Dagur - 10.10.2000, Page 2

Dagur - 10.10.2000, Page 2
2 - ÞRinjVDA G U R 10. OKTÓBKR 2000 FRÉTTIR Risaframkvæmd setur allt á hvolf í óbirtri skýrslu fyrir iðuaðarráðuueytið segir að viðskiptahall- iuu muui stóraukast og að draga verði úr framkvæmdum aun- ars staðar á laudiuu á framkvæmdatima ál- vers- og virkjuuar- bygginar á Austur- laudi I fyrirspurnartíma á Alþigi í gær nefndi Arni Steinar Jóhannsson óbirta skýrslu, sem samin hefur verið fý'rir iðnaðarráðuneytið um hvaða áhrif bygging Kárahnjúka- virkjunar og álvers við Heyðar- fjörð hefur á íslenskt efnahags- og athafnalíf meðan á bygginga- tímanum stendur. „Eftir því sem ég hef fregnað af þessari skýrslu eru meginnið- urstöður hennar þær að við- skiptahalli landsins stóreykst á framkvæmdatímanum. Það út af fyrir sig kemur engum á óvart. En það kemur líka fram í skýrsl- unni að afleiðingar slíkra stór- framkvæmda í landinu eru þær Árni Steinar Jóhannsson. að á framkvæmdatímanum verð- ur að stórdraga úr öllum öðrum framkvæmdum í landinu. Og það sem verra er, í heildarsam- hengi fyrir landið mun stórframkvæmd af þessu tagi við- halda þensluástandi á höfuð- borgarsvæðinu vegna þess að þar fara allir peningarnir í gegn,“ sagði Arni Steinar í samtali við Dag. Ofþensla Hann bendir á að í raun sé þetta stóralvarlegt fyrir höfuðborgar- Valgerður Sverrisdóttir. svæðið í ljósi þess að talsmenn vinnuveitenda segja að á allra næstu mánuðum og misserum verði til 10 þúsund ný störf í landinu. „Þess vegna hlýtur maður að spyrja hvað við erum að gera hvað varðar heildaráhrif risa- framkvæmda á landið í heild sinni. Eg hygg að það hrikti víða í ef ákvörðun verður tekin um þessar stórframkvæmdir og að menn muni sjá að slíkt muni leiða til ófarnaðar varðandi alla uppbyggingu í Iandinu í heild sinni. Það er alveg ljóst að allir aðrir staðir á landinu munu svelta meðan þenslan er fyrir austan þessi 6 til 10 ár sem framkvæmdirnar standa yfir,“ segir Árni Steinar Jóhannsson. Engin endurskoðun Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- ráðherra sagði í svari til Arna Steinars, þegar hann spurði hvort ekki væri ástæða til að end- urskoða NORAL verkefnið og allar tímaáætlanir þess í Ijósi efnis úr fyrrgreindri skýrslu, að hún teldi svo ekki vera. „Meiningin er sú að það liggi fyrir hvort af þessum fram- kvæmdum verður í fehrúar árið 2002. Eg er sammála forráða- mönnum Norsk Hydro og fleir- um um að marga þætti þessa máls þurfi að skoða gaumgæfi- lega og að nota tímann fram í febrúrar 2002 til þess,“ sagði Valgerður. Hún sagði að það væri rétt að viðskiptahallinn myndi aukast tímabundið við framkvæmdirnar en til lengri tíma Iitið væri verið að tala um milda gjaldcyrissköp- un og aukningu á þjóðarfram- leiðslu. - S.DÓR Kærumál enn óútkljáð vegna Ki'siliðjunnar við Mývatn. KÉsiliðiu- mál tefst Dráttur verður á því að um- hverfisráðuneytið muni úr- skurða um framtíð Kísiliðjunnar við Mývatn, þ.e.a.s. hvort tekið verður tillit til kærumála sem borist hafa vegna úrskurðar skipulagsstjóra. Skýringin er sú að málsaðilar óskuðu eftir lengri fresti vegna þess hve málið er viðamikið. I vikunni rennur út 8 vikna frestur sem gefinn var til um- sagnar frá því að kærufrestur rann út en nú er gert ráð fyrir að afgreiðsla málsins dragist allt til mánaðamóta. 1 bréfi umhverfis- ráðuneytisins til málsaðila kem- ur fram að eftirfarandi kærðu úrskurðinn til ráðuneytisins: Ingólfur A. Jóhannesson, Kári Þorgrímsson og Gylfi Yngvason, Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn, Náttúruvernd ríkisins, SUNN, Eysteinn Sigurðsson, Bergþóra Kristjánsdóttir, Hrafn- hildur Hannesdóttir og Málm- friður Einarsdóttir, Kísiliðjan, Fuglaverndarfélag Islands og Náttúruverndarsamtök íslands. - BÞ Beita upphrópum og útúrsnúningum Pétur Blöndal: „Ég þekki dæmi um hjón með hálfa milljón á mánuði og 7 milljóna króna skuld á bakinu eftir að hafa misst allar eigur sínar, sem teljast fátæk." Pétur H. Blöndal sakar fjölmiðla itm að hafa snúið ut úr orðum sín- um. Hann segir líka að margir vilji ekki heyra sannleikann. Mikið hefur verið gert úr þeim orðum Péturs H. Blöndals al- þingismanns að óregla sé snar þáttur í erfiðleikum eldri borgara. Um leið hafa allir litið svo á að sú óregla sem Pétur talaði um