Dagur - 30.09.2000, Side 2
26 —LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
. FRÉTTIR
Gáleysi hafi
leitt ul dauða
Þrátt fyrir að hafa
viðurkeimt að hafa
skotið þremur skotum
í höfuð föður síus var
uugur maður aðeius
dæmdur í skilorð-
buudið faugelsi í hér-
aðsdómi í gær.
„Ég trúi þessu ekki,“ hvíslaði
ákærði, 21 árs gamall maður, eft-
ir að Héraðsdómur Norðurlands
eystra komst að þeirri niður-
stöðu að 4 mánaða skilorðs-
bundin fangavist væri hæfileg
refsing fyrir brot hans. Hann
faðmaði verjanda sinn og nána
ættingja sem voru viðstaddir
dómsuppsöguna á Akureyri i
gær. Síðan brast hann í mikinn
grát og var sýnilega jafnþakklát-
ur og hann var hissa.
Fá mál hafa vakið meiri athygli
undanfarið en harmlcikurinn að
Bláhvammi í Reykjahreppi þegar
ákærði skaut þremur skotum í
höfuð föður síns, aðfararnótt 18.
mars sl. Við aðalmeðferð málsins
viðurkenndi ákærði að hafa ban-
að föður sínum en sagði að
hann hefði ætiað að taka eigið
líf. Fyrsta skotið hefði verið voða-
skot en hin seinni tvö afleiðing
stundaræðis. Héraðsdómur fellst
greinilega á þetta og segir í
dómnum: „Telur dómurinn að
með þessu atferli sínu hafi
ákærði sýnt gáleysi við meðferð
skotvopnsins sem leiddi til dauða
föður hans þannig að varði við
215. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19, 1940. Verður ákærða því
gerð refsing fýrir það brot sem
þykir hæfilega ákveðin fangelsi í
4 mánuði.“ Skilorðsbundið eins
og áður segir.
Erfiðar aðstæður
Tæknilega taldi ákæruvaldið að
saga ákærða gæti ekki átt við rök
að styðjast og vísaði þá til stað-
hátta á vettvangi manndrápsins.
Dómurinn segir hins vegar: „Er
það mat dómsins samkvæmt því
sem hér hefur verið rakið, að
ekkert hafi komið fram í málinu
sem útiloki að framburður
ákærða fyrir dómi geti verið rétt-
ur í öllum meginatriðum, en ekki
er hægt að gera þá kröfu til
ákærða að hann sé fær um að
lýsa nákvæmlega staðsetningu
sinni við rúm föður síns eða
hvernig hann hélt á rifflinum."
Skilja má af dómnum að rann-
sóknin hafi Iiðið fyrir það að
Ákærði á leið inn í héraðsdóm á Ak-
ureyri ígær í fylgd lögreglumanns.
mynd: sbs
búið var að spilla sönnunargögn-
um þegar lögreglan fór fyrst að
rannsaka málið sem morðmál. I
fyrstu var talið að um sjálfsvíg
hefði verið að ræða og var mun-
um fargað í kjölfarið og húsgögn
færð til. Það var fyrst þremur
dögum eftir að Þórður hringdi í
lögregluna og tilkynnti um Iát
föður síns, sem hann var hand-
tekinn.
Einnig kemur fram að Kristján
M. Magnússon sálfræðingur segi
í niðurstöðu sálfræðirannsóknar
sinnar, að tilfinningalega þurfi
mikla firringu og reiði til að
beina byssu að andliti nákom-
innar manneskju og hleypa af.
Ekkert kom fram sem studdi að
ákærði vildi föður sinn feigan, að
mati dómsins.
Harmleik lokið
Örlygur Hnefill Jónsson, verj-
andi ákærða, var ekki búinn að
lesa dóminn þegar Dagur innti
hann viðbragða í gærkvöld. Það
mátti hins vegar skilja af máli
hans að ólíklegt væri að dómn-
um yrði áfrýjað. „Þetta mál hefur
verið mikill harmleikur og ég
held að það væri hest að ljúka
þvf. Dómararnir hafa fallist á
þær forsendur varnarinnar að
um slys væri að ræða,“ sagði Ör-
lygur Hnefill. Akærði er því frjáls
maður eftir að hafa setið bak við
Iás og slá frá 22. mars eða í rúm-
lega hálft ár. Lögmaður hans
sagði ekki tímabært að ræða
hugsanlega skaðabótakröfu á
hendur ríkinu.
