Dagur - 23.08.2000, Síða 6
6 - MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 2 000
rD^tr
ÞJÓDMÁL
Útgáfufélag: dagsprent
Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson
Ritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson
Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson
Skrifstofur: strandgötu 3i, akureyri,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
Símar: 460 6ioo OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 KR. Á mánuði
Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað
Grænt númer: 800 7080
Netföng auglýsingadeildar: karen@dagur.is-augl@dagur.is-gestur@tf.is
Símar auglýsingadeildar: (heykjavík]í>(í3-i 61 b Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍKJ563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRIJ460-6192 Karen Grétarsdóttir
Símbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Símbréf ritstjórnar: 460 6171(AKUreyrij 551 6270 (reykjavíkj
Vanda þarí til verka
í fyrsta lagi
Skipulagsstofnun hefur samþykkt áætlun Landsvirkjunar um
hvernig staðið verður að mati á umhverfisáhrifum hinnar risa-
vöxnu Kárahnjúkavirkjunar - en „með fyrirvara um nánari skoð-
un einstakra þátta matsins“ eins og segir í úrskurði stofnunar-
innar. Stefnt mun að því að skýrsla Landsvirkjunar um niður-
stöður matsins verði auglýst þegar í marsmánuði næstkomandi -
eða um einu ári áður en stjórnvöld hyggjast ljúka vinnu við svo-
kallaða Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Hefði
þó verið eðlilegra og æskilegra að þessi langstærsta fyrirhugaða
virkjun Iandsins yrði tekin með í rammaáætlunina, ef sú áætlun
á að standa undir nafni.
í öðru lagi
Náttúruverndarmenn hafa gert ýmsar athugasemdir við matsá-
ætlun Landsvirkjunar, ekki síst þann mikla flýti sem virðist ráða
för. Þessi gagnrýni kom Ijóslega fram í samantekt í Degi um
helgina, en þar fengu vinnubrögð Landsvirkjunar við umhverfis-
matið einkunnir eins og fljótaskrift og sýndarmennska. Hvort
þessi gagnrýni á rétt á sér kemur auðvitað í Ijós þegar skýrslan
verður birt eftir áramótin. Hins vegar er full ástæða til að leggja
mikla áherslu á nauðsyn þess að vanda sérlega vel til mats á um-
hverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar. Með Eyjabakkaumræðuna
í huga ætti það að vera hagsmunamál allra sem að virkjunarmál-
unum koma að hægt verði að byggja umræðu og ákvarðanir um
hugsanlegar framkvæmdir á traustum visindalegum grunni.
í þriðjalagi
Telja má víst að fyrirhuguð Kárahnjúkavirkjun, og tilheyrandi
risaálver við Reyðarfjörð, verði eitt af stærstu málum Alþingis
næsta vetur. Þótt sumir séu alfarið á móti framkvæmdum af
þessu tagi og líti svo á að betra sé að nýta auðlindir landsins
norðan Vatnajökuls með öðrum hætti, eru hinir þó fleiri sem
taka þá fyrst afstöðu til málsins þegar öll gögn Iiggja fyrir um
kosti og galla virkjunar og álvers og áhrif þeirra á landið og
byggðina. Einmitt þess vegna er mikilvægt að vanda vel til verka.
Elías Snæland Jónsson.
50 þiísimd á hátíð
Garra sýnist greinilegt á umræð-
unni að menningarnóttin í
Reykjavík hafi heppnast vonum
framar, enda fjölmenntu lands-
menn niður í miðbæ til að taka
þátt í hátíðahöldunum. Talað er
um að allt að 50 þúsund manns
hafi verið í bænum þegar mest
var, en það eru hátt í 20% lands-
manna. A vakt voru hins vegar
60 lögregluþjónar sem vissulega
er þunnt smurt en allt bjargaðist
þetta í horn. Menningarnóttin
skiptist líka í tvo hluta, fyrir og
eftir flugeldasýningu. Fyrir sýn-
inguna fór allt vel
fram og allir voru
glaðir og ánægðir og í
menningarlegum
hugleiðingum. Eftir
flugeldasýninguna
urðu menn hins veg-
ar fullir reiði, fullir
pirrings eða bara
fullir í hefðbundnum
skilningi. Ástæða
reiðinnar og pirrings-
ins var umferðaröng-
þveitið, cn ólundin rauk þó úr
flestum þegar úr þessu raknaði.