væri víndrykkja viðkomandi. „Þaiinig hefur verið snúið út úr þessum ummælum mínum. Ég sagði að það væru fjárhagsvand- ræði hjá mörgum hópum Jslend- inga vegna gjaldþrota, uppá- skrifta, glannaskaps í Ijárfesting- um og vegna óreglu. Þetta ætti eins við um eldriborgara og ör- yrkja og annað fólk í þjóðfélag- inu. Þessi fjárhagsvandi hverfur ekki þó að það verði öryrkjar eða eldist. Með óreglu á ég við bæði fjármálaóreiðu og áfengissýki. Það má víst ekki nefna óreglu þótt allir viðurkenni, þegar við þá er rætt, að það sé óregla á Islandi og ekki lítil. Eg sagði í sjónvarps- þætti um helgina að þær væru sennilega fáar fjölskyldurnar sem ekki vissu af óreglu í kringum sig. Mikið af þeim dæmum sem ég er að sjá um fátækt bæði hjá öryrkj- um, öldruðum og vinnandi fólki er vegna gjaldþrota og uppá- skrifta fyrir aðra cða glannaskaps í fjárfestingum. Eg þekki dæmi um hjón mcð hálfa milljón á mánuði og 7 milljóna króna skuld á bakinu eftir að hafa misst allar cigur sínar, sem teljast fátæk,“ segir Pétur dal. Upphrópanir Pétur segir að sér finnist um- ræðan um stöðu aldraðra og öryk- ja byggjast of mikið á upp- hrópunum. stað þess að kanna hvar vandinn liggur séu menn mcð upphrópanir. Við sig hafi haft sam- band barnlaus hjón, öryrkjar, sem eru með 209 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt og telji það afleit kjör. Þau sögðust vera í losti vegna hans. Margir bótaþegar ala önn fyrir fullorðnum vinnufærum börnum sfnum, sem eru sokkin í óreglu. „Hvað ætli það sé mikið um svona eða svipuð dæmi í þjóðfé- laginu. Það er ekki alltaf fólkið sjálft sem er í óreglu heldur ein- hver því nátengdur og fólk lætur ekki sína nánustu veslast upp. Þetta kemur í sjálfu sér trygg- ingakerfinu ekkert við. Oreglan er margs konar og hún cr víða,“ segir Pétur. Hann bendir líka á öll dæmin scm svo margir þekkja um fólk sem hefur verið að byggja sér stór einbýlishús eða keypt margra milljóna króna jeppa án þess að hafa í raun efni á því og farið flatt á öllu saman. Foreldrar verði svo flæktir í málið með uppáskriftum í vonlausri tilraun við að reyna að hjálpa þegar alvarlega bjátar á. „Forsvarsmenn aldraðra virðast viija slag og nota slagorð. Þeir segja fjölda aldraða eiga bágt en það er út í hött. Það þarf hins vegar að taka upp vitræna um- ræðu um þessi mál og finna hnökra á tryggingakerfinu og laga þá. Það gerist ekkert með slag- orðum,“ segir Pétur Blöndal. - S.DÓR Flugfélagið flýgur áfram til Grænlands Náðst hefur sam- komulag við heimastjórn Græn- lands um styrk til flugs frá Reykjavík til Kulusuk í vetur. Akveðið hefur ver- ið að fyrsta flugið þangað verði þann 14.10.2000 og verður flogið einu sinni í viku á laugardögum til áramóta til að byrja með en gert er ráð fyrir að heimastjórnin samþykki áframhaldandi styrk á árinu 2001, þannig að flogið verði áfram í seinni hluta mars á næsta ári. Frá lokum mars og fram í maílok verður síðan llogið tvisvar í viku en frá mánaðamótunum maí/júni og fram til loka sept- ember verður flogið alla daga nema sunnudaga. Aætlun félagsins er sett upp með tilliti til þess að farþegar sem ætla áfram til vestur- strandar Grænlands geti komist samdægurs til Syðri-Straumsfjarðar og til höfuðstaðarins Nuuk. Fulltrúar í flugnauð ræða saman Bæjarstjórinn á Húsavík, Reinhard Reynisson, hefur sent bréf til bæjarstjórna Siglufjarðar, Sauðárkróks, Hornafjarðar og Vestur- byggðar og hvatt til þess að þau sveitarfélög sem standi höllum fæti hvað varðar flugsamgöngur snúi bökum saman og beri saman sínar bækur. Jákvætt svar hefur borist frá öllum sveitarfélögunum og er Iík- legt að fundurinn verði haldinn í Reykjavík mjög fljótlega og stjórn- völd þar beitt sameiginlegum þrýstingi. Líklegt er talið að fulltrúar frá Þórshöfn og Vopnafirði taki einnig þátt í fundinum, en það eru þau sveitarfélag sem heyra til svokallaðs útboðsflugs. - GG Tveunt alvarlega slasað Tvennt eru alvarlega slasað eftir umferðarslys í Víðidal aðfaranótt sunnudags. Karl og kona um fimmtugt liggja á gjörgæsludeild Land- spítala - háskólasjúkrahúss og voru bæði í öndunarvélum í gærkvöld. Þau voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á spítala. FLUGFÉLAG ISLANDS Air Iceland

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.