Freyr Ófeigsson kvað upp
dóminn en Halldór Halldórsson
og Ásgeir Pétur Ásgeirsson voru
meðdómendur. - BÞ
Nýi bankinn kynntur blaðamönnum í
gær.
NýrbanMí
Lúxemborg
Búnaðarbankinn sótti síðastlið-
inn miðvikudag um Ieyfi yfir-
valda bankamála í Lúxemborg
til þess að stofnsetja banka þar,
og lagði inn ítarlega skýrslu með
umsókninni. Þegar hafa verið
ráðnir tveir bankastjórar við nýja
bankann. Þeir eru Yngvi Örn
Kristinsson, framkvæmdastjóri
peningamálasviðs Seðlabanka
Islands, og hinn danski Alf
Muhlig, aðstoðarbankastjóri
Uninon Bank of Norway
International í Lúxemborg. Báð-
ir hafa þeir umtalsverða reynslu
á alþjóðlegum fjármálamarkaði,
og Yngvi Örn hefur verið einn af
Iykihnönnum í mótun nýrrar
umgjarðar um fjármálamarkað-
inn hér á landi á undanförnum
áratug.
Þegar er búið að festa hús-
næði í Lúxemborg fyrir bankann
og starfsmenn verða í upphafi
12 til 1 5, þar af um þriðjungur-
inn Islendingar. Eigið fé bank-
ans er um 1300 milljónir króna,
en bankinn mun veita sérbanka-
þjónustu og stunda lánastarf-
semi auk þess að starfa á verð-
bréfa- og gjaldeyrismörkuðum.
Fyrir eru 209 erlendir bankar
með starfsemi í Lúxemborg. - GB
Landhelgisstríðið
ekkitilnems?
Formaður sjávarút-
vegsnefndar er ekki
hrifinn af hngmynd-
um utanríkisráðherra
um hvort leyfa eigi út-
lendingum að fjár-
festa í sjávarutvegi.
Skiptar skoðanir imi
málið innan Fram-
sóknarfLokksins.
Einar K. Guðfinnsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks og formaður
sjávarútvegsnefndar, er ekki sam-
mála Halldóri Ásgrímssyni utan-
ríkisráðherra um að tímabært sé
að skoða hvort leyfa eigi útlend-
ingum að fjárfesta í íslenskuin
sjávarútvegi. Svanfríður Jónas-
dóttir, sem situr í sjávarútvegs-
nefnd fyrir Samfylkinguna, telur
að fara verði mjög varlega í er-
lendar Ijárfestingar í útgerðinni
en hún telur þó galla núverandi
fyrirkomulags vera augljósa.
Skoðanir eru skiptar meðal fram-
sóknarmanna.
„Með því að heimila erlenda
eignaraðild að útgerðinni, mynd-
um við hleypa útlendingum inn í
íslenska landhelgi og það finnst
mér snautlegur endir á landhelg-
isstríðinu,“ segir Einar K. Guð-
finnson. Hann telur hins vegar
að vel komi til greina að útlcnd-
ingar l'ái að fjárfesta í hrcinum
fiskvinnslufyr-
irtækjum sem
ekki hafi eign-
arleg tengsl
við útgerðina.
Einar segist
ekki geta spáð
íyrir um vilja
Sjálfstæðis-
flokksins al-
mennt í þess-
um efnum,
enda hafi hug-
myndir ekki
komið form-
lega til umræðu.
Alvarleg þróun
„Heilt yfir finnst mér að það sé
skylda okkar að vera opin fyrir
þessu rnáli," segir Svanfríður Jó-
hannesdóttir. Hún minnir á að
hún hafi þegar flutt tillögu um
að útlendingar ættu að mega
íjárfesta í allri fiskvinnslu en seg-
ir um útgerðina að menn verði
að horfa til þeirra afleiðinga sem
sameining kauphallanna veldur.
„Það er auðvitað alvarlegt mál að
íslenskur sjávarútvegur og þau
fyrirtæki sem eiga umtalsverðan
hlut í honum verði hornkerlingar
þegar íslenskur hlutabréfamark-
aður opnast með sameiningu
kauphallanna. Þess vegna veröur
að skoða hvað gera þarf til þess
að útgerðin geti þegið erlent
áhættufjármagn sem hlutafé.