Mannfræðilegt
Þessi menningarnótt er í raun-
inni merkilegt fyrirbærí sem vert
væri að gera mannfræðilega
rannsókn á. Sérstaklega er at-
hyglisvert að sjá hversu margir
fóru í bæinn til þess að horfa til
himins, á meðan á flugeldasýn-
ingunni stóð. Þetta er ekki síst
athyglisvert mannfræðilegt
rannsóknarefni í ljósi þess að
eitt heitasta umræðuefnið þessa
dagana er að aðeins rúmum
mánuði áður var haldin önnur
stórhátíð þar sem menn hugðust
horfa til himins líka, en á þá há-
tíð mættu ekki nema örfáir. Sú
hátíð var haldin á Þingvöllum af
ríkisstjórn Islands og þjóðkirkj-
unni. Þegar þessar hátíðir eru
bornar saman kemur í Ijós að
miðað við lengd undirbúnings,
V
umfang löggæslu, tilkostnað og
auglýsingu hefðu 50 þúsundin
átt að vera á Þingvöllum en ekki
á menningarnótt í miðbænum,
sem aftur kallar á að menn reyni
að átta sig á hvaða lögmál eru að
verki varðandi útisamkomur á
Íslandi.
Hápunkturiiui!
Kirkjunnar menn hafa keppst
við að kenna fjölmiðlum um
óvandaða umfjöllun um kristni-
hátíð og að þeir hafi þannig
mótað almenningsálitið gegn
henni og Halldór
Blöndal tyggur þetta
upp á Hólahátíð.
Menn eru þó að leita
langt yfi r skammt því
þeir þurfa ekki annað
en líta til menningar-
nætur í Reykjavík til
að sjá hvað það er
sem gerði gæfuniun-
inn: Það var flugelda-
sýningin. Það voru
allir að fara í bæinn
til að sjá flugeldasýninguna!
Hún var hápunktuninn! Há-
punktur kvöldsins! Hápunktur
hátíðarinnar! Hápunktur menn-
ingarinnar! Á Þingvöllum var
hins vegar engin flugeldasýning
- bara einhver gospelsöngur og
endalaus kórsöngur til dýrðar
drottni á himnum. En það var
engin flugeldasýning og á Is-
landi er það ígildi mannfæðar.
Garri leggur þvf til, enda ekki
ráð nema í tírna sé tekið, að á
næstu kristnihátíð verði talað
við Alfreð Þorsteinsson og
Orkuveitu Reykjavíkur og hún
fengin til að kosta góða flugelda-
sýningu. Þá munu menn sjá að
fleiri fagna tvö þúsund ára
kristnitökuafmæli en þúsund
ára afmælinu - sem aftur yrði jú
vísbending um að kristnin væri á
réttri leið! - CARRI
jr^v JÓHANNES
'1 5? <c SIGURJÓNS
SON
j SKRIFAR
Nú liggur það fyrir að 1 18 rúss-
neskir sjómenn hafa látið lífið í
kaíbátnum Kúrsk sem liggur á
botni Barentshafs og er harmur
kveðinn að fjölskyldum þeirra og
rússnesku þjóðinni. Og reiði. Al-
menningur í Rússlandi er reiður
út í stjórnvöld ogyfirmenn flotans
fyrir slælega framgöngu þeirra í
málinu, fyrir að hafa ekki þegið
aðstoð erlendis frá og fyrir að hafa
logið að þjóð sinni.
Þetta mál er enn eitt dæmi um
ástandið þarna eystra, þar sem
allur tækjakostur er úr sér geng-
inn, flugvélar hrapa og kafbátar
sökkva og kjarnorkuver leka. Og
ástandið virðist fara hríðversn-
andi, ekki síst þar sem stjórnvöld
eru vanmáttug og frjálsir og óháð-
ir glæpamcnn hafa tekið við hlut-
verki krimmanna sem stjórnuðu í
Krcml á sínum tíma.
Sovéska heygarðshomið
Og ekki bætír það úr skák að rúss-
Þegar lygin ein er eftir
nesk stjórnvöld halda sig við
gamla sovéska heygarðshornið í
íygum og leynimakki. Og þeim er
kannski vorkunn því það er erfitt
að breyta hugsunarhætti sem
nokkrar kynslóðir hafa alist upp
við og tamið sér. Gömlu Sovétrík-
in byggðust ósköp einfaldlega að
lygi. Sovésk stjórnvöld lugu að
þjóð sinni, lugu að umheiminum
og lugu sjálf sig full. Því alltum-
lykjandi sjálfsblekking var ekki
síst það sem tryggði tilverugrund-
völl Sovétríkjanna svo lengi sem
raun bar vitni.
