Dagur - 30.09.2000, Síða 11

Dagur - 30.09.2000, Síða 11
LAUGARDAGVR 30. SF.PTEMBER 2000 - 3S D&pir- ERLENDAR FRÉTTIR L a Bðm pyntuö og myrt íyrir fram- an myndavélar Hundruð ítala eru kaupendur að barna- klámi sem er grófara og hryUilegra en hægt að að lýsa með orð- um. Upp hefur verið komið um sölu á mvndböndum og mynddiskum sem á var gróft og óhugnanlegt barnaklám. Nokkrir þeirra sem keyptu og dreifðu efninu hafa verið handteknir, en alls er vitað um 1700 manns sem hafa hrvll- inginn undir höndum. Meðal hinna handteknu er einn Rússi, en myndirnar voru teknir upp í Rússlandi þar sem þrír menn hafa verið handteknir, grunaðir um að eiga hlutdeild að fram- leiðslu klámsins. Á ltalíu hefur málið vakið feikimikla athygli og óhug. Það er ekki aðeins að börnunum sé misþyrmt kynferðislega, heldur eru þau pyntuð hroðalega og myrt fyrir framan myndavélarn- ar. Enginn vafi leikur á að ekki er um tæknibrellur að ræða. Börnin eru svívirt og tekin af lífi til að svala þeim undarlegu hvöt- um sem einhverjir hafa til að horfa á svona myndefni. Fimm fréttamenn og frétta- stjóri sjónvarpsstöðvar á Italiu hafa verið reknir fyrir að senda út sýnishorn af barnakláminu. Þeir gengu of langt að að sinna upplýsingaskyldu sinni við al- menning. ltalska lögreglan fylgdist með sendingum sem komu frá Rúss- landi og höfðu að geyma þetta óhugnanlega efni. Klámið var auglýst á Netinu og kom það lög- reglu á sporið. Verðið fór eftir því hve gróft efnið var og dýrast- ar voru spólur og diskar þar sem misþyrmingarnar voru hrottaleg- astar og enduðu með morði. Italska lögreglan hefur sam- ítalskir lögreglumenn rannsaka vídeospólur og mynddiska með barna- klámi. vinnu við lögreglu í Rússlandi um að koma upp upp þessa glæpastarfsemi og hafa nokkrir menn verið handtcknir í Murm- ansk, en þaðan virðast spólurnar koma. Lögregluyfirvöld upplýsa að fórnarlömbunum hafi verið rænt af barnaheimilum, úr skól- um eða görðum. Yngstu börnin sern voru leikin svona hart voru aðeins nokkurra mánaða gömul. Viðbrögðin á ítaliu eru sér- staklega hörð vegna þess að sjónvarpsstöðin RAI Uno sýndi brot úr framleiðslunni í frétta- tíma og ofbauð fólki svo, að þeir sem báru ábyrgð á útsending- unni stóðu áttu ekki annars úr- kosta en að láta af störfum. Af- sökunarbeiðni dugði ekki. Áher- sla er nú lögð á að ná til sem flestra þeirra sem hafa spólur og diska frá harnaklámsframleið- endunum í Rússlandi undir höndum. Þá er fylgst gjörla með því að ekki séu fluttar fleiri svona myndir til Italíu. Barnaklám virðist vera góður söluvarningur því víða um lönd er verið að handtaka menn sem hafa það undir höndum og það er auglýst á Netinu þótt það varði við lög að senda það út eða dreifa eða hafa undir höndum. Fyrir nokkrum vikum voru 36 menn handteknir í Danmörku fyrir að dreifa eða eiga videó- spólur með barnaklámi þótt öll- um eigi að vera Ijóst að það stríð- ir gegn lögum og að hörð viður- lög liggi við ef hrotið er gegn þeim. Fjölþjóðasamvinna er um að berjast gegn framleiðslu og dreifingu á klámfengnu og hroðalegu efni og hefur lögreglu í nokkrum löndum tekist að koma upp um heilu hringana sem stunda þessa iðju. En Netið er samt sem áður notað óspart til að dreifa barna- klámi og sýnist sem bæði dreif- endur og kaupendur vilji heldur taka áhættuna á að þeir verði gripnir og dæmdir en að láta af kaupskapnum. „Kusu sig frá meiri hagvexti“ KAUPMANNAHfjFN - Yfirmenn evr- ópskra Ijármálastofnana sögðu ró hafa ver- ið yfir íjármálamarkaði í álfunni í gær þrátt fyrir að Danir hafi hafnað evrunni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hins vegar töldu fréttamenn sig merkja dálitla biturð í yfir- lýsingu stjórnarformanns Seðlabanka Evr- ópusambandsins, Wim Duisenberg, þegar hann sagði að með því að hafna evrunni hefðu Danir um leið neitað sjálfum sér um þátttöku í meiri hagvexti sem myndi verða innan vébanda myntbandalagsins. „Danska þjóðin hefur kosið að svipta sig þeim ávinningi sem felst í meiri hagvexti og heilbrigðara hagkerfi sem mun eiga sér stað og er þegar í gangi innan myntbanda- lagsins." Það er þó samdóma álit frétta- skýrenda bæði í Danmörku og í Evrópu að niðurstaða atkvæðagreiðsl- unnar sé ekki nema að litlu lcyti efnahagsáfall lýrir danskl peningamála- kerfi eða lýrir myntbandalagið sem slíkt. Pólitíska áfallið sé miklu alvar- legra, þar sem niðurstaðan setur spurningamerki við samrunaferlið í heild sinni og gefi efasemdarmönnum um ES víða í álfunni byr undir báða