Mér finnst brýnast að skilgreina
annars vegar þjóðareign fiski-
miðanna og hins vegar hvaða
réttindi felist í því að fá að veiða
á Islandsmiðum. Ég sé ekki fyrir
mér að útlendingar komi hingað
til að stunda útgerð. Ég sé hins
vegar fyrir mér að þeir geti hugs-
að sér að fjárfesta í verkefnum ís-
lenskum sjávarútvegsfyrirtækj-
um,“ segir Svanfríður.
Verður að ræða
Hjálmar Árnason, meðlimur í
sjávarútvegsnefnd og flokksbróð-
ir Halldórs, segir að sér lítist vel
á að þessar hugmyndir séu skoð-
aðar. Það sé tímanna tákn að ís-
lendingar séu farnir að fjárfesta í
sjávarútvcgi grannþjóðanna og
spurningin sé hvort hið gagn-
kvæma sé ekki eölilegt. Þegar sé
farið að bera á þessu í gegnum
hlutabréfakaup.
Hljóta þó ekki að vera skiptar
skoðanir-um þetta meðal fram-
sóknarmanna? „Örugglega eru
skiptar skoðanir um þetta mál en
það er einhugur innan flokksins
um þá djörfung að taka málið til
umræðu líkt og ESB,“ segir
Hjálmar.
Halldór Ásgrímsson var á
fundi með nemendum Viðskipta-
háskólans á Bifröst þegar hið
nýja viðhorf hans kom fram.
Halldór var mjög andv'fgur þess-
ari hugmynd á sínum tíma en
telur nú Iíkt og fleiri að útlend-
ingar séu þegar komnir fram hjá
núverandi rcglum með fjárfest-
ingum í hlutafélögum.
Sjá viðbrögð fleiri aðila í
„Spurt og svarað“. - Bl>
Einar K Guðfínns-
son: Snautlegur
endir á landhelgis-
stríðinu.
GoPro fær viður-
keimingu
Hugbúnaðarfyrirtækið GoPro,
sem er í eigu Islendinga, hlaut nú
í vikunni tvöfalda viðurkenningu
frá hugbúnaðarfyrirtækinu Lotus
Development Corp. Verðlaunin
nefnast Lotus Euro Beacon og eru
veitt fyrir Iausnir á sviði netvið-
skipta. Per Bendix Olsen, framkvæmdastjóri
Annars vegar hlaut fyrirlækið GoPro Europe og BjörnÁrsæll Pét-
Hugvit hf. viðurkenningu fyrir ursson, markaðsstjórit GoPro með
bestu Iausnina á sviði netviðskipta, verðlaunagripina.
en hins vegar hlaut Scia A/S sér- <
staka viðurkenningu fyrir hugbúnað sent gerir fyrirtækjum kleift að
vinna með skrár yfir viðsldptavini í farsímum. Bæði þessi fyrirtæki
eru í cigu GoPro móðurfyrirtækisins, sem er í eigu Islendinga.
Meira en 4.000 fyrirtæki í Evrópu, Asíu og Austurlöndum nær geta
sótt um að hljóta þessa viðurkenningu frá Éotus. - GB
Eignast í Skinnaiðnaði
Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar hefur eignast 15 milljóna króna
hlut að nafnvirði í Skinnaiðnaði hf. Hluturinn svarar til um það bil
17,5% hlutar í félaginu, en sjóðurinn átti engan hlut í Skinnaiðnaði
fýrir. Þessi viðskipti eru gerð á grundvelli breytanlegs skuldabréfs
sem Framkvæmdasjóður Akureyrar átti og er þetta nýtt hlutafé í
Skinnaiðnaði hf. - SBS.
Lögreglan með fjölmiðlanefnd
Ríkisrögreglustjórinn hefur ákveðið að setja á fót starfshóp til að gera
tillögur um samskiptareglur lögreglu og fjölmiðla. Þetta kemur fram
á vefsíðu embættisins. Arnar Guðmundsson, skólastjóri Lögreglu-
skóla ríkisins, mun leiða starfshópinn og Helgi Magnús Gunnarsson,
lögfræðingur hjá ríkislögrcglustjóra, á þar einnig sæti. Ríkissaksókn-
ari tilnefnir fulltrúa í hópinn og óskað hefur verið eftir tilnefningu
frá lögrcglustjóranum í Reykjavík. Jafnframt hefur hefur Blaða-
mannafélagi Islands verið sent erindi þar sem félaginu er gefinn
kostur á að tilnefna sinn fulltrúa í hópinn.