I kerfi sem átti að vera hið full-
komnasta í heimi, var ekkert pláss
fyrir slys, óhöpp og mannleg mis-
tök. Þess vegna var öllu sem úr-
skeiðis fór haldið leyndu, kjarn-
orkuslysum, hungursneyð, upp-
skerubresti, glæpatíðni. Öllu sem
miður fór í Sovétinu var sópað
undir teppið.
Undir teppió
Og það er enn að gerast. Ráða-
rnenn í Rússlandi æt'uðu sér ör-
ugglega að reyna að sópa kafbátn-
um Kúrsk undir teppið svo lítið
bæri á. Og eins og áður sagði,
þeim er sumparl vorkunn. Við
þessar aðstæður eru lygin og
leyndin eiginlega skilyrt viðbrögð,
rétt eins og hjá hunduni Pavlovs á
sínum tíma. Enn sem komið er
eru rússneskir ráðamenn ófærir
um að bregðast við á annan hátt.
En það er hins vegar Ijós í
myrkrinu og þar hefur brcyting
vissulega orðið á þar eystra, að nú
geta fjölmiðlamenn og almenn-
ingur gagnrýnt stjórnvöld og
hernaðaryfirvöld fyrir slælega
framgöngu og lygavefnað, án þess
að eiga það á hættu að verða
skotnir eða sendir til Síberíu með
næstu lest. Þess vegna kemur
auðvitað að því að Kremlverjar
komast að því að það er ekki leng-
ur hægt að sópa öllum soranum
undir teppið, því það er búið að
kippa teppinu undan fótum
þeirra.
llvaó Jiarf til þess að einn
dagurí borgarumfeióinni
sé slysalaus?
(Lögreglan í Reykjavík stefnir
aðþví að dagurínn á morgun
verði slysalaus. Til samanbuið-
ar er 26. ágúst ífyrra þegar
25 óhöpp og þar af þrjú slys
urðu í borgarumferðinni.)
Sólveig Pétursdóttir
dóms- og kirkjumálaráðherra.
„Þetta er gott fram-
tak sem minnir okk-
ur á að öryggi í um-
ferðinni er á ábyrgð
ökumanna fyrst og
fremst. Eg tel að
með því að fylgja
umferðarreglunum og sýna tillits-
semi, og um fram allt með því að
flýta okkur hægt, getum við forðast
þau slys sem nú eru því miður dag-
legt brauð. Sem betur fer taka
margir ökumenn hlutverk sitt al-
varlega, en því miður ekki allir.
Þess vegna þurfum við líka mark-
visst eftirlit lögreglu. Vonandi sjá-
um við á fimmtudaginn að slysa-
laus dagur í höfuðborginni er ekki
aðeins fjarlægur draumur, heldur
raunverulegur möguleiki. Þegar
upp er staðið veltur það á öku-
mönnum sjálfum."
Ragnheiður Davíðsdóttir
forvamafliUtríd VÍS.
„Kraltaverk, það er
ekkert flóknara.
Einnig þurfum við
þjóðarvakningu. En
markmiðið er auð-
vitað göfugt - en ég
held að meira þurfi til en að senda
tölupóst á fólk sitt á hvað og hvet-
ja það til að vera fara varlega. Á
suma dugar þetta en á aðra ekkert
nema löggæsla og agi. Eg vona
auðvitað að kraftaverk gerist á
fimmtudaginn - raunhæft væri að
búast við að slysunum myndi
fækka um helming frá þeim degi í
fyTra sem er til samanburðar."
HrannarB. Amarson
borgarfliUMi.
„Fyrst og fremst
held ég að borgar-
búar þurfi að taka
góða skapið og þol-
inmæðina með sér í
umferðina, en allra
best væri auðvitað ef menn legðu
bílnum og nýttu sér heilbrigðari
samgöngumáta, eins og að ganga
til vinnu, bjóla eða fara með
strætó. Vonandi er fólk farið að
átta sig á því að umferðarmenning
okkar Islendinga er citthvað meira
en lítið undarleg og fyrr eða seinna
verðum við að taka okkur tak og
bæta ástandið.“
Gylfi Guðjónsson
ökuketmari íMosfellsbæ.
„Samræma og efla
þarf löggæsluna og
auglýsa átakið vel
með herfcrð í sjón-
varpi. Eins og stað-
an er núna er þjóð-
félagið orðið sjúkt af agaleysi og á
því þarf að taka. Ég er alveg klár á
því að fækka má slysum á fimmtu-
daginn ef lögreglan verður vel
sýnileg úti á götunum og lætur
engin umferðarlagabrot líðast.
Hins vegar hefur það óskaplega Iít-
ið að segja þó OIi H. og allir hinir
í Umferðarráði séu nieð þetta út-
varpsspjall sitt.“