vængi. Paul Nyrup Rasmusen eftir atkvæðagreiðsluna. Hann er ekki kátur á svip. Borgaraleg óhlýðni í Serhíu BELGRAÐ - Skilaboð um að grípa til almennrar borgaralegrar óhlýðni gengu manna á milli í Júgóslavíu í gær og eru þau liður í baráttu stjórn- arandstæðinga til að þröngva Milocevic forseta til að segja af sér eftir að hafa tapað kosningunum um síðustu helgi. Fyrirhuguð er aðgerðahrina sem samanstendur af fimm dögum verkfalla en hrinan hófst með stórum fundi í austurhluta Belgrað. Samkvæmt talsmönnum mótmælenda er því haldið opið að halda mótmælaaðgerðum áfram þar til Milocevic segir af sér. Hins vegar eru engin merki um að fararsnið sé á forsetanum sem hefur í samráði við sína menn hafið undirbúning seinni hluta kosning- anna, sem kunnugt er hefur Kostunica, ólvíræður sigurvegari um síðustu helgi, neitað að taka þátt í þessari seinni umferð á þeim forsendum að hann sé þegar búinn að vinna kosningar. Trudeau látinn MONTREAL - Pierre Trudeau, fyrrver- andi forsætisráðherra Kanada er látinn, 80 ára að aldri. Hann var leiðtogi Kanada í 16 ár og var þrotlaus baráttumaður fyrir því að halda Kanada sameinuðu í einu ríki. Stjórnmálastíll Trudeaus var heims- mannslegur en um leið framhleypinn og mörgum þótti hann nánast hrokafullur. Hann var leiðtogi Frjálslyndaflokltsins og varð forsætisráðherra árið 1968 í sann- kölluðum persónusigri sem stundum var kölluð „Trudeaumanía“. Það þótti sýnu merkilegra að engin hefð er fyrir slíkri for- ingjadýrkun í Kanada. Hann var auðugur maður þegar hann kom inn í pólitíkina og persónutöfrar hans héldu honum á toppi stjórnmálanna fram til 1984 þegar hann hætti. Allan þann tíma var hann forsætisráðherra ef frá er talið 9 mánaða tímabil 1979-80. Einkalíf Treudeu þótti ekki síður skraut- legt og var kona hans, Margrét iðulega á síðurn slúðurblaða, enda uppá- tektarsöm. Pierre Trudeau. FRÁ DEGI TIL DflGS LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 274 dagur ársins, 92 dagar eftir. Sólris kl. 7.34, sólarlag kl. 18.59. Þau fæddust 30. sept. • 1765 José María Morelos, prestur og sjálfstæðishetja í Mexíkó. • 1882 Hans Geiger, þýskur eðlisfræðing- ur sem fann upp Geiger-mælinn til mælinga á geislavirkni. • 1905 Michael Powell, breskur kvik- myndaleikstjóri. • 1910 Jón G. Sólnes alþingismaður. • 1924 Truman Capote, bandarískur rit- höfundur. • 1941 SteinarJ. Lúðvíksson ritstjóri. • 1947 Gunnar 1. Birgisson bæjarfulltrúi í Kópavogi. Þetta gerðist 30. sept. • 1148 varð bæjarbruni á Mýrum, Hítar- dalshrenna. Þar fórust mcira en 70 • 1791 var Töfraflautan eftir Wolfgang Amadeus Mozart frumsýnd í Vínarborg. • 1938 ákváðu breskir, franskir og ítalskir stjórnmálaleiðtogar að friðmælast við Adolf Hitler með því að leyfa honum að innlima Súdetahéruðin í Tékkóslóvakíu. • 1946 voru 22 þýskir nasistaleiðtogar dæmdir sekir um stríðsglæpi af alþjóða- dómstólnum í Núrnberg. • 1955 fórst bandaríski leikarinn James Dean í bílslysi í Kaliforníu. • 1966 hóf Sjónvarpið útsendingar, en fyrst í stað var aðeins sjónvarpað tvo daga í viku. Vísa dagsins Einn hef ég barn d óstyrkum fótum tifað, einn hcf égfullorðinn þarfliilar bæknr skrifað, einn hef óg vitað mín álög sem varð ekki bifað, einn mun ég heyja mitt stríð þegar nóg er lifað. Jón Helgason Afmælisbam dagsins Rithöfundurinn og nóbelsverolaunahaf- inn Elie Wiesel fæddist í Transylvaníu þann 30. september árið 1928. Hann var 15 ára gamall þegar nastistar réðust inn í þorpið hans árið 1944, og hann var ásamt fjölskyldu sinni fluttur til út- rýmingarbúðanna í Auswichitz. Eftir stríðið bjó hann um skeið í Frakklandi ef fluttist 1956 til Bandaríkjanna þar sem hann hefur búið síðan. Hann hef- ur skrifað töluvert af skáldskap og ferð- ast um heiminn að fiytja ræður þar sem umræðuefnið er gjarnan hlutskipti Gyðinga og hið illa í heiminum. Óttastu ekki að fara hægt; óttastu aðeins að standa í Stað. Kínverskt spakmæli Heilabrot Ein þessara fimm setninga er frábrugðim hinúm. Hverþeirra er það og að hvaða leyti sker hún sig úr? Tekið skal fram að það hef- ur hvorki með merkingu setninganna að gera né málfræðilega eiginleika þeirra. Hallgrímur renndi allri fæðunni niður Sigurður plataði Olaf illilega. Magnús átti vandlega uppgert reiðhjól. Ragnar elti Finn upp rennuna. Lausn á síðustu gátu: 2.250 er lægsta tal- an sem allar tolur frá 1 til 10 ganga upp í. Veffang dagsins Bandaríska Helfararsafnið cr á Nelinu: www.ushmm.org manns.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.