víða
byggt á gömlum forsendum. Fólk er að fá
altjón á húsum sínum, en upphæðirnar bjóða
ekki upp á endurbyggingu. 1 nýlegri ályktun
samtakanna er eindregið hvatt til þess að
brunabótamat húsa sem skemmdust verði fellt
að endurstofnverði þeirra. Því ýmsir þeirra
sem misstu húsnæði sitt f jarðskjálftunum eiga
þess engan kost að koma sér upp sambærilegu
húsnæði út á bætumar, nema að þetta sé lag-
að.
I annan stað er hvatt til þess að sérstaklega
hugað verði að ástandi húsa sem verið gætu
varasöm eða byggð úr vafasömu byggingarefhi
- samanber reynslu eftir síðasta skjálfta - og
kannað hvort öryggi íbúa svæðisins sé tryggt til
frambúðar. Sé verið að spá því að það eigi eft-
ir að koma til frekari skjálfta og að fleiri hús
eigi eftir að eyðileggjast þá er spumingin hvort
ekki sé rétt að ræða fyrirbyggjandi aðgerðir.
Við höfum borið þetta saman við þær að-
gerðir sem ákveðnar hafa verið á snjóflóða-
bættusvæðum - þar er verið að kaupa upp hús
á hættusvæðum. Að okkar mali er alveg eins
ástæða til að huga að því hér að kaupa hér upp
hús eða mannvirki sem inenn telja nokkuð ör-
uggt, eða næsta víst að séu varasöm í hörðum
skjálfta. Vitað er að einhverjar byggingar eru
taldar varasamar".
- Hvaða viðbrögð hafa orðið við þessum hug-
myndum?
„Það eru engar formlegar umræður hafnar
en farið að þreifa óformlega á þessu í kerfinu.
Umræðan er til alls fyrst í þessu sambandi og
við viljum koma henni í gang. Síðan þarf að
fara ofan í saumana á þessum málum, sjá hvað
hægt er og hvað ekki. Og ræða við þá sérfræð-
inga sem hugsanlega myndu vinna slíkt mat“.
- Heyrst hefur að brunabótamat á heilum
tbúðarhúsumfari niður undir 4 milljónir. Af
hvetju hefúr það ekki hækkað með vísitölum
eim og flest annað og eins og ýmsir hafa ef-
laust reitt sig á?
„Auðvitað ætti það að hækka með vísitölu.
En þeir segja að hver og einn þurfi að fylgjast
með mati á eigin eignum og óska endurmats
telji þeir það orðið of lágt. Hins vegar þarf
enginn að hafa áhyggjur af að vísitölur hús-
næðislánanna fylgi ekki verðlagi. Það má því
spyrja hvers vegna ekki gildi |>aö sama um
matið á húsunum - sem einmitt eru oftast í
vcði fyrri lánunum.
Á hinn bóginn er það nú svo, að ýmsir hafa
amast við því þegar eignir þeirra hafa verið
teknar til endurmats einhverra hluta vegna og
matið hækkað, sem þá þýðir hærri skatta og
gjöld. En þegar á reynir og fólk áttar sig á sam-
henginu, þá er það bara orðið of seint“.
- Er enginn uggur í fólki í útsveitum Ár-
nessýslu um að það eigi eftir að fá yfir sig
áltka skjálftahrinu og Rangæingar?
„Ekkert meiri en verið hefur. Fólk er með
báða fætur á jörðinni í þessum efnum og hugs-
ar um þetta á raunsæjum nótum. Ég veit að
ýmsir hafa haft varann á og tekið öryggismálin
til endurskoðunar, sérstaklega fyrst á eftir.
Fest hillur í veggi, tekið niður þunga muni og
þess háttar. En ég tel líklegt að flestalt sé það
aftur komið á sinn stað. Eg verð ekki vör við
að fólk búi við neina angist. En menn eru að
ræða alvörumál, einkum á þessum sveitar-
stjórnarvettvangi og huga að því hvernig ýms-
um hlutum verði best borgið". — HEI