Dagur - 10.10.2000, Blaðsíða 1

Dagur - 10.10.2000, Blaðsíða 1
 KLofningiir og trúnað arbrestur Starfsmenn álversins ræða um Lnmahækk anir í tveimur fyUdng- um. Iðnaðarmenu og ófaglærðir. í fyrsta sMpti. Nýtt launa- kerfi. Þrjú dómsmál. Stéttarfélög starfsmanna í ís- lenska álverinu í Straumsvík ganga í fyrsta skipti í tvennu lagi til samninga um launahækkanir við Samtök atvinnulífsins. Það þýðir annars vegar að iðnaðar- menn ætla að semja sér og hins vegar félög ófaglærðra. Hannes Sigurðsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri SA segir að þetta hafi í för með sér tvöfalt fleiri fundi. Þá virðist sem algjör trún- aðarbrestur sé í samskiptum iðn- aðarmanna við forráðamenn ál- versins. Af þeim sökum m.a. tel- ur forysta Rafiðnaðarsambands íslands að ekki sé forsvaranlegt að semja til lengri tíma en hálfs árs. Á sama tíma hafa félög ófaglærðra rætt um 1-2 ára samning. Kjarasamningur starfs- manna álversins rennur úr gildi 1. desember n.k. og eru viðræður hafnar um gerð nýs samnings samkvæmt viðræðu- áætlun. \ýtt launakerfi Guðmundur Gunn- arsson formaður RSÍ segir að ástæðan fyr- ir þessari tvískipt- ingu vegna launa- þáttarins sé m.a. vegna framkominna ásakana frá ófaglærðum um að iðnaðarmenn standi í veginum fyrir því að þeir fái réttmætar launahækkanir. Af þeim sökum hafi verið tekin ákvörðun um að gefa þeim svigrúm til að sækja þær. Hann bendir hins vegar á að verkamennirnir séu búnir að fá næstum helmingi hærri launa- hækkanir en iðnaðarmenn í und- anförnum samningum við álver- ið, eða 12-14% á móti 6-8%. Það sé m.a. vegna þess að iðnaðar- menn hafa tekið undir kröfur þeirra um að fá sér- stakar hækkanir. Aftur á móti séu iðnaðarmenn til- búnir að vera með ófaglærðum í við- ræðum um sameig- inlega þætti eins og t.d. ferðir, ferða- tíma, tryggingar, or- lofsmál og fleira í þeim dúr. I viðræð- unum til þessa hafa iðnaðarmenn sett fram kröfu um nýtt Iaunakerfi með fleiri launaflokkum og m.a. vegna tilkomu nýrra starfa. For- maður RSI segir að menn vilji enn fremur jafna þann mun sem orðið hefur á Iaunaskriði á al- rnenna markaðnum og launa- kerfi álversins. I þeim efnum hefur hallað svo mjög á álverið að þeir hafa átt í miklum vand- ræðum að ráða til sín rafiðnaðar- menn. Sem dæmi sé rafiðnaðar- maður í hæsta starfsaldursþrepi með vaktaþóknun hjá Isal með um 250 þúsund krónur á mánuði á sama tíma og meðallaun raf- iðnaðarmanns séu um 270 þús- und. Formaður RSI segir að þennan mun verði að leiðrétta. Trúnaðarbrestur Hann segir að það ríki enn frem- ur fullur trúnaðarbrestur á milli Isal og RSI. Það sé m.a. vegna þess að sambandið hefur þurft að standa í málaferlum á annað ár vegna félagsmanns sem lenti í vinnuslysi í álverinu. Þótt þess- um slag hafi lokið með sigri RSI í þremur málaferlum þá telur formaður sambandsins að fram- koma og vitnisburður íyrirtækis- ins í þessu máli hafi verið með þeim óh'kindum sem menn hafa aldrei kynnst fyrr. Af þeim sökum þykir ástæða til að taka ýmsa þætti þessa máls upp við samn- ingaborðið. Þar má m.a. nefna fjölda manna á vöktum og að menn séu ekki einir við ýmis störf. - GRH Guðmundur Gunnarsson: Verður að leiðrétta mun. Þrír í gæslu- varðhald á Akureyri Þrír menn um tvftugt hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til nk. mánudags vegna innbrota á Akureyri. Þeir eru taldir hafa brotist inn í húsnæði Happ- drættis Háskóla Islands við Geislagötu sl. föstudagskvöld og stolið þaðan miklu magni af happaþrennum og 200.000 krónum í peningum. Jafnframt leikur grunur á aöild þeirra að fleiri innbrotum. Mennirnir voru handteknir á laugardagsmorgun og úrskurð- aðir í gæsluvarðhald daginn eft- ir. Að sögn Daníels Snorrasonar, fulltrúa hjá rannsóknardeild lög- reglunnar á Akureyri, hafa mennirnir einnig viðurkennt innbrot í togara þar sem brotist var í lyljakistur og fleiri mál eru til skoðunar. - BÞ Gervilöggiir á gægjum Búið er að setja upp nýstárleg skilti við Reykjanesbraut til að minna ökumenn á umferðar- reglur. Um ræðir 12-14 lög- reglumenn í fullri stærð og er uppsetning þeirra liður í átaki til aukinnar vitundar ahuennings um hættur umferðarinnar. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflug- velli, segir að hugmyndin að lögguköllunum hafi kviknað innan hóps sem stendur að átaki um bætta umferð á Reykjanes- braut. „Þessi hugmynd fæddist í okkar hópi en svo fréttum við það eftir á að þetta mun vera til í Bandaríkjunum. Þar hafa svona fígúrur verið settar upp í búðum með háa tíðni rána en við vissum ekkert af því fyrr en eftir á,“ segir Jóhann. Á að vera lifandi Sýslumaður telur sýnt að fæl- ingaráhrif lögguskiltanna verði einhver og vonast til að skiltin fái að vera í friði. I skoðun er framhaldsnotkun eftir að átak- inu lýkur. Ef vel gengur er lyrir- hugað að færa gervilöggurnar í skóla eða nálægt varasömum gatnamótum. „Þetta á að vera svolítið lifandi,“ segir Jóhann. Ymsir lögreglustjórar standa að átakinu að frumkvæði dóms- málaráðherra. - BÞ Svona líta laganna verðir við Reykjanesbraut út og þarfekki að greiða þeim krónu í yfirvinnu! í i 1 1 1 j \

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.